Trilljón milljón kossar...
11.12.2007 | 22:32
Víst kom hann. Stekkjastaur og það með látum. Hreif mig upp úr rúminu kyssti mig blíðlega og hvíslaði að mér; kíktu í skóinn þinn elskan, þar er ekkert áþreifanlegt að finna, bara trilljón milljón kossar til þín frá mér. Alltaf þegar þú hugsar til mín færðu einn koss. Kitlaði mig aðeins á nebbagogg og var rokin af stað með það sama. Hann lofaði að koma til mín aftur í nótt...hljóðlega. Og til ykkar hinna, ef þið lofið að vera góð.
Ég glaðvaknaði og kíkti í skóinn. Trilljón milljón kossar flögruðu upp á móti mér einsog litrík fiðrildi. Hvert sem ég sný mér fæ ég einn koss, frá lífinu. Alveg satt...
---
Sem nútímakona á ég einn og einn fyrrverandi á stangli. Í dag fór ég í matar- og jólainnkaup með einum á stangli. Það komu alveg upp kómísk augnablik. Í Bónus var hann í matarhugleiðingum og ég í einhverjum allt öðrum hugleiðingum. Við vorum auðvitað með sitthvora körfuna. Þegar hann bað mig um að ná í núðlusúpur fyrir sig segir hann;
-þú ættir að kaupa þér nokkrar Heiða...
-NEI takk, kláraði sko alveg núðluskammtinn minn þegar ég bjó með þér. Ég leit ofaní körfuna hans og segi;
-Ætlarðu virkilega að drekka 12. ltr af kóki!!!??? OJ barasta!
-Jaaa....neeeei, það er bara svo svaka fínt tilboði af kóki...en þú? ætlarðu ekki að kaupa þér neinn mat? 25 ljósaperur í körfunni þinni!
Ljósaperurnar mínar komust í einn poka...þegar ég var búin hjálpaði ég honum og það ekki athugasemdalaust;
-þú setur ekki sjampó og uppþvottalög í sama poka og jógurt og brauð!
-jú víst...
---
Því næst fórum við í mestu vinsemd í Rúmfatalagerinn. Með eina körfu. Mig vantaði ekki neitt, sem reyndist rangt. Mig vantar alltaf eitthvað smálegt....Ég valdi lit seríanna sem hengjast skildu í gluggana hans í stíl við það sem fyrir er. Svo fékk ég mér annan lit. Við keyptum bæði ilmkerti...sitthvorn ilminn. Honum vantaði rúmföt og þar sem ég er snillingur í innkaupum og vali á efnum, varð ég auðvitað að ráðleggja honum. Við komust ekki að sameiginlegri niðurstöðu og því voru engin rúmföt keypt.
Á leiðinni að kassanum hitti ég kunningjakonu mína. Við tókum nettspjall á daginn...og svo er kallað;
-HEIÐA!!!
Gæinn var búin að ganga frá kaupunum og þegar ég spurði á leiðinni út;
-Hvað skulda ég þér mikið?
Sagði hann;
-ekki neitt...
-nú, ok...hmmm... við verðum að gera þetta oftar...settirðu ekki allt rétt í pokana?
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Nýjustu færslur
- 25.6.2023 Laun fyrir að kúka í kassa
- 3.8.2021 Ég er bara grillaður kjúklingur
- 17.11.2010 Ég veit allavega um EINN sem ég myndi ALDREI kjósa yfir mig...
- 1.10.2009 Opið bréf til Davíðs Oddssonar "alltmuligman" ...
- 16.6.2009 Tálaus eða ekki tálaus...
Bloggvinir
- Solla Guðjóns
- www.zordis.com
- Steingerður Steinarsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Heiða B. Heiðars
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Ásgerður
- Andrea
- Heidi Strand
- Grétar Örvarsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Als
- Helgi Seljan
- Ólafur fannberg
- Karen, Sigurbjörg,Tóti, Gerður og fl.
- Jón Axel Ólafsson
- Ísdrottningin
- Sigrún Friðriksdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Thelma Ásdísardóttir
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðjón Bergmann
- Jakob Smári Magnússon
- Ester Júlía
- Birgitta Jónsdóttir
- Klara Nótt Egilson
- Saumakonan
- Björn Heiðdal
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jens Guð
- Þórarinn Þ Gíslason
- Viktor Borgar Kjartansson
- bara Maja...
- Jón Steinar Ragnarsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Georg Eiður Arnarson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Edda Agnarsdóttir
- Tómas Þóroddsson
- halkatla
- Þórður Ingi Bjarnason
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristján Eldjárn Þorgeirsson
- Heiða
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Kristján Kristjánsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Sigmar Guðmundsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jón Svavarsson
- Dofri Hermannsson
- Ásta Salný Sigurðardóttir
- Guðríður Arnardóttir
- Snorri Sturluson
- Hlynur Þór Magnússon
- Bjarni Harðarson
- Trúnó
- Hafrún Kristjánsdóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Þröstur Friðþjófsson.
- Gils N. Eggerz
- Sigurjón N. Jónsson
- Sveinn Waage
- Halldór Borgþórsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Ársæll Níelsson
- percy B. Stefánsson
- Arnfinnur Bragason
- Jón Sigurgeirsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- perla voff voff
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Edda Jóhannsdóttir
- Þorsteinn Gunnarsson
- Haukur Már Haraldsson
- María Tómasdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Camilla
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðný Helga Herbertsdóttir
- Kaleb Joshua
- Halla Rut
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Sigurjón Þórðarson
- Lára Stefánsdóttir
- Jóhannes Ragnarsson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Margrét M
- Fiðrildi
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Agný
- Ingunn Ósk Ólafsdóttir
- Unnur R. H.
- Einar Bragi Bragason.
- Markús frá Djúpalæk
- Brynjar Jóhannsson
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Halldór Sigurðsson
- Guðmundur Pálsson
- Þórdís tinna
- Helga Sigrún Harðardóttir
- Hjördís Ásta
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Valgerður Halldórsdóttir
- Bragi Einarsson
- Helgi Kristinn Jakobsson
- Benna
- Dögg Pálsdóttir
- Sunna Dóra Möller
- Gísli Torfi
- Alheimurinn
- Gunnlaugur Helgason
- Linda Lea Bogadóttir
- gudni.is
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Þóra I. Sigurjónsdóttir
- Sæþór Helgi Jensson
- Púkinn
- Svartinaggur
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Einar Örn Einarsson
- Einar Indriðason
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Víkingur / Víxill
- Magnús Geir Guðmundsson
- Anna J. Óskarsdóttir
- Alexander Már Benediktsson
- Sverrir Stormsker
- Hlynur Birgisson
- Sigrún
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Hvíti Riddarinn
- Sonja I Geirsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðný Lára
- Hlekkur
- Sævar Einarsson
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sólrún
- Jón Ragnarsson
- Ingi Björn Sigurðsson
- Kolgrima
- Þ Þorsteinsson
- Maddý
- Lena pena
- Guðborg Eyjólfsdóttir
- Bergþóra Guðmunds
- Egill
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Guðlaug Aðalrós
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Jóhanna Vala Jónsdóttir
- Anna Guðný
- Þórður Helgi Þórðarson
- Hólmgeir Karlsson
- Draumar
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Hdora
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Handtöskuserían
- Vertu með á nótunum
- Óskar Helgi Helgason
- Vefritid
- Gísli Hjálmar
- Óskar Arnórsson
- Johnny Bravo
- haraldurhar
- Ásgeir Páll Ágústsson
- Anna Gísladóttir
- Sigríður Hafsteinsdóttir
- Fiddi Fönk
- Haraldur Halldór
- Á móti sól
- Dísa Dóra
- Arnar Ingvarsson
- Eva Benjamínsdóttir
- Högni Hilmisson
- Hommalega Kvennagullið
- Helga Magnúsdóttir
- Ásdís Rán
- Charles Robert Onken
- Þorsteinn Briem
- Bergur Thorberg
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Hulla Dan
- JEG
- Ein-stök
- JEA
- Elísabet Sigurðardóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Vinir Tíbets
- Sigurbjörn Friðriksson
- Sporðdrekinn
- Marinó Már Marinósson
- Davíð Ólafsson
- Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir
- Áhöfnin á Hákon EA-148
- Óskar Þorkelsson
- Morgunblaðið
- Rannveig H
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Kristín Jóhannesdóttir
- María Guðmundsdóttir
- Guðmundur M Ásgeirsson
- egvania
- Aðalsteinn Jónsson SU-11
- Aprílrós
- Tína
- Þóra Björk Magnús
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Myndamen - Ljósmyndaskartgripir
- Bullukolla
- Aldís Gunnarsdóttir
- Arnar Ingvarsson
- Ástþór Magnússon Wium
- Bjarki Steingrímsson
- brahim
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynja Dögg Ívarsdóttir
- Brynja skordal
- Dúa
- Elín Ýr
- Elísabet Markúsdóttir
- Elísabet Sigmarsdóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðmundur Zebitz
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðrún Þorleifs
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hilmar Sæberg Ásgeirsson
- Himmalingur
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Ingvar Ari Arason
- Jónína Dúadóttir
- Kristín Guðbjörg Snæland
- Leikhópurinn Lotta
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Magnús Paul Korntop
- MYR
- Orgar
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Tinna Jónsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 10564
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
He, he, he. Held að þú ættir að versla oftar með honum.
Ásdís Sigurðardóttir, 11.12.2007 kl. 22:53
veit Stúfur af þessu kossaflensi? hljómar samt vel
halkatla, 11.12.2007 kl. 23:12
Hljómar eins og þið gætuð, já, farið út að versla saman.....
(hægt að gera margt vitlausara)
Einar Indriðason, 11.12.2007 kl. 23:12
Ok, ok, fara út með fyrrverandi að versla í Bónus & Rúmfó í sömu ferðinni...
Eðlilegt, heilsteypt, vísast, gáfulegt, tebolli súr...
Steingrímur Helgason, 11.12.2007 kl. 23:15
ég hef aldrei skilið þessa aðskilnaðarstefnu kvenna í innkaupapokum.....ég treysti framleiðendunum að sápan fari ekki að leka út um allt og eyðileggi ekki brauðið.........sweet dreams saxi....
PS
annars er ég búinn að vinna aftur trú á Jólasveininn hjá dótturinni.......þarf að vísu að bíða svolítið eftir honum í nótt en það er í lagi .......hef ekki hitt hann í heilt ár.
Einar Bragi Bragason., 11.12.2007 kl. 23:30
skoðið þetta
þetta er svakalegt
http://erla1001.blog.is/blog/erla1001/entry/388660/
Einar Bragi Bragason., 11.12.2007 kl. 23:46
Já, kossar eru dýrmæt auðlind og þegar þú færð þá marga, færðu þá aldrei of marga, jafnvel ekki ´frá jólasveininum!
Einari Braga hinum bráðmyndarlega finnst lítið til koma "Aðskilnaðarstefnu ólíkra hluta", en mér finnst meir til koma eiað fullu aðskilnaðarstefna þín við fyrrverandi herra, þó við þá hafir samt samt skilið!
Umhugsunarvert!
Magnús Geir Guðmundsson, 11.12.2007 kl. 23:48
já já já þú ert lang fallegust thí hí hí
Einar Bragi Bragason., 12.12.2007 kl. 00:48
Fyrsta flokks kossar eru góðir, betri, bestir....
Heiða Þórðar, 12.12.2007 kl. 01:09
Viðveruhraðametskvitt, shit!
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 03:45
hehehe góð var sagan af þér og fyrrv.
Svoleiðis ferðir hljóta að vera alveg meiriháttar! Allir sammála um allt og svona. En gott að hann var svo almennilegur að borga brúsann!
Kv Eggert
Eggert (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 11:29
Ég fæ alla kossa sem ég vil, en það væri líka allt í lagi að fá nokkra frá jóla líka, kannski set ég skóin út í glugga í kvöld með stubbnum. Hann leit á mig þýðingarmiklu augnaráði í gær og sagði, jæja þá setur maður skóinn út í glugga, Og hvað sagði ég ? ertu ekki hættur að trúa á jólasveininn ?
En amma sko ALLIR krakkarnir í bekknum mínum ætla að setja skóinn út í gluggann
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.12.2007 kl. 11:30
Svona eiga innkaupaferðir að vera. Einhver annar sem borgar brúsann.
Steingerður Steinarsdóttir, 12.12.2007 kl. 13:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.