Endalokin nálgast ...
15.2.2009 | 20:38
Systir mín sem býr í landi tækifærana, er æðisleg. Ég kalla hana; ingipingipænimó. Um daginn sendi hún mér bleikan varalit...age -"defæningstöff"...ég hringdi og þakkaði pent...enda vel upp alin. Hafði þó orð á því í framhjáhaldi...hverju það sætti að senda mér lippara fyrir ellihrumar kerlingar sem væru með sveskjuvarir ...
...ég fékk langa tölu um það að nú væri algjört möstímöst að kaupa sér allskyns maska og krem fyrir húð...sér í lagi undir augu...osfrv. áður en allt færi til helvítis. -ok -takk takk fyrir hintið! En ég Heiða bergur bumba...
...kem að því síðar.
...allavega afmælispakkinn minn frá Amerikunni er á leiðinni...by Air. Stimplaður forgangspóstur. A. Eftir áreiðanlegum heimildum mun pakkinn innihalda skó með himinháum hælum. Svo háum að ég mun geta snert skýin með handarbakinu. Mig hlakkar til, þrátt fyrir að mig gruni að ég muni lúkka einsog argasta mella....þar sem skórnir eru lakkskór. Ég er nokkurnveginn gulltryggð með rússamelluconseptið þegar ég er komin í skóna og búin að lita varir mínar með aldraða skærbleika lipparanum.
Ég ætla í kjölfarið að sækja um íhlaupastarf hjá Geira Gullputtalingi.
Sko...
...það var sagt við mig um daginn...atriði sem átti að skóta mig flata í gólfið. Einskonar pikkuplína Eitthvað á þá leið;
-fuck... hvað þú ert flott miðað við aldur!
Mér finnst persónulega fökkið nokkuð flott...en það sem hékk á fökkinu....alls enganveginn mér að skapi.
Exxxskjúsmí; eiginlega mjööööög súrt complement og alveg úr takti við hól að mínu mati. Við hvern er verið að miða? Mér finnst ekkert eftirsóknarvert að líta út einsog einhver beygla 10 árum yngri en ég sjálf! Ég veit ekki einu sinni um hverja ræðir! Sú hin sama gæti allt einsog litið út einsog fryst bleikja. Mér er nánast fyrirskipað að sitja undir slíku og má þakka mínu sæla fyrir að vera ekki sleginn á kjaftinn fyrir að taka þessháttar hóli með auðmýkt og þakka pent. Nobb...geri það alls barasta ekki. En takk samt. Eða ekki...
Það er nefnilega svo að það þykir eftirsóknarvert að líta út einsog fjögurra ára rass í framan... gildir þá einu hvort þú ert orðin fertug, fimmtug eða sextíu sinnum hundrað. Fyrir mitt leyti, -ekki frekar en að vera berrössuð í bleikum varalit og með svarta lakkskó á hausnum. Seint mun ég þykjast vera yngri en ég er. Frábær árangur að vera vel á veg komin og að hafa afrekað þessum áfanga; þ.e. að vera hálfnuð með að rusla heilli ævi af og aðeins brotið nokkur beint á leiðinni. Það segir sig sjálft að orðið afmæli er til merkis um að maður er búin að mæla af ævinni.
Annað; afhverju er fjörutíu ára afmæli merkilegra en 39 ára afmæli? Fyrir mér eru allir afmælisdagar jafn merkilegir. Allir dagar í raun, veit nefnilega með vissu (eða grunar það) að einhver á afmæli á hverjum degi...og er minn dagur því ekki merkilegri en annarra. Sjálfsagt afþví ég náði hausnum úr rassgatinu og leitaði miðju nafla alheimsins einhversstaðar allt annarstaðar en í mínum eigin rassi...
Öll, hvert og eitt okkar erum við einstök og mun það vera keppikefli hjá mér að koma eins fram við hvert það kvikindi sem á vegi mínum verði (ef guð verður svo góður að sortera súru stykkin af vegi mínum ) ...og fagna hverjum einasta degi sem mun nú koma... með ykkur.
Endalokin nálgst einsog óð fluga...
Ástarþakkir fyrir kveðjurnar...megi þær halda áfram að berast mér 365 daga ársins.
Athugasemdir
Ómar Ingi, 15.2.2009 kl. 20:46
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Rósa Aðalsteinsdóttir, 15.2.2009 kl. 20:52
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Rósa Aðalsteinsdóttir, 15.2.2009 kl. 20:54
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Rósa Aðalsteinsdóttir, 15.2.2009 kl. 20:55
Til hamingju með ÖLL afmælin sem þú hefur átt síðan ég hitti þig síðast.
Vona að þetta sé það skemmtilegasta yet.
Jenný Anna Baldursdóttir, 15.2.2009 kl. 20:57
Knús til þín elskan er það ekki að bera í bakkafullan lækinn að óska þér aftur til hamingju með afmælið, kannski ekki. Endurtekið þú ert flottust sama hvað þú ert gömul hvað skiptir það máli,? aldrei hef ég pælt í því.
Ljós til þín
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.2.2009 kl. 21:01
Til hamingu með áfangan, ég næ þér í sumar....
Þórður Helgi Þórðarson, 15.2.2009 kl. 21:41
HEIÐA MÍN TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ,FYRIRGEFÐU ,EG VAR SVOLÍTIÐ SEINN EN AFMÆLISKVEÐJA ER ÞAÐ SAMT .MEGIR ÞÚ EIGA BJARTA OG FALLEGA ÆVI UM ÓKOMIN ÁR ÞINN BLOGGVINUR HILMAR SÆBERG (DRENGUR GÓÐUR).
Hilmar Sæberg Ásgeirsson, 16.2.2009 kl. 02:12
Til hamingju með afmælið. Degi of sein, en ,,,,,,,,,
Knús og kærleikur til þín.
Aprílrós, 16.2.2009 kl. 07:53
Til hamingju með afmælið í gær Betra seint en aldrei
Auður Proppé, 16.2.2009 kl. 09:05
Hahahaha....,
bleikur varalitur og lakkskór, hmmmmm Heiða ............en er á því að þú lítir vel út og er þá ekki miðað við neitt :)
kveðja
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 09:18
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 14:59
Óðfluga.
Marinó Már Marinósson, 16.2.2009 kl. 15:38
Solla Guðjóns, 16.2.2009 kl. 21:14
Til lukku með daginn. Maðurinn minn er svona eins og þú, gasalega lekker miðað við aldur. Ung stelpa, svona um tvítugt, spurði hann um daginn hvað hann væri gamall og þegar hann sagðist vera 48 ára rak hún upp gól og sagði: Hvað segirðu, þú sem ert eiginlega ekkert krumpaður.
Helga Magnúsdóttir, 16.2.2009 kl. 22:48
Til hamingju með daginn í dag
Þ Þorsteinsson, 18.2.2009 kl. 13:30
Já á madur ekki bara ad segja til hamingju med thennan i dag af thessum 365 svona af thvi madur er soldid of seinn med official afmæliskvedjuna...en thú ert frábær og ert bara eins og raudvínid,verdur betri med hverju árinu thetta segi ég sjálfri mér nógu títt til ad ég trúi thvi...og held bara ad thad virki svei mér thá
María Guðmundsdóttir, 18.2.2009 kl. 18:46
Til hamingju með allt síðastliðið ár og alveg fram á þennan dag og næsta
Flott að fá svona skemmtilegar afmælisgjafir, gefa lífinu lit og lyfta tilverunni
Staðalímyndir af hinu og þessu eru óþolandi og standa í vegi fyrir að hver og einn fái að njóta sín eins og hann er. Ég til að mynda nýt mín ekki nógu vel í kvenfatabúðum því mér viðrist sem flest fötin þar séu hönnuð á horaða homma.
Guðrún Þorleifs, 19.2.2009 kl. 16:41
Djö ertu heppin að vera orðin fertug, ég hef heyrt að kynlífið sé miklu betra eftir að maður hefur náð þeim aldri! Til lukku með það
Sporðdrekinn, 23.2.2009 kl. 01:05
Ó gleymdi, lakkskór eru algerlega inn núna!
Sporðdrekinn, 23.2.2009 kl. 01:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.