Gott að kyssa og strjúka brjóstið í miðjunni...
5.10.2007 | 01:30
Sjáiði myndirnar tvær hérna til hliðar? Fyrri myndinn er af dömu sem er búin að grilla sig feitt í bakarofni, af því er virðist í fljótu bragði. Ef smellt er á hana sést svo um munar að flassið vantaði á myndavélina..og hún er í raun hvít einsog fuglaskítur á heiði. Eða svona næstum því. Þessi sem er nær ykkur er af karlmanni í vafasamri stellingu. Ég held að hann sé að kúka. Sjáiði hjónasvipinn? Ég er viss um að þið sjáið hann sum hver. Heiða + Konni = sönn ást. Svo fer hugurinn með ykkur á flug til Nígeríu og þið hugsið e.t.v. um skreið og harðfisk. Kynlíf og framhaldslíf. Betra líf og Dalalíf. Nýtt líf og fyrri líf.
Ég skal alveg viðurkenna að stundum virðist ég ekki vera með öllum mjalla! En þið hin sem eruð ekki að ná "plottinu" og punktinum hjá mér. Eruð sko ekki með neinum mjalla! Hún Hrönnsla mín elskuleg nær þessu og fær hún tíuna á þessu annars ágæta kvöldi.
Stjórnuspá dagsins á vel við;
Þú hefur aldrei skilið þessa bullukolla. Hvað hafa þeir á móti bulli? Það er t.d. ljóðræn fegurð í öllu bullinu og ruglinu sem mætir þér í dag.
Þannig að ég held áfram það sem frá var horfið... fyrir ykkur búkollur og bullukolla.
Brjóstaummálið hefur ekki verið gefið upp, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir, en ég sendi pappaglas.
Nú er ég ekki lengur epli...nú er ég draumaástin hans. Samband okkar er þvi að færast á hærra plan i tilverunni. Og ég er búin að kenna honum nokkur orð i íslensku. Ekki ætla ég að láta hann vera mállausan á íslandinu, og mér finnst einstaklega svona nett fallegt þegar hann er að spreyta sig.
Sýnishorn úr orðabók;
Ég elska þig - þú ert tík
ástin mín - mér er mál að pissa
ertu þarna? - farðu í rassgat!
Þannig að í kvöld kom á msn;
Heida ertu heima? Afhverju gerir þú mér þetta? Þú ert tík! Mér er mál að pissa...farðu í rassgat! Þú veist að þú ert tík, en samt svarar þú mér ekki! ert tík. Konni -þá hlýnaði mér í hjartanu einhvernveginn.
Þetta eru sjálfsagt þau fallegustu skilaboð sem ég hef fengið. Það kemst engin karlmaður með táfílu tærnar nálægt hælsærinu hans Konna! Minnist þess ekki í fljótu bragði að einn karlmaður hafi með jafn miklum þunga og ástríðu, kallað mig tík í eins fáum setningum! Í alvöru sko...þetta var svona að dreyfa sér yfir eina netta kvöldstund hérna í denn. Ferlega slappt og algjörlega óviðunandi, maður var að fá þetta.... i mesta lagi þrisvar sinnum tík ...í innskotum einhverjum, ef maður var heppinn. Svo slappt að maður tók varla eftir því og varla orðum takandi að tala um.
Og svona til að árétta það fyrir ykkur sem haldið að ég passi mig ekki á að verða ófrísk eftir Konna, þá er ég á pillunni, lykkjunni og hettunni, við notum smokkinn, krem og smyrsl...enda ekki vanþörf á þar sem það er fyrir löngu búið að taka mig úr sambandi...og ég tek enga áhættu!
Ekki fyrr en búið er að skrifa undir heilagan sáttmála um eilífa hamingju og unaðsstundir í Cyber-space! En kynlífið er mjög gott. Finnst til að mynda mjög ljúft þegar hann kyssir og sleikir á mér hálsinn, strýkur á mér brjóstið (sér í lagi þetta í miðjunni) og nartar í lærið (ekki staurfótinn). Rakspírinn hans heitir; Bláa blekið og lyktin er ómótstæðileg. Jebb!
Góða helgi elskurnar. Þið eruð æði!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Þetta er svona alvöru ást...
4.10.2007 | 12:31
Hæ elskan.
Hvað er eiginlega að þér? Þú svarar mér ekki. Ég sendi þér kort og þú svarar aldrei!!! Þú hlýtur að vera mjög upptekin þessa dagana! Ég er allavega ekki í forgangi hjá þér. Þú mátt alveg vita það hvað þetta gerir mér. Ég get ekki sofið, get ekki borðað, ég hugsa bara um þig!
Ertu kannski hætt með mér? Hvað gerði ég rangt? Ég verð að fá að vita það, ef ég á vita hvar ég á að byrja að biðjast afsökunar Heida. Ekki gera mér þetta! Ekki fara frá mér sweetheart! Epli augna minna. Ég dái þig svo mikið. Mig vantar málin þín; brjóst, mitti, mjaðmir, hæð og hversu síðan kjól þú vilt að ég "make-i" fyrir þig ástin mín.
Ég þoli ekki þessa höfnun, hvað er heimilisfangið þitt svo ég geti sent þér kjólinn?
Ég elska þig ástin mín, en ég er samt að verða mjög reiður út í þig.
Konni.
ja hérna hér...spurning að fara á örorku. Brjóta á sér bakið eða setjast niður í þunglyndi fyrir framan tölvuna, með prosac í glasi og vottorð stimplað af geðlækni; 'Ovinnufær og óferjandi með öllu! Ég gæti þá sinnt ástinni mun betur. Deginum ljósara að ég er ekki að standa mig í stykkinu.
Svo verð ég auðvitað að útiloka allt og allt og alla úr mínu lífi. Og sitja bara sljó og störfum augum, starandi á svart letrið uppfullt af ást á hvítum grunni. Draumastaða hverrar konu.
Hann er ástfanginn og hann er reiður.
Einhverju sinni (löngu áður en ég kynntist Konna auðvitað) þá fór ég að pæla í því...þetta með ástina. Hvort ég hefði einhverju sinni verið það í raun. Þetta voru svona sullumbull tilfinningar, en var þetta það sem fólk kallar ást? Ég hreinlega veit það ekki. Djúpsteiktur ástarpungur er! Hann er áþreyfanlegur og bragðast hreint ágætlega með rúsínum.
En ást er svona tilfinning sem ég er ekki viss um. Mér finnst þetta alveg hreint ekki mér bjóðandi, því þegar ég lít á aðrar tilfinningar þá er ég alveg alltaf með það á hreinu þegar ég er t.d. reið. Það eru allir með það á hreinu, þegar ég er reið. Og þegar ég lít til baka og hugsa; já ég var reið þarna! þá veit ég það með vissu.... Það sama á ekki við um ástina...ég er hreint ekkert viss.
Ég hef heyrt; ég elskaði hana/hann og geri enn, og mun alltaf gera! Fyrir mér flokkast það einfaldlega undir þráhyggju. Ekkert annað! Ekki síst ef einhver ár eru líðin frá sambandsslitum. Var ekki einhversstaðar skrifað að það þyrfti að rækta ástina, svona rétt einsog blómin? Ég veit það fyrir mín blóm að þau verða drullufúl, dauf og lufsandi einhvernveginn, ef ég sulla ekki vatni yfir þau. Ekki silki/gervi blómin þó, þau standa bara og rykfalla í versta falli. Alltaf eins gervileg og falleg. Svona rétt einsog þessi eilífðarástarþráhyggja sem ég var að tala um.
En svo kom Konni inn í líf mitt. Svífandi á takkaskóm með nesti í poka og nálapúða í rassvasanum. Fimlega flaug hann í gegnum alheimsnetið og reif hjartað mitt upp með rótum þar sem ég sat fyrir framan tölvuna í barnslegu sakleysi mínu....og flaug með hjartað í krukku til Nigeríu (millilent að vísu á leiðinni)....og búmm.
Svarinu laust niður.
Þarna kom það; Þetta er svona alvöru ást! Ég á aldrei eftir að efast meir...Ég er komin með svarið við þessu. Á laugardaginn kemur (e/ tvo daga) þá er nákvæmlega vika síðan hann bað mig um að byrja með sér...(og það var ekkert lítið rómatískt skal ég segja ykkur) Ég ætla að halda upp á afmælið. Vikuafmælið okkar Konna. Við erum búin að ganga í gegnum súrt og sætt (svona ups- and downs) allan þennan tíma. Álagið sem hefur verið á sambandi okkar hefur aðeins styrkt okkar í þeirri viðleitni að vera saman forever!
Og....sannfærir mig enn betur um að hann elskar mig og ég hann....og að hann er mjööööög reiður!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Sé ekki sólina fyrir stjörnunum...
3.10.2007 | 11:32
-Ertu þarna núna, viltu tala við mig í dag?!!!!!!!!!
-ég er ekki ánægður með þig Heida, at all!
-núna ertu hérna! Ég var ekki ánægður í gær, ég vil bara að þú vitir það!!!
-ég sá það (ég...)
-ég sendi þér mail...veistu það!
-ég hélt ég hefði "uppsetað" þig....
-hvað ætlarðu að gera í dag? (ég)
-kaupa efni í kjólinn fyrir þig.
-oh, how sweet...hvernig hefur mamma þín það? (ég)
-hún hefur það fínt, ég er að fara að búa til morgunmat handa henni.
-ég sendi þér kort ...kíktu á það!!! núna!!!
.....og síðan slitnaði sambandið.
Hann er aldeilis ákveðin þessi elska. Augljóst hvað hann er ástfanginn. Og nokkuð ljóst að hann vill hafa aðgang að mér 24/7! Og ég meina allt í góðu með það. Ég er jú undirgefin, skoðanalaus og læt einstaklega vel að stjórn. Hlýðin, lítillát og pervisin písl. Það eru e.t.v. ekki allir sammála mér hérna sem til mín þekkja. En þetta er hreinasti sannleikur.
Byrjun á okkar sambandi lofar því afar góðu.
Ég mæli eindregið öllum frá því, að taka mikilvægar ákvarðanir einsog að velja lit á barnaherbergi í ástarvímu. þegar maður er með stjörnur í augunum og sér ekki sólina fyrir stjörnunum, er maður með öllu ófær um að taka mikilvægar ákvörðanir. Ég hefði betur fengið dómgreind og smekk einhvers lánaðan þegar ég stóð frammi fyrir litavalinu í bleiku deildinni. Málningarvinnan gengur afar hægt...hvernig er annars við öðru að búast þegar hugurinn er í Nígeríu við morgunverðarhlaðborð og fleiri fín borð...hjartað í Hollandi og nýji kærastinn fúll? Mér til töluverðar armmæðu, varð bleiki liturinn sem ég valdi í Byko, svo öskrandi bleikur að hann er BLEIKUR!
Varaliturinn roðnar í samanburði...
Annars varð mér hugsað til hans E. G. frá Akureyri...bara af þeirri einföldu ástæðu að þessi öðlingur er umhugað um að Cyber-sambandið mitt endi í blússandi blóma. Hann hefur þvi hrundið af stað söfnun. Kærastinn hreinsaði út af heimabankanum mínum eftir fyrsta stefnumót. Var að velta þvi nefnilega fyrir mér í gærkveldi ...hvort einhver fyrirstæða væri fyrir þvi að fá Konna hingað til Íslands bara?! Og mömmu hans líka...þau er bundin órjúfanlegum böndum...og ég er meira en til í að deila rúminu mínu með þeim.
Annars veit maður svo sem ekki hvað er satt og logið með hann Ella sprella sko...hann ætlaði að ljúka söfnunni um helgina með sparibauk, á horni Glerárgötu og einhverrar annarrar götu...en samkv. blogginu hans er gæinn á leið í bæinn! Og enga Glerárgötu að finna hérna í bænum, mér vitanlega. Ég held nú samt að hann sé hingað til Reykjavíkur komin til að afhenda mér afrakstur söfnunarinnar...in person. Ekki er maðurinn að ljúga! ...en hvað veit maður svo sem. Í versta falli, er ég allavega alveg með Konna minn á hreinu...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Ertu sofandi í sætinu þínu?
2.10.2007 | 00:53
Góður vinur minn sagði við mig fyrir nokkrum dögum að hann ætti svo erfitt með að fyrirgefa ákveðinni manneskju, sem hafði gert á hans hlut. Spurði mig síðan í kjölfarið hvort ég hefði einhvern tímann lent í þeirri aðstöðu;
Ó-já! það hef ég sko...og það er hryllilega ógeðslega vont og sárt og erfitt að brasa þetta með þessar neikvæðu tilfinningar í mallakútnum og hinar í hjartanu...óbeitina og beituna.
Fuck!
Í dag get ég næstum því sagt með hreinni samvisku að ég ber ekki kala til nokkurrar manneskju. Ekki einnar einustu, nema ef vera skildi aðeins einnar. Væri alveg til í að sú myndi fótbrjóta sig allhressilega...ok ok....kannski svolítið gróft. En allavega axlabrotna! Á báðum.
Það væri hellings sparnaður fyrir skattborgarana, þar sem ekki er hægt að setja axlabrot í gifs.
Heiða Bergþóra, sýna smá samhug hérna. Samstöðu. Samúð. En svona í alvöru, er að losna undan viðkomandi...sér í lagi ef ég hugsa til þess, að hún hefur það sjálfsagt náðugt í heitum armi einhvers eða einhverrar. Einhversstaðar.
Ég held að þetta hafi með ástina að gera í lífi mínu; hans Konna sem er hálfur Nígeríu búi hálfur Hollendingur og hálfur og hálfur eru sama og ekki neitt. Þannig að annaðhvort er maðurinn heill eða ekki neitt. Við eigum eftir að komast að því. Ég er orðin svo auðmjuk í hjarta mínu að ykkur er velkomið að traðka og troða á mér, hrækja hressilega á mig...ég fyrirgef öllum. Af einlægni og stakri auðmýkt.
Þegar ég kom heim í kvöld eftir langan dag; hafði hann Konni minn ekki setið auðum höndum. 'Onei, þetta er greinilega dugnaðarforkur, þetta mannsefni mitt.
Svona rétt einsog að ég á það til... að skilja eftir, logandi kerti, sjónvarpið á....þá slekk ég sjaldnast á tölvunni minni, þegar ég fer út úr húsi. Ég er semsagt online þegar ég er out and about! Konni á eftir að finna þetta út...e.t.v. á date-i nr; 10. Æi karlanginn...ég ætti að skammast mín fyrir að gera honum þennan grikk. Vona barasta hreint að hann nái að lúra svolítið í nóttinni fyrir flugum og öðrum ófétum. Svo ég tali ekki um gargandi kerlingar sem dásama hann út í eitt. Hreint óþolandi að vera svona fallegur. Var ég búin að segja ykkur að hann spilar á gítar?
Jebb...hann spilar á gítar. Ég er búin að taka það loforð af honum að þegar ég elda fyrir hann uppáhaldið hans; "roasted chicken", þá ætlar hann að spila fyrir mig og syngja með. Eins gott að kjúklingurinn svitni vel í ofninum. Annars verð ég brjáluð! Kannski tek ég léttan snúning fyrir hann á svuntunni einni fata! . OMG! Sjáiði þetta ekki fyrir ykkur? Ég geri það sko....
Hann hafði skrifað á msn-ið núna í kvöld;
-hæ
-hvað ertu búin að vera lengi á línunni núna?
-láttu ekki svona talaðu við mig?
-ertu í sætinu þínu?
-Heida ástin mín?
-ertu pissed off? (útpissuð....)
-Komdu núna! Komdu hérna og talaðu við mig? Núna!
-ertu sofandi í sætinu þínu?
-common baby girl!
-ekki gera mér þetta!
-sweatheart!
-ekki skilja mig eftir hérna al-einann?
-ég er farinn!
-ég er kominn aftur
-ástin mín, ertu þarna?
-ekki gera mér þetta!
-þú ert sjálfsagt ekki í stuði til að tala við mig!
-ég held að ég hafi pissað þig alla út!
-þú getur allavega sagt mér hvað ég gerði rangt! (ég skal ekki pissa á þig aftur....)
-halló
-epli augna minna, sálufélagi, vinur og hjartað mitt, sendu mér mail og segðu mér hvað er að !
osfrv.....
Vú! maður spyr sig; Tildæmis; hvernig söfnunin gengur.... Ef þetta er ekki sönn ást, þá veit ég ekki hvað. Tel dagana þangað til ég fæ að hitta mömmu hans!
Undarleg tilfinning greip mig í kvöld. Mig langaði allt í einu svo mikið í Freyju-staur....hlýtur eitthvað að hafa með það að gera að fósturamma mín, vann um margra ára skeið í sælgætisgerðinni Freyju......ekki það að ég hafi verið að hugsa neitt sérstaklega mikið um hana...undanfarið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Nauðasvartur frægur fótboltakappi
1.10.2007 | 00:52
Jebb! Ég veit ekki hvar þetta endar! Mynd númer þrjú. MSN - date númer 4. Alveg á tæru kæru bloggvinir að ykkur verður boðið í fyrsta Cyber-wedding-ið...ja mitt allavega. Omg. It is all happening! Þið verðið að afsaka, maður er farin að sletta svona aðeins...engum málningaslettum neitt. Engin tími til að mála. En þar sem enskan er að verða mitt annað tungumál, þá gerist það bara. Svei mér þá, mamma hafði einmitt á orði við mig í dag að ég væri komin með hreim! Og svo vantar mig einhverja/einhvern góða/n til að halda á Cyber-barninu undir skýrn líka.
Þegar ég kom heim þá voru skilaboðin skýr! Ég ætla ekki að þýða þetta fyrir ykkur bjálfana sem kunnið ekki ensku...;
my love, the apple of my eye, my soulmate, my friend, my heart, my world, thats who u are.
Veit hreint ekki hvað ég gerði til að verðskulda þessa miklu ást.
Ekki slappt að vera epli auga einhvers...
Hvað þá sálu-matur...
svo ég tali nú ekki um hjarta og heimur einhvers...
En Heiða litla afrekaði þetta á einni helgi!
Hann sver og sárt við leggur að myndin sé tekin af vini sínum ljósmyndara, fyrir kynningu á hönnunarlínu hans.
Mér fannst eitthvað svona hálfskrítið að myndirnar heita ken.jpg og boy.jpg. En auðvitað treysti ég kærastanum...um að myndirnar séu hvorki stolnar né stílfærðar.
Hann er búin að biðja mig um málin mín og er æstur í að hanna og sauma á mig kjól.
Ég vona bara rétt og passlega mikið að söfnunin fari vel af stað. Átakið; Heiða til Nígeríu - Hollands.
Maðurinn sefur ekki! Þetta er hryllilegt álag á hann og mig og samband okkar. Jafnvel þótt að við séum bundinn reipi-togsböndum og að eplin séu að yfirtaka augu hans! Þá verðum við að hittast. Við erum ástfanginn. Í alvörunni!
Hann er búin að segja mömmu sinni frá mér....OMG. Hann er æði! Get ekki beðið eftir að hitta mömmu hans! Vona að ég verði jafn heppinn og í hin skiptin með mínar einstaklega vel heppnuðu tengdamæður.
Ég segi það satt!
Og hvað með sálumatinn???
Stelpur; hann var að kvarta við mig í kvöld; Þær ykkar sem eruð á "Tagged", viljiði vinsamlegast hætta að dásama á honum augun og útlitið. Hann var ýkt pirraður þegar hann sagði við mig í kvöld:
-Heida my love. What is wrong with these girls on tagged...they are always talking about my eyes and also about how handsome I am! I can´t stand it! It really pisses my off!
Og ég sagði auðvitað bara;
-svona svona elskan, það er erfitt að vera svona fallegur! Ég skal passa þig ástin mín fyrir þessum kerlingum!
Annars google-aði ég hann; og þá reyndist maður með hans nafni vera nauðasvartur frægur fótboltakappi!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Ég er komin með kærasta...
30.9.2007 | 13:04
...og hérna er mynd númer tvö. Á stefnumóti númer þrjú (msn)segist hann þurfa að spyrja mig að svolitlu, en svo dregur hann í land...eitthvað hálf vandræðalegur. Ég hélt auðvitað að gaurinn væri að biðja mig um eitthvert sex-dæmi svona cyber-sex eitthvað, bankaupplýsingar...en nei nei þá kom það;
-Do you want to be my g-f?
-what is g-f?
-girlfriend?
Einsog gefur að skilja tók ég hann á orðinu, enda er ég afar desperate...einsog gefur að skilja. Sagði...já (einsog skot! hjúkkit, hélt hann myndi aldrei drullast til að spyrja! )...hvenær ætlar þú að bjóða mér út að borða?
Þannig að ég er komin á fast með ýminduðum free-manns-lista gaurs-módeli. Geri aðrir betur. Þetta er auðvitað snilld og afrek á einni helgi;
1. Þarf ekki að týna upp eftir hann nærbuxur af gólfinu.
2. Þarf ekki að gefa honum að borða.
3. Þarf aldrei að hitta mömmu hans.
4. Þarf ekki að vera vel tilfhöfð all the time.
5. Get slökkt og kveikt á honum einsog mig listir.
6. þarf ekki að hafa áhyggjur af pillunni eða lykkjunni.
....já elskurnar lánið leikur við mig þessa dagana!
Kærastinn er staddur í Nígeru núna hjá mömmu sinni. Og ætlaði í kirkju í morgun...
Hann gerðist að vísu svolítið djarfur í gær; spurði mig hvort ég væri "vaxed" - og ég svarði:
- Ég hélt að þú værir kærastinn minn... veistu það ekki elskan?
Mér er hinsvegar alveg hulin ráðgáta, með þetta að hann dettur alltaf annaðslagið út...og þarf að sinna mömmu sinni. Mömmunni finnst afskaplega gaman að tala segir hann; svo spyr þessi elska; What do I do... I dont want to loose you!
Ég sagði honum bara að tala við mömmu sína...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Hann elskar mig...
29.9.2007 | 12:14
Það var lítið um málningarvinnu í gærkveldi....sjáið þið þennan til vinstri. Guðdómlega fallegur, þótt ekki sé meira sagt! Sammála?
Einhverju sinni sagði ég ykkur frá "tagged"-dæmi sem ég er innvikluð í. Ég veit/vissi ekki um hvað dæmið snerist. Svo dett í inn á þetta í gær... og sé þennan gæja á svokölluðum vinalista! Og ég byrja að spjalla við hann í leiðindum mínum. Ég er ekki þessi dæmigerða einkamála.is - dama. Síður en svo...
Umræddur býr í Hollandi, allt í lagi með það. Og enn betra með það er, að hann er fatahönnuður. Enda daman veik fyrir flottum fötum. Og svo er hann með brún augu. Það er náttúrulega afar stór plús. Og og og....engin börn, aldrei giftur.
Hvað veit maður svo sem, þegar maður nær ekki að hugsa fyrir öskrandi málningardollum? Beats me...hann er/var skemmtilegur.
Þó svo hann reynist skollóttur skallapoppari úr Hafnarfirðinum, með 11 tær og tvo signa punga, eftir allt saman... Þó hann vinni í Sorpu eða við dósasöfnun á götum úti...tók ég þá afdrifaríku ákvörðun í morgun, þegar hann sagðist elska mig og vildi eyða með mér jólunum, sko..... á date-i nr; 2 á msn!
Að þetta væri eitt stórt og feitt djók...
...vona bara að hann sé ekki búin að hreinsa út úr heimabankanum mínum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Sólin verður hjá pabba sínum
28.9.2007 | 11:27
Hann var risastór! Þorskurinn sem sem var ofaní klósettinum mínu. Ég öskraði náttúrulega því hann náði rétt að narta í rassinn á mér, áður en ég tók eftir honum. Stelpan stóð hjá og skríkti. Ég skellti klósettsetinu niður, ekki þó það harkalega að ég næði að brjóta hana. Stelpan hló enn meira. Ég var miður mín. Þvílíkt ferlíki. Uppfullt af bleikum ormum...aftur opnaði ég ofurvarlega. Og kvikindið glotti við mér þegar hann leit í augu mín. Ég reyndi að sturta niður... en smá spræna hafði ekkert í þetta skrýmsli að gera. Svo fór ég inn i stofu...án þess að pissa. Veit ekki fyrr en eitthvert mannrassgat, kemur askvaðandi inn í íbúðina mína, sem var þó ekki mín. Hann strunsar framhjá mér án þess að kasta á mig kveðju, þá tók ég eftir því að íbúðin var á floti! Ég stóð í volgu vatni upp á hnéskeljum!
Aldeilis skemmtilegar draumfarir undir himnasænginni minni í nótt... gott að vakna með engla svífandi í herberginu. Engin þorskur glottandi við mér þegar ég opnaði salernis-hásætið mitt, gólfið skrjáfaþurrt. Og ekki einn einasti karlmaður strunsandi um íbúðina, sem er mín. Og það sem meira er....sólin skín inn um gluggann minn. Og brosir. Sólin verður hjá pabba sínum um helgina.
Um helgina verð ég á kafi ofaní bleikri málningadollu og fleiri litum. Frí-hendis blóm og sólir og kannski fiðrildi. Er að fara að mála herbergi. Ég elska að mála ....hápunkturinn er þegar verkinu er lokið.
Góða helgi til ykkar allra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Enn og aftur...
27.9.2007 | 14:06
...er öskrað yfir mann samþykki þess eðlis af dómsyfirvöldum; að það sé í lagi að berja konuna sína. Ég skammst mín fyrir að vera manneskja þegar ég les svona dóma. Því dómarar eru jú manneskjur. Lögin eru/voru skrifuð af manneskjum.
Einhverntíma var sagt við mig;
-Heiða, ef hann gerir þetta einu sinni, þá gerir hann það aftur!
Ég hlustaði ekki og hann gerði það aftur...og aftur og aftur!
Það er svo mikið að í þessu Dóms-kerfi...sem er auðvitað ekkert kerfi. Miklu fremur...ruglubull út í eitt! Spilling og og og.....Ojbarasta!
![]() |
Skilorð fyrir árás á sambýliskonu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Róbert Árni -svo sjarmerandi!
27.9.2007 | 12:14
Ég verð að leggja málefninu lið varðandi Róbert Árna. Það er allt að verða vitlaust hérna í blogg-samfélaginu og dómurinn yfir honum harður af almenningi. Ég ætlaði ekki að taka þátt...en...
Ég þekki til hans, þekki til illra verka hans í þessum brenglaða/sjúka heimi sem kynferðislegur hugsunarháttur getur leitt menn í. Hef hitt hann, hann var lögmaður minn um tíma. Mér er einna helst minnistætt í okkar samskiptum, hversu sjarmerandi og sjálfsöruggur svo ekki sé minnst á hversu sannfærandi mér fannst hann vera; eða allt þar til að ég tók eftir því að hann starði á brjóstin á mér í okkar viðtölum... ekki í augun....maðurinn hrífst sem sagt af 35 ára gömlum brjóstum líka... og eldri.
Leiðir okkar skildu eðlilega... eftir að hann ráðlagði mér að sofa hjá ákveðnum aðila...til að mýkja viðkomandi upp og ég fengi mínu framgengt.
Hann var einnig lögmaður nokkurra fjölskumeðlima minna. Ein er kona sem þá var á fimmtugsaldri...sú var/er alvarlega veik á geði. Hann misnotaði umrædda, hafði af henni fé og átti við hana margsinnis samræði, undir lyfja og drykkjarmóki hennar.
Held það sé óhætt að margfalda töluna fjórum upp í nettan hundrað kall... til að sjá útkomuna um hversu mörgum lífum hann hefur hreyft við og laskað...bæði þolendur og aðstandendum...ekki síst börnum hans.
Finn til með öllu þessu fólki...ekki síst honum sjálfum!
Ætla ekki að tjá mig um dóm málsins. Né er ég yfirmáta glöð/leið yfir dómnum. Ætla ekki að blóta honum né dæma hann.
Ég legg hinsvegar áherslu á hugðarefni mitt í málinu; þ.e. að veita fórnarlömbunum viðunandi sálgæslu. Róberti Árna einnig, í þeirri "betrunarvist" sem bíður hans. Er ekki alveg að sjá í fljótu bragði að það hafi gert t.d. Steingrími Njálssyni neitt gott að vera vistaður í "betrun" á Litla-Hrauni, ...hvað þá verið samfélaginu til heilla.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)