STJÖRNUMERKIN

  

 

   

Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kannt ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

OG ÞÚ ERT Í HVAÐA STJÖRNUMERKI? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða voða neikvæðni er þetta? Heiða er vatnsberi....

Kolla kanína (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 22:57

2 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heyrðu góða mín!

Heiða Þórðar, 20.1.2008 kl. 22:57

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Og ég er hrútur, ég er ekki kvikyndi alveg satt.   Love You 

Ásdís Sigurðardóttir, 20.1.2008 kl. 23:00

4 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Passsar ekkert........ég er snillingur ...glaður.....hress......glaður ...hress.....glaður og hress

Einar Bragi Bragason., 20.1.2008 kl. 23:07

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Bogamaður og fittar lýsingin óneitanlega ótrúlega vel við mig,held því fram að þetta sé samið um mig...

Ekki tínast á skýi....

Solla Guðjóns, 20.1.2008 kl. 23:33

6 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvarðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Þetta er andstæðan við mig... þó ég sé vog. En þekki eina vog - og get svo svarið að þetta er einmitt rétta lýsingin 

Linda Lea Bogadóttir, 20.1.2008 kl. 23:48

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

....og fyrsti stafurinn er?

Heiða Þórðar, 20.1.2008 kl. 23:50

8 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

"Hver er þinn helsti löstur" 

Linda Lea Bogadóttir, 21.1.2008 kl. 00:11

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Óborganleg

Heiða Þórðar, 21.1.2008 kl. 00:20

10 identicon

Sæl Heiða mín. 

 NAUTIN ERU GÓÐ TIL MATAR!

Svakalega hef ég gaman af því að alli mínir Hæfileikar eu nú þjóðinni kunnir.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 00:49

11 Smámynd: Gísli Torfi

Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa,........þetta er gargandi snilld ég datt nánast úr Hjólastólnum mínum af hlátri ..... en sjálfur er ég Bogamaður

og við erum öll meira og minna meingölluð hér á jörðini en þá er bara að reyna að gera gott mót með góðri hjálp ..

Gísli Torfi, 21.1.2008 kl. 03:39

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Tvíburi ;) alltaf að feika....

Hrönn Sigurðardóttir, 21.1.2008 kl. 08:25

13 Smámynd: Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl

össs...ég er steingeit....snobbaður, stífur og vansæll vinnualki...

Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl, 21.1.2008 kl. 13:11

14 identicon

Ég er naut ... ég er lítið skárri en rotþró ... so true!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 14:10

15 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Steingeit ég get tekið undir það að vera vinnualki og stífur annað passar ekki.

Þórður Ingi Bjarnason, 21.1.2008 kl. 14:25

16 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Sporðdreki.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.1.2008 kl. 16:53

17 Smámynd: Rögnvaldur Hreiðarsson

Ég er aumingi og tilfinningasósa. Í þessari röð...

Rögnvaldur Hreiðarsson, 21.1.2008 kl. 17:11

18 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Góð stjörnuspá, loksins eitthvað vit í þessu.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 21.1.2008 kl. 17:29

19 Smámynd: Sigrún

ÉG uppáhalds frænka þín !!!! :O

er nátturlega vatnsberi einsog eigandi síðunnar :)

Ég hef svo oft tekið eftir því hvað fólk í vatnsberamerkinu er með eindæmum fallegt og heilsteypt fólk ..............

varð bara að koma þessu að

Sigrún, 21.1.2008 kl. 17:42

20 Smámynd: www.zordis.com

Þetta er talandi dæmi um mig; alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur, svo er ég snobbuð mjög.

Er að spá í að sækja um sem vínsmakkari og þá verð ég sko vinnualki!

Þetta er náttúrulega bara ömurlegt að lesa svona staðreyndir ....  Best að fikra sig uppá fjallið!

www.zordis.com, 21.1.2008 kl. 18:04

21 Smámynd: Alfreð Símonarson

Vá, helvíti eru stjörnumerkin eitthvað þunglynd þessa dagana. Þá er bara að klæða sig í spandexgallann og dansa eins og vitleysingur um götur með sambatónlyst í botni í ghetto-blasterinum.

Alfreð Símonarson, 21.1.2008 kl. 18:30

22 Smámynd: Ásgerður

Ég er vog,,,,og þetta er EKKI lýsing á mér  , eða hvað finnst þér?

Ásgerður , 21.1.2008 kl. 19:53

23 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehemm, steingeit hérna en með voða litla steingeit í kortinu mínu

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.1.2008 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband