Hoppaði í sexy-gírinn

Engin leyndarmál hér, nema kannski smá tittlingaskítur sem tekur varla að nefna. Ekki einu sinni sérlega feit færsla í dag -en færsla samt Wink. Ég get nú ekki annað en brosið því sum ykkar búist við einhverju suddalegu....en svo bara eitthvert prump...

Eitt stykki minnistæður seinnipartur í lífi mínu í vikunni sem leið ...og kemur aldrei aftur.  

Ég kom heim...kastaði af mér skónum og fékk mér kaffi. Alltaf sami rúnturinn. Settist fyrir framan tölvuna þar sem ég þurfti að gera eitthvað mjööööög áríðandi og þá ... virkaði ekki netið. Að sjálfsögðu spreðaði mín einu lekkeru fucki útí loftið. Tók upp símann og fór að hringja í alla þá sem ég vissi að höfðu ögn meira vit á tölvum en ég. En þeir eru nokkuð margir...

Á endanum komst bróðir minn að þeirri niðurstöðu að best væri fyrir mig að hringja í símafyrirtækið mitt, þessa helvítis glæpamenn (bætti hann við) og svo sagð'ann....þú þarft örugglega að bíða í nettan klukkutíma eftir þessu fávitum. Ég fékk eina sögu af óförum hans í samskiptum við þessa ótýndu glæpamenn, eitthvað var minnst á samráð og svik. Að manni væri hent frá manni til manns. Að öll kvikindin væru þroskaheftir afturkreystingar. Allir benda á alla og hvern annan með puttanum sem þó væri staðsettur í rassagatinu ...og fleira svona smekkó!

Púff! Skildi nokkurn undra orðaval mitt á stundum.

Og ég hringi....

-þú ert númer 16 í röðinni, vinsamlegast hinkraðu...

Og ef það er eitthvað sem fer meira í taugarnar á mér en að fucking BÍÐA....þá er það; EKKERT!!!!

En ég beið....þegar ég var komin í fjórtánda sæti, tók ég fram glært lakk og byrjaði að mála neglurnar, hverja einu og einustu. Lakkið var þornað þegar ég var komin í númer 10. Ég stóð upp og hugsaði um hvernig maður tæklar svona afturkreystinga. Ég yrði nú að lesa þeim pistilinn. Ég hugsaði um hvað ég hafði heyrt í kringum mig frá öðrum fólki. Engin segir neitt fallegt um Símann. Ekki neinn.  Þetta voru algjörir lúðakrimmar. Ég ætlaði að redda þessu. 

Ég veit fullvel að maður getur gefið af sér ákveðna ímynd með röddinni einni saman. Ég ætlaði sko alls ekki að vera svona móðursjúk kerling á öskrinu. Neibb.  Ég ætlaði að virka svona draktarkerling, gráteinótt. Með nærbuxurnar upp í rassgatinu og í samlitum brjóstarhöldum. Í nælonsokkum. Með rauðan varalit og hárið í strekktum hnút aftan á hnakkanum. Með stingandi augnaráð, kynköld og með píkufílu. Ísköld og kúl á því. 

Ég engdist sundur og saman í biðinni og var u.m.þ.bil. að missa "kúlið"...

þegar....

-þjónustuver Jónas góða kvöldið. Hvernig get ég aðstoðað?

 -Góða kvöldið, nafnið var aftur .... (ísköld og róleg)

-Jónas

(ég skrifaði það niður og ímyndaði mér að ég væri með hornspangargleraugu og brún augu)

-já sæll Jónas, það virkar ekki hjá mér netið. Þetta er mjög bagalegt  þar sem þetta er atvinnutækið mitt að hluta og mín bíða ótal póstar. Það er auðvitað svakalegt að maður geti ekki treyst á að þið hafið þessa hluti í lagi. Þá er ég að tala um tengingar og tíðni og hvað þetta kallast allt saman. Þú verður að kippa þessu í liðinn,  ekki seinna en strax! Ég bíð á línunni á meðan og sleppi þér ekki! Hvar ertu annars staðsettur í bænum?

-og heimasíminn þinn er?

1231231

-látum okkur nú sjá...

....bið ....bið ....bið

-ertu þarna Jónas (ábúðarfull og ögn óþolinmóð)

-já ég er að skoða þetta aðeins hérna...

-já það kemur sko eitthvað proxy og DNA eitthvað...(mjög ákveðin og hækka röddina örlítið án þess að missa það...)

-já bíddu...heyrðu það er búið að loka fyrir tenginguna vegna skuldar....

-ó....... Blush

....og við erum að tala um svo lítið ó...að það sást varla hvað þá heyrðist..

Án mikillar umhugsunar, hoppaði ég strax í sexy gírinn, en þar er ég best geymd og hann fer mér best. Á meðan ég var með gaurinn á línunni, reif ég mig úr teinóttagráa-fílingnum og fór í minn eiginlega gír; -segin saga á meðan ég daðraði einsog motherfucker....nærbuxnalaus með glæra naglalakkið...þá auðvitað opnaði hann netið án múðurs og muldurs.

Skil barasta ekki afhverju konur nýta sér ekki þetta áhrifavald í drasl og dót meira en gert er! 

Við erum að tala um að þetta svínvirkar! 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísa Dóra

Maðurinn minn vinnur reyndar hjá þessu óforskammaða fyrirtæki - eins gott að það er þó ekki þjónustuverið

Dísa Dóra, 2.9.2008 kl. 19:20

2 Smámynd: Ómar Ingi

SLUT 

Ómar Ingi, 2.9.2008 kl. 19:24

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heiða Þórðar, 2.9.2008 kl. 19:27

4 identicon

Þú ert ekki ein um þessa reynslu

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 19:35

5 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Gleymdir þú ekki bara að borga reikninginn?  

Marinó Már Marinósson, 2.9.2008 kl. 19:37

6 Smámynd: Agný

Það er alveg merkilegt hvað þetta net dæmi hlýtur að vera mein gallað apparat eða símakerfið heilt yfir...miðað við hvað alltaf eru margir að bíða eftir tæknilegri aðstoð...Ég ætla að áætla að það séu ekki bara við tölvu "ekki seníin" sem séu að bíða eftir tæknilegri aðstoð...En þetta er allavega óþolandi hvernig þetta er..Sem betur fer hef ég ekki oft þurft að leita í þetta þjónustuver en ég held ég hafi verið númer twenty something...ákvað að hringja frekar aftur heldur en bíða hálfan daginn.. En best að muna daður dæmið ...ja ef það er karlkyns sem svarar næst þegar ég þarf á einhverri tæknilegri hjálp að halda...

Agný, 2.9.2008 kl. 19:38

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Nærbuxnalausaótuktinþínargggggg

Ég tek undir með bróður þínum

lövjú

Solla Guðjóns, 2.9.2008 kl. 19:42

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ertu að tala um símann?? það eru sko bestu strákar í heimi, ég daðra eins og ég get þegar ég hringi þangað og fæ sko alltaf það sem ég vil og það strax, gott að heyra að þú ert með talandann í lagi og puttarnir virka. Love you girl erum við þá ekki elskDuck 4  Duck 4 Duck 4 ?

Ásdís Sigurðardóttir, 2.9.2008 kl. 19:55

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Anna mín; sko málið er að stundum langar mig í skó eða buxur eða ilmvatn eða....osfrv. Þá á ég sko alveg til í að setja svona reikninga á hold...lufsast aðeins með þetta

Ég er reyndar að tala um TAL -flottir gaurar hjá Tal...miðað við þessa reynslu.

Marinó; neibb...eða júbb...svona eftir því hvernig á það er litið

Heiða Þórðar, 2.9.2008 kl. 20:11

10 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Jónas segirðu.... best ég biðji um hann um miðjan mánuðinn þegar mínum síma verður lokað vegna f... sumargleðinnar sem setti bara allt á annan endan.

En þú ert samt ógeðslega kúl

Linda Lea Bogadóttir, 2.9.2008 kl. 20:13

11 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Snilld.....

Sunna Dóra Möller, 2.9.2008 kl. 20:27

12 Smámynd: Heiða  Þórðar

hehe -já Linda og farðu í gírinn stelpa! Á ég kannski að hringja fyrir þig eða...?

Heiða Þórðar, 2.9.2008 kl. 20:34

13 Smámynd: Sporðdrekinn

Guð hvað þú ert frábær!

Þú lætur mér líða svo vel með svona færslum, ég veit þá að ég er ekki ein um að gera svona skandall

Það er sexí skutlan á strákana, svona pínu blond. Og hin ósjálfbjarga, saklausa og kurteisa týpan á konurnar   

Sporðdrekinn, 2.9.2008 kl. 20:59

14 Smámynd: Heiða  Þórðar

Gaman og ljúft að heyra Sporðdreki.  Já og þú ferð svo sannarlega rétt með

Heiða Þórðar, 2.9.2008 kl. 21:13

15 Smámynd: Heidi Strand

Nú skil ég þessi þögn. Þú varst á bið.

Heidi Strand, 2.9.2008 kl. 21:20

16 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Um að gera að notfæra sér það að maður hljómar sexí í síma. Þá getur maður verið eins og maður vill á hinum endanum á línunni.

Helga Magnúsdóttir, 2.9.2008 kl. 21:48

17 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Konur í teinóttu eru stórhættulegar :)

Hólmgeir Karlsson, 2.9.2008 kl. 22:48

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Las einhversstaðar að það er svona norskr karl sem falast eftir notuðum nærbuxum af unglingsstúlkum og ungum konum, hann borgar vel fyrir naríurnar, svona 5000 kall, ef ég man rétt.  Þetta gæti verið leið til að borga af netinu snúllan mín.  Hahahahahahahaha

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.9.2008 kl. 23:12

19 identicon

Heil og sæl; Heiða mín, og aðrir skrifarar !

Ekki er að spyrja að; einurð þinni og ergi. Rétt er það; Póst & Síma, á að endurreisa, sem ríkisfyrirtæki, að sjálfsögðu, og kasta út einkavina hjörð Sjálfstæðisflokksins. Þetta lið er; eins og hýenu mara, á samfélgi okkar. Því er komið, sem komið er, allvíða.

En,....... hvílík þolinmæði, sem þér er gefin, kona.

Með beztu kveðjum, sem fyrr /

Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 23:26

20 Smámynd: JEG

Óborganleg ritsnilld í þér kona.

Kveðja úr sveitinni.

JEG, 2.9.2008 kl. 23:42

21 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Þú gerir símtal við símann að bráðskemmtilegri lesningu, hvernig er það hægt?  Snilli.

Elísabet Sigurðardóttir, 3.9.2008 kl. 00:23

22 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Gaman hjá mér, hér hjá þér.

Eva Benjamínsdóttir, 3.9.2008 kl. 00:57

23 Smámynd: Heiða  Þórðar

Það er verið að gefa í skyn hér (Frú Ásthildur) að ég eigi að fara ganga í nærbuxum! Nú líst mér á þig

Heiða Þórðar, 3.9.2008 kl. 01:41

24 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 frábær frásøgn kona gód...en ómæ hvad ég kannast vid thetta med simann,madur er kominn med háthrýsting loksins thegar madur var ordin NÚMER EITT ætli trikkid sé ekki bara ad flestir gefast upp ádur en their ná svo hátt....

María Guðmundsdóttir, 3.9.2008 kl. 06:19

25 Smámynd: Gísli Torfi

Heiða ég var fyrir löngu búinn að benda þér á þessa staðreynd :) The Voice

ps ég fékk mér Dúfu í matinn um daginn í vinnuni... Það var svona eins og ég hafi ekki bara smá vottað af Friði og Heilagleika eftir átið

Gísli Torfi, 3.9.2008 kl. 06:59

26 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Ég hef heyrt að það eigi að fara að taka á þessum daðurmálum hjá símanum. En fyrirtækið er víst kominn á heljarþröm og stóran mínus því þjónustudeildinn er að láta opna tengingar á stórskuldugum kúnnum (aðalega konum) út um allan bæ.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 3.9.2008 kl. 07:01

27 Smámynd: Ásgerður

 Þú ert one of a kind.

Ásgerður , 3.9.2008 kl. 10:16

28 Smámynd: Óskar Þorkelsson

þar sem ég er karl.. þá ef ég ekkert sexývopn á strákana í þjónustuveri símans, en kurteisi er snilld og opnar margar dyr, þau eru yndisleg sem þarna vinna í vanþákklátu starfi :)

Óskar Þorkelsson, 3.9.2008 kl. 12:32

29 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Ég legg alltaf á ef það kemur karlmannsrödd í síman og hringi aftur. 

Marinó Már Marinósson, 3.9.2008 kl. 13:20

30 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

engum lík

gott að þú ert komin aftur

Guðrún Jóhannesdóttir, 3.9.2008 kl. 14:53

31 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

Það eru þið konurnar sem eruð glæpamennirnir!

Nærbuxnalausar, hvað gat Jónas gert???

Þórður Helgi Þórðarson, 3.9.2008 kl. 14:56

32 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

það er kostur okkar kvenna við getum verið svo diplómatískar að það jaðrar við dónaskap, en svo, svo engilblíðar og sexý.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.9.2008 kl. 17:16

33 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Já þú hringir fyrir mig og ég bíð þér á "sing along" með Mamma Mía myndinni á sunnudagskvöldið...

Linda Lea Bogadóttir, 3.9.2008 kl. 19:02

34 Smámynd: Ísdrottningin

Daðrið hefur opnað manni óteljandi dyr um dagana, satt er það og bjargað úr ýmsum meinlegum klípum.

Ísdrottningin, 3.9.2008 kl. 21:45

35 identicon

ROFL

Þú ert svo mikil drusla.....

Díta (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 22:19

36 Smámynd: Rannveig H

Þú drepur mann

Rannveig H, 3.9.2008 kl. 22:41

37 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég er búin að gleyma þessu öllu!

Edda Agnarsdóttir, 3.9.2008 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband