Guð brosti til mín...
30.10.2007 | 23:51
Andinn lætur á sér standa. Blogg-andinn...ótrúlegt en satt...eini andinn sem hér ríkir er geðvonskulegur vindurinn sem er við það að brjóta rúðurnar allar á heimilinu mínu.
Ég hugsa til bílsins míns sem stendur þarna úti rétt við hlöðuna, aleinn og yfirgefinn. Dökkblár og svartur af kulda og riði. Afturendinn á honum lengist og lengist. Hann er gegnvotur held ég.... og þar sem ég sit hér núna í hlýjunni, hugsa ég honum þegandi þörfina. Ég óska þess nefnilega að vindhviðurnar allar þrjár...brjóti rúðurnar, taktfast og skipulega. Draumurinn er nefnilega að þurfa ekki að skafa í fyrramálið.
Svo hef ég svona duldar fantasíur um nokkurskonar blæjubíl og dreymir um að fá morguninn (á morgun) beint í fangið.
Bílinn minn er kol-rangeygður! Og ekki nóg með það. Einn frostmorguninn um daginn var hann vel hrímaður blessaður. Að utan og innan. Og milli þilja.
Ég stóð þarna á hælunum og hristist einsog jarðaberin um morguninn í "mixernum" -og vinsælasta og eina hugsunin áður en hafist var handa við frekari aðgerðir, til ökuhæfs ástands var;
Fuck Heiða Bergþóra!
Svo skoppaði ég þarna einsog freðin froskur...með naglfast hárið og leit útundan mér undir bílinn til að athuga hvort Guð hefði bænheyrt mig kvöldið áður. Af minni alkunnu snilld tók ég of harkalega í aðra rúðuþurrkuna sem stóð eitthvað á sér, með þeim afleiðingum að hún er nú óvirk með öllu.
Neibb...slitin sumardekkinn sátu ennþá þarna glottandi, í stað nelgdra dekkja sem ég hafði óskað mér ásamt ásetningu og öðru smotterýi í kvöldbæninni.
Og upphófust samræður við Guð.
-Sko Guð, ég bið þig um einn skitinn umgang af vetrardekkjum! Þú þurftir ekkert endilega að hafa þau negld! Þau máttu vera notuð svo framarlega að þau væru nýtileg! Hvað er málið? Hefur þú tíma til að fylgja mér allra minna ferða góði minn? Er ekki nóg að gera hjá þér? Engar bænir?
Jæja félagi...þú baðst um þetta. Nú siturðu uppi með mig. Hoppaðu uppí. Bíllinn er farin að hitna.
Svo settist ég í bílstjórasætið og sagði;
Guð, festu á þig öryggisbeltið. Og mundu, það er bannað að reykja í bílnum.
Hann brosti og ég á móti...
Of margir með ljósin í ólagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Nýjustu færslur
- 25.6.2023 Laun fyrir að kúka í kassa
- 3.8.2021 Ég er bara grillaður kjúklingur
- 17.11.2010 Ég veit allavega um EINN sem ég myndi ALDREI kjósa yfir mig...
- 1.10.2009 Opið bréf til Davíðs Oddssonar "alltmuligman" ...
- 16.6.2009 Tálaus eða ekki tálaus...
Bloggvinir
- Solla Guðjóns
- www.zordis.com
- Steingerður Steinarsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Heiða B. Heiðars
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Ásgerður
- Andrea
- Heidi Strand
- Grétar Örvarsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Als
- Helgi Seljan
- Ólafur fannberg
- Karen, Sigurbjörg,Tóti, Gerður og fl.
- Jón Axel Ólafsson
- Ísdrottningin
- Sigrún Friðriksdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Thelma Ásdísardóttir
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðjón Bergmann
- Jakob Smári Magnússon
- Ester Júlía
- Birgitta Jónsdóttir
- Klara Nótt Egilson
- Saumakonan
- Björn Heiðdal
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jens Guð
- Þórarinn Þ Gíslason
- Viktor Borgar Kjartansson
- bara Maja...
- Jón Steinar Ragnarsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Georg Eiður Arnarson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Edda Agnarsdóttir
- Tómas Þóroddsson
- halkatla
- Þórður Ingi Bjarnason
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristján Eldjárn Þorgeirsson
- Heiða
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Kristján Kristjánsson
- Björn Ingi Hrafnsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Sigmar Guðmundsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jón Svavarsson
- Dofri Hermannsson
- Ásta Salný Sigurðardóttir
- Guðríður Arnardóttir
- Snorri Sturluson
- Hlynur Þór Magnússon
- Bjarni Harðarson
- Trúnó
- Hafrún Kristjánsdóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Þröstur Friðþjófsson.
- Gils N. Eggerz
- Sigurjón N. Jónsson
- Sveinn Waage
- Halldór Borgþórsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Ársæll Níelsson
- percy B. Stefánsson
- Arnfinnur Bragason
- Jón Sigurgeirsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- perla voff voff
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Edda Jóhannsdóttir
- Þorsteinn Gunnarsson
- Haukur Már Haraldsson
- María Tómasdóttir
- Huld S. Ringsted
- Steinunn Camilla
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðný Helga Herbertsdóttir
- Kaleb Joshua
- Halla Rut
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Sigurjón Þórðarson
- Lára Stefánsdóttir
- Jóhannes Ragnarsson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Margrét M
- Fiðrildi
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Agný
- Ingunn Ósk Ólafsdóttir
- Unnur R. H.
- Einar Bragi Bragason.
- Markús frá Djúpalæk
- Brynjar Jóhannsson
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Halldór Sigurðsson
- Guðmundur Pálsson
- Þórdís tinna
- Helga Sigrún Harðardóttir
- Hjördís Ásta
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Valgerður Halldórsdóttir
- Bragi Einarsson
- Helgi Kristinn Jakobsson
- Benna
- Dögg Pálsdóttir
- Sunna Dóra Möller
- Gísli Torfi
- Alheimurinn
- Gunnlaugur Helgason
- Linda Lea Bogadóttir
- gudni.is
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Þóra I. Sigurjónsdóttir
- Sæþór Helgi Jensson
- Púkinn
- Svartinaggur
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Einar Örn Einarsson
- Einar Indriðason
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Víkingur / Víxill
- Magnús Geir Guðmundsson
- Anna J. Óskarsdóttir
- Alexander Már Benediktsson
- Sverrir Stormsker
- Hlynur Birgisson
- Sigrún
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Hvíti Riddarinn
- Sonja I Geirsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðný Lára
- Hlekkur
- Sævar Einarsson
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sólrún
- Jón Ragnarsson
- Ingi Björn Sigurðsson
- Kolgrima
- Þ Þorsteinsson
- Maddý
- Lena pena
- Guðborg Eyjólfsdóttir
- Bergþóra Guðmunds
- Egill
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Guðlaug Aðalrós
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Jóhanna Vala Jónsdóttir
- Anna Guðný
- Þórður Helgi Þórðarson
- Hólmgeir Karlsson
- Draumar
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Hdora
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Handtöskuserían
- Vertu með á nótunum
- Óskar Helgi Helgason
- Vefritid
- Gísli Hjálmar
- Óskar Arnórsson
- Johnny Bravo
- haraldurhar
- Ásgeir Páll Ágústsson
- Anna Gísladóttir
- Sigríður Hafsteinsdóttir
- Fiddi Fönk
- Haraldur Halldór
- Á móti sól
- Dísa Dóra
- Arnar Ingvarsson
- Eva Benjamínsdóttir
- Högni Hilmisson
- Hommalega Kvennagullið
- Helga Magnúsdóttir
- Ásdís Rán
- Charles Robert Onken
- Þorsteinn Briem
- Bergur Thorberg
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Hulla Dan
- JEG
- Ein-stök
- JEA
- Elísabet Sigurðardóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Vinir Tíbets
- Sigurbjörn Friðriksson
- Sporðdrekinn
- Marinó Már Marinósson
- Davíð Ólafsson
- Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir
- Áhöfnin á Hákon EA-148
- Óskar Þorkelsson
- Morgunblaðið
- Rannveig H
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Kristín Jóhannesdóttir
- María Guðmundsdóttir
- Guðmundur M Ásgeirsson
- egvania
- Aðalsteinn Jónsson SU-11
- Aprílrós
- Tína
- Þóra Björk Magnús
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Myndamen - Ljósmyndaskartgripir
- Bullukolla
- Aldís Gunnarsdóttir
- Arnar Ingvarsson
- Ástþór Magnússon Wium
- Bjarki Steingrímsson
- brahim
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynja Dögg Ívarsdóttir
- Brynja skordal
- Dúa
- Elín Ýr
- Elísabet Markúsdóttir
- Elísabet Sigmarsdóttir
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðmundur Zebitz
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðrún Þorleifs
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hilmar Sæberg Ásgeirsson
- Himmalingur
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Ingvar Ari Arason
- Jónína Dúadóttir
- Kristín Guðbjörg Snæland
- Leikhópurinn Lotta
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Magnús Paul Korntop
- MYR
- Orgar
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Tinna Jónsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Á eftir að sakna hlýrra og skemmtilegra commenta frá þér Guðmundur. Ef þú skildir rekast á tölvugarm eða pung í útlandinu...láttu sjá þig hjá mér
Heiða Þórðar, 31.10.2007 kl. 00:08
Æ já það er ekki gott að vera bíll út í kuldanum......hér hjá mér eru 2 annar þeirra er nýr hvítur KIA Sportage(það eru fjöll hérna) sem fær aldrei og ég meina aldrei að fara inn í bílskúrinn...........því að þar er djásnið 1973 módel af eldrauðri Bjöllu......sem er minn dekur bíll.....þeir sem eiga Ameríska kagga finnst það kannski ekki töff.....en mér finnst Bjallan hafa sál....fer með hana út á góðviðrisdögum og þá er hún oftast stillt en vill stundum líka aðeins fá að hvíla sig....en það er bara stundum og þá í stutta stund.
Einar Bragi Bragason., 31.10.2007 kl. 00:45
Þú ert snillingur Heiða! Knús
Ester Júlía, 31.10.2007 kl. 08:12
jÁ,já, Heiða mín.Það er sko margt vitlausara en það að hafa GUÐ með sér í bílnum. Ef maður biður ekki um neitt,þá verður einfaldlega ekki neitt.( held ég). Lýsingarnar þínar á bílnum, sem þreyttur bíður eftir þér, eru skemmtilegar. Orð að sönnu.Haltu áfram að biðja,það er nefnilega ALDREI að VITA!!!!
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 08:31
jamm frábært að vera bara með Guð með sér
Margrét M, 31.10.2007 kl. 10:47
Ekki dónalegir farþegar sem þú færð í bílinn hjá þér.
Steingerður Steinarsdóttir, 31.10.2007 kl. 11:07
Guð er bara einni bæn frá manni ALLTAF ..það er ekki slæmt og svo eftir að síminn kom með 3G kynslóðina þá er spurning hvort maður geti Dail-að á hann og fengið myndskeiða-skilaboð í leiðini frá Meistaranum ....væri kannski gaman að fá Gullna Hliðið sent til sín.... Megi Guð blessa þig og bænheyra ...
Gísli Torfi, 31.10.2007 kl. 11:11
. . ég ætla líka að prófa að biðja Guð um nýjan bíl HANDA ÞÉR!
Fiðrildi, 31.10.2007 kl. 15:22
Ég væri til í að fá eitt brosd frá Guði núna og smá knús.....
Sunna Dóra Möller, 31.10.2007 kl. 15:34
Hvað varstu að gera á hælaskóm í kuldanum stelpa? Seldu bílinn og bíddu í mánuð þá færðu örugglega gefins bíl. Ég gerði þetta einu sinni og það virkaði, fékk reyndar kall með og á hann ennþá (sko kallinn)
Ásdís Sigurðardóttir, 31.10.2007 kl. 16:02
Ásdís.....er hægt að ná í kall og bíl.... án hæla!?
Heiða Þórðar, 31.10.2007 kl. 16:31
þú ert svo mikið krútt þetta er æðislegt
verum "ahh" við Guð
halkatla, 31.10.2007 kl. 16:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.