Færsluflokkur: Bloggar
Áfram um Margréti Frímannsdóttur og dauðar grænar rósir...
8.4.2008 | 23:49
Ég veit ekki, það er einhvernveginn engin stemmari fyrir því að rembast við að vera eitthvað skondin þessa dagana. Kannski afþví að grænu rósirnar drápust þrem dögum eftir kaup...en það horfir til bjartari tíðar;
-nefnilega þegar ég er farin að hugsa um að lakka táneglurnar bleikar; þá er allt að fara að gerast.
Þegar kroppurinn er einsog KR búningur í laginu; þá eru það boð um að eitthvað mun meira en skemmtilegt er að fara að gerast; hef verið ötull stuðningsmaður ljósabekkjana illræmdu og er komin með afskaplega sætt og lekkert fiðrildi fyrir ofan rassinn minn.
Þegar bolirnir verða flegnari og pilsin styttast án þess að undan manni frýs;...jebb; allt að ske.
Yndislegasti tími ársins.
Ég fékk athugasemd frá skessa.blog.is um daginn sem hefur verið mér umhugsunarefni. Það var eitthvað á þá leið; Dáist að fólki sem gerir eitthvað í málunum án þess að rífast á kaffistofum. Með þetta skrifaði ég til Margrétar Frímanns og bað hana einungis um svör við tveimur einustu atriðum varðandi hugðarefni mitt um vist fanga á Litla Hrauni;
Læt bréfið fylgja hér að neðan;
Sæl Margrét,
ég vil byrja á því að segja þér að í gegnum tíðina hef ég verið ötull stuðningsmaður þinn, úr fjarlægð. Hef verið hrifin af þínum verkum einsog þorri þjóðarinnar, eða þar til nú í tengslum við þitt framlag til fangelsismála (að sjálfsögðu undanskildu þínu markmiði; vímuefnalaus fangelsi á Islandi).
Ég vil biðja þig vinsamlegst að kíkja á bloggsíðu mína þar sem ég er frekar harðorð í þinn garð og fá svör við tveimur atriðum í framhaldi;
heidathord.blog.is
1) stendur til að draga úr AA-fundarhöldum á Litla Hrauni?
2) afhverju fá fangar einungis 1 heita máltíð á dag?
Takk fyrir og bið ég þig vinsamlegast að gefa þér tíma til að svara við fyrsta hentugleika.
Bkv.
Heiða Þórðardóttir
Njótið mið-vikudagsins -helgin er framundan og allt að ske
Bloggar | Breytt 9.4.2008 kl. 00:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (45)
Margrét Frímannsdóttir er komin með lausnina á alcohol-isma! Húrra!
6.4.2008 | 21:30
Þó svo að ég hafi tekið þá ákvörðun að takmarka lestur og áhorf frétta þá er mér fullkunnugt um það sem er að ske í kringum mig. Ég hef líka hellingsskoðanir á mál-um og málefnum.
Samanber; er ég hlynnt því að herða refsilöggjöfina einkum í naugunarmálum, afbrotum, kynferðisofbeldi, morðum, ofbeldis og níðingsverkum.
Ég vil líka geta labbað um borgina mína án þess að ganga að því sem vísu að vera nauðgað, ég barin, limlest og niðurlægð....og það þó svo ég klæðist bleikum nærbuxum sem á stendur; Pussy.
Skaðabætur mættu hundraðfaldast mín vegna...þannig að fórnalömb verði ekki að gera það upp við sig þegar þeir fá einhverjar skitnar krónur...hvort eigi að rétta nefið...fá sér tennur í stað þeirra gömlu...hvort leita eigi sér hjálpar hjá geðlækni...í veikri von um að fá einhvern smá plástur á hjartasárin. Eða missin.
Sem þolandi grófs níðingsverks og náinn aðstandandi geranda, er ég enn sömu skoðunar. Þegar dómur féll i hæstarétti og var þyngdur um heilan helling og ég sat heima hjá mér...miður mín vegna þess að ég elska viðkomandi jafn mikið og sjálfa mig...var ég ennþá þeirra skoðunar. Þegar ég labbaði inn á Litla Hraun í dag...sama skoðun...þegar ég labbaði út að heimsókn lokinni...staðföst sem fyrr. Það segir ekkert til um ást mína til þessa einstaklings. Þetta er heilbrigð skynsemi að mínu mati.
Þannig að fullljóst og reynt er að ekkert fær breytt þeirri skoðun minni að ég vil harðari refsiramma.
Ég þori að fullyrða að flest þessara brota sem fangar á Litla Hrauni sitja inni fyrir eru gerð undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna. Að mestum hluta eru því þarna inni fíklar. Til að hafa stjórn á fíkn sinni þarf ástundun félagsskapar karla (og kvenna) sem samhæfa reynslu sína styrk og vonir í viðleitni sinni til að halda sig frá djöflinum. Svo er fullyrt að til þurfi að koma æðri máttur.
Þessi samtök sem um ræðir hafa verið við líði síðan 1938 (held ég fari rétt með) og engin hefur fundið betri lausn til að hafa stjórn á vímuefnasýki.
Þar til nú; Margrét Frímannsdóttir er komin með þetta! Hún er komin með lausnina! Húrra Húrra Húrra...nú skulum við öll klappa vel og hressilega!
Málið er nefnilega að Magga Frí....ætlar að draga saman AA-fundarhöld á Litla Hrauni. Hamla gjörsamlega vímuefnaflutning inn fyrir rimlana (sem er frábært)...og það sem meira er; hún ætlar í staðin fyrir fundina að koma með eitthvað annað! Annað? Hvað annað? Það hefur ekki ennþá fengist uppgefið hvað þetta annað er...en ég bíð spennt.
Þetta er svona svipað og ef heilbrigðisráðherra ætlaði að útríma krabbameinssjúklingum með þeim hætti að draga úr lyfjagjöf þar til henni væri hætt alveg og segja svo; jæja nú er þetta vandamál úr sögunni. Áfram gakk....allir í fullu fjöri!
Mér finnst þetta hræðileg þróun. Sá sem ég heimsótti í dag er laus undan fíkniefnadjöflinum og hafði verið um all-langt skeið áður en afplánun hófst. Hann er að bíða eftir því að komast á svokallaðan "edrú-gang" hann hefur fundið sinn æðri mátt svo um munar, búin að sækja um vinnu og inngöngu í skóla... og er í góðum málum með sjálfan sig. Nema ef vera skildi að hann hefur grennst tölvuvert;
Ástæðan?
Fangar á Litla Hrauni fá bara eina máltíð á dag! Kvöldmáltíðina elda þeir sér sjálfir og skipta kostnaði á milli sín. Dagpeningur þeirra eru kr: 630- , ef þeir eru ekki enn komnir með vinnu. Það gefur augaleið að þegar sælgætið í sjoppunni er á uppsprengdu verði og ef viðkomandi reykir í ofanálag...duga þessir aurar skammt.
Það þarf ekki flókið reiknisdæmi til að áætla að einhverjir leiðast út í eitthvað misjafnt þarna inni; einsog fíkniefnainnflutning.
Þetta er eitthvað allt annað en betrunarvist! Betrunarvist? Hverjum datt í hug að skýra afplánun sem þessa einhverja betrun. Andlegt fæði sem og matur eru í algjöru lágmarki.
Við fáum aldrei, aldrei betri einstaklinga út úr afplánun, ef áfram horfir sem frá er haldið...nei við fáum bitra einstaklinga uppfulla af hatri...vannærða stórhættulega sprenglærða glæpómenn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (36)
Ætli þeir klæði mig úr öllum fötunum?
6.4.2008 | 08:46
Það er svolítíð gaman að segja frá því hvað lífið mitt sveiflast öfgana á milli. Á allt eins von á því að vera gift kona á morgun.
Í gær var ég til að mynda stödd inn í stærsta tippi veraldar, samkvæmt nýjustu upplýsingum. Þarna var múgur af mörgum öðrum sæðisfrumum eða allt þar til heyrðist úr hátalarakerfinu; Allir út, allir út...núna verður pungurinn tæmdur!
Þegar ég svo hringdi til að kanna málið var mér tilkynnt að ástæðan hafi verið öryggi sem hafi farið og hátalarkerfið fari automatiskt í gang...
...hæglega gekk að fá fólk til snúa sér aftur inn í ilinn. Það væri ansi ljúft fyrir utan.
Þegar ég og strákurinn minn, ásamt Sólinni minni -komum heim fór strákurinn í bað. Eitthvað var ég orðin þreytt á tilbreytingaleysinu og þarna sem hann stendur á miðju stofugólfinu 10 mínútum síðar og ég sit út á svölum segir hann;
-mamma shit! er ég orðin geðveikur eða?
Nei nei elskan, þú ert í lagi....spurning með mig...
Sólargeisli einn, blíður og heitur, hafði fleygt þeirri hugsun inn í hausinn á mér að breytinga væri þörf- og á fimm mínútum fékk ég ideu-na og framkvæmi að breyta stofunni ...alveg.
Keypti mér í framhaldi grænar rósir í gærkveldi og hér ilmar allt af vori og fegurð.
Nú í morgunsárið er daman komin með öll samstæð undirföt fram á rúm og er mikið að spá og spekúlera...veit ekkert hvað ég á að fara í. Veit ekki út í hvað ég er að ana út í, - í dag. Nema að samstæða verður það;
ekki of sexi, ekki of lummó, ekki of casual... ekki -ekki -ekki....en alveg örugglega ekki -ekki nærbuxur.
Hef ekki hugmynd um hvernig svona athöfn fer fram. þetta er fyrsta skiptið mitt...ég sem hélt, að aldrei í lífinu myndi ég lenda í svona aðstöðu... hef verið að hugsa með sjálfri mér;
-ætli ég verði berstrýpuð? Ætli þeir kíki upp i rassinn og á mér og leggöng? Púff ætti kannski að snyrta pjöllu og leggi... nei fjárinn hafi það -gerði það í gær.
Læt ykkur klárlega vita hvernig gekk....eða ekki.
Sá annars einhver greinina mína sem birtist í mogganum í gær, laugardag?
Vona að þið njótið öll sem eitt þessa yndislega dags. Spurning með mig; veltur mikið á því hvernig ég tek mig út á nærfötunum ... eða án þeirra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Ofvirk í hausnum
1.4.2008 | 22:29
Það er ekkert til á mínum bæ sem kallast; bloggstífla.
Ég er einfaldlega hrædd við sjálfa mig, ég er svo ofvirk í hausnum...vegna þessa og einnig þreytu í öllum útlimum...bið ég ykkur vel að lifa í bili...og í guðana almáttugs-bænum...látið ykkur nú dreyma eitthvað fallegt. Dyrnar að minni veröld er alltaf nærbuxnalaus og galopin...
... later
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Mig langar til að klippa táneglur...
31.3.2008 | 22:38
Alltaf kemur lífið á óvart! Einsog í morgun þegar ég leit út um gluggan, að mínu viti svo snemma að það jaðrar við geðveiki. Bílaplanið var alsett snjó! Hvað er verið að pota vorilmi í nebbann á manni og kasta svo snjó niður úr loftinu og alla leið á bílinn minn. Einstaklega smekklegur húmor.
Ég veit ekki hvað það var, gera, en þarna sem ég stóð við svalahurðina mína, fékk ég allt í einu logandi samviskubit og var yfirfull af eftirsjá.
Málið er að ég er svona sambland af; pabba, mömmu og Siggu ömmu. Útkoman er æði skrautleg... ég er hálfgerður sauður, en samt gölli, afar góð en get um leið verið tík. Á köflum geggjuð, kjaftfor og frek. En óttalega meinlaust grey samt sem vil öllum vel. Engin dramadrottining en samt algjör pest á köflum. Feiminn en samt ekki...
Ég fékk samviskubit yfir því við svalahurðina, að hafa ekki haft lyst á að klippa táneglurnar á henni ömmu minni á meðan hún lifði. En ég bjó hjá henni til 17 ára aldurs. Eða þar til að einn eðal-riddarinn hreif mig á braut í mína fyrstu sambúð. Ég held að hafi einhverntíma komið þvi að hér; að ég er afar klígjugjörn. Það að klippa táneglur á öðrum en börnunum mínum, finnst mér bara alls ekkert "sexi" tilhugsun. Þarna sem ég stóð í morgun við hurðina, langaði mig svo að fá ömmu, bara rétt til að snyrta á henni tá-neglurnar...eða þannig.
Einhverra hluta vegna verða allir dýrlingar þegar þeir eru komnir yfir móðuna miklu. Gallar viðkomandi og óljúf karaktereinkenni verða að gulli slegnum demöntum. Ég held það væri alveg inn í myndinni, til að koma í veg fyrir þessa andstyggðar-tilfinningu sem samviskubit er; að bera meiri virðingu fyrir því sem lifir. Öllu sem lifir.
Þegar ég er farin að hugsa um að mig langi til að klippa grjótharðar táneglur á ömmu minni...þá er tími til að kíkja aðeins í kringum sig, á þá sem eru mér á meðal.
Það er deginum ljósara.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Hjartastopp
30.3.2008 | 23:31
Afhverju erum við læst inn í steypukassa alla daga, látum okkur lítt varða þó karlinn á neðri hæðinni sé búin að liggja dauður inni hjá sér í rúmt ár? Látum okkur standa á sama þó nályktina leggi af vitum okkar. Nálykt af einmannaleika.
Afhverju erum við hætt að "banka" uppá hjá hvort öðru og ganga svo rakleiðis inn...einsog einu sinni. Oh ég man, ég man...muniði þegar fólk heimsótti hvort annað? Fékk sér vínarbrauð og kaffi.
Ég fékk svona hálfgert "flash-back" seinnipart dags. Þurfti að skjótast suður að sækja "gögn". Ég hafði gleymt tvennu smálegu...það er; ég gleymdi að pissa og ég gleymdi að borða.
Ég brunaði með logandi hlandsperring í blöðrunni og öskrandi maga undir óaðfinnanlegu og straujuðu útlitinu. Þegar ég staðnæmdist við grátt virðulegt steinhúsið sá ég þrjá bíla í hlaðinu. Einhver hlaut að vera heima. Hjúkkit! Mamma hafði keypt þetta hús fyrir 18 árum, nema sá hængur varð á; hún flutti aldrei inn í húsið. Bara karlinn -með son þeirra beggja.
Ég opnaði hurðina einsog ég hafði gert oft áður, um leið og ég renndi niður pilsinu mínu að aftan... og kallaði;
-GUNNI.....GISLI !
Þögnin svaraði mér með opinni ískaldri klósettskál. Ég settist og tók eftir að á gólfinu lá Lesbók Morgunblaðsins. Annað hvort Gunni eða Gísli hafði fengið sér að kúka með lestrinum, þennan sama morgun. Ég glotti ein með sjálfri mér, ásamt kaldri klósettsetunni. Karlmenn! hugsaði ég. Það er kjaftæði að þeir geti ekki nema einn hlut í einu! Þeir kúka og þeir lesa...
...allavega eftir að hafa tekið út verkið fyrir framan spegilinn og þvegið hendur mínar, tók ég einn rúnt um neðri hæðina. Ég þurfti að hafa mig alla við að stökkva ekki beint í tiltekt. Þvílíkt og önnur eins óreiða! Ég rölti mér inn í eldhús og sá piparkökur í boxi. Borðaði fjórar standandi við gluggann og naut þess að finna til í þessu húsi. Finna einhvernveginn fyrir sjálfri mér. Einhverjar minningar tróðu sér að ... ég flúði áður en þær náðu tökum á mér...
...í framhaldi af þessu varð mér hugsað hvað væri heimilislegt þegar hýbýli fólks væru bara opin. Í dag fæ ég taugaáfall ef einhver hringir hjá mér bjöllunni. Taugaáfall. Fall á taugarnar. Um daginn skeði það að bjallan hringdi og ég átti ekki von á neinum. Ég man hvernig blóðið fraus í æðum mínum, hjartað stöðvaðist, klukkur heimilisins héldu í sér andanum og loks henti ég mér inn í skáp og var þar ...lengi vel. (aðeins fært í stílinn...en ekki mikið sko...)
Ég hef aldrei komist að því hver var fyrir utan....kannski einhver að stefna mér? axarmorðingi? nauðgari? (nei varla svo heppin)...kannski bara trÚboðinn Gísli, sem hittir alltaf á mig berrassaða...kannski einhver krakkinn sem hafði gleymt lyklinum inni...kannski kannski kannski...
Hvað veit ég svosem? En þetta var mjög óþægilegt.
Lífið er auðvitað geðveikislega geggjað! Og á eftir að verða enn betra...samanber það að við fjarlægumst hvort annað með hverju árinu...og við tekur endalaust og aðeins (öruggt) cybersex. Í sannleika sagt get ég ekki beðið!
Skítt með nánd og tilfinningakjaftæði, einsog mamma mín kom svo réttilega inná; þessu fylgir bara subbuskapur...ég hef aðeins fengið smjörþefin af framtíðinni, hvað þetta varðar. Held að það hafi kallast forleikur...þegar einn einstaklingur fann hjá sér þörf til að senda mér í tíma og ótíma smámyndir á msn...sbr. pör í allskyns ástarleikjum...
....þetta var svo frábært að ég get eiginlega ekki beðið með að sjá, hvert þetta leiðir okkur eða hefði gert.... ef ég hefði ekki blokkað viðkomandi!
Fuckit! Í sannleika sagt þarf aðeins meira til að koma mér til.
Njótið komandi viku, ykkar einlæg Heiða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Hvað er ást?
30.3.2008 | 13:37
Við erum að tala um að upp rann sunnudagur til sælu, fyrir löngu löngu síðan. Svaf einsog tindabykkja langt yfir og allt í kringum hádegi. Munaður sem mér sjaldnast hlotnast. Sofnaði að vísu undir morgun, en það er allt önnur saga; reyndar skemmtileg saga og leyfi ég hugmyndaauðgi ykkar að stjórna för...
...skil eftir laust pláss og þrjár línur fyrir ykkur að fylla uppi. Af þeirri einföldu ástæðu að mér þykir fjarska vænt um ykkur.
Veskú;______________________________________________________________
___________________________________________________________________
___________________________________________________________________
Og þá er komið að því.
Hvað er ástin?
Er hún kannski bara von og tál? Draumsýn? Hverful og hjóm eitt í sálinni? Leiftur hugans? Gredda?
Já er hún kannski ekki bara botnlaus og endalaus gredda? Við viljum svala okkar lægstu/hæstu hvötum... svona eftir því hvernig á það er litið.
Ég komst að eftirfarandi niðurstöðu í nótt.
Ástin og kærleikurinn eru systkin. Þau eru æðsta og sannasta eðli mannsins. Perla sannleikans og fegursta gjöf sem um ræðir. Sönn ást og kærleikur eru laus við eigingirni og ágirnd, öfund og afbrýði. Hún er laus við metorð, dóma og hefnd. Hún er síung og hrein. Ekkert fær sigrað ástina. Ekkert. Stórkostlegt afl í Paradís.
Ást og kærleikur eru heilögust allra tilfinninga. Hún er hrein og fögur lífsins sameining.
Óska ykkur öllum sannrar ástar. Ástin sigrar allt.
Og auðvitað botnlausrar greddu líka ef út í það er farið ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
...búin að fá þér drátt nýlega?
29.3.2008 | 13:42
Síminn hringdi. Ég get ekki sagt að ég hafi verið í úthverfri íhugun beint, en ekki alveg í stuði til að spjalla. Móð og tætt eftir geðveikislega tiltekt þennan morguninn ásamt göngu út í búð á bleiku náttbuxunum, sat ég við svalahurðina og horfði út í vorið...
... dásamaði fegurðina á því sem augu mín mættu. Grátt steinhúsið með bláa þakinu glotti við mér, undir ljúfum tónum úr spilaranum. Síminn hélt áfram að hringja.
Skjárinn sýndi svo um var ekki villst; MAMMA
Ég svaraði hressilega;
-Nei sæl mamma mín hvað segirðu þá?
-þú hringir aldrei! Hér hringir ekki nokkur kjaftur!
-svona svona...ertu búin að fá þér drátt nýlega? spurði ég hressari en hressari...
-neihei...drátt!!!??? (fyrirlitilega)
-það borgar sig svo sem ekkert að vera að því brölti neitt, þessu fylgir svo mikill subbuskapur...(hlæjandi)
-oj...já nærfötin og lakið allt útbýað...(enn meiri fyrirlitning)
-einmitt! (afar ósannfærandi)
-en þú Heiða mín? (ögn hressari)
-ekkert nýlega... (ekki mjög dapurlega)
-einhverjir vilja nú alveg örugglega... (uppörvandi)
-jebb...(sjálfumglöð)
Svo mörg voru þau orð.
Njótið þessa yndislega dags með mér og mömmu...
Bloggar | Breytt 30.3.2008 kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
...þá hugsa ég; ýmislegt
28.3.2008 | 22:11
Ég er þessa stundina haldin mótstöðuþrjóskuröskun. O.D.D. (obsessive disobedienet disorder).
Allavega snert af fyrirbærinu, smá angi teygir sig inn undir húðina og gerir þetta kvöld aðeins meira leiðinlegra en ella. Þá hugsa ég; Fuck! einsog mér einni er lagið.
Ekki gott - ekki gott - ekki gott!
Nenni fyrir enga muni að taka þátt í umræðum um hækkun á bensínverði (varla ástæða til þess hjá mér keyri um á free-bee´s útþynntum bensínvökva....), hækkun á mjólkurlítranum, að þjóðfélagið sé að fara fjandans til...að Björn Blöndal sé drullusokkur, að sumarið komi ekki fyrr en í ágúst...að það sé skítkalt, að ísland sé yfirfullt af pólverum og hatri! Að þjóðvegir landsins séu ísi stráðir...og að karlmenn beri barn undir belti.
...í Guðana almáttugsbænum...gefið mér smá "breik" hérna...
....ella sé ég mér ekki annað fært en að drekkja heimasímanum í klósettskálinni og henda gemsanum inn í uppþvottavél...í veikri von um að númerið ruglist...og upp fyrir mér verði lokið nýju símanúmeri, nýjum samböndum, nýjum tækifærum...nýju klassa-liði sem statt er í sömu stjarnfræðilegu vídd og ég sjálf.
Velkomin í drauma-ó-raunveruleika-veröld Heiðu Þórðar...raunveruleikinn er leiðigjarn.
Góða helgi elskurnar mínar allar
Bloggar | Breytt 30.3.2008 kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Nobody's pxxxx from Blueberry Hill...
27.3.2008 | 21:07
Ég læt alltaf dæla bensíni á bílinn minn. Þetta er munaður sem ég leyfi mér, hversu létt sem buddan er hverju sinni. Ég hef fengið ávítur frá mínum sérlega bíla-ráðgjafa. Endalausir fyrirlestrar um hversu miklu ég beinlínis hendi af peningum útum gluggann fyrir þessa óþarfa þjónustu. Ég sé nú ekki of góð til að dæla sjálf...og gildir þá einu hvort ég sé nýkomin úr handsnyrtingu eða ekki. Hvort ég sé íklædd pilsi í 50 stiga gaddi....og frosthætta frá helvíti í móðurlífi og endaþarmi sé að veði. Hvort ég pissi uppí vindinn eða á hann...hvort ég sé á hælum og brjóti á mér öklana.
Ég er enganveginn sammála honum. Margítrekað hef ég bent viðkomandi á, að einhverjir verði að greiða launakostnað þessarar blessuðu manna, sem ég er farin að þekkja með nafni. Í hvert og eitt einasta skipti sem ég renni í hlað á mínum eðalvagni koma þeir hlaupandi. Ég fæ toppþjónustu. Ég greiði líka að hluta laun þeirra. Stundum koma þeir tveir í einu...eftir því hvort þurfi að skafa snjóþungar rúður...því sjaldnast skafa ég meira en rétt tvö gægjugöt. Oftar en ekki þrífa þeir líka rúðurnar, vitandi að önnur rúðuþurrkan er fyrir löngu lömuð og úr sér gengin. Að viðbættu því að rúðupiss-dunkur/blaðra er enginn í bílnum. Þegar ég rétt skáskít annari löppinni inn á bensínstöðina eftir einum mjólkurpotti, heyri ég hrópað úr öllum og sérhverju horni;
Hæ Heiða...hi Heida...hææ Heia...hei heyja...svona eftir því hverslenskur viðkomandi starfsmaður er...ég veifa og dingla framan í þá rassinum...fleygi kossi út í rokið og er flogin með það sama...glöð og ánægð með að vera; nobody´s pussy from Blueberry Hill...
Seinnipartinn í dag var ég í lúnari kantinum og legg við dæluna mína, en hún er líka alltaf sú sama; nr: 7. Timo kemur hlaupandi með bros á neðri vörinni sinni...
...ég pota puttanum ofan í budduna mína og dreg upp ræfils fimmhundruð kall með sjúskuðum fúlum karli framan á...svo sé ég annað krumpudýr á þúsund kalli... öllu hressari til augnanna....
....á ljóshraða, reiknaði ég út að ég myndi geta keyrt í vinnuna og heim á þúsundinu fram að mánaðarmótum...þ.e.a.s. ef ég keyrði hratt....mjööööög hratt.
Ég rétti Timo geispandi úrillan peninginn. Hann tók við þúsundkallinum og brosti.
Ég val-hoppaði inn á stöðina (passaði mig á að dingla rassinum hæfilega mikið til hægri) og valdi bláan beljuvökva út í kaffið, eftir þrælmikla umhugsun. Borga brúsann og labba út í kuldan til Timo...hann brosir undursætt þar sem hann stendur og dælir...og dælir og dælir....án þess að hafa sett á sig smokk...
...hann var komin upp í 5.830.- Brosið hans stífnar þegar hann áttar sig, en áður en það gerist tek ég eftir að hann er með tvær stíftennur, hið minnsta. (engan perra-hugsunarhátt hérna) En hann var-er fjarska sætur, af einhverra þjóða kvikindi að vera. Íslenskt (fyrir Heiðu) já takk.
Ég var margítrekað beðin afsökunar á bensínstöðinni af yfirmönnum Timo...og ég alveg bit.
-Og hvað nú?...spyr ég. Viðbúin því að bensíninu yrði ælt uppúr bílnum aftur...
-ekkert og neitt, svarar vaktstjórinn. Þetta eru okkar mistök...afsakaðu þetta bara, okkar mistök....
-en Timo...lendir hann í vandræðum?
-nei nei...
-olræt þá... segi ég (lítið sem ekkert fúl) ....ég keyri í burt... auðvitað alsæl með dauðadrukkinn bensíntank á spott-prís. (hvaða væl er þetta annars útaf bensínverðhækkunum?) Bað til Guðs að Saxi yrði ekki tekin fyrir ölvunarakstur...
....ég hugsaði með sjálfri mér, svolítið hátt svona og ákveðið; -auðvitað fyrirgef ég þessa yfirsjón...en þó aðeins með einu einasta skilyrði;
Að þetta komi ALDREI fyrir aftur!
Lánið gjörsamlega leikur við mig þessa dagana...og ég sem hélt ég væri á vanskilaskrá...
Bloggar | Breytt 30.3.2008 kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (36)