Berrassaður rass í janúar

Ég fékk svar við skilgreiningu á túrtappa. Alveg óvænt og án þess að hafa verið að velta því fyrir mér sérstaklega.

Ég var í röð í dag. Á undan mér var kærustupar...ég var frekar illa klædd þrátt fyrir mánudags-janúar dag og í þokkabót alveg að pissa í buxurnar.

Undir þeim kringumstæðum er maður ekki beint með þolinmæðina rissaða á ennið á sér, hvað þá stimplaða á rassinn.

Kærastan hélt utan um kærastann. Ég horfði. Hann spurði og spurði og spurði afgreiðslustúlkuna og ég tvísté þarna fyrir aftan, nánast með fæturnar í flækju og hugsaði;

-djö...fer strákfílann ekki að hætta þessu blaðri...gerir hann sér enga grein fyrir því að blaðran er við það að springa hérna fyrir aftan hann og mér er drullukalt.

Þá sá ég það.

Rassinn á honum.

Hann blasti við mér... þegar hann beygði sig yfir borðið og spurði einsog álka um hvort súkkulaði væri karamella eða eitthvað álíka gáfu- og gelgjulegt.

Og ég horfði...á rassinn...og sama hvað ég reyndi að hafa stjórn á augunum á mér...þá duttu þau alltaf niður í strenginn og ofaní buxur...þar sem rassinn blasti við.

Í örvæntingu yfir köldum kroppnum og springandi þvagblöðru sem var við það leka reyndi ég að dreyfa huganum og fór auðvitað að velta fyrir mér hvort hann væri nærbuxnalaus, hældi kærustunni fyrir það í huganum að hafa náð gaurnum úr nærbuxunum...

...einsog með augun hafði ég enga stjórn á hugsununum. Ég meina, maður er ekki beint að hugsa um líf eftir dauðann þegar rass blasir við manni, berrassaður í janúar...sko á mánudegi! Í biðröð í Smáralind.

Ég reyndi að hemja mig og augun voru rifin upp með valdi og upp upp upp....alveg að hálsmáli, þá sá ég það.

Hann var í hettupeysu.

Hvað er málið með hettupeysur? Það eru allir í hettupeysum...ég hef ekkert á móti hettupeysum. En ég skil ekki þennan faraldur, rétt einsog ég skil ekki afhverju er verið að troða einu stykki rassi framan í mig, að mér óforspurðri.

En ég skil að túrtappi sé skilgreindur sem lágvaxinn alki.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Sá eiginlega alltof mikið... aðeins meira en pípó

Heiða Þórðar, 15.1.2008 kl. 00:48

2 identicon

Ef að hann blikkaði þér ekki með "Brúna auganu" þá ert þú safe! 

Jói Dagur (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 01:13

3 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Rassmus og Rassmína

Einar Bragi Bragason., 15.1.2008 kl. 01:46

4 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Hæ Heiða og takk fyrir innlit hjá mér, las fyrri færsluna og las líka það sem stóð ekki berum orðum.....þekki það líka.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 15.1.2008 kl. 01:48

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 15.1.2008 kl. 02:06

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.1.2008 kl. 08:32

7 Smámynd: Margrét M

eða rennt korti í raufina ..

Margrét M, 15.1.2008 kl. 09:43

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hata hettupeysur, og rassa sem sjást óvart á karlmönnum, algjört törnoff að sjá þessu íslensku, náfölu fyrirbæri nánast uppi í fésinu á manni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.1.2008 kl. 10:57

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

rassgatsrúsínudúllan mín

Hrönn Sigurðardóttir, 15.1.2008 kl. 11:29

10 Smámynd: Fiðrildi

Það skemmtilegasta sem ég hef lesið leeengi  Þú ert frábær !

Fiðrildi, 15.1.2008 kl. 13:18

11 Smámynd: Sigrún

Meina hvað á maður að segja !rassar eru til að horfa á
Rassar sjást ekkert óvart það er ekki gott að vera með hélaðar rasskinnar Heiðia hann hefur bara viljað að þú hefðir séð á honum RASSkinnarnar

RASS hér Rass þar

RASSAR eru allstaðar

ég fíla dilla dilla ég fíla dilla dilla

sko sagði það !

Sigrún, 15.1.2008 kl. 13:58

12 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Var hann ekki mikið rassgat?

Einar Örn Einarsson, 15.1.2008 kl. 17:55

13 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já það er hægt pæla í ýmsu - eeen ég hafði aldrei pælt í þessu sama ber rass og hettupeysan á hausnum og jafnvel húfa undir!  Hvað er þetta?

Edda Agnarsdóttir, 15.1.2008 kl. 19:09

14 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

SVarið til Eddu er einfaldlega gömul saga og ný...TÍSKA!

Eða það sem einum eða fleiri er komið til að gera og fleiri og fleiri herma svo eftir!

En ekkert nýtt undir sólinni,allavega varð það einhver bulltíska fyrir 25 eða meira árum að kallar fóru að ganga í þröngum gallabuxum og ei klofsíðum svo sást í blessaða skoruna, eða boruna!

Annars hefði ég nú alveg viljað standa aftan við þig Heiða mín þarna í röðinni, með þinn "guðdómlega" á skaki!

Magnús Geir Guðmundsson, 15.1.2008 kl. 19:48

15 Smámynd: www.zordis.com

  Hvaða rassatal er á þér kona.  Er eitthvað sætara en loðinn rass (var hann ekki örugglega loðinn) .... þú hefðir getið smokrað hendinni niður og iljað á þér klakafreðna hönd þína.  ......."eða þannig" ......  

Get ekki annað en hlegið af túrtappanum og því sem hann stendur fyrir  

www.zordis.com, 15.1.2008 kl. 20:15

16 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ojjj hata pípara, fer alltaf í kleinu ef ég slysast til að sjá soleiðis.  knús

Ásdís Sigurðardóttir, 15.1.2008 kl. 22:57

17 identicon

Ekki datt mér þetta í hug!     Keep on Writing!

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 02:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband