Enn og aftur...

...er öskrað yfir mann samþykki þess eðlis af dómsyfirvöldum; að það sé í lagi að berja konuna sína. Ég skammst mín fyrir að vera manneskja þegar ég les svona dóma. Því dómarar eru jú manneskjur. Lögin eru/voru skrifuð af manneskjum.

Einhverntíma var sagt við mig;

-Heiða, ef hann gerir þetta einu sinni, þá gerir hann það aftur!

Ég hlustaði ekki og hann gerði það aftur...og aftur og aftur!

Það er svo mikið að í þessu Dóms-kerfi...sem er auðvitað ekkert kerfi. Miklu fremur...ruglubull út í eitt! Spilling og og og.....Ojbarasta!


mbl.is Skilorð fyrir árás á sambýliskonu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Svo rétt Heiða.  Takk fyrir pistil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 14:57

2 Smámynd: Margrét M

réttara getur það ekki verið

Margrét M, 27.9.2007 kl. 15:27

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Georg Eiður Arnarson, 27.9.2007 kl. 15:39

4 Smámynd: Arnfinnur Bragason

...sammála þér Heiða að skilaboð dómara meiga aldrei vera þau að það sé í lagi að beita ofbeldi, hvort sem þau eru gagnvart konum eður ei..... hinsvegar beita menn ofbeldi þrátt fyrir allar refsingar.... refsing ein og sér er í fæstum tilfellum nein lausn..... verðum að fara að huga að fleiru en eingöngu að refsa..... vildi að ég hefði lausnina, en svo er því miður ekki

Arnfinnur Bragason, 27.9.2007 kl. 15:46

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Æi, maður er eitthvað svo varnarlaus gegn þessu veldi! Og Guðmundur, menn fá einmitt afslátt!

Djö....heiða bergur...er í fílu í dag

Heiða Þórðar, 27.9.2007 kl. 16:38

6 Smámynd: Benna

Já þetta er alveg með ólíkindum að svona dómar falli það er nákvæmlega eins og verið sé að gefa samþykki fyrir því að þú berjir sambýliskonu þína

Benna, 27.9.2007 kl. 17:48

7 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Það er nauðsynlegt að það skapist umræður um svona mál.
Það er til háborinnar skammar að svona lagað fái að viðgangast.
Dómskerfið á Íslandi er = Grín

Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.9.2007 kl. 18:22

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Sammála þér, Þetta er til skammar

Huld S. Ringsted, 27.9.2007 kl. 19:57

9 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Þetta er til skammar.  Það á að refsa þessum mönum meira en gert er, en á sama tíma verður að bæta aðstöðu til að veita þeim hjálp meðan á refsingu stefndur til að þeir komi betri menn til baka.  Eins og fangelsis mál eru í dag eru fangar ekki að koma vel út úr dvöl í fangelsi.  Eitthvað þarf að gera til að bæta þessa hluti.

Þórður Ingi Bjarnason, 27.9.2007 kl. 20:46

10 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Svona dómar eru dómskerfi okkar til skammar.
Og svo ef maður tekur fimm hundruð kall úr verslun ,þá fær maður fimm ár !!!

Halldór Sigurðsson, 27.9.2007 kl. 21:03

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sammála þér núna - eins og svo oft áður

Hrönn Sigurðardóttir, 27.9.2007 kl. 21:09

12 Smámynd: Solla Guðjóns

Það get ég svarið að ef einhver kæmi svona illa fram við mig eða mína þá finnist mér sá hinn sami réttdræpur og á það að sjálfsögðu við alla aðra.

Oft hef ég spurt mig kvað liggi eiginlega að baki fangelsisvistun.Er verið að taka menn úr umferð til að þeir geri ekki meira af sér ...til að vernda samborgarana....geyma þá þarna í x langan tíma henda þeim síðan út í lífið aftur jafnvel verri en þegar þeir komu inn.

Orðið betrunarvistun hvað þýðir það og hvar er þessi betrunarvistun eiginlega?

Er verið að láta fólk í fangelsi til að betrumbæta það eða til að refsa því með útilokun frá umheininum.

Ég segji nú eins og einhver hér að ofan þetta er grín.

Solla Guðjóns, 28.9.2007 kl. 00:42

13 identicon

Þetta er ótrúlegt! Algjörlega skammarlegt. Sammála þér í einu og öllu.

Hins vegar hef ég líka heyrt máltækið: Það sem aldrei hefur gerst, getur alltaf gerst aftur. 

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 00:59

14 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Og það versta við þetta er að ef að konan sem er oftast skíthrædd.... kærir ekki manninn sinn þá getur lögreglan lítið gert þó að stórsjái á konunni

Einar Bragi Bragason., 29.9.2007 kl. 00:10

15 Smámynd: Jónína Sólborg Þórisdóttir

Það versta við þá sem stunda heimilisofbeldi (bæði konur og karla) er að það er svo skelfilega lítill hluti þeirra sem snúa blaðinu við og virkilega REYNA að breyta þessu... þess vegna er það svo töpuð barátta hjá mökunum að bíða eftir breytingu. Líkurnar eru á móti þeim frá upphafi.

Bókin "Why does he do that...." eftir mann að nafni Lundy Bancroft er ein sú besta lesning sem ég hef komist í tæri við um þessi málefni. Lundy hefur unnið með ofbeldismönnum í tæpa tvo áratugi og þekkir þetta út og inn.
Mæli með þessari bók Heiða - þetta jafnast á við 10 sálfræðitíma, I promise

Hvað dómskerfið varðar.... ég vil harðari dóma í sumum málaflokkum eins og við flest en ég vil líka að breytingin komi til af yfirvegun. Þetta ER að breytast.... það bara gerist ekki á einni nóttu. Það er líka frekar við löggjafann að sakast heldur en dómstólana sjálfa.

Jónína Sólborg Þórisdóttir, 29.9.2007 kl. 11:50

16 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Fátt er fyrirlitlegra en karlmenn sem nota líkamlega yfirburði sína til að brjóta niður og leggja hönd á sambýliskonu sína og jafnvel börn.

Og við segjum að ofbeldi sé aldrei réttlætanlegt. Sem ég er sammála. En við vitum enga málavöxtu hér. Það er svo margt sem getur gengið á í lífi fólks... Alla vega... ég myndi ekki treysta mér til að úthrópa þennan mann sem níðing og ofbeldismann án þess að vita meira.

Jóna Á. Gísladóttir, 30.9.2007 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband