Færsluflokkur: Bloggar
Ég fann hjá mér...
12.9.2008 | 21:00
...einhverja brjálæðislega þörf.
Til að óska ykkur öllum góðrar helgar...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Love you guys
11.9.2008 | 23:05
Þegar horft er til þess að á mínum unglingsárum, kallaði elsti bróðir minn brjóstin mín ósýnilegu; grænar baunir á Reykjanesbrautinni.... er það hreint með ólíkindum að á borðum í höllinni minni hafi einmitt verið það. Jebb....grænar baunir með rauðkáli, kartöflum, uppstúaðri sósu og hangikjötslettu.
En svo þegar ég hugsa þetta betur; eru ástæðurnar tvær; ein þeirra er sú að jólin eru að koma á hraðri uppleið beint í fangið á mér einsog óð-fluga. Hin er sú að daman verslaði sér 1944 rétt...sem "bæðevei" var viðbjóðslegur! Takk fyrir að spyrja...
Ég var að hugsa þetta með bloggsamfélagið okkar. Af mínum annarlegu hvötum.
Ég mundi allt í einu eftir einum pappakassa af tveimur sem ég hef hitt utan skjásins. Ég félst á að hitta þann fyrsta á kaffihúsi. Ástæðan var að hann þekkti pabba. Ég elska pabba minn meira en orð fá lýst og sakna hans enn meira. Hann lést af slysförum. Ég hitti gæjann aftur og aftur og aftur um nokkurt skeið. Við áttum ekkert sameiginlegt nema; pabba. Hann virtist dá hann og dýrka en þeir voru saman til sjós. Þegar sögur hans um pabba voru farnar að endurtaka sig og voru orðnar á bragðið einsog flatur landi...tók ég eftir því að gaukurinn var með ofvöxt hára út er nef-holum og eyrnagöngum.
Hann reyndist ekki vera þessi mikli ljúflingur sem ég taldi í fyrstu. Enginn engladrusla þar á ferð. Hann var í fullu starfi við að heilla bloggvinkonur mínar uppúr skónum samhliða mér. Lukkulega fyrir mig; ég var skólaus.
Ég veit ekkert verra en óheiðarleika. Ég fyrirlít hann svo mjög að mig svíður í beinin.
Annar vildi hitta mig. Eftir einhvern tíma samþykkti ég boðið yfir kaffi í krús. Sá fann hjá sér mikla þörf fyrir að segja mér hversu svaðalegur hann væri í rúminu (á date-i númer eitt -á fyrsta korterinu). Hann sagði mér dapur í bragði; hversu geðveikislega klikk allar hans fyrrverandi væru. En þær áttu það eitt sameiginlegt að segja hann góðan í rúminu. Mig minnir að mamma hans hafi verið pöddu líkust, allavega líktist hún randaflugu. Svei mér þá ef hann fékk það ekki á lærið á mér...helvískur! Sko í hans eigin huga...
Mér finnst fárra meira ósjarmerandi er karlar sem eru með yfirlýsingar um hversu þeir eru fimir í bólinu,...því í raun kemur mér það ekki rassgat við, tala illa um sínar fyrrverandi hvað þá móður.
Síðarnefndi pappakassinn var einnig í þeim business að sjarma fyrir bloggvinkonum minum á sama tíma og hann reyndi að komast í nærbrækurnar mínar. Þessar ósýnilegu. Ef hann bara vissi...ef hann bara vissi...Hann skoraði ekkert sérlega feitt þar, held ég. Vona ekki, þeirra vegna.
Einnig finnast í þessu samfélagi giftir menn, svona veiðimenn með takmarkaðan kvóta....alveg að skilja-st frá eiginkonum sínum. Skilnaðurinn er svo mikið að skella á; að einhverjar heyra hljóðið. Sem betur fer heyri ég bara það sem ég vill heyra...
HALLÓ! Lít ég út fyrir að vera heimsk eða....
ENN...
...hérna hef ég líka hitt og tengst óútskýranlegum tilfinningaböndum fólki sem ég get með sanni sagt að mér þykir innilega vænt um. Svona ekta væntumþykja frá mér til þeirra/ykkar, þrátt fyrir að hafa ekki hitt viðkomandi persónulega. Suma hef ég hitt þó...
...þið vitið hverjir og hverjar þið eruð.
Takk fyrir að heimsækja mig og commenta hjá mér. Þið gerið það að verkum að hitt "dótið" ... hverfur og verður ekki að neinu. Ekki einu sinni skítur á priki...
Love you guys
Bloggar | Breytt 12.9.2008 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
Er samt góð sko...
11.9.2008 | 19:56
Jæja hvað segir fólkið?
Ég er alveg þrusugóð og uni mér vel í annríkinu sem er mig lifandi að drepa. Öðruvísi gæti ég nú varla drepist...nema af þeirri einföldu ástæðu að ég er lifandi...
...það er gott að hafa mikið fyrir stafni, gott að koma heim að kveldi vitandi vits að maður gerði sitt besta þann daginn...fucking shittur hvað ég er hamingjusöm. Umvafinn fyrsta flokks fólki alla daga -langt fram á kvöld.
Það er af sem áður var, þegar maður sætti sig við það næstnæstbesta. Dinglaði með uppá punt, innan í skítahrúgu og sat meðvitundarlaus með illum og illa lyktandi tungum, með ofvirkan hárvöxt í nefi og eyrum...ojbarasta!
...annars hitti ég Jón í morgun. Ég bý í fjölbýli og Jón stjórnar hér með miklum aga. Hann er kóngurinn og ég er prinsessan. Jón er ekki sá sem pissar yfir mig með látum á hverri nóttu. Nei hann er sá sem skokkar á hverjum morgni með demantseyrnalokk í eyra. Ég sef ofan á Jóni. Eða hann undir mér. Jón er tæplega sjötugur og giftur. Þegar Jón slær blettinn...þá fer hann í Hitlers-uniform. Jón er flottur karl.
Þegar ég kem út í morgun þá var Jón að gera teygjuæfingarnar sínar.
-jæja Heiða mín...þú ert með á laugardaginn, er það ekki?
-ahhhh....sko sólin mín er ekki hjá pabba sínum þessa helgi sko...
-þú hefur hana bara með...hún hefur gaman af því...
-já en Jón, sjáðu hendurnar á mér -er alveg að drepast í höndunum....ha?
-hva, þú verður bara með hanska stelpa!
-ok...
Jón er fífl.
Mig langaði svo miklu meira að sofa út, en að standa í einhverju árlegu sótthreinsandi stigagangs-hreingerningaátaki með þessu liði kl: 0900 á laugardagsmorgni!
En er samt góð sko
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Jæja...
11.9.2008 | 19:22
...þarna fær maður það staðfest svart á hvítu; það er afar ópraktískt að vera með hana vel snyrta og ilmandi...
...enda pantaði ég mér á e-bay einn stóran breiðan og gildan...
...ótrúlegur andskoti - að þetta skuli líðast og viðgangast!
Nett - í brjálaðri fílu!
![]() |
Kynbundinn launamunur eykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nett pjöllusturta...
8.9.2008 | 23:43
Það var bara tekin nett pjöllusturta á þennan seinnpartinn sko...tíminn var engan veginn nægur í marglitt sápukúlubað hvað þá kertaljós. Maður skildi ávallt hafa það hugfast að vera vel til uppsettur, blásin, krullaður og snyrtur hið neðra, fyrir bíóferðir. Hafið það hugfast elskurnar. Ég vil ykkur einungis vel Þetta er algjört grundvallaratriði til að njóta og vera með einbeitinguna á réttum stöðum, frekar en í eigin klofi ... sem er þó fínt undir vissum kringumstæðum....
...veit einhver annars hvað pjöllusturta er? Grunaði það...
Langamma mín, hún Guðrún....ahhh...Guðríður (gildir einu, spúsan sú arna er flogin á vit ævintýranna...) sagði að það væri afar óhollt að sofa í nærbuxum...ég tók þetta nærbuxna-concept hennar skrefinu lengra...einsog allt sem ég geri. Allt í botni...ekkert hálfkák. Þoli illa lufsugang af öllu tagi.
Núna eða þessa dagana, svo furðalegt sem það hljómar, því tilefnin eru engin sérstök þannig séð, þá er ég svoleiðins á blússandi hamingjutrippi með einmitt hausinn í eigin rassgati að það hálfa væri hellingur! Það er svo miklu miklu betra að vera með hausinn í eigin rassi heldur en í annarra manna rössum! Og hananú!
Iss piss; það sem ég er að segja með þessu er;
Lifið og leyfið öðrum að lifa
Góða nótt og dag elskurnar mínar nær og fjær....flogin á vit ævintýranna í mínum stundum skrítna draumaheimi...
Bloggar | Breytt 9.9.2008 kl. 07:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Tölur og tími gera mig óða!
7.9.2008 | 13:45
Ég á tvo barnsfeður. Bjó stlitrótt og sundurtætt -með þeim báðum. Þeir eiga ekkert sameiginlegt nema eitt einasta atriði; þeir kunna að búa til fyrsta flokks börn.
Ég gær heyrði ég þeim seinni. Það er sá sem les bara bloggið mitt endrum og sinnum alveg óvart, en samt alltaf. Við bjuggum saman mitt á milli 2-5 ár...man ekki... þannig að ég skýt á 3 ár.
Þar sem ég þoli afar illa takmörk (trúi að "the sky is the limit") og tímasetningar (trúi að ég sé enn 25 ára...) Þá kemur varla á óvart eftirfarandi; Við vorum semsé búin að tala saman í einhverja stund þegar hann segir;
-Heiða, ég átti afmæli í gær...
-Kjaftæði!
- nei 5. september...
-NÚ! ó...hey vá....til hamingju....úpsídúps....sorry darling....
-veistu hvað ég er gamall?
-já auðvitað...
Mér skeikaði aðeins um eitt ár. Sem er mjöööög gott þegar ég á í hlut
Þegar ég fór að hugsa þetta og rannsaka ofan i kjölin... án þess að láta það uppi við hann, var ég viss um gæinn hafi átt afmæli í maí (í það minnsta þann tíma sem við vorum að dingla í snörunni) mér hafði örugglega tekist að rugla saman meyjarmerkinu og maí....og skildi nokkurn undra! Maí - meyja... same shit!
Ég fór svo á ljósanótt í gærkveldi, með einum af mínum kærustu vinum. Við erum að tala um engladruslustrák, en ég þekki þrjá svoleiðis stráka, sem ég er í samskiptum við slitrótt og óreglulega.
Englalufsu-druslu-strákar eru flottastir.
Svoleiðis strákar hafa fulla stjórn á typpi og tungu...nei ég lýg því auðvitað. En þessi var með gaurinn niðurnegldan og tunguna í sínum kjafti allan tímann. Þannig að fariði nú ekki að hugsa eitthvað dirty...
Á ljósanótt var margt um manninn...eitthvað á bilinu 10000-50000 kvikindi af öllum stærðum og gerðum. Skýt á 25000...
Mitt í öllu hafinu hitti ég hitti ég svo barnsföður númer 1. Jebbs... og það í þrígang þetta sama kvöld... möguleikinn á að hitta hann og það þrisvar, hefði ég álitið vera minni en að vinna í lottó! "Allt er þegar þrennt er" á víst að vera eitthvert lukku-thing.....kjaftæði! Hann sleikti mig ekkert í framan. Á eftir að kíkja á lottó-miðann minn...
Eftir að brölta þarna um í Keflavíkinni í gærkveldi að drepast úr kulda á háum hælum með kaffibolla í hendi og reyna að halda kúlinu, er streð og puð. Því stoppuðum við félagarnir, hjá fyrrverandi fósturföður mínum númer 26. Þar voru kökur og rugl á borðum.
Við systkinin viljum öll ólm og endilega halda tuttugu og sexunni (fósturpabbanum) inni í liðinu. Hann er vænsti karl. Alveg spurning hvort ég negli ekki bara karlinn. Fyrir þau sko....Ég meina; skítt með 32 ára aldursmun og skalla og bumbu...er hvort eðer búin að gefa út þá yfirlýsingu að ég sé með ofnæmi fyrir hverskyns "stimplunum" og tölum og númerum. Hvað þá nöfnum.
Ég verð þá stjúpa systkina minna, eldri sem yngri, sem er ekki svo mikið afbriðgðilegt...eða hvað? Össs....Nei fuck that -maður lifandi! Mér lýst ekkert á þetta!
Ég yrði með þessum ráðahag, tólf barna móðir...og amma... margföld!
Njótið sunnudagins
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (36)
Sjálf held ég því fram...
7.9.2008 | 12:10
...að við séum öll Guðsbörn. Öll erum við jafn merkileg og ómerkileg. Ég trúi einnig að Guð elski alla jafnt.
Í framhaldi af þessu datt mér í hug, hvort yrði sýnt beint á RUV þegar útför mín fer fram. Hvort frétt birtist í síðum blaðanna.
Bara smá pæling...
![]() |
Allir hlustuðu þegar hann talaði" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Troddu tungunni uppí mig...STRAX
5.9.2008 | 21:33
Við vitum öll að það næsta við Guð Almáttugan, Jesú Krist og Heilagan Anda eru hvítsloppar. Ef ég var í einhverjum vafa, þá fékk ég þessa vissu staðfesta í gær. Læknar eru náskyldastir þeim félögum. Kannski þeir séu bróðir Jesú og synir Guðs. Andinn er þeirra best pal.
Mamma nefnilega hringdi í gærkveldi og þegar hún heyrir ráma karlmannsrödd sem reyndist vera mín, þá sagði hún;
-eru allir með þennan andskota?
-nú hva...ert þú líka með hálsbólgu?
Hún dæsti og segir;
-sko Heiða...það er miklu verra en það, ég er með mjöööög slæma sýkingu í hálsinum!
-...og fórstu til læknis?
-Ertu alveg spinnigal! Auðvitað ekki, hvernig átti ég að fara að því, þríbrotin á fæti!? Nei ég hringdi nú bara í hann!
Ég held að fólk ætti að taka þessa elsku til fyrirmyndar, mamma labbar um allt án hjálpartækja ástarlífsins. Hörkukerling hér á ferð. Fór nú síðast fótgangandi í Bónus í dag. En ekki til læknis, því nú til dags sjúkdómsgreina þessir snillingar krabbamein og allan fjandann í gegnum síma þar á meðal beinbrot.
Ég hef annars alveg verið skotin í hvítslopp sko....en það er efni í marga færsluna... við erum að tala um upp-slá-elsi og hvaðeina.
Annars fór ég út að borða seinnipart dags. Sem er ekki til frásögu færandi nema fyrir það eitt að borðherrann var og vonandi er enn með fallegustu augu veraldar. Allt í einu týndi ég augunum hans. Og ég fór í ofboði að leita. Að sjálfsögðu fann þau, á þrjóskunni einni saman. Hann var með þau límd við luralegan karlmann sem reyndist vera með tungl á hausnum.
Ég rek í framhaldi augun mín utan í hökulausa kvensnift. Ykkur að segja varð ég græn að öfund! Ég reif upp gemsann því ég er langt í frá sleip í stærðfræði og fór að reikna. Fann það út að það er mun styttra síðan hún fékk það en ég.
Hún var nefnilega komin ca. 8 mánuði á leið, pjallan sú arna.
Luralegi karlmaðurinn og hökulausa kvensniftin reyndust vera par. Kannski hjón. Ég er afskaplega næm sko.... og veit því fyrir víst að þetta par hefur vaðið fyrir neðan sig. Er alls ekkert að rugga bátnum. Tekur enga áhættu og fer aldrei yfir á yfirdrættinum, hvað þá drættinum. Það eru því sléttir átta mánuðir síðan síðast. Staðreyndin er sú að mér líður lítið betra með það.
Svo horfðum við í augu hvors annars. Ég og gullpungurinn. Ég hef ekki rassgats-hugmynd um hvað hann var að hugsa. En veit slétt vel hvað fór um huga minn.
Nefnilega þetta;
Nú er ég búin að sitja hér með þér í 1 1/2 klukkutíma. Þú hefur hér eitt stykki brjóstaskoru fyrir framan þig. Er ekki tímabært að troða fuckings tungunni upp í mig?!
NÚNA STRAX!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Ég er einmitt...
5.9.2008 | 21:32
...með þetta kraftmikla, munúðarfulla og frjálsa göngulag. Er hvorki með læsta né slappa vöðva. Á það samt til að vera stór-stíga og sveiflast út til hliðanna.
Held svei mér þá að g-bletturinn, t-bletturinn og s-bletturinn séu allir staðsettir í einni þvögu, ofan á hausnum á mér
![]() |
Göngulagið kemur upp um G-blettinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Og áfram druslumst við...
3.9.2008 | 23:22
ég og ég...
Hver hefði trúað því að ég kæmist með bílinn minn án athugasemda í gegnum skoðun?
Enginn.
En svona gerir maður, þegar maður ekur um á einum öldruðum;
Þú ferð í eitt stykki frekar svona tussulegt stutt gallapils. Á pjöllunni beinustu leið í leggins. Ekki of háa hæla og alls ekki lágbotna. Svona millibilsástand á skóna.
Svo brosir maður nógu andskoti stíft (alls ekkert hálfkák þar) og er þokkalega heimskulega stemmdur á því. Ástandið láta vara í um 15 mín. (Áætlaður tími sem bifreiðaskoðun tekur).
Því næst nærð þú augnkontakt...stífum og fyrir alla muni alls ekki sleppa taktinum. Algjört frumskilyrði!
Við viljum ekki að gaurinn reki augun í þá staðreynd að bíllinn er ljóslaus með öllu. Gloss verður að vera að vörum. Must!
Skvetta gusu af góðri lykt útum þig alla. Uppúr og niðrúr og frammúr!
Steinliggur! - ábyrgist skoðun 09 svo framalega sem augun þín eru ekki staðsett ofan á hausnum.
Guys; ég veit ekki hvernig þið ætlið að "tækla þetta", kannski eigið þið vinkonu...
...það er sem ég segi; það eru forréttindi að vera kvenmaður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)