Og áfram druslumst við...

ég og ég... 

Hver hefði trúað því að ég kæmist með bílinn minn án athugasemda í gegnum skoðun?

Enginn.

En svona gerir maður, þegar maður ekur um á einum öldruðum; 

Þú ferð í eitt stykki frekar svona tussulegt stutt gallapils. Á pjöllunni beinustu leið í leggins. Ekki of háa hæla og alls ekki lágbotna. Svona millibilsástand á skóna.

Svo brosir maður nógu andskoti stíft (alls ekkert hálfkák þar)  og er þokkalega heimskulega stemmdur á því. Ástandið láta vara í um 15 mín. (Áætlaður tími sem bifreiðaskoðun tekur).

Því næst nærð þú augnkontakt...stífum og fyrir alla muni alls ekki sleppa taktinum. Algjört frumskilyrði!

Við viljum ekki að gaurinn reki augun í þá staðreynd að bíllinn er ljóslaus með öllu.  Gloss verður að vera að vörum. Must!

Skvetta gusu af góðri lykt útum þig alla. Uppúr og niðrúr og frammúr! 

Steinliggur! - ábyrgist skoðun 09 svo framalega sem augun þín eru ekki staðsett ofan á hausnum.

Guys; ég veit ekki hvernig þið ætlið að "tækla þetta", kannski eigið þið vinkonu...

...það er sem ég segi; það eru forréttindi að vera kvenmaðurCool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 3.9.2008 kl. 23:25

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Minn á að fara í skoðun í mars.  Þú ert ráðin í djobbið á stundinni og ekkert múður skooohhh. 

Marinó Már Marinósson, 3.9.2008 kl. 23:39

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ekki málið!

Heiða Þórðar, 3.9.2008 kl. 23:44

4 Smámynd: Solla Guðjóns

það hefur hingað til virkað að líta ekki of gáfulega út þegar bílar eru annars vegar tala nú ekki um skoðun á þeim.....pottþétt skoðun.....líta út eins og þeir viti ekki alveg hvar þeir hafa mann.......og láta þá halda að þeir líti vel út.........flisssss....gaman að þessu.

Solla Guðjóns, 3.9.2008 kl. 23:56

5 identicon

já það er sko forréttindi Heiða og ekkert sem fengi mig til að vera neitt annað !

Ofurskutlukveðja

ps. á tíma fyrir minn á þriðjudaginn, fæ ég lánað pilsið?

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 00:13

6 Smámynd: Heimir Tómasson

Iss. Síðast þegar ég reyndi þetta varð allt vitlaust.

Heimir Tómasson, 4.9.2008 kl. 00:16

7 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Snemma vors er svo gott að komast inn í hlýjuna til þeirra, ég fæ líka að horfa á allt úr gryfjunni svo ég geti litið upp til bílsins, sem á eftir að þjóna mér á heimsenda.- Ég er alveg að fara að bónann, segi ég og hann elskar að vera í góðu lagi og fínn. - Það er gott að fara í Athugun. Og örugglega forréttindi að vera kvenmaður,

Eva Benjamínsdóttir, 4.9.2008 kl. 02:13

8 Smámynd: Sporðdrekinn

Þarna klikkaði ég einu sinni, tók óvart blond og pínu heims í staðin fyrir kynþokkann. Ég geri það ekki aftur,varð að koma aftur eftir smá viðgerð

Heimir Tomm: Ég er svo hissa......

Sporðdrekinn, 4.9.2008 kl. 02:41

9 Smámynd: María Guðmundsdóttir

ønnur adferd..mæta med sirka fjóra til fimm krakka..mjøg øra og sonna...og allir bída inni á medan..kallinn getur ekki verid nógu fljótur ad gefa limmidann og ýta manni út

María Guðmundsdóttir, 4.9.2008 kl. 07:10

10 Smámynd: Ásgerður

Þú ferð með minn,,,díll?

Knús á þig sæta

Ásgerður , 4.9.2008 kl. 09:52

11 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

Reyndi þetta í gær, að vísu leður pils.... gænn miði!

Þórður Helgi Þórðarson, 4.9.2008 kl. 11:11

12 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

:)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 4.9.2008 kl. 11:25

13 Smámynd: Margrét M

þú er bara snillingur

Margrét M, 4.9.2008 kl. 11:32

14 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég fór einu sinni með einn gamlan í skoðun í grenjandi rigningu. Það átti að skipta um númer á honum og var ég sjálf látin skrúfa það af. Þegar ég kom svo inn aftur, alveg ótrúlega ósexí, blóðrisa á höndunum og rennandi blaut vorkenndu þeir mér svo mikið að þeir smelltu bara miðanum á án þess að líta á bílinn. Ef sexappílið dugir ekki verður maður að vona að þeir séu aumingjagóðir.

Helga Magnúsdóttir, 4.9.2008 kl. 11:43

15 identicon

ókei, reyni þetta næst...hef 9 mánuði til að skvera mig til...

alva (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 11:50

16 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Stattu þig stelpa!

Edda Agnarsdóttir, 4.9.2008 kl. 17:39

17 Smámynd: Heidi Strand


Hefur þú reynd þetta eftir verslunarferð erlendis?

Heidi Strand, 4.9.2008 kl. 19:44

18 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Eftirköst?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 4.9.2008 kl. 19:46

19 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Sem skoðunarmanni við þessar aðstæður hefði nú staðið á mér...Að SKOÐA bílinn, en ekki þig!

Magnús Geir Guðmundsson, 4.9.2008 kl. 21:32

20 Smámynd: JEG

Já en þetta heppnast ekki hjá öllum svo ég læt bara kallinn fara með bílinn í skoðun.  Enda hans deild :)

Kveðja úr sveitinni.

JEG, 4.9.2008 kl. 21:41

21 identicon

Ég get alveg tekið undir það að það séu stundum forréttindi að vera kona. Ég verð að viðurkenna það líka, að ég hef látið undan ilmi, augum og cleavage... og daman komist upp með það (bæði í vinnu og annars staðar)...

ég er ekki að djóka, en ég var nærri því búinn að kaupa 170 þús. kr. ryksugu þegar ég bjó einn fyrir 12 árum eða svo ... bara út af því að stúlkan sem kom heim og sýndi mér alla hlutina sem vélin gat gert svo vel og var í þröngum flegnum bol og ilmaði eins og gyðja.... ó vá... það var ekki fyrr en ég hringdi í framkvæmdastjóra fyrirtækisins daginn eftir sem ég gat stunið upp úr mér: heyrðu, ég ehemm... ég ætla eiginlega ekkert að fá þessa ryksugu...

the power of women!!!! Ég elska þær! ... og þig eflaust

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 23:32

22 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

You sexy girl .

Knús

Elísabet Sigurðardóttir, 5.9.2008 kl. 10:33

23 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

 Eigðu góða helgi elskan.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.9.2008 kl. 11:49

24 Smámynd: Þ Þorsteinsson

æjæ  ,tvær druslur bíða skoðunar á mínu heimili,borinn von að ég fari með þær ,verð að dressa frúnna upp og beita öllum ráðum til þess.Einhver ráð við því ?

Þ Þorsteinsson, 5.9.2008 kl. 17:20

25 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Þ. :  Það er tilboð hjá Heklu.  500 þús. upp í hvaða druslu sem er, með skoðun 09.  

Marinó Már Marinósson, 5.9.2008 kl. 17:30

26 identicon

Frábært, en veistu þetta er skemmtleg staðreynd, ég tala nú ekki um ef þú hefðir sagst vera einhleyp og ólétt, þá hefðir þú fengið fulla skoðun á dekk undan bíl

Glanni (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 20:19

27 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heiða Þórðar, 5.9.2008 kl. 21:04

28 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

ég fór einu sinni að hágráta í bifr.skoðun og bað um að fá ekki endurskoðun á hryllinginn sem ég kallaði bíl ... karlandskotinn blikkaði ekki einu sinni þegar hann sagði ... ENDURSKOÐUN?? þú átt að fá AKSTURSBANN!!

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 5.9.2008 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband