Dr. Phil

Ég var að vafrinu um bloggheima, þegar ég datt niður á fjarskyldan bloggfélaga. Hann er ekki vinur minn,.... en við hljótum að vera allavega félagar þar sem við tilheyrum sama samfélagi.

Hann dásamaði Dr. Phil út í hið óendanlega og sagðist vera betri maður eftir að hafa kynnst honum í gegnum þættina hans. Lofsamaði kraftaverkið að karlinn væri aftur komin á stjá til að betrumbæta samskipti fólks og dýra á milli. Ekki síst hann sjálfan.

Á hlaupum undan sjálfri mér í slow motion á morgnanna.... minnir mig að Doktorinn hafi ómað undir einn morguninn.

Viðurkenni fúslega að ég hef alveg fylgst með þætti og þætti hérna í denn rétt eftir að ég fæddist.... en ekki hótinu mér. Karlinn er auðvitað draumur í dós. Ekki þyrfti maður að ergja sig yfir hárinu í klósettvaskinum, hann pissar örugglega sitjandi og lokar á eftir sér án hávaða eða kúkafílu.

Spurning einsog tækninni fleygir fram, hvenær hægt verður að að skella kauða (eða honum líkum)  í ljósritunarvélina, troða innum póstrifuna, á okkar eða ykkur sem á þurfa að halda... eða vilja ...eru að skilja... eða skilja ekki neitt.

Ekki svo galið, þar sem vandamálum öllum verður delate-að auðveldlega ef fleiri væru einsog Dr. Phil. Og fleiri einsog konan hans, sem gerir lítið annað er virðist en að brosa og vera sæt, sem fer henni annars fjarska vel.

Með svör við öllu. Með bros við öllu.

En svo ég hleypi litla perranum upp í mér (sem hefur fengið að blunda svefninum góða dágóða stund...) get ég með engu móti ýmindað mér að kynlíf með Dr. Phil sé eftirsóknarvert.... Jenný....common ekki einu sinni reyna að ljúga þig útúr því að þú hafir ekki hugsað út í það....(mér fannst þetta ógissslega fyndið!)

Ég sé Dr. Phil fyrir mér... í röndóttum náttfötum... með svefnleppa fyrir augunum, með nátthúfu... ég leyfi ykkur að fantasera... gjöriði svo vel....; í boði hússins._______________________________________________________

Þrátt fyrir auðugt ýmindarafl í mínum huga... er tilhugsunum fyrir mig 3. vikna turn-off í það minnsta.

Svo er spurning auðvitað hvort Doktorinn er svona bara photoshopað dæmi; líkt og fyrirsæturnar á forsíðum blaðanna.

Nú eða píparinn sem lagar ekki vatnslögnina heima hjá sér. Eða kannski smiðurinn sem tengir ekki uppþvottavélina....

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko mín kæra, ég þoli ekki dr. phil, hvað þá heldur slaufupakkaðar patentlausnir á færibandi. Ég fantasera aldrei um sjónvarpsstjörnur það er alveg á hreinu. Er svo þroskuð. Híhí.

Heiða mín, smiðir smíða, halló!! Pípulagningarmaðurinn tengir LÍKA fokkings þvottavélina.

Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.7.2007 kl. 23:23

2 Smámynd: Heiða  Þórðar

Nú er það? Smíða smiðir? ég er greinlega eitthvað á eftir áætlun.... ekki orðið vör við það....þú ert annars ágæt. Búin að hella uppá? Allt kaffilaust á heimilinu....

Heiða Þórðar, 18.7.2007 kl. 23:25

3 Smámynd: Kristófer Jónsson

algjört brill Heiða Begga hehe

þú veist að það er ekki hægt að treysta iðnaðarmönnum

Kristófer Jónsson, 18.7.2007 kl. 23:31

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ég veit það núna Kristófer. Maður er svo sem alltaf að læra....

Heiða Þórðar, 18.7.2007 kl. 23:33

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mér hefur alltaf fundist bezti hlutinn af þáttunum hans - fyrir utan þegar þeir eru búnir - þegar hann skundar út úr stúdíóinu og dregur kjellinguna á eftir sér....

....hún hleypur við fót og reynir að halda í við hann

....ójá - ég hef séð maaaaarga þætti af dr. Phil. En aldrei dottið í hug að nota hann í mínum kynlífsórum. Verður líklega til þess að ég gangi í klaustur

híhíhíhíhíhí

Hrönn Sigurðardóttir, 18.7.2007 kl. 23:47

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er upptekið hjá Hrönnslu í kynlífsóradeildinni.  Húsaðu mig.  OMG

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.7.2007 kl. 23:58

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Mér líkar doktor Fillipuss.

Hann þorir að koma fram sköllóttur í amerísku sjónvarpi, & það vottar fyrir fínni bumbu á honum.  Karlmenn sem að pissa sitjandi eru hetjur, það þarf hörku til þess þegar lint er & íslenska vatnið er skrambi kalt.

Óprah fann þennann gutta upp, því hlýtur hann að vera guði líkur.

Ég myndi alveg hleypa honum upp í milljónina & diskútera við hann með konudýri mínu um hvað betur má fara í samlífi samlyndra hjóna.

En ég er nú líka dáldið ~anderledes~

S.

Steingrímur Helgason, 19.7.2007 kl. 00:21

8 Smámynd: Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl

kynlíf með dr.Phil ....þarna fórstu alveg með það Heiða...

Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl, 19.7.2007 kl. 00:38

9 identicon

OMG!!!  Kynlífsfantasía með Dr. Phil!!!

Held ég þori ekki að fara að sofa núna.........

Díta (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 01:33

10 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Hva..... finnst ykkur hann ekki sexý?

Voðalega eruð þið vandlátar!

Annars getið þið bara talað við mig ef þið þurfið hjálp við að taka á vandamálunum í lífi ykkar......... Dr. Phil my ass ;)

Eva Þorsteinsdóttir, 19.7.2007 kl. 01:53

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Je minn hann er ekki sexý það er alveg á hreinu kall geyið

Kristín Katla Árnadóttir, 19.7.2007 kl. 02:17

12 Smámynd: Ásgerður

Ertu ekki að grínast Heiða???  Ég elska Dr. Phil 

og  í röndóttum náttfötum... með svefnleppa fyrir augunum, með nátthúfu... hmmmmm,,,hljómar ekkert ílla sko,,,

kannski ekki er sexy ekki það fyrsta sem mér dettur í hug,,,,en ég fengi örugglega góða ráð hehe.

En í alvöru, þá finnst mér gaman að horfa á hann,,,er sukker fyrir tilfinninga-rúnki í raunveruleikasjónvarp,,,verð að gera eitthvað í þessu

Knús á þig

Ásgerður , 19.7.2007 kl. 07:14

13 Smámynd: www.zordis.com

Blessunarlega laus við Dr.Phil en að lýsingum hér að ofan virkar hann ekki spennandi, hvað þá að kona vilji lauma sér upp í rúmm til þeirra hjóna! 

Smelltu inn mynd af honum

www.zordis.com, 19.7.2007 kl. 08:18

14 identicon

Heiða???   Ekki hef ég neinar fantasíur um Opru.  Rachel Ray gæti kanski skotið upp kollinum í sturtunni, en hún kann að elda líka.  En Opra, Vala Matt..  ég gæti alveg eins verið at pæla í Viggu Finnboga eða ömmu minni..  Sama held ég að gildi um Dr. Phil hjá þér, ekki satt???

Nú er ég flúinn af landi brott og ætla að verða fimmtugur í útlandinu, í friði með góðann ferðafélaga mér við hlið. 

Knús, Kossar og allt...

Jói Dagur (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 08:39

15 Smámynd: Ólafur fannberg

innlitsknús

Ólafur fannberg, 19.7.2007 kl. 09:05

16 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Heiða klámk...................í röndóttum náttfötum og ...........með Harðfisk uppi í rúmi

Georg Eiður Arnarson, 19.7.2007 kl. 10:20

17 Smámynd: Hugarfluga

Hef lúmskt gaman af svona þáttum og gæti alveg eytt heilum degi í að horfa á Dr. Phil og Opruh til skiptis. Damn, dagurinn í dag er einmitt þannig dagur! Annars er ég viss um að Dr. Phil sefur ekki í röndóttum náttfötum ... hann sefur áreiðanlega í rauðum babydoll náttkjól og lætur frúna rassskella sig fyrir að hafa verið óþekkur dákur. Jedúd, ég trúi ekki að ég hafi ritað þetta.

Hugarfluga, 19.7.2007 kl. 10:57

18 Smámynd: Jónína Sólborg Þórisdóttir

Dr. Phil er krútt

Jónína Sólborg Þórisdóttir, 19.7.2007 kl. 13:15

19 identicon

OMG  Heiða,,,,,

Inga Ósk (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 14:17

20 identicon

Veistu, ég er hjartanlega sammála þér, sko þetta með nátthúfuna...

Og meira að segja held ég að hann hafi kynlífið allt niðurneglt og sé þessa senu fyrir mér, þar sem allt er skilgreint til helvítis og vel það - karlskömmin með húfuna á skallanum, berrassaður og í svörtum hnésokkum:

"Honey, I am going to have sex with you tonight. But here comes the menu:

1) Numer one: I am going to put my penis into your pussy and fuck you very slowly.

2) Numer two: I will increase the speed and fuck you real hard.

3) Number three: Big daddy will fart a little but and then say good-night..."

Svalt!  Eða NOT!  Öll rómantík og losti farin - GONE...:=(

Sko, hvernig væri að lifa aðeins meira fyrir augnablikið og njóta þess óvænta !!!

E.s. Sorry Heiða - I am still undefined, just Audda Hans...:=)

Audda Hans (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 20:42

21 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Dr.Phil. Ég gæti hæglega toppað hann á stundinni. Hef sko miklu betri ráð undir rifi hverju.  Bara spurjið mig um hvað sem er.  Ég ætti kannski að hafa svona. Spurjið kisu: blogg og hjálpa öllum sem eiga bágt og ef ég væri í vandræðum með svörn gæti ég alltaf talað við Jenný Önnu við tvær saman erum ábyggilega æði.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.7.2007 kl. 21:29

22 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég vona að kallinn sé eins mikill gúddí guy eins og hann virkar á TV. En maður veit aldrei

Jóna Á. Gísladóttir, 20.7.2007 kl. 00:23

23 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Mér finnst hann frekar tilgerðarlegur og yfirborðskenndur  - enda er þetta show bis. 

There is no  business like show business.

Held að konan sem langar að lauma sér uppí til þessara hjóna  - ætti að láta athuga hausinn á sér og biðja einhvern annan en Dr Phil að gera það -

skoða hausinn meina ég 

Marta B Helgadóttir, 20.7.2007 kl. 16:35

24 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Nú þarf ég að hugsa mig , með Dr.Phil , saman í rúminu og ,,,,aaaarrggghhh nú þori ég ekki að sofa næstu vikurnar .

Halldór Sigurðsson, 20.7.2007 kl. 23:12

25 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

sofa? ég fantasera í vöku! Ég hef sofið síðan ég las þennan pistil

Hrönn Sigurðardóttir, 20.7.2007 kl. 23:23

26 Smámynd: Solla Guðjóns

Haha aRRGGGGGGGHHHHHHHSnilli.

Solla Guðjóns, 21.7.2007 kl. 00:24

27 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Sendi þér bros og hlátur inn í daginn, eigðu góðan dag.

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 21.7.2007 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband