Blessuð sé minning hans
18.5.2008 | 13:45
Ég er búin að komast að ýmsu þessa vikuna.
Tildæmis veldur eitt mér ógleði, sérstaklega þegar ég vakna á morgnanna. Jebbs...tilhugsunin um perurass veldur því að mig langar að æla! Þegar ég tala um það við fólkið sem er í mínu liði -fer það án undantekninga -að hlæja. Bætir gjarnan við;
- Heiða mín er ekki alveg að sjá þetta fyrir mér sko...
Perurass - perurass - perurass...
...bið um undur og stórmerki...tilhugsunin um miðbik nætur og dags er afar rómatísk...en hallar heldur betur undir fæti þegar brosandi klósettskálinn blasir við mér í von um volgan skyndimat...að morgni.
Það er semsé borin von ég hjóli í vinnuna. Og þar með er perurassinn farinn veg veraldar nema að ástmaður minn tilvonandi sé með einn slíkan. Þá á ég perurass sem ég sleppi aldrei! Hér í höllinni verða ekki perur á boðstólnum fyrr en perukallarassinn stingur sér til sunds... á meðan bíð ég...pollróleg.
Skítt með að gaurinn sé einsog afturkreystingur í framan, sulli í bjór daglangt, reki við og ropi...hafi ekki séð á sér typpið í einhver ár...ef hann er með perurass -sendið hann til mín.
---
Annars er það að frétta að á geðdeildum borgarinnar eru eintómar fyllibyttur og aumingjar. Heyrði það af afspurn þegar umrædd vildi komast að á Kleppi, sem er uppfull "bæthevei"...og geðdeildin ein stóð til boða....viðkomandi var sagt að reyna aftur að morgni...
...þegar sú hin sama hvæsir á mig í gegnum símtólið;
-ég ætla að láta þig vita það Heiða Bergþóra Þórðardóttir, að ég er engin hlaupatík fyrir þessa helvítis aumingja! Ábyrgðin var orðin mín.
Þegar fullt nafn mitt er notað í þessum tón, veit ég fyrir víst að ég á að skammast mín og snauta inn í herbergi...sem ég og gerði.
...já það getur verið erfitt að vera ég; sérstaklega þar sem ég er í forsvari fyrir ákvörðunum lækna og annarra fylgisveina, hvítsloppa og blásloppa ... um niðurröðun í rúmin á þessum prýðis stofnunum. Ég sé að ég er einhvernveginn að detta utanborðs og út úr klíkunni. Held það sé vegna þess að ég hef ekki lagt þarna einn geðlæknir eða tvo...nýlega. Enda gef ég hann góðan...rass-skellinn...
---
Sambandi okkar Saxa er lokið. Hann er á grafarbakkanum. Þegar ég kvaddi hann í gær, vældi hann;
-ekki skilja mig eftir! Ég sem er búin að vera undirlægja þín í marga mánuði. Þú ert búin að vera að þjösnast á mér...skíta mig út...misþyrma mér, bæði andlega og líkamlega....þú varst bara að nota mig...ætlarðu að yngja upp? ekki fara frá mér!....það síðasta sem ég heyrði var áður en ég lokaði eyrunum; -Vanþakkláta beljan þín!
Ég stökk upp í annan bíl og keyrði burt á vit nýrra ævintýra með á bros á vör, án nokkurar eftirsjár.
Blessuð sé minning hans.
Njótið komandi viku í rusl og ræmur ... elsku vinir
Athugasemdir
Það er mikið í gangi... njóttu komandi vikur kæri bloggvinur.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 18.5.2008 kl. 14:00
Vúhú nýr bíll...........
Hrönn Sigurðardóttir, 18.5.2008 kl. 15:34
Ha, eru karlar með perurassa? Greinilegt að ég hef ekki réttu rasslögunina í hug þegar ég ímynda mér perurass því ég sé fyrir mér konur með grannt mitti, tiltölulega breiðan rass og eru svo í þröngum buxum sem skerast upp í rassskoruna. Og þá langar MIG að æla.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 18.5.2008 kl. 16:53
hehe...
púff þessa perurassamenningu hef ég ekki sjálf kynnst Kristín heyrði þetta þó fyrst (og í eina skiptið) frá mínum fyrrverandi
Heiða Þórðar, 18.5.2008 kl. 18:12
Ég hélt það sama og Kristín.
Helga Magnúsdóttir, 18.5.2008 kl. 18:35
Til lukku .... Saxa mun fá nýjan tilgang í lífinu!
www.zordis.com, 18.5.2008 kl. 20:44
Var hann með "perurass"?
Annars gott að þú ert vöknuð af blundinum og farin að blogga aftur.
Gísli Hjálmar , 18.5.2008 kl. 21:04
Fyrrv? neibb.... frekar svona kúlu
Heiða Þórðar, 18.5.2008 kl. 21:07
Sá nýji á auðvitað að heita Meistarinn ekki satt?
Hann hefur nefnilega svo lengi dreymt að vera undir þínum yndislega kúlurassi!
Magnús Geir Guðmundsson, 18.5.2008 kl. 21:28
Perurass!....................................ég sé fyrir mér hinn undarlegasta rass
Huld S. Ringsted, 18.5.2008 kl. 22:06
Faðmlag frá mér.Þú ert seig að vera þú
Til hamingju með þann nýja.....sko bílinn...ekki rassinn
Solla Guðjóns, 18.5.2008 kl. 22:16
Knús á þig stelpurrass
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.5.2008 kl. 22:44
Perurass.......
Díta (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 22:55
Sá nýji mun þá heita saxi II ...en átti ég ekki að spila í jarðaför saxi I
Einar Bragi Bragason., 19.5.2008 kl. 00:24
Sá nýji sem er hvað Opel Tigra... mun hann þá ekki bara heita Tiger Grrrrr Saxason
Gísli Torfi, 19.5.2008 kl. 00:44
Niebbb....keypti annan Gísli, kem nú tveimur fullvöxnum karlmönnum í aftursætið ...
Heiða Þórðar, 19.5.2008 kl. 07:55
Kvitt kvitt
Fowler (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 14:01
Njóttu vikunnar í botn þrátt fyrir yfirfyllerí geðdeilda.
Steingerður Steinarsdóttir, 19.5.2008 kl. 16:46
Ætlarðu að fara að hlusta á Johnny Logan og bera á þig nýja glossinn??? ég ætla á Fogerty með gloss í bak og fyrir perurassinn þinn
Ásdís Sigurðardóttir, 19.5.2008 kl. 18:16
Ég fékk glossið...jafnvel þótt það lykti einsog kattahland er ég í sjönda himni...veistu afhverju??? afþví að ég fékk knús frá þér. Takk elskan
Heiða Þórðar, 19.5.2008 kl. 18:22
u
Heiða Þórðar, 19.5.2008 kl. 18:44
alltaf fjör hjá þér kæra heiða....
Bless í nóttina
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 19.5.2008 kl. 19:37
Steina á afmæli á morgun (þriðjudag) fædd 20. 05. 1960. Láttu það ganga.
Gunni Palli kokkur.
Gunnar Páll Gunnarsson, 19.5.2008 kl. 21:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.