Himnarnir að opnast....

Þvílíkur andstyggðarviðbjóðsógeð sem mætti mér í morgun!  Þarna stóð ég fyrir framan spegilinn illa sofin og lasleg og föl og hugsaði;

-Fuck! Þetta er ekki gott. Þetta er eiginlega mjöööööööög slæmt. Þrútin, fúl, illa sofin, ljót og leiðinleg og ég gat ekki ýmindað mér að dagurinn yrði góður fyrst byrjunin var svona skelfileg.

Þegar ég tannburstaði mig varð mér hugsað til orða móður minnar sem ég fékk i gjöf út í lífið, einsog sum ykkar vita kannski;

-og mundu það svo Heiða mín að þú ert með afskaplega fallegt bak og tær.

Með þetta fór ég á takkaskóm með bakpoka út í baráttuna og hafa þessi viskutár komið mér assskoti langt í lífinu...eiginlega lengra en það...  

Svo hélt ég áfram í ofboði að reyna að peppa mig upp yfir kaffibollum . Annars verður dagurinn heitasta helvíti.  Og það er alltof heitt í helvíti. Mig langar til himnaríkis því ég þarf að ræða svolíitið við Guð. Mér er tjáð að ég fái trygga vist þar þótt ég sé einsog ég er, alveg satt. 

Og svo fór ég að hugsa...

Einhver og sumhverjir hafa sagt við mig;

-hvað heldurðu að fólk hugsi um þig Heiða? Og vitnað var til bloggsins. Og hef ég reyndar heyrt það oft.

Ég barasta trúi því ekki að þið haldið að heilinn á mér sé ein stór pjalla! ha? Eða rassgat? Eða kúkur? Að ég sé vansoltið kynórafullt kvikindi...ha? Ég ætlaði að vera svolítið kúl núna og segja; -I dont give a flying fuck...en staðreyndin er að ég gef alveg flugu...smáBlush

Mér finnst allltaf hreint snilli þegar fólk segir; -mér er alveg sama hvað fólki finnst. Auðvitað er manni aldrei alveg alveg alveg sama. Kannski smá sama -en aldrei alveg alveg! Ekki sjéns.

Ég kem aldrei til með að blogga um póló-tíkur eða strákana "ykkar" -því ég á ekkert í þeim! Mér finnst raunveruleikinn, ykkur að segja ekkert svo skemmtilegur alltaf, eiginlega barasta hálfglataður...því er gott að dvelja í mínum heimi. Það er eiginlega frábær dvalarstaður. 

Annars er ég að hlusta á gospel tónlist núna í botni og svei mér ef útlitið er ekki að skána og himnarnir að opnast.....Wink

es; ríðaSmile

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Það þarf mikinn kjark til þess að þora að vera maður sjálfur.

Þú ert svo hæfileikarík og hugmyndarík að það er bara snilld.

Knús inní góðan dag

Elísabet Sigurðardóttir, 21.8.2008 kl. 10:57

2 Smámynd: Heiða  Þórðar

takk

Heiða Þórðar, 21.8.2008 kl. 10:59

3 Smámynd: Hulla Dan

Og guði sé lof að þú skrifar ekki um pólitík og sport!!!

Fínt að lesa um kynfæri og kynlíf

Hulla Dan, 21.8.2008 kl. 11:14

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það þarf einhver að sleppa sporti, stjórmálum og öðru leiðinlegu amstri,
þó ég taki mig nú til og tali um þessi mál svona annað slagið.
Þú ert bara frábær eins og þú ert skjóðan mín og ef einhver kemmst inn í himnaríki þá ert það þú.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.8.2008 kl. 11:36

5 identicon

Þú ert flott eins og þú bloggar

alva (IP-tala skráð) 21.8.2008 kl. 11:54

6 Smámynd: Gísli Hjálmar

Þetta er nú sá al-hommalegasti pistill sem þú hefur skrifað hingað til - samt hefur þú skrifað þá marga samkynhneigða ...

Ástarkveðjur, GHs.

Gísli Hjálmar , 21.8.2008 kl. 12:28

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi þú er dásamleg eins og þú ert Heiða mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.8.2008 kl. 12:30

8 Smámynd: Heiða  Þórðar

hehe - sko ég vissi það...hann elskar mig! Haltu kjafti!

Heiða Þórðar, 21.8.2008 kl. 12:40

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elskan mín í guðs bænum, ekki breytast, vertu svona alltaf. Þú ert ómissandi með þína sýn á lífið og færð okkur hin til að spá og spjalla um ýmislegt sem annars væri ekki rætt.  Ég var sko heppin í morgun, þegar ég kom fram var húsbandið búinn að hella uppá og sagði "góðan daginn fagra kona" eftir svona móttökur þarf maður ekki einu sinni að líta í spegil. Cinco Dancer eigum við að taka snúning??

Ásdís Sigurðardóttir, 21.8.2008 kl. 14:29

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég vil þú farir að blogga ~öðruvízi~, NÚNA !

Nah....

waddla...

Steingrímur Helgason, 21.8.2008 kl. 15:15

11 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Heiða mín, JUST SUCK IT TO THEM horney!

Eva Benjamínsdóttir, 21.8.2008 kl. 15:30

12 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

Þú veist að ég er bara að stríða þér! Þú mátt alveg vera í ríðinga hjalinu

Þórður Helgi Þórðarson, 21.8.2008 kl. 15:42

13 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ásdís hef spurt þig áður og geri aftur; er ekki hægt að copera karlinn þinn?

..man enn hvað þið voruð fallega ástfanginn í smáró?

Takk dodds...þú ert flottur

Heiða Þórðar, 21.8.2008 kl. 16:30

14 Smámynd: Gísli Hjálmar

Heiða! mér hætt að lítast á blikuna. Ertu svona geðstirð í sambandi - eða hvað?

það er spurnig hvort maður verði ekki að sækja í karlaathvarfið ef þú heldur svona áfram.

kv, þinn elskandi GHs

Gísli Hjálmar , 21.8.2008 kl. 17:09

15 Smámynd: Sporðdrekinn

Í Guðanna bænum ekki hætta að vera þú sjálf eða gleða okkur með bloggi þínu. Mér finnst alltaf gott að koma hér inn, að lesa skrif þín er eins og hressandi "kaldur gustur". Sem sagt ég vakna smá til lífsins og veit að ef ég hef gaman af skrifum þínum og næ húmornum þá er enn smá púki til í mér. Og eins og við vitum þá er nauðsynlegt að hafa púka

Sporðdrekinn, 21.8.2008 kl. 17:19

16 Smámynd: Heiða  Þórðar

Spordreki; blessuð/aður vertu; hætti aldrei

Gísli; GEÐSTIRÐ? þú ert bara svínslega ógeðslega vondur við mig! 

Heiða Þórðar, 21.8.2008 kl. 17:52

17 Smámynd: www.zordis.com

Það á hver að lifa með sínu þjóstumikla guðsútvalda rassgati og auðvitað er okkur skítsama með hvað hinir hugsa eða halda um okkur!  Bara þeirra vandamál.

Og svo var það hamsturinn sem kom til dýralæknis og bað dokksa um að ná af sér teipinu ....

www.zordis.com, 21.8.2008 kl. 18:11

18 Smámynd: Sporðdrekinn

Heiða: HJÚKET!

Zordis: Er ég ógeðslega blond (já ok veit það), en hérna hvað var hamsturinn að gera með teip?

Sporðdrekinn, 21.8.2008 kl. 19:30

19 Smámynd: Heidi Strand

Búin að því.

Heidi Strand, 21.8.2008 kl. 20:23

20 Smámynd: Heiða  Þórðar

Nákvæmlega...hvað var hamsturinn að gera með tape? Ég er að vísu dökk yfirlitum og ég skil....ég skil...og þetta er svo dirty....og ég alltof siðvönd til að útskýra. Láttu hugmyndaflugið ráða mín elskuleg

Heiða Þórðar, 21.8.2008 kl. 20:34

21 Smámynd: Sporðdrekinn

Þú siðvönd, ye right

Það flýgur og flýgur en þótt að ég skilji að þarna sé eitthvað dirty í gangi þá er ég annað hvort of saklaus eða blond að ég bara fatta ekki. En ég mun þá bara fljúga áfram, alltaf gott að hafa gátu til að ráða

Sporðdrekinn, 21.8.2008 kl. 21:17

22 Smámynd: Sporðdrekinn

 Ég verð bara að benda þér á það Heiða, að við vorum í heimsókn hjá hvor annarri á nákvæmlega sama tíma!  Takk fyrir það

Sporðdrekinn, 21.8.2008 kl. 21:23

23 Smámynd: Heiða  Þórðar

hehe í alvöru!

Ok ég skal segja þér...hamstrar með lími fyrir karlmenn í hallæri.... 

...en sko hún Zordis sagði þetta ekki ég! 

Heiða Þórðar, 21.8.2008 kl. 21:34

24 Smámynd: www.zordis.com

Ekki UHU ...

Amma sagði mér þennan sko!   (nú fæ strik í kladdann og ætla ad klórþvo á mér tunguna!!)  Ekki frá því !

www.zordis.com, 21.8.2008 kl. 22:34

25 Smámynd: Sporðdrekinn

Þið eruð bara prakkara báðar tvær

Sporðdrekinn, 21.8.2008 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband