Sælla er að gefa....
23.7.2007 | 00:11
Sælla er að gefa en þiggja. Einu sinni var lítil stúlka...... lönnnggg og mjóooooó! með 15 tennur í efri góm, sem er ekki til frásögur færandi nema fyrir það eitt að hún átti sambýling. Þessi stúlka hét Heiða Bergur og er ég sjálf og er enn og heiti enn. Málið með hana er að hún þolir illa allt sem er mjög skipulegt og fyrirsjáanlegt, þó svo að pínu fari fyrir brjóstið á henni þegar hún fær ekki blóm frá syni sínum á mæðradaginn. Ekkert gleður hana meira en þegar henni er komið á óvart. Róleg fröken, nú er ég komin í fyrstu persónu. Sambýlingurinn á einum bóndadeginum í fortíðar-myndinni var afskaplega fúll þegar hann las morgunblaðið og maulaði ristað brauð með osti. Ekkert kom á óvart þennan morguninn. Alltaf ristað brauð með osti. Það hefði sjálfsagt liðið yfir mig ef við hefði bæst sultudropi. Á brauðið. Augngoturnar voru stingjandi og orðin meiðandi þegar yfirlýsingunum dundu yfir hverslagt ferfætlingur og ósómakvennkostur ég væri að hafa ekki fært honum blómin í tilefni dagsins. Ég reyndi þarna í frekjumætti að benda á ég gæfi engin blóm eftir pöntunum eða dagskipan dagatalsins.. heldur þegar mig langaði til þess sjálf. Ef nokkurn tímann. Áfram hélt tuðið fram á miðjan hádegisverð. Illa gekk með lestur blaðsins hjá manninum, með munnin fullan af brauði, og ostin í munnvikunum... með blað sem var stútfullt af heilsíðu auglýsingum frá blómaverslunum bæjarins. Til hamingju með bóndadaginn. Gleddu elskuna þína, gefðu honum blóm. Bla Bla Bla. Eftir pot og tog fékk ég loks blaðið.... og áfram hélt röflið. -ertu búin að gleyma hvað þú fékkst frá mér á konudaginn? Það er ég viss um að þú hefur ekki einu sinni hugmynd um hvenær ég á afmæli. (á erfitt með að muna afmælisdaga en man hans.... þar sem hann er síðasti jólasveinninn í bænum....) Á endanum þar sem ég virti fyrir mér blómabúnt í blaðinu, með fuglasuðið í eyrunum, brast þolinmæðin, ég reif heilsíðuna úr blaðinu, vöðlaði saman og henti í hann. Bætti við: -Þarna færðu andskotans blómin! Og rauk út. Ég er viss um að hann hefur aldrei gleymt þessum vendi. Ég er ekkert að segja frá þessu til að gera lítið úr honum og upphefja mig. Verð seint stolt af svona framferði, en hvað er málið? Geta ekki allir dagar verið bóndadagar? Valentínusardagar? Konudagar? Gjafadagar? Eða ekki? Sælla er að gefa en þiggja. En þegar klínt er upp á mann, að maður eigi að gefa er það þá eitthvað voða voða gaman? Fékk annars einu sinni tertuspaða í jólagjöf, merktan SPRON í kassa merktum viðkomandi gjafara. Hrikalega fyndið og minnistæð gjöf. Kostaði ekki krónu nema kannski vexti og vaxtaverki. Dráttavexti... vonandi. Einu sinni gaf sonur minn mér klukku sem hann hafði búið til sjálfur. Svo fékk ég um síðustu jól konfektkassa og innan úr pakkningunni var A4 blað sem á stóð; Smá sætindi fyrir sætustu stelpuna sem ég þekki. Um daginn fékk ég svo geisladisk af engu tilefni sérstöku. Bara gjöf út í bláinn afþví er virtist. Búbba....einsog stelpan mín kallar hann. Bubba..... sem ábyggilega borðar ekki líkamsafurðir....og prumpar blómum. Þvílíkt og annað eins sem þessi diskur hefur iljað mér um hjartarætur síðustu daga.
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Að éta hor...
22.7.2007 | 00:58
Einhvernveginn er það svo að þegar ég sé Pál Óskar hugsa ég ekki um hann í ástríðufullu kapphlaupi við annan karlmann, sem ég e.t.v. hefði annars gert. Nei drengurinn sá til þess einhverntíma að ég hugsa alltaf um hann étandi horið úr nefinu á sér. Fallegt? Nei! Fordómar? Nei! Mér finnst hann æði... löðrandi kynþokkinn uppmálaður og myndi klárlega ná að heilla mig uppúr skónum ef mér hefði vaxið tippalingur í stað brjósta. Vildi óska að hann hefði aldrei látið sér þessi hor-trakteringar úr munni fara, þarna í fyrndinni við blaðamann einhvern, sem verður eilíflega til þess að hugsanir mínar verða sorugar þegar ég hlusta á þennan annars yndislega tónlistarmann. |
![]() |
Páll Óskar á frægustu slúðursíðu heims |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Ekki hrein mey....
22.7.2007 | 00:03
Vinkona mín sagði við mig um daginn: -Heiða, þetta var alveg ferlegt maður... ég fór í Tívlolíið þarna með kærastanum og hitti tvo sem ég hafði sofið hjá! Viltu pæla! Ég sagði; - Iss, vertu bara þakklát að þú varst ekki stödd í Tívolínu í Kaupmannhöfn... þá hefðirðu örugglega hitt þrjátíu! Ég veit ekki hvort henni var skemmt, en erum prýðisvinkonur enn..... Annar kunningi minn sagðist vera búin að gefa skít í íslenskt kvenfólk, ætlaði að leita á erlendri grund eftir þeirri næstu.... afþví sá hinn sami lenti eilíft í vandamálum og rifrildakíti á þorláksmessu í Kringlunni þegar hann var komin með enn eina upp á arminn. Íslenska blómadrós... rós átti þarna að standa. Þar sem hann hitti eilíflega á einhverja fyrrum ástkonu/r. Það er vandlifað á henni litlu Íslandi... Málið var nefnilega þegar ég var að brölta á hælunum í dag, með tvo skærgula girfilega merkta Bónuspoka, sem öskruðu framan í lýðinn að ég væri komin neðarlega í klínkið í buddunni... og ein lítil blómarós í bleiku, útötuð ódýru súkkulaði á nebbanum og hárinu...nánar á Laugarveginum hitti ég meyjarhaftar-rífarann. Tímasetningin auðvitað helber snilld aldrei þessu vant... eða þannig sko. Og ekkert... bara það. Ég tapaði mér ekkert og réðst á hann öskrandi, stappandi niður fótum og heimtaði meyjarhaftið aftur neitt. Hafði ekki einu sinni minnstu löngun til að vita hvað hann hefði gert við það, hvar það væri eiginlega niðurkomið. Hvort það væri einhversstaðar með öllum hinum eða hvað... neibb. Bar höfuðið með þokklegasta stolti einsog folinn hann.... og ýmindaði mér bara að ég væri hrein yndisrós björt og góð og flott og fín og ung en ekki gömul geit að koma úr innkaupaleiðangri í Bónus... Bara kjánalegt kink og annað kink og .... hæ og hæ og kjánalegt bros og annað kjánabros og já. Síðan labbaði hann framhjá og ég framhjá, ég leit ekki við... OG ÞAÐ ER EKKI SPURNING ANNAÐ EN HANN HAFI AÐEINS KÍKT Á RASSINN Á MÉR, hégómagirndin tekur ekki annað í mál. Furðulegt annars. Ef maður veltir fyrir sér því að maður hittir víst fólk aldrei af einskærri tilviljun. Það þurfti ekkert sérstaklega að minna mig á það neitt að ég er ekki hrein mey lengur sko.....eða hvað?
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Dr. Phil
18.7.2007 | 23:15
Ég var að vafrinu um bloggheima, þegar ég datt niður á fjarskyldan bloggfélaga. Hann er ekki vinur minn,.... en við hljótum að vera allavega félagar þar sem við tilheyrum sama samfélagi.
Hann dásamaði Dr. Phil út í hið óendanlega og sagðist vera betri maður eftir að hafa kynnst honum í gegnum þættina hans. Lofsamaði kraftaverkið að karlinn væri aftur komin á stjá til að betrumbæta samskipti fólks og dýra á milli. Ekki síst hann sjálfan.
Á hlaupum undan sjálfri mér í slow motion á morgnanna.... minnir mig að Doktorinn hafi ómað undir einn morguninn.
Viðurkenni fúslega að ég hef alveg fylgst með þætti og þætti hérna í denn rétt eftir að ég fæddist.... en ekki hótinu mér. Karlinn er auðvitað draumur í dós. Ekki þyrfti maður að ergja sig yfir hárinu í klósettvaskinum, hann pissar örugglega sitjandi og lokar á eftir sér án hávaða eða kúkafílu.
Spurning einsog tækninni fleygir fram, hvenær hægt verður að að skella kauða (eða honum líkum) í ljósritunarvélina, troða innum póstrifuna, á okkar eða ykkur sem á þurfa að halda... eða vilja ...eru að skilja... eða skilja ekki neitt.
Ekki svo galið, þar sem vandamálum öllum verður delate-að auðveldlega ef fleiri væru einsog Dr. Phil. Og fleiri einsog konan hans, sem gerir lítið annað er virðist en að brosa og vera sæt, sem fer henni annars fjarska vel.
Með svör við öllu. Með bros við öllu.
En svo ég hleypi litla perranum upp í mér (sem hefur fengið að blunda svefninum góða dágóða stund...) get ég með engu móti ýmindað mér að kynlíf með Dr. Phil sé eftirsóknarvert.... Jenný....common ekki einu sinni reyna að ljúga þig útúr því að þú hafir ekki hugsað út í það....(mér fannst þetta ógissslega fyndið!)
Ég sé Dr. Phil fyrir mér... í röndóttum náttfötum... með svefnleppa fyrir augunum, með nátthúfu... ég leyfi ykkur að fantasera... gjöriði svo vel....; í boði hússins._______________________________________________________
Þrátt fyrir auðugt ýmindarafl í mínum huga... er tilhugsunum fyrir mig 3. vikna turn-off í það minnsta.
Svo er spurning auðvitað hvort Doktorinn er svona bara photoshopað dæmi; líkt og fyrirsæturnar á forsíðum blaðanna.
Nú eða píparinn sem lagar ekki vatnslögnina heima hjá sér. Eða kannski smiðurinn sem tengir ekki uppþvottavélina....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Urmull af taggi!
15.7.2007 | 23:46
Einhverntíma í maí, þá var ég "tagged", af vinkonu og áfram taggaði ég aðra. Vissi og veit ekkert um hvað málið snerist/snýst í rauninni.
Held samt að um sé að ræða svona einhversskonar MYSpace dæmi. Nú er komin júlí og gott á miðjan mánuð og ég fyrir löngu búin að gleyma öllu sem viðkom tagginu þarna.
Nema hvað þegar ég opna e-mailið mitt í kvöld er urmull af einhverjum taggara-skilaboðum!
Þegar ég les yfir (við erum að tala um á annan tug....) svara ég einum þarna og spyr; what the fuck is this....were did you see my picture? Mér stóð ekki á sama og hélt að einhver vinkona væri að gera grín í mér. Þvílík hrúga af lofsemdum...tvíræðum einsog t.d. Sunny sem er 24 ára og skilaboðin hans eru hér feitletruð að neðan: Ég fæ ekki betur séð en Sunny komi frá svörtustu Afríku, lýsir mér sem sönnum engli....hmmm.. aldinni sannri englaprinsessu:
hello my name is sunny queen iam happy to see beautiful aldy like u here angel i will like to know u princess this is my yahoo id cool_fineman@yahoo.com /dan_luck2003@yahoo.com
(Stelpur addið honum -gjöf frá mér til ykkar....)
Svo kemur hér frá öðrum honum finnst ég líka einsog engill....og óskar mér jafnframt gleði í lífinu. Þessi var með eldri maður....og já;
hola sweet in fact u are angel in darkling sky any way am hope u get fun in ur life
Og svo kemur Chris;
nothing could be of more value to knowing people u dont know or making new friends in very far and unramiliar environment. my aim to write u is just to see wheather u can accept our growth in a little significant relationship. i'm CRIS, a school instructor, single and articulative mostly on words from Gambia.reply if u wish to kow more.
waiting to hear from u. just be my good friend.
LOWMARKS
i'll wait for u.
Svo mörgu voru þau orð.....
Ástin flaug yfir vötnum á Laugaveginum í dag. Ég var þar á röltinu með litla ástarenglinum henni dóttur minni. Fyrir utan einn barinn sat einn ansi hývaður... hann kallaði til mín og segir;
-Nei sæl elskan! Bara á labbinu með ömmubarnið! ég vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta... gerði hvorugt en var ansi skemmt samt. Held ég.
Þykir samt örlítið vænna um þetta comment en það sem ég fékk um síðustu helgi;
Ég kíkti örstund inn á eitt öldurhús bæjarins þegar einn snýr sér að mér og segir;
-iss, þú ert svo ung!
-Nú, hvað er ég gömul?
-Þú ert svona 24 ára.....
Þegar lengra leið á samtalið stutta komst ég að því að maðurinn var og er nánast staurblindur!
Og þetta barst úr Tagged-partíinu í þessum skrifuðu orðum;
i m 29 yers baut u r 38 for my is not problem ur so butifel.
Akkúrat já!
Fleygi á ykkur elskurnar einu stykki sæluviku!
Bloggar | Breytt 16.7.2007 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Klukk hvað?
12.7.2007 | 22:46
Ester Júlía, 11.7.2007 kl. 22:55
Hvað er málið með þetta KLUKK? Ég fæ svona keðjubréfafílinginn beint niður í rassgat!
1. Deginum ljósara að ég fæddist í Sandgerði, mér til þónokkurs hryllings, tímasetning óskilgreind þar sem mamma var sofandi og pabbi líka á meðan ég lallaði útúr pjöllu-ling. Þannig að nákvæmara en dagsetingu er ekki í boði; 15.02.1969...
2. Greindarvísitala hefur greinst mest hjá elstu syblingunum.... og tek ég því það fram hér, að ég er elst eða næstelst nokkurra... hálf- og heilsystkina. Hef fyrir löngu glatað tölunni á mínum annars ágætu systkinum...eitthvað í kringum einn albróður og átta hálf....en samt alheil.
3. Tvær barneignir að baki mér til mikillar gleði og yndisauka 3 ára og 18 ára... eitt hjónaband að baki, rifumst alla leiðina í minningunni upp að altarinu sem var ekki altari...okkur til blessunar skildu leiðir, því umræddur, tel ég til minna bestu og vina í dag.
4. Missti meydóminn 14 ára.....OG ÞAÐ VAR ÓGEÐSLEGA VONT! Gaurinn fékk ekki dóm þrátt fyrir að umhverfið nærliggjandi hafi einna helst minnt á sláturhús dauðans!
5. Í mestu uppáhaldi er gamalt fólk og börn. Eldra fólk fyrir viskuna sem það býr yfir. Börnin fyrir sakleysið, forvitnina og einlægnina. Svo læðist alveg einn og einn inn þar á milli.
6. .... púff nenni ekki meira.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Elska meira...
11.7.2007 | 00:31
Hvað hef ég með þá vitneskju að gera að sólin er gul? Að Birgitta Haukdal notar skó númer 36 eða Bára mín ex-girlfriend er með samvaxnar tær?
Akkúrat ekki neitt.
Suma hluti veit maður og so fucking what?
Hver segir að ég megi ekki dansa í sólinni í lopasokkum og kyssa flugu á kinnina ef svo ber undir? Afhverju má ég ekki fá mér harðfisk ofan á ristað brauð og sjóða mér kotasælu á þorláksmessu? Ég veit ég má þetta.... en hver býr til allar þessar óskráðu reglur? Hver ákveður normið í nútímasamfélagið. Hver er normal og hver ekki?
Vissulega þarf einhvern samfélagslegan ramma til að lifa eftir.... en í guðana bænum, hvernig væri að róa sig á tauginni aðeins?
Ég er ekki að tala um að keyra upp og niður Laugarveginn, nakinn á bleikum haldara hérna, með fíl í framsætinu! Ég er ekki að tala um lögbrjóta og hvaða vitleysingi datt í hug að banna skötusoðning á þorláksmessu í stigagöngum fjölbýlishúsa? Var það sá sem pissaði á tindarbykkuna?
Ég held að það sé slétt dásamlegt að dingla aðeins á þessar ósýnilegu línu sem fáir dirfast að dansa yfir/undir. Vera svolítið spontant og lifa þessu lífi ekki aðeins bara skipulega, heldur þora að taka áhættu, án þess að hræðast að vera litinn hornauga af gestum samferðarmanna okkar. Enda hef ég aldrei hornauga séð.....
Svona svipað og; detta mér allar dauðar lýs úr höfði! (vona það svo sannarlega....ekki nokkurn áhuga á að hafa dauðar lýs á höfði mér...)
Ég vildi að við værum aðeins umburðalyndari við hvort annað, betri við hvort annað og þætti vænna um hvort annað. Ég vildi að við værum minna gráðug, meira gefandi. Öfunduðumst minna og elskuðum meira. Dæmdum ennþá minna og elskuðum ennþá meira.
Ég vildi, ég vildi, ég vildi....
Ég vildi að við hefðum færri lög og reglur, færri lög og hertari viðurlög þegar kemur að barnaníðingum, nauðgurum og öðrum ódæðis-verkamönnum.
Góða nótt elskurnar.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Eigum við að ríða?
9.7.2007 | 23:04
Mér finnast samskipti án orða alveg stórmerkilegt fyrirbæri. Stundum eiga orð engan vegin við einhvernvegin....fólk á einfaldlega að vita.
Ég er ekki að tala um;
-Ari, hvar er þarna þú veist....?
-nei mamma, ég veit ekki hvar þú veist er...
Þar sem það upplýsist hér með að ég er fædd og uppalinn úr Sandgerði fyrstu æviár mín, þá fyrirgefast mér augljóslega "vont" og gróft orðbragðið sem kemur hér á eftir.... ekki síst þegar litið er til þess að úr Sandgerði koma einfaldir niðursetningar, niðursuðudósir og annað gott fólk.
Tröllslegt millinafnið mitt gefur mér einnig augljóslega heimild til að subbast svolítið með orðin mín...
... var að velta því fyrir mér þetta með samskiptin eina ferðina enn.... þetta með að elskast, ríða, njótast...,
hvað er annars hallærislegra en;
-djö maður, er langt síðan við höfum riðið.....eigum við að ríða?
-ha? já já, núna? (bara þvílíkt turnoff!)
og svo þegar endirnum er náð áður en upphafið hefst og ég eða einhver annar missti af öllu fjörinu.....
-Andskotinn sjálfur! Ekki nema von maður, veistu hvað er langt síðan ég fékk að ríða síðast! (ásakandi, niðurlútur og skömmustulegur....)
-Svona, svona, þetta er allt í lagi elskan.....
Ég veit ekki hvort þetta hefur nokkuð með neitt annað að gera að suma hluti þarf einfaldlega ekkert að tjá sig um.
Ástúðlegt augnráð í samskiptum tveggja einstaklinga finnast mér eðlilegra upphaf, hvaða tíma dags sem er í ástarleiki, heldur en: jæja, háttatími....klukkan að smella í miðnætti - í sundur með lappirnar kerling... eða karl.
Snúa sér svo á sitthvora hliðina og ef vel lætur kannski pínu prump í hvort annað sem þakklæti fyrir samlífið. Samræðið. Samfarirnar. Eða fyrir ekki neitt.
Heyrði annars um daginn orðtak um þennan annars merkilega atburð. Það er að nudda kynfærunum saman!
Sem þetta er kannski, ef tilfinninar eru neðan við núllið í spilakassanum....Djö..... viðbjóður, toppaði það svo alveg að nudda þvagfærunum saman.... en ég læt staðar numið hér í horbjóðar lýsingum.... ekki vill ég missa Jenfo bloggvinkonu mína sem heldur yfirlit yfir klámyrði mín.
Nei! elskast, takk fyrir mig! Ég er svo mikil vælutítla og oforbetranlegur rómantíker....
...upplýsist samt hér með, samhliða því hvaðan ég er ..... að mér hefur alveg stundum liðið einsog niðursuðudós ... en það var fyrir margt löngu síðan.
Áður en ég loka gjörsamlega fyrir þann möguleika að ganga út.... hefst blogg í framhaldi um þjóðfélagsmál, fréttir og aðrar nytsemdar umræður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Hard to get fílingur
5.7.2007 | 02:00
Samskipti kynjanna eru mér endalaus ráðgáta og mér til mikillar skemmtunar oft .... og krydd í öllum hinum pælingum mínum um lífið og tilveruna. Svona um það bil fjörutíu sinnum dagsdaglega. Leikir ýmisskonar í samskiptum.... svona hard to get fílingur, náði hámarki hjá einni sem ég þekki þegar gaurinn bauð henni í mat, sagðist hringja eftir 10 mín... og hringdi ekki. Hringdi daginn eftir, ofureðlilegur bauð henni í bíó... sagðist myndi sækja hana eftir 12 mín og kom ekki! Og stelpu-druslan (sem er ekki tuska) er enn að spá í honum! Svona kvenfólk á að taka og rasskella hressilega á báðar! Og svona jólasveinar.... fá auðvitað stóran jólapakka. En þessi gaukur er bara snillingur miðað við annan gæja. Annarri dömu mætti ég í morgun og hún leit út einsog þjórsárdalur á þriðja degi.... með bjánaglottið á andlitinu og rauðglansandi augun tók hún auðvitað ekkert eftir svefnskallanum á hnakkanum... Mér datt einna helst í hug að afmælisnóttinni hennar hefði verið eytt í feitt djamm miðað við útlitið á konunni.. en nei... gaurinn hafði heiðrað hana með návist sinni, þar sem það var hvorki mánudagur, þriðjudagur eða föstudagur. Þau eru búin að vera að hittast í rúm tvö ár... og hann vissi ekkert um afmælið hennar. Auðvitað algjört aukaatriði að pían eldist um ár hvert.... hann hefur sjálfsagt ekki einu sinni hugmynd um að hún er með aflitað hár og rakar á sér lappirnar. Notar brúnkukrem og hefur fengið sveppasýkingu og klementínur.... og mandarínur... en ....þar sem hún var svo óheppinn eða heppinn að eiga afmæli á þriðjudegi.... kom hann. Mér til meiri skelfingar en henni .... aðeins rúmlega til að komst að því ....að kvöldin þrjú heilögu þarna, sem hann hefur ekki getað hitt hana sl. ár eru fucking tölvuleikjakvöld! Svei mér þá ef það er ekki meira fyrirgefanlegt að eiga konu heima, sem þarf að sinna. OG ÉG ER EKKI AÐ KIDDA Í YKKUR...... Mér svona prívat og pers... finnst þessir snillingar eiga heiður skilið fyrir því að laða að sér nokkurn einasta kvennmann ... feitur mínus á kladdann á kvenþjóðina, fyrir að láta gjörsamlega tríta sig einsog skít! Þetta er auðvitað bara spurning um aðsókn og eftirspurn... ... afmælisdaman var sæl á svip eftir atburði næturinnar og hin súr og þolinmóð beið eftir að vera sótt...
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Fyrsta hrukkukremið
30.6.2007 | 01:41
... Og ég hitti hann aftur, ekki til frásögur færandi nema fyrir það eitt að það dofnuðu upp á mér varirnar og mig langaði helst til að gráta. Sagði lítið en samt allt í örfáum orðum. Hafði gengið framhjá flennistóru auglýsingaskilti í vinnunni í dag eftir dag og hugsað; Heiða Bergur Bumba, þarna er svarið við öllum þínum holum hrukkum og misfellum. Gott ef ekki mistökum líka. Þetta verður þú að eignast. Sagði upp gyllinæðakreminu þegar klórinn hætti að virka á fæðingablettina. Stóð semsagt með mánaðarhýruna í apótekinu með syni mínum og dóttur, á einkennilegum stað í lífinu. Hann minnir mig á árin sem ég hef lifað og hún á æskuna og góða tíma framundann. Þar sem innihaldslýsingin lofaði eilífum æskublóma og hamingju ("boost" from inside out....) og strákurinn reyndi að höfða til skynsemi minnar, með því að segja; -mamma common þetta virkar ekki rassgat! hugsaði ég; drengurinn er bara þrælbræt.... miklu skynsamari en ég. Kannski ég skelli mér bara líka í rassakremið... Heim hélt ég með kremið í poka og svei mér þá, er ekki með það á hreinu hvort ég eigi að borða það eða bera á mig. "inside out". .... kannski ég noti það sem bragðbætir út á hrísgrjónin, þar sem það lítur þokkalega feitt allt út fyrir, að að það að vera matseðillinn út mánuðinn... |
Annars tel ég að maður er eins ánægður og maður einsetur sér að vera hvern dag, og eins fallegur líka ef út í það er farið... hefur allavega þokkalega mikið með það að gera.
Koss á ykkur öll -á alveg bunka eftir á línuna...þið eruð hrikalega dugleg að commenta hjá mér og eigið stórt pláss í hjartanu mínu Varð þess aðnjótandi að hitta eina bloggvinkonu í dag -bloggdrottningu, einkennilegt en satt tilfinningin var einsog ég væri að hitta gamla vinkonu. Mér hlýnaði um hjartarætur Erla..., ekki skrítið þetta með prinsessustimpilinn þinn elskan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)