Hvað er ást?

Við erum að tala um að upp rann sunnudagur til sælu, fyrir löngu löngu síðan. Svaf einsog tindabykkja langt yfir og allt í kringum hádegi. Munaður sem mér sjaldnast hlotnast. Sofnaði að vísu undir morgun, en það er allt önnur saga; reyndar skemmtileg saga og leyfi ég hugmyndaauðgi ykkar að stjórna för...

...skil eftir laust pláss og þrjár línur fyrir ykkur að fylla uppi. Af þeirri einföldu ástæðu að mér þykir fjarska vænt um ykkur.

Veskú;______________________________________________________________

___________________________________________________________________

___________________________________________________________________

 

Og þá er komið að því.

Hvað er ástin?

Er hún kannski bara von og tál? Draumsýn? Hverful og hjóm eitt í sálinni? Leiftur hugans? Gredda? 

Já er hún kannski ekki bara botnlaus og endalaus gredda? Við viljum svala okkar lægstu/hæstu hvötum... svona eftir því hvernig á það er litið.

Ég komst að eftirfarandi niðurstöðu í nótt.

Ástin og kærleikurinn eru systkin. Þau eru æðsta og sannasta eðli mannsins. Perla sannleikans og fegursta gjöf sem um ræðir. Sönn ást og kærleikur eru laus við eigingirni og ágirnd, öfund og afbrýði. Hún er laus við metorð, dóma og hefnd. Hún er síung og hrein. Ekkert fær sigrað ástina. Ekkert. Stórkostlegt afl í Paradís.

Ást og kærleikur eru heilögust allra tilfinninga. Hún er hrein og fögur lífsins sameining. 

Óska ykkur öllum sannrar ástar. Ástin sigrar allt.Heart

Og auðvitað botnlausrar greddu líka ef út í það er farið ... Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála þér í þessari skilgreiningu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2008 kl. 13:43

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

99.9%

Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.3.2008 kl. 13:44

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

SAMMÁLA.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.3.2008 kl. 13:54

4 Smámynd: Ásgerður

Kærleikurinn sigrar allt

Ásgerður , 30.3.2008 kl. 13:55

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er búinn að senda þér e-póst...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.3.2008 kl. 14:00

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott skilgreining.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.3.2008 kl. 14:59

7 identicon

Mér finnst þú svara þessu snilldarlega sjálf elsku Heiða. Ég hefði ekki getað gert það betur. Aðeins eitt til viðbótar í efstu línu. Ástina þarf kannski að rækta til að njóta en það hljómar bara svo hallærislega. Þú veist, gera hluti fyrir aðra...og mikið af því.

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 15:00

8 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

ó já ó já ó já

Einar Bragi Bragason., 30.3.2008 kl. 15:02

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Sammála þér

Huld S. Ringsted, 30.3.2008 kl. 17:24

10 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Ástinn er yndisleg og krefur "viðhalds" hehe í bestu merkingu þess orðs

Sigrún Friðriksdóttir, 30.3.2008 kl. 19:05

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég er hundrað og átján prósent sammála þér þarna

Solla Guðjóns, 30.3.2008 kl. 19:14

12 Smámynd: Solla Guðjóns

Hehhe með hjartað á vitlausum stað

Solla Guðjóns, 30.3.2008 kl. 19:15

13 Smámynd: Ásgerður

Nei þú ert sko með hjartað á réttum stað elsku Sollan mín

Ásgerður , 30.3.2008 kl. 19:30

14 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Er á sama máli og þú Heiða, ástin kærleikurinn er eitt og sigrar allt, auðvitað viljum við svala greddunni og þá elskum við afar heitt,
í hvert og eitt skipti sem það er búið,
þá hvað hvað er þá ást þar til næst. það talar einhver um að það þurfi að rækta ástina, nei, ef ástin og kærleikurinn er fyrir hendi, af fullri virðingu og kröfulaus
þá ræktast hún af sjálfum sér.
                             Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.3.2008 kl. 21:00

15 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Verð bara að kommenta á þig þó ég sé ekki mikið í því þessa dagana.  Þetta er svo yndisleg skilgreining hjá þér á ástinni og svo sönn.  Takk elskuleg. Svo er líka hægt að elska tvisvar jafn heitt eins og ég hef komist að.  Svona er ástin, yndsileg og fögur eins og þú mín kæra.   greddann humm tölum um hana næst

Ásdís Sigurðardóttir, 30.3.2008 kl. 21:26

16 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

En Heiða kærleikskvinna, hinni sönnu ást verður víst ekki skellt á hvern sem er né hvenær sem er samkvæmt þér sjálfri! Dvergar munu til dæmis aldrei öðlast hina sönnu Heiðuást eða kærleik ekki satt? Þó gæti ég nú alveg trúað að þeir kæmu samt að gagni við tímabundna greddusefjun, við þá yðju skiptir enda engu hver í hlut á ef hún er hvort eð er botnlaus blessuð greddan!

En jújú, alveg satt, elskum hvort annað, utan rúms og innan og elskum það sem inni býr, eins og það sem úti býr, eins og segir í kvæðinu!

Magnús Geir Guðmundsson, 30.3.2008 kl. 21:59

17 Smámynd: Heiða  Þórðar

Takk elskurnar mínar allar. Ástarkveðjur til ykkar

Magnús ég ELSKA ALLA...KONUR, KARLA JAFNT SEM KALLA, gildir einu hvort þeir eru smáir, lágir, fráir á fæti eða feitir. Stuttir, langir eða mjóir.   ÍTREKA AÐ ÉG ELSKA ALLA...bara mismikið...

Magn mitt af elsku til einstakra manna eða kvenna fer ekki eftir kíló-afjölda, sentrimetrum, tippastærðum eða rassastærðum, varð að koma þessu að vegna þess að þú vísar til dvergsins. Ég hugsa einmitt að hann hafi fengið óverðskuldaða væntumþykju frá mér útaf stærðinni...

Hvað varðar ást og greddu þá er akkúrat ekkert þarna sammerkt. Gredda er eitthvað tímabundið ástand (sem allir geta svalað sjálfir ef út í það er farið) ástin hinsvegar er langvinn...og yndisleg.  

Heiða Þórðar, 30.3.2008 kl. 22:53

18 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Seint kemur svar en kemur þó!

Semsagt samúðar-kennd sem réð för en ekki beinlínis hjartað þegar dvergurinn átti í hlut, það var og!

En jújú, á hátíðis- og tyllidögum getum við aðskilið ástina hreinu og sönnu, hið alsherjarástand sem við köllum svo og umlýkur hjarta og hug, frá náttúrunnar dýpstu hvötum, greddunni, en ég held að greddan hljóti þó alltaf eða alla jafna að tilheyra hinni stóru og allt um liggjandi sönnu ást, því með henni og frá liggur kveikiþráðurinn til kjarnans, upphafsins og endisins á því að ástin sé ekki aðeins tjáð, heldur líka að hún beri ávöxt, hinn eina og sanna, NÝTT LÍF!

Og meðan að þú heiða ljúf og lokkandi kitlar okkur strákana ekki síst undir hökunni svo ókyrrð myndast, þá yrði þeirri ókyrrð aldrei betur svalað nema einmitt með ÞÉR!

Í mínu tilfelli er gredda ekki bara tilfinning sem svala á einhvern vegin þó réttilega sé það mögulegt fyrir alla að svala henni einhvern vegin er hún kviknar, en bara nei ekki sama hvernig það gerist!

Magnús Geir Guðmundsson, 31.3.2008 kl. 02:30

19 Smámynd: Gísli Hjálmar

Þessi pistill er sem betur fer ekki eins hommalegur og sá síðasti hjá þér.

Ég er ekki sammála!

Ást, sem við köllum það, er einfaldlega bara líffræði. Líffræði sem kallar fram og virkjar boðefni í heila okkar sem heitir dópamín. Boðefni sem lætur okkur líða undurvel á meðan það er virkt. Dópamín er einnig það boðefni sem vímuefni örfa oftast, og þar af leiðandi á það tilhneigingu til að valda fíkn. Fíkn sem fáir kunna og geta höndlað. Hverjum langar ekki til að líða vel ... alltaf! Hver vill ekki lifa alla daga með óbilandi trú á eigið ágæti, yfirmáta bjartsýni og finnast maður ódauðlegur. Hrærast um í sæluvímu sem á sér enginn takmörk og engan enda ætlar að taka ... 

... síðan meðferðarstöðin Vogur! 

Já, Dópamín er málið. 

Ég er hreinlega ástfanginn af Dópamíni og þér ...

Gísli Hjálmar , 31.3.2008 kl. 11:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband