Ég er milf.....

Sumir halda því fram að ég sé bráðlát. Og fljótfær. Og óþolinmóð.

Viðurkenni það að ýmsu leiti ...

Segi kannski ekki að saumarnir hafi verið ógrónir.... mjaðmagrindin sundurliðuð og hríðarnarnar í ferskasta minninu þegar ég átti stelpuna mína... þar sem 15 ár eru á milli barnanna minna tveggja.

Hjúkkan/læknirinn horfði nú ekki beint á mig þegar ég úrslitin lágu ljós fyrir úr þvagprufunni og deginum varð ljósara að ég var barnshafandi í annað sinn.

Ekki var horft á mig og sagt:

-Heyrðu góða mín, róaðu þig á greddunni......mjólkin lekur enn úr brjóstunum á þér kona....

Eitt er víst að það er eins og ég eigi tvo ..... ahhhh (datt Heiða litla út)  ekki  frumbyggja.....ekki fyrirbura....hérna ....frumburður! Frumburði.

Annað er víst að sonur minn er einsog félagi minn...vinur minn. Mér finnst alveg með ólíkindum að þetta trippi sé orðin fullvaxta karlmaður.... og ég rétt nýhætt á spena.

Gekk i gegnum þvílíkt sorgarferli á tímabili....hann unglingur..... ég unglingamóðir.

Mér skilst á einni góðri konu sem ég talaði við á tímabilinu að hún hafi gengið í gegnum sama pakkann með syni sína tvo.  Hún sannfærði mig um að hann kæmi til baka....stuttur tími í raun en samt svo óendanlega lengi að líða.

Fann fyrir þvílíkri höfnunartilfinningu að úff, ....... æi, hvað það var sárt.

Var mitt í þessum hallærispakka skiljiði:

Ég var hallærisleg, hallærislegust, meira að segja hallærislegastur þrátt fyrir að vera kvennmaður sem hafði náð þrælerfiðu stærðfræðiprófi.

Hvað eru tvö brjóst -sinnum einn siginn pungur og mér tókst að giska á rétt.....

En allaveganna ég fæ ekki betur séð en ég sé að lyftast úr hallærispyttinum... og sé að endurheimta minn falllegasta son aftur.

Hann sagði mér nefnilega um daginn að vinir hans fíluðu mig og fyndist ég flott.

Ég var auðvitað lukkuleg þó svo ég megi ekki enn fara með þeim í bíó.....

Og sagði:

-Nú! hvað sagði hann (þeir)?

-Þeir segja að þú sért milf

-Milf???? hvað er milf?

-Æi mamma, þú vilt ekkert vita hvað það þýðir, en það er mjög gott sko! Það er eiginlega best að vera milf....

Ég fékk út úr honum hvað það þýðir.....og gapti þegar ég spurði:

-hvernig finnst þér að vinir þínir tali svona um mömmu þína!

-cool......mjög cool sko!

Ég er enn ekki að átta mig á þessu cool complementi.... en vitiði hvað þetta þýðir á unglingamáli?

Eigiði orðabók unglinga?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Milf hvað þýðir það?  Ekki eyðileggja daginn ég meina kvöldið fyrir mér.  Æðislegur pistill annars.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.5.2007 kl. 23:01

2 Smámynd: Hrólfur Guðmundsson

Mother I like to Fuck!

Þú ert það.  Pottþétt. 

Hrólfur Guðmundsson, 16.5.2007 kl. 23:16

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

Sko minn! En hvað eru tvo brjóst sinnum einn siginn pungur ljúfurinn?

Heiða Þórðar, 16.5.2007 kl. 23:21

4 identicon

ilsig??

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 23:43

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

hehe -heitur!

Heiða Þórðar, 16.5.2007 kl. 23:47

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mother I like food  

Ásdís Sigurðardóttir, 17.5.2007 kl. 00:16

7 Smámynd: Ólafur fannberg

kvitt fyrir lestur og innlit

Ólafur fannberg, 17.5.2007 kl. 00:30

8 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Kvitt fyrir lestur

Magnús Paul Korntop, 17.5.2007 kl. 03:37

9 Smámynd: Sigurður Andri Sigurðsson

Ari Jóhannesson þið strákarnir litu ekki svona á eldri konur (mömmur félagana).  Af því að Heiða var ekki mamma félaga þinni.  Gæti það kannski verið?  

Sigurður Andri Sigurðsson, 17.5.2007 kl. 08:11

10 Smámynd: Saumakonan

hah! ég var einu sinni "cool" mamma.... þegar sonurinn var bara 16 en fékk að fara með mömmu sinni á pöbbana til að horfa á FÓTBOLTA!!!   Allir vinirnir dauðöfunduðu hann að eiga svona "coola boltamömmu"

Saumakonan, 17.5.2007 kl. 11:11

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Aha ég er ennþá cool amma.  Þau segja að ég sé rockstjarna.  Það er auðvitað æðislega cool.  En samt er ég bara Kúluammann.   en samt ég hef sennilega verið heppin með mína unga.  þau hafa aldrei látið svona.  Það besta var að það ríkti alltaf gagnkvæm virðing milli okkar.  Þó stundum hefði maður viljað eiga meiri tíma með þeim.  En maður gefur barnabörnunum þann tíma bara.   En þú setur hlutina alltaf í svo skemmtilegan farveg að það er unun að lesa pistlana þína Heiða mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.5.2007 kl. 12:57

12 Smámynd: bara Maja...

Ég verð líklega aldrei milf, enda á ég tvær stelpur, ein sem fer bráðum á unglingaskeiðið... hvað segiru ? hvað tekur þetta langan tíma ? hvenær verðum við í náðinni aftur ? bara svona til að undirbúa mig  (hvað þýðir annars milf ?)  

Hef sagt það áður... segi það þá bara aftur. þú ert snilldarpenni !!!

bara Maja..., 17.5.2007 kl. 13:23

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Úff er líka með ungling. Hann er að verða 15 ára, skil ekki helminginn af því sem hann er að segir. Eins og þú segir maður verður bara að fá sér unglinga orðabók.

Kristín Katla Árnadóttir, 17.5.2007 kl. 14:04

14 identicon

Snerti ekki þennann pistil með kústskafti Heiða mín. 

Jói Dagur (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 18:03

15 Smámynd: www.zordis.com

milf

M = mikilfengleg

I = innileg

L = ljúffeng

F = falleg

Hvernig er hægt að vera milf án þess sem ég get hér að ofan! ? 

www.zordis.com, 17.5.2007 kl. 21:42

16 Smámynd: Ester Júlía

Fjórtán ár á milli míns næstyngsta og yngsta. 16 ár á milli elsta og yngsta.  Ég verð ALDREI köllum MILF af hans félögum ...  Ég veit ekkert hvað það þýðir en ef það er eitthvað flott og fallegt þá áttu það skilið Heiða mín

Ester Júlía, 17.5.2007 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband