Kannski ég skelli mér í ræktina
21.5.2007 | 22:08
Þegar ég verð eirðarlaus á ég það til að gera eitthvað allt annað en ég á að vera að gera. Til að mynda núna, bíður eftir mér uppvask og ófullnægjandi vaktaplan.
Ég sit hér semsagt með ykkur.
Hef nú barasta oft verið í verri félagsskap.
Nú í kvöld dettur mér það allt í einu í hug að kannski þyrfti ég smá breytingu. Klippingu sem dæmi...
Ef ég ætti tæki og tól myndi ég gera við tennurnar í mér sjálf, en þar sem ég á skæri þá klippi ég mig sjálf og hef gert í gegnum tíðina.
Þarna stend ég fyrir framan spegilinn og hugsa með mér að ráðlegt væri að fá á sig topp. Ég hugsaði um morgundaginn líka, en oftar en ekki hef ég vaknað upp við vondan draum og skítamóral.
Á ég? Á ég ekki? Á ég? Á ég ekki?
Og ég klippti....og er barasta flott!
Nú svo sest ég niður eftir klippinguna, enn eirðarlaus í kroppnum og varð hugsað til orða eins vinar míns þegar hann sagði við mig um daginn; (maðurinn vissi auðvitað ekki með vaktaplanið og uppvaskið...)
-Heiða, náðu þér í nýjan karl! Mér skilst að aðal-pick-up staðurinn séu Laugar. Farðu í líkamsrækt.
-Mig langar ekkert í karl! svaraði ég fílulega. Enn síður í líkamsrækt!
Líkamsræktarferill minn hefur verið síður gæfurlegur, en karlaferill minn, skal ég segja ykkur í trúnaði.
Þegar ég var u.þ.b. sex ára kettlingur keyrði á mig bílskömm og ég fótbrotnaði fyrir vikið.
Ég útskrifast af spítlanum og fer út að leika og feitasti strákurinn í hópnum dettur ofaná mig og brýtur á mér löppina aftur, í sama brotið!
Til að kóróna brotinn, hitti ég bílstjórann á bílskömminni 6 árum síðar. Hann var þá leikfimiskennarinn minn.
Þegar ég hvíslaði að honum skömmustulega í einum leikfimitímanum;
- ég er forfölluð, er á blæðingum.
Galaði hann;
-Fáðu þér bara túrtappa stelpa!
Þetta moment var öllu neyðarlegra, en þegar hárvöxtur hófst....
Svo er það á þessar öld, að ég fer aftur í nám. Mig hryllti við tilhugsuninni þegar mér varð ljóst að íþróttir væru skilduáfangar.
Ég mætti þó...
Eitt sinn labbaði kennarinn að mér þegar ég var í einu tækinu og segir;
-Heiða mín, veistu á hvað þú minnir mig?
-Nei....
-Þú ert einsog fermingarstrákur, þarna sem þú dinglar löppunum ....taka á þessu stelpa!
-Heyrðu! Vertu ekki svona andstyggilegur! Hvæsti ég, lagaði á mér hárið, rétt áður en ég blés tyggjókúlu útum litaðar varirnar (næstum því....)
-Ef ég segði þér hvað ég var að hugsa.... þá væri ég fyrst andstyggilegur.
Mér féll annars afar vel við þennan kennara.
Spennandi tímar framundan annars hjá mér, bauðst ný staða í dag. Sem og ég tók.
It´s all happening, kannski maður skelli sér í ræktina bara
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:13 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Nýjustu færslur
- 25.6.2023 Laun fyrir að kúka í kassa
- 3.8.2021 Ég er bara grillaður kjúklingur
- 17.11.2010 Ég veit allavega um EINN sem ég myndi ALDREI kjósa yfir mig...
- 1.10.2009 Opið bréf til Davíðs Oddssonar "alltmuligman" ...
- 16.6.2009 Tálaus eða ekki tálaus...
Bloggvinir
- Solla Guðjóns
- www.zordis.com
- Steingerður Steinarsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Heiða B. Heiðars
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Ásgerður
- Andrea
- Heidi Strand
- Grétar Örvarsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Als
- Helgi Seljan
- Ólafur fannberg
- Karen, Sigurbjörg,Tóti, Gerður og fl.
- Jón Axel Ólafsson
- Ísdrottningin
- Sigrún Friðriksdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Thelma Ásdísardóttir
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðjón Bergmann
- Jakob Smári Magnússon
- Ester Júlía
- Birgitta Jónsdóttir
- Klara Nótt Egilson
- Saumakonan
- Björn Heiðdal
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jens Guð
- Þórarinn Þ Gíslason
- Viktor Borgar Kjartansson
- bara Maja...
- Jón Steinar Ragnarsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Georg Eiður Arnarson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Edda Agnarsdóttir
- Tómas Þóroddsson
- halkatla
- Þórður Ingi Bjarnason
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristján Eldjárn Þorgeirsson
- Heiða
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Kristján Kristjánsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Sigmar Guðmundsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jón Svavarsson
- Dofri Hermannsson
- Ásta Salný Sigurðardóttir
- Guðríður Arnardóttir
- Snorri Sturluson
- Hlynur Þór Magnússon
- Bjarni Harðarson
- Trúnó
- Hafrún Kristjánsdóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Þröstur Friðþjófsson.
- Gils N. Eggerz
- Sigurjón N. Jónsson
- Sveinn Waage
- Halldór Borgþórsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Ársæll Níelsson
- percy B. Stefánsson
- Arnfinnur Bragason
- Jón Sigurgeirsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- perla voff voff
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Edda Jóhannsdóttir
- Þorsteinn Gunnarsson
- Haukur Már Haraldsson
- María Tómasdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Camilla
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðný Helga Herbertsdóttir
- Kaleb Joshua
- Halla Rut
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Sigurjón Þórðarson
- Lára Stefánsdóttir
- Jóhannes Ragnarsson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Margrét M
- Fiðrildi
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Agný
- Ingunn Ósk Ólafsdóttir
- Unnur R. H.
- Einar Bragi Bragason.
- Markús frá Djúpalæk
- Brynjar Jóhannsson
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Halldór Sigurðsson
- Guðmundur Pálsson
- Þórdís tinna
- Helga Sigrún Harðardóttir
- Hjördís Ásta
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Valgerður Halldórsdóttir
- Bragi Einarsson
- Helgi Kristinn Jakobsson
- Benna
- Dögg Pálsdóttir
- Sunna Dóra Möller
- Gísli Torfi
- Alheimurinn
- Gunnlaugur Helgason
- Linda Lea Bogadóttir
- gudni.is
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Þóra I. Sigurjónsdóttir
- Sæþór Helgi Jensson
- Púkinn
- Svartinaggur
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Einar Örn Einarsson
- Einar Indriðason
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Víkingur / Víxill
- Magnús Geir Guðmundsson
- Anna J. Óskarsdóttir
- Alexander Már Benediktsson
- Sverrir Stormsker
- Hlynur Birgisson
- Sigrún
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Hvíti Riddarinn
- Sonja I Geirsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðný Lára
- Hlekkur
- Sævar Einarsson
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sólrún
- Jón Ragnarsson
- Ingi Björn Sigurðsson
- Kolgrima
- Þ Þorsteinsson
- Maddý
- Lena pena
- Guðborg Eyjólfsdóttir
- Bergþóra Guðmunds
- Egill
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Guðlaug Aðalrós
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Jóhanna Vala Jónsdóttir
- Anna Guðný
- Þórður Helgi Þórðarson
- Hólmgeir Karlsson
- Draumar
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Hdora
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Handtöskuserían
- Vertu með á nótunum
- Óskar Helgi Helgason
- Vefritid
- Gísli Hjálmar
- Óskar Arnórsson
- Johnny Bravo
- haraldurhar
- Ásgeir Páll Ágústsson
- Anna Gísladóttir
- Sigríður Hafsteinsdóttir
- Fiddi Fönk
- Haraldur Halldór
- Á móti sól
- Dísa Dóra
- Arnar Ingvarsson
- Eva Benjamínsdóttir
- Högni Hilmisson
- Hommalega Kvennagullið
- Helga Magnúsdóttir
- Ásdís Rán
- Charles Robert Onken
- Þorsteinn Briem
- Bergur Thorberg
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Hulla Dan
- JEG
- Ein-stök
- JEA
- Elísabet Sigurðardóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Vinir Tíbets
- Sigurbjörn Friðriksson
- Sporðdrekinn
- Marinó Már Marinósson
- Davíð Ólafsson
- Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir
- Áhöfnin á Hákon EA-148
- Óskar Þorkelsson
- Morgunblaðið
- Rannveig H
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Kristín Jóhannesdóttir
- María Guðmundsdóttir
- Guðmundur M Ásgeirsson
- egvania
- Aðalsteinn Jónsson SU-11
- Aprílrós
- Tína
- Þóra Björk Magnús
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Myndamen - Ljósmyndaskartgripir
- Bullukolla
- Aldís Gunnarsdóttir
- Arnar Ingvarsson
- Ástþór Magnússon Wium
- Bjarki Steingrímsson
- brahim
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynja Dögg Ívarsdóttir
- Brynja skordal
- Dúa
- Elín Ýr
- Elísabet Markúsdóttir
- Elísabet Sigmarsdóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðmundur Zebitz
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðrún Þorleifs
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hilmar Sæberg Ásgeirsson
- Himmalingur
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Ingvar Ari Arason
- Jónína Dúadóttir
- Kristín Guðbjörg Snæland
- Leikhópurinn Lotta
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Magnús Paul Korntop
- MYR
- Orgar
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Tinna Jónsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hef þetta stutt. Þú ert drepfyndin.
Rögnvaldur Hreiðarsson, 21.5.2007 kl. 22:23
Ég er einmitt að hugsa um að fara í ræktiana, það verður á heilsugæslustöðinni hér allskonar tæki og sundlaug og heitur pottur. Ekkert fansý svo sem en notalegt. Og svo á ég einn vinning af mörgum sem ég fékk á fegurðarsamkeppninni, dekurnudd hjá Stúdíó Dan. Heheheh held að ég geymi það aðeins þangað til ég hef betri tíma.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.5.2007 kl. 23:25
Vaá ný staða? Hjá nýju fyrirtæki OMG. Farðu út að labba í staðinn fyrir að hanga inni í daunillri svitalyktar líkamsræktarstöð.
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2007 kl. 23:27
Georg Eiður Arnarson, 21.5.2007 kl. 23:33
Ég lita bara á mér hárið......held ég sé búinn að prófa alla litina í litrófinu ;)
Eva Þorsteinsdóttir, 21.5.2007 kl. 23:39
Hei... þú ert alltaf best! ljóshærð...dökkhærð....hvernig sem er...
kv. Kolls
Kolbrún Jóna Pétursdóttir (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 09:49
Ræktin, spæktin, ég get ekkert á svoleiðis stöðum. Kynntist reyndar húsbandinu á Reykjalundi hann er algjör draumur, búin að vera saman í 14 ár, bráðum. Skila honum ALDREY
Ásdís Sigurðardóttir, 22.5.2007 kl. 14:46
Fékk Ipod í ammælisgjöf í dag, og skilaboðin voru "nú hefuru enga afsökun fyrir ræktarleysið" (ertu að segja að ég sé feit?) kannski að ég komi bara með þér... myndiru vilja láta sjá þig með beljuskömm í Laugum ? Yrði líklega ekki fengsæl en ...
bara Maja..., 22.5.2007 kl. 15:34
Elskan mín, skelltu þér í ræktina.Og til fjandans með öll vaktaplön. Eruð þið ekki með val-leiðina í vaktatöflugerð? Ekki fá þér nýjan kall, en taktu stöðunni. Ráðleggingar dagsins voru í boði gaaaaaaaaaa
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.5.2007 kl. 17:27
hræðileg lífsreynsla sem þú varðst fyrir í leikfiminni, ekki hissa að leikfimi heilli þig lítið! Annars datt færslan sem ég var búin að gera út .... greinilega of dónaleg en klippi klippi tískusveifla kannast við þína aðferð. Til lukku með nýja stöðu og njóttu lífsins til fullnustu!
www.zordis.com, 22.5.2007 kl. 17:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.