Hann er LANGFALLEGASTUR!

Fyrir sléttum átján árum sat ég andspænis mömmu við eldhúsborðið. Hún segir;

-sérðu kaffikönnuna/hitabrúsann hérna...

-já... varstu að kaupa hann eða.....?

-nei, nei, en hvernig heldurðu að sé að koma henni út um litla gatið?

-Mamma.....dísess...þú ert biluð!

-Biluð?  Nú þetta er ég nú búin að ganga í gegnum nokkrum sinnum góða mín. Og sko sjáðu handfangið...sko þau eru tvö í raun!

Ég horfði með hryllingi á rauðköflóttan hitabrúsann, vitandi hvað ég stæði frammi fyrir næsta morgun. Hlustaði á sögur um ofur-stóra-hausa...flækingsfætur, rifnar pjöllur og rassa á meðan ég hugsaði um endalok mín.

Lítið vissi ég þá en fullyrði hér með að Hitabrúsanum mínum fylgdi mikill gleði, ást og kærleikur .

Ég vil bara að hann viti það sem ég veit og allir aðrir vita; Hann er langbesti strákurinn minn í öllum heiminum! Og ég elska hann út af lífinu.

heiða og ari

Til hamingu með átján ára afmælið elsku ástarpungurinn minn...Heart

AriSæti

Þú ert æði! Ég er svo stolt af þér!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Til hamingju með Strákinn...myndar gaur(ekki skrítið) það er sterkur svipur þarna......

Gefðu honum eitthvað gott í afmælisgjöf.........þú ert eflaust búin að því. 

Einar Bragi Bragason., 8.11.2007 kl. 00:28

2 Smámynd: Heiða  Þórðar

Jebb búin.  "Eitthvað gott" í huga 18 ára drengs eru innpakkaðir peningar með rauðri slaufu. Og takk takk takk...hugsa sér! Þetta gat hún trippið Heiða! Garrrgggggggg, hvað ég er ánægð með sjálfa mig núna maður!

Heiða Þórðar, 8.11.2007 kl. 00:33

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mikið er þetta fallegur piltur, innilega til hamingju með hann. kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 8.11.2007 kl. 00:45

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

Takk Ásdís mín og góða nótt innpakkaða í fallegum draumum.

Heiða Þórðar, 8.11.2007 kl. 00:49

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með þennan fallega strák

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.11.2007 kl. 01:12

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Til hamingju með drenginn

Ég verð nú að ég fékk smá ónotartilfinningu í "hana" við lesturinn, er þó búin að gera þetta þrisvar sinnum og fannst það ekki málið . Það er bara eitthvað við það hvernig þið mæðgurnar lýsið þessu

Sporðdrekinn, 8.11.2007 kl. 01:21

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með stráksa

Hrönn Sigurðardóttir, 8.11.2007 kl. 07:25

8 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Innilega til hamingju með 18 ára afmæli sæta drengsins þíns

Katrín Ósk Adamsdóttir, 8.11.2007 kl. 07:46

9 Smámynd: www.zordis.com

Húúúún mamma Þín ...... ekki beint hughreystandi þessi elska á jafn viðkvæminni stundu!

Virkilega myndarlegur piltur sem þú deilir með guði.  Innilegar hamingjuóskir til ykkar beggja og til Sólarinnar líka!

www.zordis.com, 8.11.2007 kl. 08:04

10 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Til hamingju með strákinn.

Þórður Ingi Bjarnason, 8.11.2007 kl. 08:21

11 Smámynd: Heiða  Þórðar

Mamma mín er auðvitað engri mömmu lík..., hann ekki heldur.

Takk fyrir

Heiða Þórðar, 8.11.2007 kl. 08:45

12 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Til hamingju með stákinn þinn

Sunna Dóra Möller, 8.11.2007 kl. 08:49

13 Smámynd: Huld S. Ringsted

Til hamingju með strákinn þinn!

Huld S. Ringsted, 8.11.2007 kl. 08:54

14 Smámynd: Margrét M

Innilega til hamingju með strákinn þinn

Margrét M, 8.11.2007 kl. 09:18

15 Smámynd: Ásgerður

Til hamingju með prinsinn,,,hann er æði og verður alltaf uppáhalds litli-stóri (orðinn miklu stærri en ég) frændi minn.

Ásgerður , 8.11.2007 kl. 09:37

16 identicon

Hann stendur fyrir sínu. Mínar bestu óskir. Honum og þér til handa.Veistu að mesta gleði er sú, sem maður eignast, OG ER SVO GÆFUSAMUR(SÖM) AÐ VIÐHALDA.  Það getur verið þrautinni þyngri.   (innskot, þetta orð VIÐHALD er ansi merkingabreytilegt orð og fara ber vel með það!!, bæði í orði og á borði.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 09:57

17 identicon

Það gat enginn nema ég gleymt aðalatriðinu HEIÐA mín.Svo sannarlega Mínar bestu hamingju óskir með ykkur bæði þennan afmælis dag ykkar beggja.

HAAAAAAAAAAAApppppppppppppppppy  BIRTHDAY   TO  YOU.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 10:40

18 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með fallega strákinn þinn mín kæra.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.11.2007 kl. 11:07

19 Smámynd: Gísli Torfi

Til lukku með strákinn þinn Heiða mín  hann er flottur strákurinn eins og hann á kyn til  .. litli bróðir minn á líka afmæli í dag 30 ára í dag :)

Gísli Torfi, 8.11.2007 kl. 11:41

20 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Til hamingju með hitabrúsann þinn !!

Heiða B. Heiðars, 8.11.2007 kl. 11:50

21 Smámynd: Freyr Hólm Ketilsson

Til hamingju með drenginn... ef þú ert ekki búin að versla afmælisgjöf er hér hugmynd:
http://www.dv.is/frettir/lesa/2282

Freyr Hólm Ketilsson, 8.11.2007 kl. 14:56

22 Smámynd: Solla Guðjóns

Ekkert smá flottur gaur sem þú átt.Til hamingju með hann.....átt þú afmæli líka?

Solla Guðjóns, 9.11.2007 kl. 16:19

23 Smámynd: Hugarfluga

Ji, til hamingju með afleggjarann! Og svo er hann í svona hitabrúamunstraðri peysu á myndinni líka! Mjööög táknrænt!! 

Hugarfluga, 10.11.2007 kl. 00:39

24 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Til hamingju með löglega drenginn  hann er flottur

Jóna Á. Gísladóttir, 12.11.2007 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband