Ég var tekin illilega í rassgatið....
6.9.2007 | 09:46
... jebb og það var sko ekki gott á meðan á því stóð. Alveg óvarinn. Varnarlaus og verjulaus og smokkalaus.
Varð ófrísk en er orðin frísk.
Kem alveg örugglega að því seinna. En ekki alveg tímabært á þessum punkti tímans.....
Þið allra greindustu vitið að ég er ekki að tala um endaþarmskynmök, enda rassinn á mér það lítill að ef vel ætti að takast þyrfti snuð....og ef það væri í boði. Sem það er ekki.
Einhverju sinni var að vísu reynt af einhverjum vitleysingnum sem ég hef þekkt, sá hafði víst sjálfsagt séð það í þýskri klámmynd.... (mér fannst þetta fyndið actually....)
Góðan daginn annars, vakti ég ykkur?
Engu að síður fínt að láta taka sig vel í rassgatið annaðslagið, láta traðka vel á sér, misbjóða, láta nota sig, svo brotnar maður.
Grenjar vel í koddann sinn (sér í lagi ef þú átt enga öxl til að halla þér að) er alveg nauðsyn með. Koddinn er góður félagi. Hann þegir yfir leyndarmálum rétt einsog kötturinn. Koddinn er alltaf til staðar. Koddinn yfirgefur þig aldrei.
Mæli með þessari aðferð. Láta taka sig ærlega í rassgatið. Raða saman spegilbrotunum þar til hann verður heill, líta síðan nokkurnveginn sáttur framan í spegilmynd sína.
Síðan er ákvörðunin tekin um næstu skref í lífinu....Frábært! Sárt en frábært. Eða ég held það allavega. Er að reyna að sannfæra sjálfa mig.
Og þið allra allra allra greindustu, ég er ekki að tala um einhvern jólasvein hér heldur.
Hvað eru annars svona pjásur að fara í bloggpásur?
Halda mætti að ég hefði gengið í trúfélag hjá ja.....miðað við rassalýsingar þarf ég varla að tilgreina neinn. En nei.
Labbaði að vísu framhjá Hallgrímskirkju á leið minni í að kanna möguleika á fjarnámi sem ég á eftir að klára.... en læt bíða að sinni.
Haustin eru annars frábær.
Þó sumarið mitt hafi verið skítsæmó. þá hlakka ég vetrarins. Og ég veit að veturinn verður mér til gæfu.
Hápunktur sumarisins hjá mér var.... og haldið ykkur fast var að ég sá Gullfoss og Geysi í fyrsta sinn, enda ung þannig að hva..........
Ég er ekki einlægur aðdáandi minningargreina, en hef skrifað þær tvær. Þær voru sko ekkert venjulegar minningargreinarnar, mínir kæru bloggvinir.
En þar minntist ég á tvær stjörnur sem ég ætti á himnum.
Á það til að líta upp í himininn á svölum haustkvöldum og minnast þeirra tveggja sem hafa staðið hjarta mínu næst í lífinu og ég hef misst....ömmu og pabba. Þegar ég sé stjörnurnar.
Ég elska stjörnur. Góðar sálar. Fallega innrætt fólk og mér þykir afar vænt um ykkur......
Ég lýg því ekki þegar ég segi að bleika bikýníið er á leið í poka og stelpan á arminn minn og við á leið í sund um helgina.
Var að hugsa um þetta svarta.....en nei. Bleikt skal það vera enda verðum við að vera í stíl, mæðgurnar.
Vinkona mín sagði mér að Árbæjarlauginn væri aðalpickup staður sjálfstæðra og einlægra foreldra.... þannig að við höldum okkur víðsfjarri henni. Kannski seinna. Eða aldrei.
Svo verður tekin stór og feit súkkulaðisneið á kaffihúsi á eftir þar sem ég mun verða hvítklædd að ofan og útötuð í súkkulaði á heimleiðinni syngjandi glöð.
Og grindhoraður kjúklingaræfill i ofninn þar á eftir. Keypti tvo fyrir einn. Sleppti einum þannig að þessi var frír. Snilld og mæli með þessu fyrir þá allra blönkustu.
Óska ykkur góðrar helgar mín elskulegu, ef ég læt ekki heyra frá mér fyrr, mín verður góð svo mikið er víst.
Svakalega góð.
Kertaljós í húmi nætur og ætli ég verði ekki að láta að óskum minnar elsku litlu prinsessu og hlusta á Búbba væla í bakgrunninum.
Hef reynt að fela diskgarminn en barnið er manískt þegar kemur að Bubba og að henda nærfötunum mínum útum öll gólf. Svo syngur hún með "ég er stór pakki".
Veit ekki hvort er verra. Nærfötin eða Bubbi.
Aftur segi ég góða helgi ef ekki heyrist frá mér.....þið eruð æði öll sem eitt![]()



Solla Guðjóns
www.zordis.com
Steingerður Steinarsdóttir
Steingrímur Helgason
Heiða B. Heiðars
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ingibjörg Gunnarsdóttir
Pálmi Gunnarsson
Ásgerður
Andrea
Heidi Strand
Grétar Örvarsson
Lýður Árnason
Ólafur Als
Helgi Seljan
Ólafur fannberg
Karen, Sigurbjörg,Tóti, Gerður og fl.
Jón Axel Ólafsson
Sigrún Friðriksdóttir
Stefán Friðrik Stefánsson
Thelma Ásdísardóttir
Guðmundur Steingrímsson
Guðjón Bergmann
Jakob Smári Magnússon
Ester Júlía
Birgitta Jónsdóttir
Klara Nótt Egilson
Eyþór Laxdal Arnalds
Jens Guð
Þórarinn Þ Gíslason
bara Maja...
Jón Steinar Ragnarsson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Georg Eiður Arnarson
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Ágúst Ólafur Ágústsson
Edda Agnarsdóttir
Tómas Þóroddsson
halkatla
Þórður Ingi Bjarnason
Hlynur Jón Michelsen
Kristján Eldjárn Þorgeirsson
Heiða
Jón Aðalsteinn Jónsson
Kristján Kristjánsson
Björn Ingi Hrafnsson
Kristín Katla Árnadóttir
Sigmar Guðmundsson
Jóna Á. Gísladóttir
Jón Svavarsson
Dofri Hermannsson
Ásta Salný Sigurðardóttir
Guðríður Arnardóttir
Snorri Sturluson
Hlynur Þór Magnússon
Bjarni Harðarson
Trúnó
Hafrún Kristjánsdóttir
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
Þröstur Friðþjófsson.
Gils N. Eggerz
Sigurjón N. Jónsson
Sveinn Waage
Halldór Borgþórsson
Ólaf de Fleur Jóhannesson
Magnús Þór Hafsteinsson
Guðsteinn Haukur Barkarson
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Ársæll Níelsson
percy B. Stefánsson
Arnfinnur Bragason
Jón Sigurgeirsson
Rögnvaldur Hreiðarsson
MARKAÐSSETNING Á NETINU
Edda Jóhannsdóttir
María Tómasdóttir
Huld S. Ringsted
Kaleb Joshua
Halla Rut
Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Sigurjón Þórðarson
Lára Stefánsdóttir
Jóhannes Ragnarsson
Ragnar Páll Ólafsson
Margrét M
Fiðrildi
Gunnar Helgi Eysteinsson
Agný
Ingunn Ósk Ólafsdóttir
Einar Bragi Bragason.
Markús frá Djúpalæk
Brynjar Jóhannsson
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
Halldór Sigurðsson
Guðmundur Pálsson
Helga Sigrún Harðardóttir
Hjördís Ásta
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
Bragi Einarsson
Helgi Kristinn Jakobsson
Benna
Sunna Dóra Möller
Gísli Torfi
Alheimurinn
Gunnlaugur Helgason
Linda Lea Bogadóttir
gudni.is
Þóra I. Sigurjónsdóttir
Púkinn
Svartinaggur
Kjartan Pétur Sigurðsson
Einar Örn Einarsson
Einar Indriðason
Kristín Erla Kristjánsdóttir
Víkingur / Víxill
Magnús Geir Guðmundsson
Anna J. Óskarsdóttir
Alexander Már Benediktsson
Hlynur Birgisson
Sigrún
Sigvarður Hans Ísleifsson
Hvíti Riddarinn
Sonja I Geirsdóttir
Alfreð Símonarson
Hlekkur
Sævar Einarsson
Sigurður Hólmar Karlsson
Sólrún
Jón Ragnarsson
Ingi Björn Sigurðsson
Kolgrima
Þ Þorsteinsson
Maddý
Lena pena
Guðborg Eyjólfsdóttir
Bergþóra Guðmunds
Egill
Heimir Lárusson Fjeldsted
Guðlaug Aðalrós
Kristín M. Jóhannsdóttir
Guðrún Jóhannesdóttir
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Jóhanna Vala Jónsdóttir
Anna Guðný
Þórður Helgi Þórðarson
Hólmgeir Karlsson
Draumar
Ásgerður Jóna Flosadóttir
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
Vertu með á nótunum
Óskar Helgi Helgason
Vefritid
Gísli Hjálmar
Óskar Arnórsson
haraldurhar
Anna Gísladóttir
Sigríður Hafsteinsdóttir
Haraldur Halldór
Á móti sól
Dísa Dóra
Arnar Ingvarsson
Eva Benjamínsdóttir
Högni Hilmisson
Hommalega Kvennagullið
Helga Magnúsdóttir
Ásdís Rán
Charles Robert Onken
Þorsteinn Briem
Bergur Thorberg
Helga Nanna Guðmundsdóttir
Hulla Dan
JEG
Ein-stök
JEA
Elísabet Sigurðardóttir
Grétar Mar Jónsson
Vinir Tíbets
Sigurbjörn Friðriksson
Sporðdrekinn
Marinó Már Marinósson
Davíð Ólafsson
Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir
Áhöfnin á Hákon EA-148
Óskar Þorkelsson
Morgunblaðið
Rannveig H
Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
Kristín Jóhannesdóttir
María Guðmundsdóttir
Guðmundur M Ásgeirsson
egvania
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aprílrós
Tína
Lísa Björk Ingólfsdóttir
Myndamen - Ljósmyndaskartgripir
Bullukolla
Aldís Gunnarsdóttir
Ástþór Magnússon Wium
Bjarki Steingrímsson
brahim
Brosveitan - Pétur Reynisson
Brynja Dögg Ívarsdóttir
Brynja skordal
Dúa
Elín Ýr
Elísabet Markúsdóttir
Elísabet Sigmarsdóttir
Gudrún Hauksdótttir
Guðrún Una Jónsdóttir
Guðrún Þorleifs
Gunnar Helgi Eysteinsson
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
Himmalingur
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
Jónína Dúadóttir
Kristín Guðbjörg Snæland
Linda Linnet Hilmarsdóttir
Lúðvík Lúðvíksson
Magnús Paul Korntop
MYR
Pétur Steinn Sigurðsson
Rósa Aðalsteinsdóttir
Sigrún Jónsdóttir
Sveinbjörn Ragnar Árnason
Tinna Jónsdóttir





Athugasemdir
Mér þykir vænt um þig láttu þér líða vel elsku Heiða.
Kristín Katla Árnadóttir, 6.9.2007 kl. 10:13
mér líkaði seinni hlutinn betur
hehe
velkomin aftur!
halkatla, 6.9.2007 kl. 10:19
Veit örlítð, pínkulítið hvernig þér líður... Sendi þér hlýja strauma elskan
Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl, 6.9.2007 kl. 10:22
Velkomin til baka
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.9.2007 kl. 10:25
... góðan daginn, nú er ég vaknaður... sundið er frábært, jafnvel sálin verður hrein á eftir.. þú ert frábær... góða skemmtun...
Brattur, 6.9.2007 kl. 10:43
Æ hvað það var gott að fá þetta "wake-up"...... En gættu að einu hjartans.... þú átt axlir út um allan bæ - svona til að gráta á, síðan áttu arma til að faðmast, svo áttu dómgreindir til að fá að láni........ heppin týpa! Ég aðstoða þig gjarnan við upphífingarnar!!
nlp@simnet.is
Ingibjörg Gunnarsdóttir, 6.9.2007 kl. 10:46
Eitt orð yfir ykkur öll yndislegt fólk! Takk Ingibjörg mín þú ert auðvitað algjört yndi. Varðveiti mailið þitt
Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 10:54
Gott að fá þig aftur í bloggheima, Heiða mín. Þín hefur verið saknað. Ekki gott að heyra um ástæður fjarvistanna, en vittu til ... sólin rís að morgni. Knús til þín.
Hugarfluga, 6.9.2007 kl. 11:24
Gaman að vera komin aftur.... ekki meiri dramatík takk!
Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 11:27
Sjá stjarna skín á örlög þín. Veröldin vaknar úr dvala við fyrsta koss geisla morgunsólar. Lífið er hverfult og daggardropar liðinna tíma úða sálu mína ... og ... og ... hvað meinarðu ekki meiri dramatík? Ég er rétt að komast á skrið!!
Hugarfluga, 6.9.2007 kl. 11:42
heheheh, þú ert svo frábær. OK, við skulum halda áfram á dramatísku nótunum....en bara fyrir þig darling.
Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 11:46
Komin tími til að þú létir sjá þig ljósið mitt, komin tími til. Ég segi bara knús til þín, eiginlega bara mörg knús.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.9.2007 kl. 11:57
Velkominn aftur Heiða mín.

Georg Eiður Arnarson, 6.9.2007 kl. 11:58
Great
Einar Bragi Bragason., 6.9.2007 kl. 14:29
Velkomin aftur Heiða mín. Ég veit ekki hvort ég er sammála þér með það að við höfum gott af því að láta fara illa með okkur. Vissulega má örugglega draga af því einhvern lærdóm en mig langar meira til að rassskella helvítið fyrir þig og ég lofa að það verða engin vettlingatök.
Steingerður Steinarsdóttir, 6.9.2007 kl. 15:47
Heiða, ég hugsa til þín vinkona.
Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 15:57
Æi .... ég er ekki að tala um einhvern karlmann. Síður en svo. Er ég svona óskýrmælt......enginn karl!
Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 16:47
Búin að jafna mig á þeim pakkanum!
Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 16:47
Eða svona næstum því
Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 16:48
Heiða, þú ættir kannski að hafa þetta eins og ein vinkona mín sagði þegar hún var búin að jafna sig á slæmu sambandi "Karlmenn eru fífl, þangað til annað kemur í ljós" (held meira að segja að hún hafi átti í öðru slæmu sambandi þar á undan)
Hún að vísu náði sér mjög fljótt í nýjan mann og eftir því sem ég best veit eru þau hamingjusamlega gift í dag
Arnfinnur Bragason, 6.9.2007 kl. 17:13
Snilldarhugmynd Arnfinnur....
æi annars langar mig voða lítið í nýjan mann
Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 17:20
...þetta er akkúrat leiðin til að vera ekkert að leit...
Arnfinnur Bragason, 6.9.2007 kl. 17:25
Annars er ég ekkert að skilja í þessu "folks" ..... langar engan að vita hvert ég ætla í bleika bikinýinu
Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 18:00
Koddu bara til mín með bleika efnið ..... Hér er sól, hér er sjór og hér er strönd! Fullt af strandleikföngum fyrir litla krúttið og næsý pæsý stemming! Viva España svo ég svari þér með fiður í munni!
Knús til þín í mjúkum skýjahnoðra
www.zordis.com, 6.9.2007 kl. 18:14
Hrönn Sigurðardóttir, 6.9.2007 kl. 18:16
Heyrðu stelpur mínar, er á leiðinni!
NUNA!
Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 18:23
Andsk..... rugl er þetta!! Heyrðu nafna, ég sleppi því alveg að reyna að sálgreina þig enda svo mikil sálarflækja sjálf að ég klúðra því alltaf big time!!
Ég hef aftur á móti áhuga á feitu súkkulaðikökunni!! Hvar fær maður sollis?? ;)
Heiða B. Heiðars, 6.9.2007 kl. 20:57
Mér líst ekki á þetta.
Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 21:27
Gaman að sjá þig hér aftur heiða... og skemmtilegt að lessa þetta blogg sem mér þótti skemmtilega samhengislaust svona algjörlega úr einu í annað.
greinilega komin kraftur í þig...
Brynjar Jóhannsson, 6.9.2007 kl. 21:32
Hallgrímur Óli Helgason, 6.9.2007 kl. 21:42
Hvað segjir þú enginn kall


Solla Guðjóns, 6.9.2007 kl. 22:35
Heyrðu nú mig, maður bregður sér af bæ.... kemur heim kíkir á síðuna... og sér þessi comment hérna!
Heiða þó: þú veist fyrir ofan stendur stutt á milli snilligáfunar og geðveikinar hjá mér. Þessa dagana er ég semsagt geðveik.....á morgun vonandi snillingur. Púff og ekki reyna að sálgreina mig....engum tekist það
Axel; og ég sem hélt að þér þætti vænt um mig, jæja....hvað er það annars sem þér líst ekki á?
Brynjar; ég er nú barasta móðguð út í þig....reddar þér aðeins að Brynjars nafnið er afar fallegt, enda heitir sonur minn Ari Brynjar....blessaður vertu ég er í 50% formi....bíddu bara þangað til ég næ 100 prósentunum....! Þá skilur þú ekkert í þinn annars ágæta haus!
Hallgrímur minn; takk fyrir hjartað og kossinn.
Ollasak; neibb, enga karla takk fyrir mig í bili.... kannski pæling eftir svona ca 2 vikur.....þú veist maður á alltaf að gefa þessu tíma!
Annars var þetta svo sem ekki neitt ykkur að segja, bara ýmindun og draumur og varla það.
Heiða Þórðar, 7.9.2007 kl. 00:23
Hurru,
Það eru bara svona færslur sem að fá mann til að elska þig.
S.
Steingrímur Helgason, 7.9.2007 kl. 00:37
Æðilegt að sjá þig hér aftur,,,,og þú átt víst öxl,,,,þú bara notar hana ekki
Þú veist hvar ég er, ef þú þarf á mér að halda
Ásgerður , 7.9.2007 kl. 10:00
Lyfin eru ódýrust í Rimaapóteki held ég.
Nei, svona í alvöru talað; gott að fá þig til baka. Vona að þú lúskrir ærlega á þeim sem fór svona með þig. Svo er alltaf gott að fá útrás á blogginu
Jóna Á. Gísladóttir, 7.9.2007 kl. 19:06
Athyglisvert blogg...vona að þú hressist við koddaknúsið
Gunnar Th. Gunnarsson, 7.9.2007 kl. 23:39
það er kúkalikt af rassinum...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 8.9.2007 kl. 19:26
Jú Heiða mín, mér þykir undurvænt um þig mín kæra.
Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 00:25
... vil að þú farir vel með þig og treystir gjöfunum sem guð gaf þér. Innsæi, greind og húmor. Ekki þar fyrir að mér sýnist þetta allt vera að koma sko.
Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 00:29
Takk minn kæri, og mér þykir undurvænt um þig líka. Alveg frá því ég hitti þig fyrst og við áttum gott spjall. Þú ert svona perlukarlastrákur. Svona sem mætti alveg fara í ljósritunarvélina... til hamingju aftur með blaðið þitt. Ekki síst til hamingju með þinn karakter.
Heiða Þórðar, 9.9.2007 kl. 00:42
já þetta er dáldið væmið fyrir mig...takk fyrir ofhólið, þú ert góð kona Heiða og ég er glaður að hafa kynnst þér.
Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 12:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.