Ykkur dreymir um að vera ég...

Þið ykkar sem dreymið um að vera ég...þá get ég huggað ykkur við að þessa dagana er hreint ekkert gaman að vera ég. Já, já, ég veit alveg allt um það; sumir vilja vera ég...í allavega sólahring...bara svona rétt til að kíkja og káfa á brjóstunum á mér  og þukla mig allt um kring...þetta er semsé ógeðisfærslan mín...þar sem ég er næstum hætt að blóta. Viss um að ef þið væruð ég, þá mynduð þið leigja ykkur eina bláa með mér og mér. Keyra bílinn minn og skoða í skúffurnar mínar. Baka jafnvel köku. Ég er ofaná allt og allt uppfull af sjálfsvorkunn yfir því að vera ég.

Skrítið með að vilja alltaf gera allt sem maður getur ekki; svosem einsog þegar ég sat hér seinnipart dags í gær og hugsaði; flott væri að nýta tímann og klára að mála herbergið...eða mikið rosalega langar mig að sauma núna og teikna eða mála mynd.

Fór í apótekið í gær vegna handanna; konan sem afgreiddi mig greip fyrir munninn (til að grípa góminn sinn held ég) og segir; á neyðarvaktina með þig, brenndirðu þig svona svakalega! Neibb....ég hef sjálfsagt fengið vitlausa meðhöndlun .... hún lét mig hafa rakakrem...og ítrekaði; Á neyðarvaktina með þig. Ég rétti fram höndina hún tók ekki við henni, held hún hafi ekki séð hana...ekki frekar en læknirinn sem meðhöndlaði mig í síðustu viku.

Fuck!

Á morgun stendur svo valið á milli pinto bauna eða svartra bauna....hverjum er svo sem ekki sama um fucking pinto baunir!?

Vona að áramótin hafi verið ykkur gleðileg...og nýja árið leggist vel í ykkur...getur varla versnað úr þessu... Smile

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

Hallgrímur Óli Helgason, 1.1.2008 kl. 18:13

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Gleðilegt nýtt ár

Georg Eiður Arnarson, 1.1.2008 kl. 18:20

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Fórstu ekki á vaktina?? hvað hafa baunirnar með þetta að gera? er svo sjúpid. Vona að þér batni fljótt. Mig langar ekki að vera þú því ég vil káfa á karlinum mínum og það fær engin að gera nema ég    ég get ýmyndað mér að margir karlmenn væru til í að snerta þig dúllan mín.  Lov jú,  hvernig líður annars litlu skottunni þinni.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.1.2008 kl. 18:24

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

hún er hress sem fress elskanpinto baunir hafa ekkert með þetta að gera

Heiða Þórðar, 1.1.2008 kl. 18:30

5 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

æææææææææ ekki gott ástand á þér

Einar Bragi Bragason., 1.1.2008 kl. 18:30

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Gangi þér allt í haginn:-) sætust.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 1.1.2008 kl. 18:31

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 dúllan mín. Ekki mundi ég vilja vera þú - allavega ekki núna

Hrönn Sigurðardóttir, 1.1.2008 kl. 18:59

8 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Allir vilja vera aðrir, nema ég. Ég er flottastur... og þú líka.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.1.2008 kl. 19:24

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

haha Dúalingur þú ert auðvitað dásamleg!

Heiða Þórðar, 1.1.2008 kl. 19:57

10 Smámynd: Ásgerður

Elsku Heiða mín, verð að koma Aloe vera kremunum mínum til þín , þau eru allra meina bót, í alvöru.

En þú verður að fara á vaktina og láta kikja á þetta. Úfff finn svo til með þér

Farðu vel með þig

Ásgerður , 1.1.2008 kl. 20:22

11 identicon

Þrátt fyrir bólgnar hendur, ávöl brjóst og girnilegar varir svo ekki sé talað um frjósemislegar mjaðmir og aðrar einlægar játningar er rétt að óska þér elsku Heiða - gleðilegs árs og farsældar hvar sem ber niður á nýju ári. Þinn einlægi...

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 21:05

12 identicon

Heiða mín.

Ég er þess fullviss að þetta lagast,

  og að á næstu dögum og þá fara hlutirnir að færast í sinn eðlilega( ?) farveg.

 Við erum alltaf að sveiflast til og frá í VELLÍÐAN og VANLÍÐAN, líkamlegri sem sálar og andlegri.

Mín lífsreynsla er sú að VIÐ.

ÞÚ og 'EG og ÖLL hin,

höfum miklu meira að gera með þessa hluti en okkur órar fyrir.

 Að ég skyldi EKKI hafa SÉÐ það fyrr,er allt í lagi.

Því ég get ENGU breytt hvað fortíðina VARÐAR,

NÚIÐ GILDIR,

FRAMTÍÐIN er ÓRÁÐIN. OG ÞESS VEGNA LEGG ÉG UPP MEÐ ÞAÐ Á HVERJUM DEGI.

 AÐ GERA MITT BESTA.

 Ég ætla að biðja Guð að blessa þig Heiða mín.

þÚ ÁTT ÞAÐ SKILIÐ.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 01:28

13 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

upp með húmorinn....

Einar Bragi Bragason., 2.1.2008 kl. 02:21

14 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Gleðilegt ár Heiða mín og vonandi fer exeminu að linna og flensan að skána. Þakka þér fyrir alla skemmtunina hér á blogginu og megir þú eflast enn frekar á nýju ári.

Steingerður Steinarsdóttir, 2.1.2008 kl. 11:34

15 Smámynd: Halla Rut

Gleðilegt ár og ég þakka bloggvináttu á liðnu ári !

Halla Rut , 2.1.2008 kl. 13:29

16 Smámynd: www.zordis.com

Elsku kjéddlingin, vona að báttið fari að lagast, hrein hörmung að láta sér líða ílla!

Ofnæmiskláðaknús ..... ég hálfraspaði upp á mér hægri fótinn en þetta er allt að koma .

www.zordis.com, 2.1.2008 kl. 15:24

17 Smámynd: Júdas

Ég er ekki viss um að þetta sé hughreystandi en 2.jan er alltaf betri en 1. jan.  Það er mín reynsla.  Eitthvert uppgjör og tómleiki alltaf 1. jan. 

Júdas, 2.1.2008 kl. 16:18

18 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Gleðilegt ár til þín og vonandi áttu gott og farsælt ár framundan !

Sunna Dóra Möller, 2.1.2008 kl. 16:28

19 Smámynd: Solla Guðjóns

Gleðilegt ár Heiða mín og farðu vel með það og þig

Solla Guðjóns, 2.1.2008 kl. 19:41

20 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ái. Gleðilegt nýtt ár.

Markús frá Djúpalæk, 2.1.2008 kl. 20:39

21 Smámynd: Gísli Torfi

Gleðilegt árið Heiða mín ..vona að þér batni í lúkunum..

Gísli Torfi, 3.1.2008 kl. 00:51

22 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er sein, sorrí, allt fjörið búið.  Er þér að batana? Vonandi hressistu með hraða ljóssins, ljósið mitt.  Gleðilegt ár honní.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.1.2008 kl. 01:27

23 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Ég veit um konu sem fék svona svaðaleg útbrot á hendurnar. Oft opin sár. Hún var hætt að fara úr húsi nema með hanska. Henni datt í hug, eftir ýmsar tilraunir, að tengja þetta við að hún hafði hætt að borða kjöt, einu eða tveimur árum fyrr. Hún hóf að borða kjöt að nýju og útbrotin hurfu furðu fljótt.

Brjánn Guðjónsson, 3.1.2008 kl. 22:35

24 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Gleðilegt ár sætust  Þúsund þakkir fyrir öll brosin sem að komu með lesningu á blogginu þínu skvísa

Katrín Ósk Adamsdóttir, 3.1.2008 kl. 22:41

25 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gleðilegt ár Heiða mín og hafðu það gott á nýu ári.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.1.2008 kl. 10:29

26 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Veistu Heiða, er nú ekki alveg viss um að ég vilji vera þú!

Sjáðu til, ég er svona "venjulegur strákur sem vill gera helst flest sjálfur en ekki sem einhver annar. til dæmis vil ég bara vera ég, ég og engin annar þegar og ef ég kæmist í kynni við bringukollana þína, en viðurkenni jafnframt að vera þú en ekki ég væri forréttindi, með eða án handa!

Magnús Geir Guðmundsson, 4.1.2008 kl. 13:18

27 Smámynd: Margrét M

gleðilegt nýtt ár .. sem ekki byrjar vel hjá þér ,.. ekki gott en vonandi að skána ..farðu vel með þig ..

Margrét M, 4.1.2008 kl. 13:29

28 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

úff! þetta er ljóta ástandið!

Aloe vera smyrsl, ekki spurning, frá volare, þau eru pottþétt, bara albest!  Góðan bata

Guðrún Jóhannesdóttir, 4.1.2008 kl. 23:33

29 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Vonandi er ástandið að lagast

Einar Bragi Bragason., 5.1.2008 kl. 01:00

30 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

og hvernig er svo staðan í dag mín kæra?

Jóna Á. Gísladóttir, 5.1.2008 kl. 13:09

31 Smámynd: Hugarfluga

Æ, vonandi er allt í lagi með þig, snúllan mín. Svona exem geta verið hræðileg, ég kannast sko við það. Finn fullt til með þér, en veit að þú kemur fjölefld til baka! 

Hugarfluga, 5.1.2008 kl. 17:29

32 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Kelli mín! Hvar ertu? Sakna svo til þín...........

Hrönn Sigurðardóttir, 6.1.2008 kl. 22:29

33 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ertu á lífi kona?  Ertu með eða án handa? (Djö væri þetta slæmt ef hendur væru dottnar af, ég myndi deyja). Smjúts

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.1.2008 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband