Bensínlaus á frekjunni
14.5.2007 | 23:21
Ekki get ég séð og fæ seint skilið hversvegna haldið er fram að grátur sé góður. Nema síður sé, allavega fyrir útlitið.
Talað er um einhverja losun og útrás í þessu sambandi..... til eru ýmis ráð við ó-losun.... ef hægðartregða hefur myndast fyrir kosningar t.d. - s.s. hægðarlosandi lyf.
Vonast annars til að hægðir séu komnar í eðlilegt horf hjá landsmönnum án þess að þeir þurfi eitthvað að tjá sig um það endilega, ég er satt að segja frekar klíkjugjörn......
Varast skal að taka hægðarlyfið inn rétt fyrir svefninn. Mikil hætta getur skapast á því að viðkomandi endi í bónusplastpoka.....búin að kúka í rúmið sitt í þrígang. Yfir sjálfan sig, á sig og utan í maka sinn.....aftur.
Vatnsheldur maskari má sín einskis gegn skaðsemi tára....ekki svo að skilja að ég hafi verið að vatna einhverju flóði en datt þetta nú bara svona í hug af því að varaliturinn minn er engan veginn kossekta.
Enn segi ég; ekki það að ég hafi verið að kyssa einhvern frosk...... bara svona hugdetta.
Einfaldlega afþví að farðinn minn er svo mikil snilld að hann endist allan liðlangan daginn.....
.... ég setti hann á mig í morgun og hann er farinn veg veraldar. Ég veit ekkert hvert hann fór.
Nenni ekki að leita að honum í flóðinu...er ósynt.
Hárlakkið fór svo endanlega í kvöld þegar ég fór að kaupa bensín og gleymdi debetkortinu mínu heima, sem hefði verið í lagi. En ég......
...brunaði heim -bensínlaus á frekjunni og aðeins til þess eins að komast að þeirri niðurstöðu að kortið var allan tímann í bílnum. Ég mundi þó ennþá pin-númerið.
Megi englarnar vaka yfir ykkur öllum í nótt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Árni Johnsen er flottur!
13.5.2007 | 22:40
Jæja áður en ég sting mér í skúffuna mína og fer að sofa, verð ég að smella af hérna pinkupons....með von um að oggulítið skot mitt hitti ykkur beint útí bláinn.
Talandi um útgeislun; for god fucking sake; maðurinn er the master!
Ég kynntist honum Árna lítillega þegar hann afplánaði dóm sinn. Ég átti leið hjá í heimsókn til eins af fjölskyldumeðlimum mínum (stuttum, ekki feitum -en vel þéttum, nokkuð liprum og sveiganlegum) í heimavistina að Kvíabryggju...
Ég hafði eitthvað lesið mér til um að Árni væri að vinna listaverk úr grjóti í skúr einum á staðnum.....mín (þ.e. ég ) setti strikið beint í skúrinn, án þess að smella einum blautum á þann sem ég var að heimsækja.
Þarna stóð hann (Árni) innanum grjótið sitt og ég heilsaði honum og upphófst spjall í framhaldi.
Eitthvað innra með mér lifnaði við...þegar hann leit djúpt í augu mín. Og þar voru þau föst (hans augu). En eru núna farinn veg veraldar... en Árni er samt minn maður....
Það eru sko alveg tíðindi útaf fyrir sig; því ég, einsog aðrar konur hef haldið uppi heilu samræðunum við karlmenn þar sem viðkomandi hefur starað á brjóstin á mér heilt samtal (ekki símtal) og sagt svo:
-mikið ofsalega ertu með falleg augu.
Hann Árni var yndislegur, skemmtilegur, bráðfyndinn og með (ok, ok,) þvílíka útgeislun og yfir honum var þessi (nú ælir einhver....en ok í þriðja skiptið hérna) þvílíkan sjarma og góða kraftmikla nærveru.
Einhver myndi áætla að ég sé fyrir eldri, gifta karlmenn, því fer fjarri.
Einhverju seinna eftir billjardleik, spjall, dagamismun og krossgátuafleysingu....hringdi síminn og í boði var eitt stk. grjótlistaverk. Sem og ég fékk.
Nafnið á verkinu er; Lykillinn að frelsinu.
Árni kom sjálfur með verkið eftir að hafa hossast með það á sýningar um landshluta einhverja, en þegar ég bað hann um að hjálpa mér með það upp á fjórðu hæð (í lyftulausri blokk) lét hann sig hverfa....blessaður, á áríðandi fund.
Lengi vel, skokkaði ég niður þrepin til að líta dýrðina augum þar sem það stóð í 500 kg. ferlíki inn í kompu. Innan um gömul vel úldin og illa lyktandi meiningarlaus ástarbréf sem lágu í lúnum kössum.
Svo skokkaði ég aftur upp á fjórðu hæð þar sem sambýlingurinn sat feitlaginn í feitri fílu með Guði það sem eftir lifði sambúðar. Lykillinn að frelsinu fylgdi mér beint inn í stofu, þar sem ég bý nú.
Án fangavarðarins.....og húfunnar.
Þar stendur það við hlið mér öllum stundum.
Lykillinn að frelsinu og börnin mín; eru börnin mín
Ég strika ekki Árna út ég set hjarta utan um hann!
![]() |
30% kjósenda Sjálfstæðisflokks strikuðu Árna Johnsen út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.5.2007 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Jóhannes í Bónus er æðislegur!
13.5.2007 | 13:35
Ég er nú einu sinni þannig gerð, að það fyrirfinnst ekki í mér svo mikið sem pínkulítill bútur þess eðlis eða áhugi, að hafa skoðun (á fólki) eða "nennu" til að setja mig inn í alla skapa hluti.
Það er bara full-time job að vera eitt stk. manneskja. Sinna starfi sínu sem manneskja, eftir bestu getu dag hvern. Það þarf að mínu viti kannski ekki einhvern stórkostlegan vitsmunakraft eða engla-element, sem rennur í æðum til að koma vel fram við annað fólk.
Ég hef alveg hreint einsog aðrir orðið áskynja góðrar og miður góðrar nærveru fólks í kringum mig.
Stundum hefur staðan verið þannig að ég get með engu móti labbað í burtu frá viðkomandi. Það er vont og lýjandi, brakar í beinum og ískrið nær hreint alveg til hjartans á meðan maður brýtur í sér tennurnar...hér um bil. Sjaldnast þó, enda ágætlega tennt.....
Mikið óskaplega hefur fólk misjafna nærveru.
Ég rita þess orð af því að mig langar í umræðunni um þreytta, togaða og lúna baugsmálið að taka upp hanskann fyrir Jóhannes í Bónus.
Setti mig aldrei inn í þetta stóra umtalaða mál en hef í gegnum störf mín í gegnum árin (beint og óbeint) orðið áþreifanlega vör við hversu góða nærveru Jóhannes hefur.
Á Jóhannesi hef ég því myndað mér skoðun og ég neita alfarið að trúa neinu illu upp á hann. Neita því að trúa að störf hans í gegnum árin séu einungis unnin í eigin hagsmunaskyni.
Hæstánægð til að mynda með hafa val um að kaupa ódýrari matvöru með tilkomu verslunarkeðju hans....en ánægðust er ég með hann sem persónu og vinnuveitanda.
Hann er flottur karlinn; teinréttur, horfir beint í augun á manni þegar hann talar við mann, handtakið þétt, augun svo falleg og traustvekjandi, að hægt er að deyja fyrir þau.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir
11.5.2007 | 01:05
Á ferð minni í gegnum lífið tengdist ég óhjákvæmilega Ástu Lovísu Vilhjálmsdóttur.
Mér til góðra og sælla minningarauka í hjarta, en nú næ ég vart andanum af depurð.
Ásta hefur fengið úr því skorið frá læknum í N. Y. að eiga nokkra mánaði eftir ólifaða.
Segir manni og kennir að njóta augnabliksins og vera góð við hvort annað.
Biðjum fyrir Ástu Lovísu og fjölskyldu hennar.
Ásta er í einu orði frábær manneskja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Hálflummó
7.5.2007 | 13:36
Þegar ég kom heim frá Nýja Sjálandi var sonur minn 10 ára.
Þar sem ég var (er) útivinnandi þá brá ég á það ráð sem öryggisráðstöfun að láta hann (svona ungan) fá gsm-síma.
Ekki leið á löngu þar til síminn varð öryggistækið hans, en ekki mitt.
Málið er að honum finnst/fannst ég hafa afspyrnu lélegan tónlistasmekk. Án undantekninga þá hringdi hann þegar hann var á leið heim úr skólanum og sagðist vera að koma með vin/vini sína heim.....og bætti við:
-í guðana bænum mamma, ekki Bjögga Halldórs...
Ég remdist eitthvað við að vera hip og cool nærri honum og vinum hans, en hvað tónlistasmekk minn varðaði hlustaði ég einatt (að honum fannst) á gjörsamlega hlandbrunna tónlist. Að öðru leyti fannst honum ég barasta flott.
Núna er ég búin að leggja Bjögga, Jóa G, Pálma G, GCD, Bubba, Rimlarokk (algjör snilldar diskur annars)í bili ....og hlusta einungis á Sálina í bílnum.
Honum finnst ég hálflummó enn held ég
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Spottalaus lykkja
6.5.2007 | 00:59
Þessi færsla er tileinkuð henni Jennýu minni ....
Nú til dags er meiriháttar flókið að vera kona.
Það er svo flókið að velja sér sokkabuxur svo dæmi sé tekið; að það þarf hreint út sagt dokorsgráðu í sokkabuxnafræðum ef út í það er farið.
Þið karlmenn sem gangið í sokkabuxum eigið einnig samúð mína alla. Þekki einn slíkan sem er alveg veikur fyrir sokkabuxum....en það er tilefni í aðra færslu þegar sá gállinn er á mér.
Eftir fæðingu sonar míns og eftir að aukasporið greri, snilldarhandbragð Konráðs læknis, þá var ég að sjálfsögðu spurð hvaða getnaðarvörn ég kysi og möguleikarnir skoðaðir.
Ég leit á hann og dæsti. Minntist í hendingu þess að hafa rifið spælinn af læknasloppnum m.a. í æsingnum. Nú og þegar læknirinn hafði rifið af mér allar áhyggjur um sýnileg ör vegna aukasporsins góða hafði ég gert upp hug minn varðandi getnaðarvörn.....og segi:
-Lykkjuna, pilluna, hettuna og svo ætla ég að nota smokkinn. Ætli það sé ekki líka bara best að ég láti taka mig úr sambandi, til að vera viss!
-já já Heiða mín, sagði Konni læknir og skrifaði upp á pilluna. (hann vildi örugglega ekki sjá mig þarna aftur í bráð... og ég er að tala í alvöru hérna.)
Eitt sinn var ég svo hjá mömmu og alveg óforvarendes.....æpi ég upp yfir mig:
-Shit! Pillan! og gleypti í mig fjórar í einu.
Mamma ráðlagði mér að fara á lykkjuna og taldi upp kosti lykkjunar.... talsmaður lykkjunar númer eitt, tvö og þrjú. Gallharður lykkjufan hún móðir mín, þrátt fyrir að hafa eignast sex stk. börn og þau misjafnlega velkomin í heiminn...
Þá heyrist kallað út úr stofu, af þáverandi fósturpabba mínum:
-Nei Heiða, ekki helv. lykkuna, þeir eru stórhættulegir þessir spottar þarna!
Mamma hvíslaði: Iss, þú lætur bara klippa þá í burtu....
Ég skolaði pillunum mínum fjórum niður með köldu kaffinu....í framhaldi fór ég til læknis, einhverjum dögum seinna, í leit að lykkju-inn/ísetningu.....
Í boði voru nokkrar tegundir, ég valdi pink slim line, fannst það einhvern veginn hæfa tilefninu.
Ég lagði ríkulega áherslu á það við lækninn að hann yrði að klippa í burtu spottana.....því ekki vildi ég "særa" blessaðan spúsa minn, sem þá var og hét, hvað þá kærði ég mig um að stinga hann á hol...eða stinga í hann holu.
Ég var afskaplega væn og góð stúlka þarna í fyrndinni og hafði í huga og hjarta mínu, velferð mannsins míns að leiðarljósi í einu og öllu. Sérstaklega ber að nefna þó; lim/i hans alla, stutta, magra, feita, langa og fima......
Ef einhver svo mikið sem minnsti grunur vaknaði upp hjá honum og/eða órar um innrás eða atlögu af einhverju tagi. Vildi ég ekki verða til þess að valda honum vonbrigðum, einsog gefur að skilja.
Ekki skrítið að fólki finnist með ólíkindum að sambandið hélt ekki.
Kannski spotta-eða sokkaleysið.
Þegar ég sný mér svo við í gættinni hjá lækninum eftir athöfnina og segi glottandi:
-Þú klipptir spottana í burtu er það ekki?
Varð ég ekki einu sinni fúl, þegar hann sagðist hafa gleymt því. Ég einfaldlega vippaði mér úr spjörunum með bros á vör (en án allra kynþokkafullra tilbrigða) , lagðist í afkáralega stellinguna.....hugsaði um hvað það yrði nú alveg brilliant að vera svona ó-spottalaus....óskaðleg.....og meinlaus með öllu.....
Var annars að syngja fyrir dóttir mína í kvöld:
Attikattinóa - attikattinóa, emissademissadollaramissadei....veit einhver hverslenskur þessi snilldartexti er?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Undurgott að elska
3.5.2007 | 23:09
Ég verð hálfeirðarlaus á vorin.....
... á vorin verður kroppurinn minn fisléttur. Ég á það stundum til að rölta um í lopasokkum í sólinni. En aldrei aldrei myndi ég láta mig dreyma um að fara í rifnum gallabuxum í jarðaför.
Var einu sinni svaramaður hjá henni móður minni í einni af giftingarathöfnum á þriðjudagsmorgni áður en ég mætti í vinnu..... í ljósbláum Lewis 501 gallabuxum. Sýnir bersýnilegt virðingarleysið.
Og engar voru athugasemdirnar sem ég fékk þegar ég sagði;
-Drífa sig, ég er að verða of sein í vinnu.
Held að ég hafi berlega komið því að í færslum mínum, að fyrir mér hafði ekki verið innrættí æsku nema lágmarksvirðing fyrir giftingarheitinu.
Af einhverri ástæðu ber ég þó ákaflega mikla lotningu fyrir dauðanum. Engar Lewis þar....
Ég á það til að hella mér út í lestur á minningargreinum.
Ég veit ekki með þessa heillandi dulúð og spennu í sambandi við dauðann, en hann er jú eitthvað sem enginn er til frásögur um. Nema kannski þeir sem hafa séð ljósið...
Minningargreinarlestur minn takmarkast þó aðallega við hugarástandið. Er samt alfarið laus við sjálfeyðingarhvöt af öllu tagi...flestu.
Velti þessi fyrir mér núna, þegar ég hugsa til þess; að ég heimsótti hana ömmu mína í Elliheimilið í Garðinum og fann á henni að hún yrði hvíldinni fegnust.
Ég sat þarna í holu-horni á litlu herbergi og vatnaði músum, einsog lítil mús ......Ég á litla mús sem heitir Heiða.....raulaði ekki úr útvarpstækinu.
Nei það var þögn, sem var svo hávær að það nísti hjarta mitt.
Mikið óskaplega verð ég döpur við tilhugsunina um það að hún amma á sjálfsagt ekki langt eftir ólifað.
Það er í raun svolítið ógnvekjandi tilhugsun að leyfa sér ekki að elska aðra manneskju skilyrðislaust. Fella niður grímuna og njóta ....
Það er samt undurgott að elska held ég....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Drukkið fólk er fíbl...
2.5.2007 | 20:01
Þegar ég sá hann birtast, hugsaði ég;
Þennan ætla ég að negla! Ekki seinna en strax. Og ég negldi hann. Engir naglar, engin kross en náði honum samt. Og er stolt af því.
Hann var auðveld bráð þar sem hann stóð glaseygður, með annað augað í pung, illa lyktandi með samviskubitið "vellandi" útúr eyrum og nefi.
En Heiða litla tipurtá....rúllaði þessu upp og sem sé náði honum.
Ég þurfti nú alveg að hafa fyrir honum, en sannfæringarkraftur minn var mér hliðhollur þennan daginn. Ó já.
Við erum ekki að tala um frosin, magran drátt hérna; tveir fyrir einn á tilboði úr bónus. Ekkert "cheap" drasl neitt. Engin var skilafresturinn þó (innan tveggja vikna). Engin var ábyrgðin. Heimlán útúr myndinni.
Maðurinn bara fékk það sem hann borgaði fyrir! Hvorki meira né minna. Kannski of stórt eða lítið. En það er algjört aukaatriði.
Hann stóð þarna fyrir framan mig og spurði, hvort hann ætti að gefa konunni sinni ilmvatn eða skó.
Ég sagði; Skó, ekki spurning!
Einn hængur var á, hann vissi ekki skónúmerið, ég sagði það algjört aukaatriði. Spurði hvað hún væri gömul. Hann sagði að hún væri ríflega fertug.
-Já og er hún ekki ungleg.
Hann leit dreyminn á mig og sagði;
-ahhhh, þetta var fallega sagt. En jú hún er ungleg.
-Svona einsog þrítug?
-Þú ert yndisleg sagði maðurinn á bjagaðri ensku (hann var norsari.....)
-Þá er þetta nú lítið mál, konan þín notar skó númer 39.
Hann leit á mig í forundran og fannst ég snillingur, sem ég auðvitað er.
-Já er það? sagði hann.
-já já, ekki spurning!
Í stuttu máli, keypti maðurinn skó. Rándýra skó, ég var auðvitað alsæl ......
......hann var nú líka alveg passlega alsæll því hann náði að láta renna örlítið af sér þegar hann kvittaði undir visastrimilinn.
En mikið assk. eru drukknir karlmenn ósjarmerandi, ekki síður en drukkinn kvenmaður.....sérstaklega kl: 10.33 á miðvikudagsmorgni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Eitt stk. meyjarhaft. Takk!
30.4.2007 | 22:42
Það er deginum ljósara að ég fæddist ekki gær: ég fæddist 15. feb "69.
Held að ekkert meira markvert hafi hent á þessum degi nema það að hausinn á mér festist í xxxxxxx á henni móðir minni og áts!
Hef fengið að heyra það síðan með reglulega millibili, hvað það var ógeðslega vont! Og pabbi var sofandi inn í stofu á meðan.
Samkvæmt lýsingunni mætti ætla að ég hafi verið með risavaxinn haus.
En hann Arinbjörn læknir kom svífandi í Batman-búningnum sínum og settist ofaná bumbubúann (þ.e.mig)
Ég er hinsvegar sannfærð um að ég hafi alfarið neitað að segja upp leigunni og vildi halda mér inni í kotinu! Því að ekki minnkaði hausinn á mér í þvotti, svo mikið er víst.
En út skildi ég ....og út kom ég! Mikil, mikil og ómæld hamingja var hjá henni móður minni, þegar pabbi hrökklaðist uppúr sófanum við orgin og datt niður á gólf. Loksins vaknaði karlinn. Loksins sá mamma í honum augun. Þau voru blá einsog mín.
Þarna lá hún móðir mín semsé og sá stjörnur (bláar og hvítar) í loftinu á litlu loft- og litlausu herbergi. Sem útaf fyrir sig voru algjör forréttindi ef litið er til þess að engin voru litasjónvörpin á þessum tíma.
En Ok. Fæðingarnar sem á eftir komu gengu einsog í sögu og gott ef að ein grísin hoppaði ekki bara niður (sá yngsti) altalandi og gangandi, þegar mamma var á leið inn í eldhús að steikja kjötbollur.
Þökk sé mér ....og Arinbirni lækni -því ekki voru aukasporunum fyrir að fara í þá daga í saumaskapnum sem fylgir nú til dags.
Nú vona ég að ekki verði langt í það að maður geti látið sauma saman meyjarhaftið aftur!
Sem væri hrein snilld, því ef marka má orð Gunnars í Krossinum , eru allir menn bersyndugir ef þeir hafa drýgt hór. Gunnar skilgreinir hór;.....já ekki einsog ég skilgreini hór..... maður er hóra nú eða hóri....ef maður skilur við maka sinn...finnur sér nýjan og þó svo að maður láti sig ekki einu sinni dreyma um að prófa gripinn fyrir giftingarathöfnina. Þá hefur maður samt brotið eitt af boðorðunum tíu.
Bannað að skilja, bannað að láta sig dreyma.....bannað - bannað - bannað.
Það er vissuega vandlifað í þessum heimi....
.....og ég sem verð alltaf einsog einhver krumpaður afturkreystingur í framan þegar einhver segir mér að hann/hún hafi verið með eina og sama manninum/konunni síðan hann/hún var 15 ára!
Að öll börnin séu samfeðra/mæðra.
Og viðkomandi kannski að nálgast sjötugt!
Ég spurði eina sem ég vann með:
-hvernig er þetta hægt?
hún sagði:
-Hann Einar minn hefur alltaf verið svo góður við mig.
Yndislegra en orð fá lýst að heyra, en ég er engu nær, ekki einu sinni nálægt því. En trúið mér þetta er til, hef séð það og .......þið líka.
Ég sem sé vil meyjarhaftið, syndaraflausn, sálina og eitt stk. hreinan svein takk....yfir þrítugt! Áður en ég verð fertug!
Ég bið ekki um meira og ég bið ekki um meira, ekki seinna en strax
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Rassakrem undir augun
29.4.2007 | 18:10
Ég hef alveg notað ýmis ráð svona til að flikka upp á útlitið. Þó ég ætti að teljast frekar óvitlaus tel ég mér stundum trú um að hitt, þetta og eitt og annað virki!
Svínvirki.
Það er deginum ljósara að ég hef fengið nokkrar snilldarráðleggingar frá minni ástkæru móðir.
Samanber þegar hún hringdi eitt sinn í mig og sagði:
-Heiða mín, mér fannst þú hálfsvona "tussuleg" til augnanna með baugun lafandi niður á brjóst þegar þú komst til mín í gær...
- Nú! Segi ég og stóð upp úr sófanum og kíkti í stóran spegil sem þar er staðsettur, fyrir ofan.
Kerling hafði svo sem rétt fyrir sér og þar sem ég stóð í dágóða stund og virti fyrir mér hryllngsásjónuna, stækkuðu baugun með þvílíku offorsi á með sekúndurnar tipluðu hjá...
En kerla hafði ráð undir rifi hverju sem endranær, og benti mér á að það væri til undrakrem, sem allar flugfreyjurnar notuðu. Þetta væri keypt í næsta apóteki og kostaði nokkra skítna hundrað karla.
Með það, brunaði ég í næsta apóteki og þar sem ég stóð við afgreiðsluborðið hugsaði ég hlýlega til mömmu þegar ég sagði (frekar lágt ):
-mamma bað mig um að kaupa fyrir sig svona krem eitthvert ....fyrir gyllinæð.
-já einmitt, innvortis eða útvortis?
-hmmm, vá ahhh, útvortis held ég...
Kremið fékk ég og hamingjan fylgdi mér heim í túpu og kostaði innan við 500 spírur. Það er sem ég segi; hamingjan er ekki verðlögð.
Ekki veit ég heldur hvort einhver hafi verið áhrifamátturinn annar en hugurinn þegar ég svaf með þetta rassasmyrsl (útvortis) undir augunum..... en þetta virkaði... held ég.
Prófið bara
es: spurning um að ráðfæra sig við geðlæknirinn áður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)