Fucking pissed off!

Nýjar fréttir voru að berast í hús, alveg oforvarendes....já og ég búin að fá vitniðsburðin staðfestan annarsstaðar frá. Voðalega veit maður lítið þó maður viti lítið um mikið ...

Sko...

...hélt alltaf og stóð í þeirri trú að "hugsanir" til annars fólks kæmi niður á manni sjálfum. Góðar - gott til baka - slæmar - slæmt til baka....svona boomerang dæmi.

Hey...svo var ég nú barasta að heyra það að ef einhver hugsar slæmar hugsanir til mín tildæmis...þá getur það haft slæmar áhrif á mig?! Og hvað hugsaði Heiða þá? Auðvitað eitt stórt og feitt fuck! Hvað annað?

Hvernig verst maður nákomnum ættingja sem er með þráhyggju og afar sjúk á geði.....hugsar og talar um viðkomandi (jæja ok mig þá) á vægast sagt ljótan hátt ....og allt fyrir það eitt; að ég (hmmmm) nota mig bara sem dæmi, auðsótt mál að hafa þetta í 1.pers. hef tekið mér það bessaleyfi að fara í frí frá illa lyktandi partýinu til að hlúa að sjálfri mér og mínu.

Orð einsog viðbjóður, eigingjörn, viðbjósleg...hugsar bara um rassgatið á sjálfri sér...eiga á engan hátt við sem lýsing á mínum persónuleika.

Það góða er í stöðunni að þeir sem koma upplýsingunum til mín vita betur og segja bara; -svona svona hún er bara veik, þú veist það! Hefur alltaf verið svona, þú verður nú samt yfirleitt fyrir valinu ...en þú ert best.

Ég veit það vel að viðkomandi er veik, en þegar ég fæ flensu, andateppu og nálægt 40 stiga hita útaf haturs-straumum annarsstaðar frá.... ÞÁ VERÐ ÉG FUCKING PISSED OFF! Ég get ekki varið mig!

Annars bara svona að láta ykkur vita elskurnar að ég er að skríða saman....hef saknað ykkarHeart

Hendurnar eru hér enn....og bíða eftir að komast almennilega í gírinn...þá verður sko stuð á minni.Wizard

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Gott að sjá þig aftur.

Eitt verðum við að passa, það er að fara ekki inn í veikindin með
öllu og öllum því þá getum við ekki hjálpað eða sagt það sem þarf að segja.

Hlakka til að sjá þig í gírnum.

Solla Guðjóns, 8.1.2008 kl. 02:06

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Gírinn góði gefur stuð

gott á meðan stendur.

Það veit ég og það veit Guð

þínar læknast hendur.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 8.1.2008 kl. 02:41

3 identicon

Hæ,Heiða mín.

 Eins og góðar hugsanir sem manni eru sendar þá getur maður SKYNJAÐ ÞÆR OG LIÐIÐ VEL(maður einfaldlega tekur ekki eftir því neitt sérstaklega vegna þess að yfirhöfuð er það eðlileg líðan),EN ÞEGAR MANNI FER AÐ LÍÐA ILLA ÁN NOKKURAR ÁSÆÐU.þá getur þetta snúist upp í andhverfu sína.

Gott ráð við þessu er að BIÐJA og fá aðra til að biðja með sér.

Klikkar yfirleitt EKKI.

Og alls ekki setja sig í sama gír og hinn aðilinn er í

,þá fyrst byrjar VIRKNIN.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 05:00

4 Smámynd: www.zordis.com

Íllar tungur eru oftast veikar tungur og ekki láta þetta ljóti taka fegurðina þína frá okkur.  (thinking of me)

Á bleiki skýji skemmti ég mér trallalalala mér trlallalalal með þér tralalallallal ....

Sendi þér ástarbombu sem hefur svona ástareffekt og frænkan verður blíð fram í mars - april - mai .... ! 

www.zordis.com, 8.1.2008 kl. 08:42

5 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

þ'u verður bara að verja þig "huglægt" fyrir svona sendingum, notaðu rósina eða eins og ég geri svo oft, ljóshjálm í kringum þig og biddu um vernd. Knús á þig vinan og góðan bata. Erfitt að vera "handalaus"

Guðrún Jóhannesdóttir, 8.1.2008 kl. 09:11

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er veikur akkúrat núna... hum

Gunnar Helgi Eysteinsson, 8.1.2008 kl. 09:19

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Snúllan mín! Hverjum í ósköpunum dettur í hug að tala illa um þig!!! Ég er svo aldeilis yfir mig dottin.

Lovjú

Hrönn Sigurðardóttir, 8.1.2008 kl. 09:20

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kæra heiða, já þetta er orða á sönnu, hugsum fylgir orka og þess vegna er mikilvægt að vanda bæði það sem maður segir og hugsar. en þú getur á mjög einfaldan hátt varið þið. fyrir það fyrsta biddu um vernd !!

láttu verndar ljós í kringum þig, verndarljós sem verndar þig gagnvart illum tungum og hugsunum . þetta geturðu auðveldlega gert og það hjálpar.  mundu bara að gera það af og til. sendu svo frænku þinni þessari sjúku ljós og óskir um að illar hugsanir hverfi frá henni.

Ljós til þín kæra heiða heiðarlega

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 8.1.2008 kl. 10:00

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heiða mig grunar hver stendur í þessu.  En hvað um það, það er hægt að vera sig fyrir ljótum hugsunum annarra.  Segi þér það í einrúmi bráðum.  Trúðu mér minnsta mál að loka á streymi frá svona fólki.

Love u og þetta er ljótt og þú átt auðvitað ekki skilið svona framkomu.

Held með þér.

Hvern á ég að lemja?  Segi sonna.

Knús

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.1.2008 kl. 10:30

10 Smámynd: Heiða  Þórðar

Svei mér þá ef flensan er ekki að lagast

Heiða Þórðar, 8.1.2008 kl. 10:34

11 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

she´s back.....og alltaf lang flottust.

Einar Bragi Bragason., 8.1.2008 kl. 10:37

12 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Velkominn aftur - ... var farin að hafa áhyggjur af að þú hefðir misst báðar hendur úr ofnæminu og værir komin í kvöldskóla að læra að skrifa með tánum...  

Linda Lea Bogadóttir, 8.1.2008 kl. 11:26

13 Smámynd: Sunna Dóra Möller

 Farðu vel með þig!

Sunna Dóra Möller, 8.1.2008 kl. 12:00

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Segi eins og aðrir, það er hægt að verja sig, hugsaðu þér hvað þú hefðir orðið veik ef þú ættir ekki alla þessa jákvæðu orku frá bloggvinum, við höfum vegið á móti slæmum hugsunum.  Það hefur reynst mér vel að segja " ég fyrirgef þér sem hugsar svona illa til mín og talar svona illa um mig" svo set ég ljós yfir mig eins og hjálm og þannig komast hlutirnir ekki að.  Elskið mitt, láttu þér batna.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.1.2008 kl. 12:41

15 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Sammála Örnu  gott að þér er að batna.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.1.2008 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband