Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Æi

...tölvurassgatið veiktist af vírus. Taka ekki allir eftir því hvað auglýsingin passar vel við mig?

prufa

...

prufa

...

Látiði árin mín í friði!

Að leiðarljósi við hönnun auglýsingarinnar hér til hliðar (NOVA) var síðan mín klárlega höfð til hliðsjónar. Þetta smellpassar svo flott þetta blikkerý og dót...að ég er að hugsa um að greiða fyrirtækinu fyrir að hafa þessa snilld blikkandi hér inni. Bleiki liturinn á diskókúlunni er alveg einsog og glossið mitt ... -sá blái einsog augun mín...

Vildi að allir væru eins sáttir og ég...

Annars rak ég augun í það í dag á baksíðu blaðsins að við eyðum 30 árum í rúminu. Veit ekki hvort það er afþví að ég er svona þessi nýjunargjarna týpa...en við erum ekki að tala um 8 klst. hasar í mínu tilfelli..má deila þessu nett niður með allavega tveimur, það er þeim tíma sem ég eyði í bælinu.

Vakti mig til umhugsunar þetta með að hrósa fólki varðandi aldur þess...

Einn sagði við mig í dag -svo klessulega að mig langaði til þess að kasta upp.  Ég vissi svo sem hvað að baki bjó...eitt stykki "freeby"  dráttur og alveg örugglega einhversstaðar annarsstaðar en í rúminu mínu...

-í alvöru? þú lítur ekki deginum eldri út en 25!

Önnur sagði;

-hva....hélt þú værir 32 ára!...stal þannig af mér nokkrum árum og vonaðist til að smyrja þar með  5% kauphækkun á sjálfa sig....fyrir ómakið.

Skal alveg segja ykkur í hreinustu og fúlustu alvöru að mér finnst ekkert complement þegar verið er að klípa af mér einhverjum árum!  Ég vil fá hrós fyrir árin mín og það öll, takk fyrir.

Ég segi nú ekki að ég taki nýtilkomnum hrukkum neitt fagnandi en mér finnst í alvöru gott að eldast. Mér finnst það í rauninni alveg þræltöff og flott...og er þakklát fyrir hvert ár sem ég fæ í nánast botnlausri hamingju.

Góða nótt og dag...finniði ekki lyktina af vorinu og ástinni?


Spurning um val

Hef hugsað mér persónu....what the fuck is this? Það er allt undirlagt af þessu fáranlega kjaftæði? Fór inn á heitar umræður á moggablogginu...til að spara mér sporin og this is it! Nova auglýsingin fer ekkert í taugarnar á mér við hliðina á þessu bull-shiti...en má ég frekar biðja um; Frúin í hamborg..., bannað að segja já, bannað að segja nei...svart og hvítt. Bannað að segja pjalla, typpi og ríða. Bannað að blogga um fréttir, bannað að troða orðum sínum í hátíðarbúning til að breiða yfir fáviskuna og heimskuna.

Einhver og sérhver mér nákominn er annars orðin útúrgeggjaður og rauður af blygðun á mínu pjöllutali á blogginu. Spurning að taka sveig framhjá síðunni og inn á heimspekilegar vangaveltur um fréttir vikunnar. Spurning að velta sér ærlega upp úr skoðunum annarra. Spurning að virðast ögn gáfaðari en maður er í raun með þvi að kaupa sér Freshen-up í klósettskálina þannig að blómin spretti upp á móti manni þegar maður fangar hana að morgni...

...þetta er allt spurning. Spurning um val.

Spurning um að taka hverjum degi einsog hann kemur fyrir og gera það besta úr honum. Taka hausinn úr eigin rassgati og kíkja á meðbræður okkur. Brosa örlítið meira, en alls alls alls ekki of mikið, því þá er maður heimskur. Hugsa sig um þrisvar áður en maður segir já...þvi það kostar hellingsfyrirhöfn aukreitis fjárútlát og vesen að gifta sig í dag.

Njótið kvöldsins.


...ofsalega fallegur jakki...

Og svona einsog smá rass í sparkatið eða öfugt frá Hrönnslu minni, nei nefnilega fólk segir ekkert það sem það meinar neitt. Það er málið...maður er svona að kasta einhverju fram og ætlast til að fólk svari manni með því svari sem maður væntir sjálfur. Hvernig á til að mynda einhver að fatta það innhúss að maður ætlist til að farið sé út með ruslið ef maður biður ekki um það? Horfir lymskulega með augunum á troðfulla truntuna og gerir ráð fyrir eintómum og innatómum "spámönnum" allt um kring.

Og engin dónahugsunarháttur í gangi hér...þetta á við um öll samskipti. 

En til að  mynda smá frávik...mér finnst svona hálf farið yfir línuna á hreinleikanum með að kasta fram...t.d.;

-hey ertu til í að koma að ríða?...segum miðvikudaginn 13. feb kl: 22.08...

Þegar ég fór af stað á laugardagsmorgunn, árla dags til að þrífa sameiginina var það öllum ljóst í stigaganginum. Ég hef sjálfsagt verið það upprifinn af þessum nýju upplýsingum sem  læddust hér í hús. Þó ég muni ekkert hvort þær komu á undan eða eftir...

Ryksugunni var kastað fram á gang í orðsins fyllstu. Ekki tóku minni læti við þig þegar ég byrjaði...ég tautaði við sjálfa mig; wakeup - wakeup...laugardagsmorgun...Heiða er að þrífa sameignina og þið skuluð sko ekki voga ykkur að lúlla áfram á ykkar græna jólakorti á meðan ég púla hérna á náttfötunum...til undirstrikunar á að það er fucking laugardagsmorgun hérna! Stútnum á ryksugunni sló ég svo fast framan í hverja hurð án þess að glotta lymskulega út í annað... Formaður húsfélags varð verst úti. 

--- 

Með þetta hreina og beina attitude fór ég út að borða í kvöld. Á næsta borði sat kona og var í beinni sjónlínu við mig. Borðfélagi hennar var svipaður á hæð og minn þannig að  augu okkar mættust ca 105 sinnum á klst. Alltaf þegar ég leit upp horfði hún á mig. Hún brosti ekki. Mér fannst þetta miður þægilegt og hugsaði; -damn...ætli hún þekki mig af blogginu? hún hefur dottið niður á mig þegar ég hef verið í einhverjum typpagalsanum. Hún grandskoðaði hvort ég borðaði með fullan munninn. Ég gerði tilraun með að horfa fast í augu hennar, hún leit ekki undan. Ýmyndunaraflið fór með mig á flug. Hún minnti á engan hátt á trukka-lessu...og ekki var fræðilegur möguleiki í helvíti að ég hafði gert mér dælt við karlinn hennar. Legg ekki lag mitt við gifta karla...hvað þá ógífta.

Hún stendur loks upp og labbar til mín án þess að mæla orð... gravalvarleg... ég tók hárspreys-brúsann minn upp úr veskinu mér til varnar...

-þekkjumst við?...spurði ég hana þar sem hún horfði á mig án þess að mæla. 

 -nei, það held ég ekki, svarar hún.

 ...svo bætti hún við; ...ég var bara að spá í hvað þú ert í ofsalega fallegum jakka...

---

Annars hef ég alveg hrikalega góða tilfinningu fyrir komandi viku...endilega njótið hennar með mér og verið góð við hvort annað. Heart

 


Ég er ekki snagi!

Ég sat með samanherptar rasskinnarnar á meðan ég beið eftir svarinu.

-ertu til í að hafa þetta bara svona áfram, við hittumst 2svar í mánuði eða aðra hvora viku, bara hvort sem hentar okkur betur?

Þögnin var eilíf eða þar til hún var rofin með...

-já já ef það er það sem þú vilt.

-Rangt svar.

-Fylgir einhver fjandans manuall með þér manneskja? Svara aldrei rétt!

Ég var að hugsa um þetta og sittlítið af öðru þegar ég læddi mér inn á umferðarmiðstöð í dag. Fer yfirleitt að kveldi þegar fáir eru á ferli. Þegar ég þá fer í þeim erindargjörðum að  fá mér sviðakjamma. Ekki vill ég skítafíluna af  andlitsljótum, afhöggvuðum kindum á heimilið svo mikið er vist. Innkoman var ekkert glæsileg þegar ég skautaði sjálfri mér næstum á rassgatið með snjóþungum leðurstígvélum langleiðina út um næstu hurð á Bsí um hábjartan dag. Mér var svo mikið um þetta að ég fékk mér fisk. Vondan fisk. Í staðinn fyrir svið. Og er ennþá í fílu. En samt ekkert mikilli bara pínu.

Kannksi líka afþví að leiðinlegasta lag allra tíma sönglar fyrir eyrum mér daginn út og daginn inn.

Lagið er með Regínu Ósk og textinn er svo "bitter" að ég verð ekki bara beisk og súr...heldur bitur og brjáluð.

Hann er eitthvað á þessa leið; ég vakna klukkan átta...fæ mér morgunmat og bla bla...síðan að þú komst er ég í lagi... 

...fyrr má nú aldeilis vera herðatré eða snagi...eða úlpa eða kápa. Ég er ekki snagi...langar ekkert að hafa úlpu hangandi á mér. Geng ekki einu sinni í úlpu. Ég er heldur ekki kápa þó svo sumir telja sig vera nælu sem þeir þurfi að stinga í brjóstið á mér til að flikka upp á mig. Ég er fljót að losa mig við þesslags aukahluti. Og það tel ég vera kost.

Í framhaldi finnst mér sorglegt þegar fólk trúir því í raun... að það þurfi... segjum bara snaga...eða kápu til að vera hamingjusamt. Heldur að hamingjuna sé að finna hjá öðrum..eða í öðru en í hjarta þess sjálfs. Hengir sjálfsvirðinguna á einhvern sem hangir utan í þvi sjálfu. Eða titlum og/eða aurum. 

Ég vil samt alveg vera herðatré...með annað hangandi við hliðina á mér í sama skáp sko... 

 

 


elskið mig takk...

Að gefnu tilefni vil ég biðja gangandi vegfarendur að "skippa" þessum degi. Hann er tilbúin gervi ástardagur. Allir dagar ættu að vera Valentínusardagar. Kaupið blóm jú og styrkið bændur og innflytjendur en for god sake...sendi þau heim til mín deginum á eftir þann 15...búin að ríma íbúðina og hef nóg pláss...

...og elskið mig takk, á þessum degi.InLove


mbl.is Dagur Valentínusar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engu að tapa

Farðu út með honum. Hverju hefur þú að tapa, skrifaði ein bloggvinkona mín í athugasemd við síðustu færslu minni.

Hverju hefur þú að tapa! Sjálfsagt sáralitlu þar sem maðurinn er smávaxinn....en alveg örugglega ekkert að vinna þó hann sé lítill. Og ef manngreyið væri það ekki hefði ég einfaldlega sagt; Nei takk engin áhugi sem þú kveikir hérna megin kallinn minn. En þar sem hann er það dró ég seyminn, hvað svo sem seimur er...veit ekki ekki einu sinni hvort það er skrifað með i-y, en hef augljósa hugmynd um hvað það þýðir.

Ekkert að vinna, engu að tapa, tíminn er of dýrmætur einfaldlega til að eyða honum bara til að eyða honum. Nema bara og eingöngu með þeim sem skipta mann miklu máli og eru ultra góður félagsskapur.

Enn og aftur sofnaði mín fyrir framan fréttir í kvöld, vaknaði einsog snúið roð... ég hélt jafnframt að ég hefði misst af piparsveininum mínum. Ekki þeim eiginlega en ég er sucker fyrir veruleikakjaftæði og viðurkenni það hér með. Það er jafnframt eini löstur minn...Cool auðvitað er ég líka hálfmiður mín vegna þess að mér afar dýrmætur félagsskapur er veðurtepptur þar til í fyrramálið...og auðvitað vaknaði ég við dyrabjölluna og ég svaraði...

-hæ þetta er Gísli hérna...

-Gísli hver, þekki þá nokkra....

-æi þessi sem er búin að vera að koma til þín nokkrum sinnum síðustu mánuði...

-já hann...sæll.... alveg einkennilegur andskoti, alltaf þegar þú kemur stendur svo illa á hjá mér...

-æi er það já...

-jájá...

-hvenær má ég koma?

-æi veit ekki. Vertu ekkert að gera þér sérferð...alltaf svo mikið um að vera hjá mér...

-jú mig langar til að hitta þig...þetta er ekkert mál. Er að vinna að ákveðnu verkefni hér í nágrenninu...tékka bara á þér þangað til þú hefur tíma fyrir spjall....

...núna í kvöld sagðist ég ekki vera berrössuð...ekki á leið í bað... 

...samt ætlar hann að koma aftur.

 


sex í dessert...

Það eru alveg til karlmenn sem vilja hafa konuna 150 cm hæð með útstæð eyru. Finnst það afar heppileg hæð þar sem þeir geta geymt bjórdósina á hausnum á henni á meðan hún....skoðar á honum typpið skulum við segja. Og hann heldur um eyrun...

...ég held að það séu fáar konur sem vilja karlmenn í þessum hæðarflokki...ekki ég, í það minnsta...nefnilega lenti í einu sneddý í dag...

...lífið mitt er stórsmellið einsog þetta dæmi sannar.

Hann stóð þarna gaurinn sem mig minnti að næði mér að brjóstum....þakkaði mér hlýlega fyrir ráðleggingarnar og sagðist feginn að kerlinginn hefði kastað honum fyrir úlfana...

-mér líður vel að vera einhleypur Heiða og ég tók undir það að sjálfsögðu...-margt verra en að "hlaupa einn"...sagði ég við hana. Tók við þakklætinu og stakk því á milli brjóstanna.

-þú er lovely kona Heiða...

...ég hló og sagði takk einsog smástelpa...(einsog ég hafi ekki vitað það fyrir)

Og svo kom spurningin alveg óforvarendes einsog þruma af heiðum himni...spurning sem ég átti alls ekki von á!

-viltu koma út með mér?

Það eina einasta sem mér datt í hug þar sem gaukurinn stóð þarna með galopinn munninn við mittið á mér var að segja...

-en ég á litla stelpu! (ekki veit ég hvað það hefur með málið að gera)

-það er allt í lagi!

Hann góndi á mig og ég hugsaði; fuck fuck fuck einsog ég geri gjarnan....sýndist tár enn og aftur vera að læðast fram og ekki gat ég hugsað mér að taka hann í fangið frekar en fyrri daginn.

-kannski seinna...sagði ég og beit nánast af mér tunguna fyrir gunguháttinn að segja ekki klárt og ákveðið Nei...

-frábært! þú hringir bara hvenær sem þú vilt! 

Með þetta fór hann syngjandi glaður og ég hálf svona miður mín, reyndar meira en hálf...við erum eiginlega að tala um heilan hellings miður mín.

Í framhaldi setti ég mig í samband við vinkonu mína...fyrst með sms-i.

-fuck er í fucking vandræðum...hver í fuckings veröldinni heldur þú að hafi verið að bjóða mér á date?

svo bætti ég við; -hvað á ég að gera?

Eftir að daman var búin að hlæja af sér rassgatið komu ráðleggingarnar á milli hláturs-skallanna....

-Afhverju segirðu ekki bara að þú eigir kærasta?

-það er nú aðeins of seint í rassinn gripið ...ég var að dásama það við hann hversu ljúft það er að vera einhleypur! Átti enganveginn von á þessu...

-sko Heiða...þetta er hræðilegt! En fiskurinn sem þú hittir um daginn. Bjóddu honum í lundir ekki pottrétt....

-leysir það eitthvað?

-já já þú býður honum í nautalundir næst og ...

-hvað hefur maður annars með svoleiðis mat?

-Heiða sko...þú býður honum í lundir og svo sex í desert og þú verður AL-SÆL! (ég sko....)

-já ok, svo verður hann bara kærastinn minn án þess að vita afþví sjálfur. Skothellt! Takk elskan, þú ert vinur í raun....ekki alveg að skilja neitt samhengi þarna á milli en það er auðvitað aukaatriði.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband