Fuck hvað lífið er skemmtilegt!

Ó mamma gem'mér rós í hárið á mér...tveir litir strákar eru skotnir í mér...annar er blindur en hinn....

-haltu kjafti krakki! taktu blómapottinn þarna úr glugganum  og settu hann á hausinn á þér! Grjóthaltu svo kjafti! Ert vita laglaus kvikindið þitt....

Ekki slæmt, ekki slæmt...hefði getað verið verra...hún hefði getað sagt mér að troða honum upp í rassgatið á mér...

Sé mig miklu frekar fyrir mér með blómapott á hausnum en í rassgatinu sko...þó maður eigi alltaf að leggja höfuðáherslu á það sem mann prýðir...Winkmeð þessu er ég ekki að segja að rassinn sé neitt flottari en hausinn....veit í  raun ekkert hvað ég er að segja...

Nema það að valið stendur á milli þess að fara á date...eða fara á date...

Þannig að ég hugsi að ég skelli mér á eitt stykki svoleiðis -með súkkulaði á morgun. Maginn er í uppreisn af einskærum spenningi...græn drulla lekur úr andlitinu á mér, nánar Avakado..., vaxaði bringuhárin í kvöld og lét skera af mér getnaðarliminn...pöntuð hefur verið hárgreiðsla og hárkolla...rakaði af mér augnahárin...22 neglur lakkaðar...til í tuskið semsé...

Fuck! Hvað lífið er skemmtilegt. Hefur samt alveg verið það þó ég hafi ekki farið á eitt slíkt sem vit er í síðan sl. sumar. Var að hugsa þetta samt...púff.

...hef verið að ýminda mér að flensan sé um það bil að herja á mig aftur...hafi höndlað sýktan peningaseðil og handþvotti ekki sinnt af eintómum subbuskap. Sama hvað ég rek puttann niður í kok...ekkert kemur...setti hitamælirinn í sjóðandi tevatnið...normal hiti...fór í sturtu án þess að þurrka mér...engin vottur af ýminduðum svita. Mér sýnist á öllu að þetta sé að gerast nema kanski að ég bindi fyrir augun í fyrramálið og fari á rúntinn... ekki galin hugmynd...verðgildi bílsins hefur hvort eðer lækkað um 500 kúlur.

En nei....tími því fyrir engan mun...þetta er einfaldlega of spennandi -of krúttlegt -of yndislegt! Svo er bara svo gaman að hafi alla útlimi óbrotna...þó taugarnar séu þandar og útblásnar og það útúm allt.  Ég get þó alltaf hlaupið í burtu.

hvað á ég að segja? hvað skildi hann segja? á ég að kyssa hann hæ? á ég að taka utan um hann?í hverju á ég að vera? ekki of fín en samt nógu fín ...púff ég held ég fylli kroppinn minn með róandi lyfjum.  

Nákvæmlega núna þegar ég ýti á Vista og birta...byrjar síminn að hringja hjá mér. Gleymdi farsímanum heima...er farin út. Fáið hvort sem er ekki orð uppúr mér.

Góða helgi elskurnar. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

úúúúúú spennandi..........

.....nákvæmlega þetta!! Panik yfir fötum, samræðum, fiðrildi í maga - gefur lífinu gildi.

Segðu honum bara ALDREI að hann sé laglaus - það er ljótt!!

Hrönn Sigurðardóttir, 18.1.2008 kl. 22:54

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er búinn að lesa færsluna en hef ekkert að segja.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 18.1.2008 kl. 23:02

3 Smámynd: Hugarfluga

Jedúd, kona. Ég verð alveg þreytt eftir að hafa lesið færslurnar þínar!! Góða skemmtun á deitinu .. eða á ekki-deitinu. 

Hugarfluga, 18.1.2008 kl. 23:02

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

hehe...farðu að sofa í hausinn á þér stelpa, klukkan langt gengin í tólf....og vei vei komið andlit á Gunnar Helga. Ánægð með þig.

Heiða Þórðar, 18.1.2008 kl. 23:09

5 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Einn góðan dag... ég er viss um það... kemur að því að það kviknar ljós...
Einn góðan dag verður brotið blað... það þarf bara að hitt á rétta stund... osfrv.

Þetta lag kom eins og kallað til mín rétt í þessu. Til þín - gangi þér vel á morgun. Þú ert heppin. Hann er fínn þessi... er það ekki ? (Er hann nokkuð karlhóra annars ?) OJ oj skamm Linda - segir þú núna - en þú veist hvað ég meina...

Lagið endar svona; Blómin kvikna í görðunum... 

Linda Lea Bogadóttir, 18.1.2008 kl. 23:48

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Láttu okkur fylgjast með, fletta honum upp í Íslendingabók og gá hverra manna hann er, getur verið fróðlegt og gott. Kysstu strax þá er það búið og svo sjáum við til með framhaldið.  Farðu varlega stelpa.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.1.2008 kl. 00:05

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

 

Heiða Þórðar, 19.1.2008 kl. 00:19

8 Smámynd: Heiða  Þórðar

Svo framalega sem hann er ekki með margar í takinu og andfúll....má hann vera hóra fyrir mér...bara ekki með mér.

Heiða Þórðar, 19.1.2008 kl. 00:23

9 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Þú ert "gull" - Segi eins og Ásdís... kysstu hann strax.

Linda Lea Bogadóttir, 19.1.2008 kl. 00:35

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Manni finnst oft gott að vera það einfaldur í eðli að þurfa ekki að vera kona.

Steingrímur Helgason, 19.1.2008 kl. 00:43

11 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Ef að hægt væri að búa til lyf með dassi af þínu ímyndunarafli..dassi af þinn gleði og jákvæðni og því dælt í stjórnmálamenn ....þá væri nú gaman að kíkja á Alþingi ......þú ert snillingur........auk þess myndu þeir sætta sig við að aka á ódýrari bílum.....og lang flottust og fínust.

Einar Bragi Bragason., 19.1.2008 kl. 00:44

12 Smámynd: Heiða  Þórðar

vú - vá - ví....full af þakklæti flýg ég á vit drauma minna...alsæl.Perlur.

Heiða Þórðar, 19.1.2008 kl. 01:03

13 Smámynd: Lena pena

 Nú er ég komin með þetta lag á heilann.

Ó mamma gem'mér rós í hárið á mér...tveir litir strákar eru skotnir í mér...annar er blindur en hinn...

Lena pena, 19.1.2008 kl. 10:33

14 Smámynd: www.zordis.com

Gangi þér vel í spenningskasti og svefnleysi!

..... fyrst þú ert á flugi, er þá deitið bara búið?

www.zordis.com, 19.1.2008 kl. 11:35

15 Smámynd: Solla Guðjóns

.............

Solla Guðjóns, 20.1.2008 kl. 03:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband