Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Himnarnir að opnast....

Þvílíkur andstyggðarviðbjóðsógeð sem mætti mér í morgun!  Þarna stóð ég fyrir framan spegilinn illa sofin og lasleg og föl og hugsaði;

-Fuck! Þetta er ekki gott. Þetta er eiginlega mjöööööööög slæmt. Þrútin, fúl, illa sofin, ljót og leiðinleg og ég gat ekki ýmindað mér að dagurinn yrði góður fyrst byrjunin var svona skelfileg.

Þegar ég tannburstaði mig varð mér hugsað til orða móður minnar sem ég fékk i gjöf út í lífið, einsog sum ykkar vita kannski;

-og mundu það svo Heiða mín að þú ert með afskaplega fallegt bak og tær.

Með þetta fór ég á takkaskóm með bakpoka út í baráttuna og hafa þessi viskutár komið mér assskoti langt í lífinu...eiginlega lengra en það...  

Svo hélt ég áfram í ofboði að reyna að peppa mig upp yfir kaffibollum . Annars verður dagurinn heitasta helvíti.  Og það er alltof heitt í helvíti. Mig langar til himnaríkis því ég þarf að ræða svolíitið við Guð. Mér er tjáð að ég fái trygga vist þar þótt ég sé einsog ég er, alveg satt. 

Og svo fór ég að hugsa...

Einhver og sumhverjir hafa sagt við mig;

-hvað heldurðu að fólk hugsi um þig Heiða? Og vitnað var til bloggsins. Og hef ég reyndar heyrt það oft.

Ég barasta trúi því ekki að þið haldið að heilinn á mér sé ein stór pjalla! ha? Eða rassgat? Eða kúkur? Að ég sé vansoltið kynórafullt kvikindi...ha? Ég ætlaði að vera svolítið kúl núna og segja; -I dont give a flying fuck...en staðreyndin er að ég gef alveg flugu...smáBlush

Mér finnst allltaf hreint snilli þegar fólk segir; -mér er alveg sama hvað fólki finnst. Auðvitað er manni aldrei alveg alveg alveg sama. Kannski smá sama -en aldrei alveg alveg! Ekki sjéns.

Ég kem aldrei til með að blogga um póló-tíkur eða strákana "ykkar" -því ég á ekkert í þeim! Mér finnst raunveruleikinn, ykkur að segja ekkert svo skemmtilegur alltaf, eiginlega barasta hálfglataður...því er gott að dvelja í mínum heimi. Það er eiginlega frábær dvalarstaður. 

Annars er ég að hlusta á gospel tónlist núna í botni og svei mér ef útlitið er ekki að skána og himnarnir að opnast.....Wink

es; ríðaSmile

 

 

 


Kynlífsfíklar...

Ég var að spá... ekki í bolla -heldur svona almennt í lífinu. 

Talaði við vin minn í morgun og hann sagði að varla gæti ég kastað fram bloggfærslu í háaloftið nema minnast á ríðingar...ég skal af öllum mætti reyna að koma því og standa mína plikt hvað það varðar.... þó svo að í dag hafi meiningin verið að vera svolítið svona settleg og gáfuð, sem og ég er......en ok!

Þessi færsla er nefnilega um fíknir. 

Það er segin saga að ef þú vaknar ítrekað með hlandbrunninn rassinn og með skítakleprana í hárinu þá er tímabært að gera eitthvað í sínum málum.  Og er það vel. Þú barasta leitar þér hjálpar. Eða ekki.

Svo svona síðustu ár (ég er ekki að tala einsog fræðimaður heldur fífl) þá eru komnar upp allskyns skilgreiningar á fíklum.  Ástarfíklar, Sambandsfíklar, Tilfinningafíklar, Matarfíkilar, Spilafíklar, Kynlífsfíklar etc... Það er svona einhvernveginn verið að henda öllum í einhverja pappakassa eða dósir....skilgreina allt og allt...

Hversu oft má maður fá sér á broddinn áður en maður telst kynlífsfíkill?

Auðvitað veit ég; að þegar viðkomandi hlutur er orðin eyðileggjandi í lífi fólks og nánasta umhverfi þá er það skilgreint fíkn...en það er boring að tala vitrænt.

Vitiði það, í sannleika sagt, þá bara get ég séð að of mikið kynlíf sé eitthvað vont sko, ef fólk sinnir sínu....alfarið á móti því að setja einhvern kvóta á samlíf samlyndra hjóna. En óska þeim þó að halda útlimum í lagi.

Hversu oft er of oft? 

5 sinnum í viku?  10 sinnum?...oftar, sjaldnar.....hvað er normal?

Nú er ég að fiska ykkur sko....hehe, fékk svo flotta svörun við klósettferðum ykkar í gær LoL

Heilsur og kveðjur inní daginn, kvöldið og nóttina...

es; ríða..... Wink


Pissa upp í loft eða ?

Ég man að hann sagði alltaf að morgni;

-Heiða, það er alveg segin saga að um leið og ég er búin með fyrsta kaffibollannn á morgnanna þá þarf ég að kúka (hann sagði reyndar skíta....en einsog við vitum er ég ákaflega dönnuð týpa og mildaði aðeins orðalagið)

Hann sagði þetta ekki einu sinn, neibbb ALLTAF

Ég horfði á hann í angist og með algerum horbjóði!.....?æi þetta voru of miklar upplýsingar fyrir mig! enda hélt sambandið ekki.....og við rétt nýfarin að date-a. Hann fékk að fljúga út þessi með skítarönd í nærbuxunum. En höfum það á hreinu að ég hef ekkert á móti því að fólk kúki svona almennt, þó ég geri það ekki sjálf.

-Mig vantar eitthvað að lesa með, veistu um eitthvað? bætti hann við.

Það er einmitt þetta sko....hvað er málið með að létta á sér og lesa í leiðinni? Hef aldrei skilið það. 

Sko nú skilst mér að flestir karlmenn pissi sitjandi og er ég viss um að konur hafa skikkað þá til þess. Pissublettir á gólfum og bla bla bla....og svo er það víst svo gott fyrir hálskirtilinn að pissa sitjandi.....

Ég var að spá í þessum köllum og konum sem lesa klámblöð eða eitthvað annað við pisseríið....er það til að spræna upp í loft eða?

Mig langar virkilega að vita þetta......somebody!??

Guð forði mönnum og konum að taka Fréttablaðið með sér á klóið þessa dagana....dísess það gæti orsakað hægðartregðu eða þvagstíflu. Mæli frekar með Hustler eða Playboy og pissublautu lofti.....

Vísa ég þá í beinu framhaldi í borgarmálin .

Ég er flutt úr landi! 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband