Hvar eru sokkarnir?

Eitt af því sem er mér alveg ómótstæðilega á móti skapi er geðvonska á morgnanna. 

Ég (já já já) átti mann (og aftur já já já) sem var indæll í flest alla staði, nema ef vera skildi fyrir það eitt að hann var alveg svo gjörsamlega illa áttaður á morgnanna.   Vægt er tekið til orða þegar ég segi að hann hafi verið geðvondur. Húshaldið var (ef sófinn hentist ekki út um stofugluggann) einsog Þjórsárdalur á þriðja degi. Þvílíkt var ófermdarástandið á heimilinu, oft á tíðum.

Í minningunni telst mér til, þó að  ég þori ekki að fullyrða það, að geðvonsku hans mætti rekja til endalausrar leitar af sokkum!

Bannsettum sokkum.

-Hvar eru helv. sokkarnir?

Hann var ekki eins heppinn og ég að búa við jafn fagrar tær, að hann gæti farið út sokkalaus. Maðurinn var og sjálfsagt er með afspyrnu ljótar tær! Sérstaklega stórutá. Ef hann léti sjá sig berfættan á víðavangi er ég ansi hrædd um að hann yrði sviptur sjálfræði á punktinum!

Ég er auðvitað að skilja örvæntingu hans núna, þessum árum seinna. Og í kjölfarið fyrirgef ég honum geðvonskuna, með hjartahlýjum kveðjum og von í brjósi að hann eigi nóg af svörtum sokkum!

En hvað er það sem skapar morgun-úrillu hjá fólki? Er svona skelfilegt að vakna á hverjum morgni til lífsins? Er gleðielementið eitthvað seinna að vakna?

Segi nú ekki að þetta sé hápunkturinn á deginum hjá mér sjálfri. En ég er ekki fúl hvað þá andfúl! Hálfmeðvitunarlaus kannski yfir fyrsta kaffibollanum og svona vönkuð með hanakamb einsog páfugl. 

 Að þessum orðum sögðum hugsa ég með hálfgerðum trillingi til morgundagsins, jebb, þarf að vakna eldsnemma...0700am....

og get ekki beðið til næsta kvölds, þegar dagur verður á enda komin og ég rétt nývöknuð til lífsins!

Megiði öll njóta helgarinnar og vakna syngjandi glöð.

Setjið öryggið á broddinn -sofið í sokkumHalo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja, ég er hrædd um að sumir verða hálffúlir núna...

Híhíhíhí!

kv.

Audda Hans 

Audda Hans (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 22:58

2 identicon

Það var samt oft helvíti gaman í Þjórsárdal og þá skipti engu máli hvar sokkarnir voru...hvað hét lagið aftur sem við sungum...frekar þjóðlegt en allavega var það Bubbalagið Fatlafól og einhvað annað um barsmíðar og lögreglukórinn sem ég man ekki hvað heitir heldur en þú veist. En hvað segirðu – tær og sokkar? Vorkenni honum líka.

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 23:15

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

... þessi gæji var mjög dannaður samt, listakokkur og  stómasjúklingurErtu orðin svona assk. gamall Axel, bara mannst ekki neitt! uhmm, ekki ég heldur ef út í það er farið. Man eftir einhverju lagi þarna; heija heija heija heija..osfrv. ég sjálfhverfi monthaninn söng: heiða heiða heiða heiða.....og geri enn

Heiða Þórðar, 13.4.2007 kl. 23:24

4 identicon

já einmitt heiðaheiðaheiðaheiða heið...en ég man ekki meir...dannaður stómasjúklingur hljómar bara vel...hehe

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 23:34

5 Smámynd: Ásta Salný Sigurðardóttir

ahahahahaha þessi var fyndinn öryggið á oddinn..Heyrðu sokkamálið sko er líka rosalegt hjá mér á daginn því að einhver óstjórnleg löngun minna táa að sjá heiminn og ég í mínu fínu inniskóm..Ekki beint pent skal ég segja þér og þá byrja klósettferðirnar sem fara í það að snúa sokkunum á hvolf til þess að það sjáist ekki í mínar berar. Annars ..fótur og fit og allir myndu halda að vesalings ungfrú Ásta ætti ekki bót fyrir boruna á sér. ÞESS VEGNA HEIÐA KEYPTI ÉG 3 SOKKA Á VERÐI 2 Í BÚÐINNI Í DAG.... Tek svo nokkra með mér í vinnuna á mánudaginn og verð með lager í skápnum,sniðug já alltaf sniðug:) sleep well

Ásta Salný Sigurðardóttir, 13.4.2007 kl. 23:34

6 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ásta, þú gleymdir að taka fram hvað þú keyptir mörg pör á þinn elskulega eiginmann! Man ekki betur en það hafi verið 3 x 7 stk....ps. ertu búin að ná í sófann út í garð?

Axel, já og góður kokkur! Jæja shit happens, hann er farinn og tröllum gefin....sem er auðvitað hið allra allra næst besta mál! Áttu annars einhvern góðan vinar-kost fyrir mig? Hætt að leita af brærum, því ég verð svo assk. rómó á vorin, svona einsog lömbin

Heiða Þórðar, 13.4.2007 kl. 23:47

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

bræðrum

Heiða Þórðar, 13.4.2007 kl. 23:48

8 identicon

Já - það vill svo vel til að ég rek og stýri afskaplega góðri þjónustu fyrir fallegar konur með dásamlegar tær og bak – akkúrat eins og þig og eru að leita að fallegum kalli sem hefur alvöru maga þ.e. ekki utan á sér með fallegar tær, prumpar í einrúmi og blandar ekki saman morgunmat og klósettferðum. Þú bara bókar hjá mér fund eða sendir mér línu og þá veit maður aldrei hvaða snilling maður veiðir úr fælnum. Freistaðu gæfunnar.

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 23:55

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

ahahaha! þú ert að tala um Hross! Launa þér þennan félagi!

Heiða Þórðar, 14.4.2007 kl. 00:00

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heiða þú ert með tær á HEILANUM.  Þú verður að leita þér hjálpar.  Takk fyrir frábæran pistil. Síjú

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.4.2007 kl. 00:05

11 identicon

hehehe...ég er með einn sem ég gef þessa einkunn.

Höfuð 8.0

Háls og herðar 8.5

Bak og lend 7.5

Fótagerð 8.0

Prúðleiki 8.0

Vilji og geðslag 7.5

Fegurð í reið 9.0 

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 00:06

12 Smámynd: Heiða  Þórðar

Tek hann (á orðinu), ekki spurning Axel!

Jenný: nei nei, nei! Ég er að tala um morgunógleði hér...tærnar voru algjört aukaatriði! Þið eruð bara með eitthvert toe-fetish syndrome...á hæsta stigi. Minntist ég þremur orðum á tær?

Heiða Þórðar, 14.4.2007 kl. 00:11

13 identicon

Já þetta er hestur auðvitað...ekki einu sinni James Bond kæmist þar sem Blesi frá Sumarliðastöðum er með hælana í kynbótadómi.

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 00:17

14 Smámynd: Ólafur Als

Tær snilld!

Ólafur Als, 14.4.2007 kl. 00:21

15 Smámynd: Heiða  Þórðar

Púff! Þetta lítur bara alltaf betur og betur út Axel. Ég held að örlögin hafi ætlað okkur Blésa að enda saman. Langaafi minn hét einmitt Sumarliði skoGóða nótt gæskurinn, komin tími fyrir þig að brokka, tölta inn í rúm. Mundu eftir sokkunum.....ertu A-maður eða B?

Heiða Þórðar, 14.4.2007 kl. 00:21

16 identicon

Allir fallegu mennirnir sem ég þekki eru annað hvort orðnir feitir eða komnir í víkingasveitina þannig að ekki er um auðugann garð að gresja þar Heiða mín.

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 00:23

17 Smámynd: Heiða  Þórðar

... og að sjalfsögðu skýrum við frumburðinn í höfuðið á þér, treysti því að þú haldir á honum undir skýrn...

Heiða Þórðar, 14.4.2007 kl. 00:23

18 identicon

I'm gay if you are!

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 00:24

19 identicon

Bíddu ég er ekki alveg kominn svo langt AeðaB – ég er frekar milljón menn. Treysti því að ég þurfi ekki að útskýra máltækið að ofan.

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 00:31

20 Smámynd: Heiða  Þórðar

skildi ekki máltækið..., og nei ég er hvorki gay eða guy...

Heiða Þórðar, 14.4.2007 kl. 00:34

21 identicon

Datt það í hug. En máltækið er nýtt og fundið upp af góðum andans manni og þýðir að ef þú ert til í það þá er ég til í það.

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 00:42

22 identicon

Guðni hefði sagt núna að ég hefði verið kominn út fyrir veginn...hehe

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 00:43

23 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heiða Þórðar, 14.4.2007 kl. 00:52

24 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Okokok ég sá bara tærnar í pistlinum sko!  Er táperri eða fótaperri eins og hann þarna Tommy Lee eðahvaðhannnúheitir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.4.2007 kl. 00:55

25 identicon

Góða nótt gott fólk

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 00:58

26 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Já Heiða það eru nokkrir rugludallar þarna úti, og við virðums eiga það semeigilegt að hafa rekist á nokkra. Ég var sammt heppinn á endanum. Pabbi og mamma fundu handa mér mann frá holandi og neyddu okkur í hjónaband !!! Húrra fyrir þvangshjónaböndum  hehehe ég er allaveg með besta mann í heimi fyrir mig.

P.s. Mér fynst sú litla á myndini með þér minna mig svo á Rósu Maríu litla, passar það ??

Knús og kossar

Sigrún Friðriksdóttir, 14.4.2007 kl. 04:07

27 Smámynd: Heiða  Þórðar

Rósu Maríu? Nei, held ekki, þetta er dóttir min, myndin er tekin fyrir stuttu síðan....og til hamingju með karlinn! (Fylgdu sokkar með honum)

Heiða Þórðar, 14.4.2007 kl. 07:30

28 Smámynd: www.zordis.com

Eins gott þú tókst hann ekki á borðinu, hross í þokkabót!  Þótt karlinn hafi malla, kunni jafnvel að tralla þá er það innra lagið og element sem hafa mest að segja. Karlmenn eiga náttúrulega að ganga um í sandölum og sætta sig við ljótleika sem er þó afstæður!  Gangi þér vel á björtum degi!

www.zordis.com, 14.4.2007 kl. 08:42

29 Smámynd: Jónína Sólborg Þórisdóttir

Ég er aldrei fúl á morgnana bara svo lengi sem það er ÞÖGN fyrsta hálftímann eftir að ég vakna

Jónína Sólborg Þórisdóttir, 14.4.2007 kl. 10:38

30 identicon

www.zordis.com,: Það er eins og þú segir hross eru þokkabót.

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 12:44

31 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er ein af þessum konum sem ekki fer sokkalaus út, maðurinn minn segir að ég geti ekki lagt það á annað fólk. Annars var mjög gaman að lesa allt hér á undan, fer að kíkja reglulega á þig.

Ásdís Sigurðardóttir, 14.4.2007 kl. 13:59

32 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég elska svona heimspekilegar vangaveltur um hvað valdi hinu og þessu í lífinu og skýringin er auðvitað óborganleg.

Steingerður Steinarsdóttir, 14.4.2007 kl. 19:45

33 Smámynd: Jens Guð

  Morgunfúlt fólk er yfirleitt með hraða brennslu.  Þegar það vaknar á fastandi maga þá er það pirrað vegna svengdar.  En það áttar sig ekki á samhenginu.  Jafnvel þó að skapvonskan fjari daglega út á meðan morgunverður er snæddur.  En ráðið er sem sagt að stinga upp í það kleinubita um leið og það vaknar. 

Jens Guð, 14.4.2007 kl. 20:23

34 Smámynd: Heiða  Þórðar

Steingerður, þú skilur mig!

Jens, ja, hérna þú ert sjálfsagt bara komin með þetta! Takk fyrir það...

Heiða Þórðar, 14.4.2007 kl. 20:37

35 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Já ég er að segja þér litla þín minnir mig á Rósu hans bróður þíns allavega svona á mynd ,

Já minn kom með öllu nema börnum alveg að mínum óskum

Sigrún Friðriksdóttir, 15.4.2007 kl. 01:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband