Verði ykkur að vind og skít!

Æ Æ Æ! jæja þá.

Í vikunni las ég færslu hjá Saxa stórvini mínum. Ég setti þar inn í athugasemdadálk...að ég ætlaði ekki að kíkja inn í ákveðin link...þar sem eitthvað miður skemmtilegt væri að lesa. Auðvitað stóðst ég ekki mátið og kíkti á þessa fjandans síðu sem skapari.com er. Þar var kvenleg forvitni mín sem réði ríkjum. Mér leið hreint djöfulega á eftir.

Svo frétti ég af látunum inni hjá annarri stórskemmtilegri bloggvinkonu minni og nöfnu...skessa.blog.is.

Auðvitað kíkti ég ....einsog alltaf. Oft erum við sammála -stundum ekki.

Og varð úrvinda svo ekki sé meira sagt! Ég Heiða bergur, pollianna dauðans varð enn meira miður mín... af hamaganginum og djöflaganginum í ykkur, svo ekki sé minnst á að ég fann til pínu afbrýðisemi yfir því hversu mikinn tíma og kraft og orku fólk býr yfir til að úthúða einum vesalings manni.  Það hlýtur að þurfa ansi mikið til að nenna að standa í þessum djöflagangi! Ég hef rétt nægilegt magn til að standa undir sjálfri mér og mínu. Fuck! Mér hefur verið þetta hugleikið. Þetta hefur vaxið einsog kýli á mér þessar tvær fucking færslur! Og andskotans comment!

Hverju haldið þið að þið breytið um framvindu og framgöngu mála hjá þessum manni og hans félögum?...með því að úthúða honum? Kalla hann viðbjóð? Akkúrat ekki neinu! Djöfull er ég fúl yfir fólki. Hvernig væri að taka þetta hatur allt sem svífur yfir allt og öllu og nota það í eitthvað jákvæðara?

Svo kemur ein og ein skítapestinn og kastar fram myndum og kemur með eitthvað ofsalega gáfulega og viðbjóðslega staðhæfingu...með von um að hann fá orðu frá sjálfum djöflinum! Svo dansið þið saman djöfladansinn með eldinn í augunum. Og með hatrið allt um kring...

Þið guð almáttugarnir, eruð að tímasetja hvenær fólk fær æruna til baka. Hverjir eiga að vera hvar...hversu lengi þeir eiga að dúsa í dýflissunni! Hvað eruð þið að húkast þarna hvert í sínu skotinu...er alveg hissa á þið séuð ekki við stjórnvöl þessa lands! Þið eruð dómararnir og valdið sýnist mér á öllu. Þið setjið ykkur yfir allt og alla! Meira að segja guð sjálfan.

Mér ber enga hagsmuna að gæta í þessu máli. Akkúrat engu...mér finnst hinsvegar alltaf jafn viðbjóðslegt þegar margir ráðast að einum manni. Úthúða dæma og loks drepa.  Verði ykkur að vind og skít!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Torfi

já friðarsúla Yoko-ar hefur heldur betur hleypt "love is in the air" yfir alla.. eftir að sú ágæta súla kom upp...

Gísli Torfi, 14.11.2007 kl. 23:18

2 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Æ hvað ég er sammála þér þetta er komið útí öfgar þessi umræða og ég er á góðri leið að verða miður mín yfir mannfólkinu.Hafðu það sem allra best Heiða sæta

Katrín Ósk Adamsdóttir, 14.11.2007 kl. 23:18

3 Smámynd: Freyr Hólm Ketilsson

Já Heiða mín Fólk er oft fífl... sumir segja alltaf ég segi oft.

Freyr Hólm Ketilsson, 14.11.2007 kl. 23:18

4 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Nú hef ég misst af einhverju...þessi síða já er viðbjóðsleg en var verið að nafngreina einhvern einhversstaðar og birta myndir..?????????? ef svo er þá veit ég ekkert um það....

ég er bara hræddur við þig í þessum ham.......

Einar Bragi Bragason., 14.11.2007 kl. 23:28

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ekki vera hræddur við mig ... ég er að tala um skessa.blog.is...og Baldur...er alveg góð sko....þú gleymdir...

Heiða Þórðar, 14.11.2007 kl. 23:38

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er svo sammála þér með þessa geðveiki sem er í gangi á sumum bloggum, Trúar og samkynhneigðar blogg eins og ég kalla þau, þvílík skoðanaskipti og reiði, þetta fólk verður aldrei sammála. Ég nenni ekki að taka þátt í þessu, miklu betra að lesa grínið þitt og bullið mitt   

Party! 

Ásdís Sigurðardóttir, 15.11.2007 kl. 00:01

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Veistu Heiða, ég er bara ekkert ofboðslega ósammála þér núna, ezzgan ....

S.

Steingrímur Helgason, 15.11.2007 kl. 00:26

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er bara töluvert ósammála þér hér Heiða mín.  Þ.e. um færsluna hennar nöfnu þinnar.  Ég get ekki talað fyrir hana en mér finnst ekkert að því að ræða það þegar yfirvofandi er opnun meðferðarstofnunar (eða whatever) þar sem maður sem er nýlega er orðinn edrú ætlar að fara að vinna með veikt fólk í nafni trúar.  Ég ímynda mér að minnsta kosti að það sé það sem þú ert að vísa til.

Byrgið er flestum vonandi, enn í fersku minni.  Eitthvað hlýtur fólk að hafa lært af því.

Ég kannast heldur ekki við neina hatursdansa, né heift út í einn eða neinn, nema ef vera skyldi trúarnöttara sem ráðast að fólki fyrir að vera ekki steypt í sama mót og þeir og ætla sér í hroka sínum og sjáfbyrgingshætti að snúa öðrum á sömu sveif.

Þessu vildi ég nú koma á framfæri áður en ég fer að lúlla.

Góða nótt

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.11.2007 kl. 00:34

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ég er ekki að tala um skoðun fólks á málefnum. Ég er ekki tala um hvað er rétt og rangt í þessu máli. Ég er að tala um fucking múgæsing útaf einum veslings manni. 

Ég get með sanni sagt að ég hef ekki  nokkra trú á að þessi umræða verði til þess að stoppa "yfirvofandi opnun meðferðarstofnunar"...ekki nokkra. Ég sé ekkert samansem merki á milli Byrgisins og meðferðarheimili sem er ekki til.  Ég er að tala um að kalla fólk viðbjóði og ógeð.

Og víst er fullt af hatursfullum völsum í gangi. Hér sem og annarsstaðar.

 Góða nótt darling.

Heiða Þórðar, 15.11.2007 kl. 00:49

10 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Nei ég gleymi aldrei þú ert lang fallegust tí hí

Einar Bragi Bragason., 15.11.2007 kl. 00:56

11 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Æi veist það Heiða, það eru bara rétt rúmir sex mánuðir síðan dóttir mín var nær dauða en lífi af dópneyslu. Það er hárfín lína á milli edrúmennsku og falls og ég get bara ekki hugsað mér að maður sem var þekktur dópsali, vændissali og þekktur sem mesti hrotti borgarinnar þegar kom að handrukkunum fyrir sex mánuðum síðan skuli vera orðin sálgæslumaður og andlegur leiðtogi fárveiks fólks.... og næst á dagskrá er að opna áfangaheimili sem hann á að vera í forsvari fyrir

Ég tel mig ekki vera að leika neinn Guð... En mig hryllir við því að dóttir mín eða dóttir eða sonur einhvers verði rússnesk rúlletta í höndunum á fólki sem þessu undir formerkjum björgunar 

Heiða B. Heiðars, 15.11.2007 kl. 00:56

12 Smámynd: Heiða  Þórðar

Mín kæra Heiða...ég veit um dóttir þína. Og finnst hryllilegt til þess að vita að hún hafi lent í þessari ógæfu. Um alla sem lenda í ógæfu. Svo hef ég fengið tækifæri á að kynnast þér (betur)í gegnum bloggið þitt. Finnst ég ríkari fyrir vikið mér finnst þú æðislegur karakter, skellegg og gölli dauðans. Ég virði skoðanir þínar..., mér finnst þú ekki vera að leika neinn guð. 

En einsog einn sagði við mig áðan; Afhverju í andskotanum ertu að þessu? Þarftu alltaf að vera svona Heiða? -sbr. þegar ég stóð með Árna J. þegar fjöldinn grýtti eggjum í garðinn hans...

Þannig er ég bara. Mér finnst einfaldlega rangt þegar verið er að ráðast að einstaklingum.

Mér finnst einfaldlega skítafíla á síðunni þinni núna. Með og á móti málinu sjálfu...alls óskilt umræðunni.

...ekki af þér. Hef ég engra hagsmuna að gæta með að smjaðra fyrir þér...ég er að tala í og af einlægni.

Þú ert þvílíkur trukkur að þú ættir að eyða orkunni í aðgerðir frekar en taka þátt í þessu neikvæða fucking snakki...vona að við skiljum hvor aðra.

Heiða Þórðar, 15.11.2007 kl. 01:21

13 identicon

Ég sem er búinn að vera í svo góðum gír í allan dag, og ætla mér að vera það  áfram.Mig langar  þó að segja eitt við alla,  KONUR og KALLA.Það getur verið svo  SÁRT þegar maður situr UPPI MEÐ ORÐIN sem ekki var lagt AF STAÐ með í upphafi.  EN eru nú ORÐIN STAÐREYND Í SÁLINNI.   MUNUM það öll   að.             ORÐ ERU ÁBYRG.             

 GÓÐA NÓTT,með von um BJARTAN dag og FALLEG ORÐ.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 02:12

14 Smámynd: Hugarfluga

Ég verð að vera sammála með þessa endalausu neikvæðu orku sem mergsýgur bloggheima. Svo mikið hatur, heift, særindi og endalaus neikvæðni, að það hálfa væri nóg. Skil samt oft ástæðuna ... vildi bara óska að hægt væri að virkja þessa hamslausu reiðiorku í eitthvað jákvætt og gott.

Hugarfluga, 15.11.2007 kl. 16:01

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Engin færsla um þetta hjá mér.  Enda nenni ég ekki að eyða tíma á svona fólk.  Það liggur best í þögninni að mínu mati.  Enda er það svo að oftar en ekki gengur fólk of langt í að hneykslast og fer niður á sama plan sjálft.  Þannig að ég ætla að skila mínum kúk og skít, svona bara legg hann varlega frá mér við dyrnar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.11.2007 kl. 17:43

16 Smámynd: Ásgerður

Er bara alveg samála þér Heiða,,,algjörlega búin að fá nóg af þessum árásum fram og til baka. Og ekki orð um það meir.

Ásgerður , 16.11.2007 kl. 02:00

17 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég fór á þessa "Skaparasíðu"fljólega ákvað ég að þetta væri ekki fyrir mig...

Skessu heimsæki ég reglulega.......skil hvötina á bak við færsluna hennar...las ekki mikið af kommentunum sem voru mjög mörg.......

æji ég veit ekki en mér finnst hann Þórarinn vera með nokkuð góðan flöt á þessu öllu saman.

Heiða Bergur og Heiða skessa eru báðar á topp 5 listanum hjá mér......burt séð frá uppröðun.

Solla Guðjóns, 16.11.2007 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband