Færsluflokkur: Bloggar
Hoppaði í sexy-gírinn
2.9.2008 | 17:49
Engin leyndarmál hér, nema kannski smá tittlingaskítur sem tekur varla að nefna. Ekki einu sinni sérlega feit færsla í dag -en færsla samt . Ég get nú ekki annað en brosið því sum ykkar búist við einhverju suddalegu....en svo bara eitthvert prump...
Eitt stykki minnistæður seinnipartur í lífi mínu í vikunni sem leið ...og kemur aldrei aftur.
Ég kom heim...kastaði af mér skónum og fékk mér kaffi. Alltaf sami rúnturinn. Settist fyrir framan tölvuna þar sem ég þurfti að gera eitthvað mjööööög áríðandi og þá ... virkaði ekki netið. Að sjálfsögðu spreðaði mín einu lekkeru fucki útí loftið. Tók upp símann og fór að hringja í alla þá sem ég vissi að höfðu ögn meira vit á tölvum en ég. En þeir eru nokkuð margir...
Á endanum komst bróðir minn að þeirri niðurstöðu að best væri fyrir mig að hringja í símafyrirtækið mitt, þessa helvítis glæpamenn (bætti hann við) og svo sagð'ann....þú þarft örugglega að bíða í nettan klukkutíma eftir þessu fávitum. Ég fékk eina sögu af óförum hans í samskiptum við þessa ótýndu glæpamenn, eitthvað var minnst á samráð og svik. Að manni væri hent frá manni til manns. Að öll kvikindin væru þroskaheftir afturkreystingar. Allir benda á alla og hvern annan með puttanum sem þó væri staðsettur í rassagatinu ...og fleira svona smekkó!
Púff! Skildi nokkurn undra orðaval mitt á stundum.
Og ég hringi....
-þú ert númer 16 í röðinni, vinsamlegast hinkraðu...
Og ef það er eitthvað sem fer meira í taugarnar á mér en að fucking BÍÐA....þá er það; EKKERT!!!!
En ég beið....þegar ég var komin í fjórtánda sæti, tók ég fram glært lakk og byrjaði að mála neglurnar, hverja einu og einustu. Lakkið var þornað þegar ég var komin í númer 10. Ég stóð upp og hugsaði um hvernig maður tæklar svona afturkreystinga. Ég yrði nú að lesa þeim pistilinn. Ég hugsaði um hvað ég hafði heyrt í kringum mig frá öðrum fólki. Engin segir neitt fallegt um Símann. Ekki neinn. Þetta voru algjörir lúðakrimmar. Ég ætlaði að redda þessu.
Ég veit fullvel að maður getur gefið af sér ákveðna ímynd með röddinni einni saman. Ég ætlaði sko alls ekki að vera svona móðursjúk kerling á öskrinu. Neibb. Ég ætlaði að virka svona draktarkerling, gráteinótt. Með nærbuxurnar upp í rassgatinu og í samlitum brjóstarhöldum. Í nælonsokkum. Með rauðan varalit og hárið í strekktum hnút aftan á hnakkanum. Með stingandi augnaráð, kynköld og með píkufílu. Ísköld og kúl á því.
Ég engdist sundur og saman í biðinni og var u.m.þ.bil. að missa "kúlið"...
þegar....
-þjónustuver Jónas góða kvöldið. Hvernig get ég aðstoðað?
-Góða kvöldið, nafnið var aftur .... (ísköld og róleg)
-Jónas
(ég skrifaði það niður og ímyndaði mér að ég væri með hornspangargleraugu og brún augu)
-já sæll Jónas, það virkar ekki hjá mér netið. Þetta er mjög bagalegt þar sem þetta er atvinnutækið mitt að hluta og mín bíða ótal póstar. Það er auðvitað svakalegt að maður geti ekki treyst á að þið hafið þessa hluti í lagi. Þá er ég að tala um tengingar og tíðni og hvað þetta kallast allt saman. Þú verður að kippa þessu í liðinn, ekki seinna en strax! Ég bíð á línunni á meðan og sleppi þér ekki! Hvar ertu annars staðsettur í bænum?
-og heimasíminn þinn er?
1231231
-látum okkur nú sjá...
....bið ....bið ....bið
-ertu þarna Jónas (ábúðarfull og ögn óþolinmóð)
-já ég er að skoða þetta aðeins hérna...
-já það kemur sko eitthvað proxy og DNA eitthvað...(mjög ákveðin og hækka röddina örlítið án þess að missa það...)
-já bíddu...heyrðu það er búið að loka fyrir tenginguna vegna skuldar....
-ó.......
....og við erum að tala um svo lítið ó...að það sást varla hvað þá heyrðist..
Án mikillar umhugsunar, hoppaði ég strax í sexy gírinn, en þar er ég best geymd og hann fer mér best. Á meðan ég var með gaurinn á línunni, reif ég mig úr teinóttagráa-fílingnum og fór í minn eiginlega gír; -segin saga á meðan ég daðraði einsog motherfucker....nærbuxnalaus með glæra naglalakkið...þá auðvitað opnaði hann netið án múðurs og muldurs.
Skil barasta ekki afhverju konur nýta sér ekki þetta áhrifavald í drasl og dót meira en gert er!
Við erum að tala um að þetta svínvirkar!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (40)
Takk...
1.9.2008 | 23:13
...ástsamlega fyrir hversu dugleg þið eruð að heimsækja mig og commenta. Takk ennfremur fyrir öll e-mailin. Þið eruð yndisleg
Svei mér þá; held ykkur sé hreint ekki sama um mig. Og mér finnst það gott .
Þetta er alveg að koma...alveg heilagur sannleikur!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Í...
30.8.2008 | 09:45

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
Ég hef komist að því...
28.8.2008 | 21:06

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Íslendingar eru fúlir á móti...
26.8.2008 | 19:34
Ég veit ekki hvað þetta er með mig. Afhverju allt getur ekki verið bara svona skothelt í kringum mig. Svona venjulegt einhvernveginn....
...í morgun eftir sturtu og þetta vanalega stúss, settist ég upp í minn fagur-rauða bíl. Ég keyri þarna á svaka blússi með tónlistina í botni...og stoppa á rauðu. Við hlið mér er par og þau vinka mér. Ég hugsaði með mér;
-ósköp er fólk orðið vinalegt eitthvað, hlýtur að vera silfrið....og ég vinka á móti. Þau vinka meira bæði tvö... ég virði þau aðeins fyrir mér. Kannaðist ekkert við þau. En aftur fengu þau samt vink og meira að segja risabros...með tönnum og öllu.
Ég keyri áfram og er að velta fyrir mér þessari svaðalegu stökkbreytingu á íslendingum í umferðinni. Þetta er frábær þróun...
....minnist þess nefnilega þegar ég hafði dvalið erlendis í um fimm ára skeið. Kom til baka fór í strætó og þegar ég bauð góðan daginn...fékk ég bara eitthvað svakalega úldið stykki á móti. Áfram gekk þetta svona. Ég brosti í Kringlunni eða/og á Laugarveginum -bauð góðan daginn hægri vinsti.. einsog viðvafningur. Fólki fannst ég stórskrítin svo ekki sé meira sagt. Hitti þáverandi borgarstjóra í Elliðarárdalnum, brosti og allan pakkann...og hún virti mig ekki viðlits hvað þá meir. Eða jú aðeins...og ekkert voða sexy augnaráð neitt. Ég hafði á tilfinningunni að þetta væri borgin hennar og ég ætti ekki einu sinni smá lufsu í henni.
Með tímanum fór ég að verða svona einsog fólk er flest. Brosið fór að leka. Var og er með fílusvipinn hangandi útúr rassgatinu alla daga. Skoða allt það markverða sem er að ske á milli gangstéttahellanna og virði fólk ekki viðlits....einsog sönnum íslending sæmir. Svona hipp og kúl. Nógu andskoti fúl á móti! Það er töff og maður ætti að varast að vera að fleygja brosunum útí loftið of mikið!
Ég má þakka Guði mínum fyrir að hafa ekki fengið á mig ákæru á þessu hamingju-bros-góðan-daginn-tímabili í lífi mínu. Ef ekki fyrir kynferðislega áreitni...með munninum, þá eitthvað annað. Shitt hvað ég var heppin!
Í morgun, fannst mér þetta því skemmtileg tilbreyting. Við lendum samhliða aftur á rauðu ljósi...ég og parið. Þau byrja að baða út öllum öngunum sínum og ég varð hrædd... ég reiknaði út í snarhasti að þau væru "spastík" og ættu ekki alls heima í umferðinni. Þau bentu og vinkuðu og veifuðu og allt í gangi og voða stuð í þeirra bíl!
Líka í mínum, en allt öðruvísi stemmari í gangi.
Loks skrúfaði ég niður rúðuna á þriðju rauðu ljósunum...og þá öskrar karlinn;
-ÞAÐ ER SPRUNGIÐ HJÁ ÞÉR!!!!! Fannstu það ekki????? Þú eyðileggur dekkið ef þú keyrir mikið lengur á honum svona!!!!
Honum var svo mikið niður fyrir karlunganum, að ég dauðvorkenndi honum.
Auðvitað keyrði ég svo bara áfram -eftir brosandi takkið, alla leið í vinnuna á splundruðu dekki...hvað annað átti ég svo sem að gera?
Staðan núna?
Það er spurning...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
Kjúklingapöddur og pissudúkkur...
25.8.2008 | 15:53
Ég sat í bílnum áðan og borðaði samloku, franskar, drakk Kók með og horfði á marglitar regnhlífar.
Í mínum huga æða um ca. 50.001 hugsun pr mín án þess að trufla mig mjög mikið...og þetta var eitt af því sem ég var að hugsa;
Eilíft kvart og kvein í fólki yfir smá kúk!
...nú síðast var vinkona mín ein að kvarta yfir því að ostur í sneiðum hefði minnkað. Dinglaði í kassanum einsog krækiber í helvíti. Passaði ekki lengur ofaná brauðsneiðina.
Undir þessu sat ég með mölbrotin kviðvegg og slöngubit... svo bætti hún í hressilega (með kross-saum);
-og Haltu kjafti karamellurnar eru orðnar smá kvikindi! Bara eiginlega pilla!
...ég hugsaði; því miður...en svo kom ég reyndar með snilldarlausnir einsog mín er von og vísa. T.d. að setja 1 1/2 sneið af osti á brauðið og troða tveimur karamellum í kjaftinn á sér...
...en hún heyrði ekki í mér og áfram gekk;
- Hefurðu tekið eftir því hvurslags ræfilskvikindi, sem þeir kalla kjúkling, er verið að bjóða uppá í Bónus? ....sagði hún og var nánast komin á öskrið. Og svo eldar maður þetta og kjúklingurinn breytist í pöddu! (viss um að hún fékk þennan lánaðan frá mér....)
Allt í heiminum minnkandi fer því miður ... hún fór samt ekkert í typpaumræður í þetta sinnið.
Þessa mynd fékk ég frá mjög kærri bloggvinkonu og finnst mér hún svolítið lýsandi fyrir mismunandi viðhorf fólks til hlutanna. Þ.e. hálffullt nú eða -tómt... því það er bara þetta tvennt í boði!
Kannski er göllinn bara að plain pissa í glas...og ég í sakleysi mínu að misskilja myndina eitthvað...
Njótið vikunnar...skotheldan maskara á þetta...það er rigning í kortunum út vikuna
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Gressinn er flottur!
24.8.2008 | 14:02
Jæja....
...ég lá þarna frekar dauðþreytt í morgunsárið yfir leiknum. Með annað augað í pung, á pung eða undur pung. Gildir einu. En þetta var einhvernveginn svona einsog að:
...ef Grétar Mar sæti ofan á auganu á mér (áður en hann grenntist sko)... bæðevei... ég elska Grétar Mar! Og ég er ekki að djóka. Maðurinn er gullmoli. Nei gullhlunkur. Og ef þið svo mikið sem vogið ykkur að koma með einn lítinn kúk á hann; -þá neyðist ég til að skjóta ykkur í hnéskeljarnar og pissa yfir....
jæja ...svo byrjar ballið...Grétar sat sem fastast þarna ofan á auganu þannig að mér fannst vissara að hafa það lokað....
....svo lyftir Gressinn upp annarri rasskinni og mér tókst að kíkja...
...Óli Stef var orðin síðhærður, fúlskeggjaður og komin með barta. Fúsi sæti var orðin dökkur yfirlitum og svo mikil písl að það var ekki sjón að sjá. Ég hugsaði með mér að svona færu íþróttir illa með fólk...
Karlinn settist aftur og lét fara vel um sig. Með athygli á öðru eyra fylgdist ég spennt með. Hjartað var auðvitað í ham og hendur sveittar. Ég sá fyrir mér gull og græna skóga...með tánum.
...ég ýti loks við karli og lít á klukkuna eftir að lítil ljóstýra kviknaði í hjartanu. Hún var ekki orðin sjö. Það var sumsé allt annar leikur í gangi....
Sama hvað ég þrábað mér frá því...settist hann yfir bæði augun og reyndar söng fyrir mig í leiðinni; Yfir kaldan Eiðisand, en það er eitt af mínum uppáhaldslögum. Auðvitað steinlá ég...og missti af leiknum. Er miður mín!
Í svefnrofanum hringir svo síminn. Ég ekki parhress fór strax á fullswing að undirbúa hið fullkomna morð. Þarna voru hanskar, vopn og læti, en svo komst ég afþví að ég má ekki við því að verða einum vininum fátækari, þannig að mér tókst að stramma mig af. Hugsanir voru samt mjög óblíðar.
Með mikilli útsjónasemi tókst mér að komast aðþví að við höfðum unnið silfrið. Ég er himinlifandi auðvitað. Er miklu meira fyrir silfur en gull bæði um háls og lendar....
...ég meina, það er ekki kjaftur sem svo mikið sem vill gull í tennurnar á sér lengur, hvað þá meir!
Njótið dagsins og verið góð við hvort annað...
es: æi, nei held ég sleppi því
![]() |
Íslendingar taka við silfrinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 25.8.2008 kl. 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Að gefnu tilfefni...
23.8.2008 | 20:08
...vil ég koma á framfæri að allt í sambandi við Geir Ólafsson var bull frá upphafi til enda! Þið sem þekkið til skrifa minna vitið að svo er!
Er miður mín yfir að hafa valdið misskilningi. Ítreka þekki ekkert til mannsins!
Njótið kvöldsins!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Ég elska Geir Ólafs...
23.8.2008 | 13:11
Mér hefur verið líkt við ýmislegt skal ég segja ykkur. Allskyns drottningar.
Þegar ég var að vinna á spilavíti í NZ þá var þar ungur sveimhugi á stangli eilíft í kringum mig. Lofaði götuna sem ég gekk á og alles. Hann var hvorki engladrusla né gullpungur. Hann var í raun hvorki fugl en kannski fiskur. Eða meira kannski svona fuglahræðutýpan...en mér þótti vænt um þennan furðufugl eigi að síður. Hann var óendanlega skemmtilega klikkaður.
Hann sendi mér fögur ljóð sem ég skildi ekkert í, en eitthvað var minnst á dauða og djöful. Hann sagði í sífellu að ég væri sú fegursta snót sem hann hafði augum litið. Ég var upp með mér. Ég minnti hann á einhverja fræga...en hann myndi ómögulega hver það væri. Ég var með háleitar hugsanir um hverja hann ætti við...svo einn daginn kemur hann;
-Heiða, nú man ég..þú minnir mig á Marlyn Manson!
Ég var vægast sagt upp með mér!!!!
Einhverju sinni er svo þáttur á Rás 2. Þar var keppni í gangi hver væri tvífari Boy Georg á Íslandi. Ég var nú ekki mikið að pæla í þessu fyrr en vinningshafinn var kynntur og símalínan hjá mömmu brann yfir. Mér er sérstaklega hugleikinn ein frænka mín sem er auðvitað ekki frænka mín lengur! Hún var viss um að ég hefði unnið...
Með sjálfstraustið svolítið beygt og bogið eftir þessar hremmingar, þótt sagan sé í kolrangri tímaröð þá kom þetta loks á endanum.
Það var læknanemi einn sem átti hug minn að hluta. Sá ferðaðist eilíft um höfuðkúpuna og drakk kók úr gleri og honum fannst ég sæt. Auðvitað minnti ég hann á einhverja fræga...ég með hlandið í maganum alltaf að bíða hver það skildi vera...það kom að vísu á endanum;
Gæinn var svo sannfærandi með gítarinn, að mér fannst það virkilegt hól að líkjast þessari norn....finnst það reyndar enn! Honum hafði tekist að sannfæra mig um að rigning væri snjór og ég trúi því líka ennþá. En það er önnur saga. Um tíma gleymdi ég hversu fallegt bakið er og tærnar. En aðeins örstund....
Jæja mitt kæra fólk; spurningin er þessi...
Hverjum af þessu þrennu líkist ég mest?
es: Ég elska Geir Ólafs...
ess: ríða...
esss: vill einhver sofa út með mér í fyrramálið...alveg til tólf?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Og....
22.8.2008 | 19:22
![]() |
Björk með tónleika í Langholtskirkju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)