Ég er fluggáfuð

Ég er specialisti í að endurnýta rusl. Ef ykkur vantar ráðleggingar eða þurfið að losa ykkur við, getið þið leitað til mín.

Sá síðasti var alltof gamall. Hann reykti of mikið og drakk einsog svín! Svo vitavonlaus að á morgun fer hann í endurvinnsluna með hinum þrem, sem þangað hafa lent á þessu ári.

Það verður að segjast einsog er að þeir hafa sótt í mig, þessir köldu, gömlu, ryðguðu kynköldu andskotar (afsakið orðbragðið...) en þetta er í engu ofsagt.

Nú í kvöld yngdi ég upp. Aðeins farið að slá í hann; en hann er yngri en ég....þó nokkrum árum meira að segja. Hann lofar góðu. Er hlýr og notalegur og nokkuð fallegur að innan. Myndi nú ekki segja að það sem snýr að  útlitinu sé eitthvað sláandi fallegt. En fegurðin kemur að innan, ekki satt? Hann reykir lítið sem ekkert. Míglekur hvorki, né á við drykkjuvandamál að stríða. Ég datt í lukkupottinn, þennan eina sanna, sem alltof oft, virðist vera að flækjast fyrir fótum mínum, þessa dagana.

Nú eru tveir bílar í hlaðinu. Þangað til á morgun. Þvílík snilld. Þarf ekki að stoppa á leið í vinnu til að fylla á frekan tankinn. Algjör forréttindi að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að springa í loft upp á þessari 18 1/2 mín. leið sem tekur mig að keyra til vinnu.

Svo ofan á þessa hamingju mína er ég fluggáfuð í þokkabót!

Jebb;

...veit til að mynda að á móti hverjum 100 stúlkum fæðast 106 drengir!

Svo veit ég líka að Bangladesh er þéttbýlasta land heims með um 11.000 manns á ferkílómetra.

Maðkar eru hreint afbragð (bestir) til að hreinsa sár....og lengsta bók í heimi er 2,3 milljón síður í 36.381 bindum....

Að vísu væri ég ekki svona fluggáfuð nema fyrir tímaritið; Lifandi vísindi.

Góða nótt og heillaríkan dag sem er að vísu runninn upp.... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Heyrðu mig fröken fluggáfuð, er gaurinn að uppfræða þig svona eða ertu bara svona eldklár. ??

Ásdís Sigurðardóttir, 12.10.2007 kl. 00:40

2 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Veit Ásdís ekki að þú ert að tala um bíla?  Annars - gleðjumst yfir gáfum - flug - sem annarskonar.  Og hvar þú nærð í gáfurnar - er ekki málið........ Þú ert komin með þekkinguna inn á þitt yfirráðasvæði og getur þar af leiðandi eignað þér þær!

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 12.10.2007 kl. 08:53

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ertu að meina þetta með ánamaðkana ?  Í alvöru, ekki að ég sé mjög ginkeypt fyrir þessu, en það má alltaf hafa í huga, ef annað dugir ekki til að sótthreinsa.  Til lukku með nýja bílinn annars.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.10.2007 kl. 08:59

4 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Til hamingju með þann nýja, reyklausa, óleka, hlýja og notalega kæra vinkona Og ég hef alltaf vitað að þú værir stórgáfuð, veit ekki hversu gáfaðar flugur eru

Sigrún Friðriksdóttir, 12.10.2007 kl. 09:15

5 Smámynd: Margrét M

til hamingju með þann nýja alltaf gaman að skipta sértaklega ef sá gamli er ekki að standa sig . 

Margrét M, 12.10.2007 kl. 09:28

6 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Vissirðu að í einhverju þorpi í Afríku eru notaðir blóðmaurar til að loka opnum sárum????? Mig langaði bara svo að vera gáfuð líka he he he En þetta er samt satt. Mikið var ég fegin að þú varst að tala um bíla því það fyrsta sem ég hugsaði var hefur hún enga sjálfsvirðingu konan að velja sér svona menn þrátt fyrir alla þá fegurð sem hún hefur upp á að bjóða Úfff....bara bíll...hjúkket.....Stórt knús á þig og eigðu góðan dag

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 12.10.2007 kl. 11:52

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju - bæði með nýja bílinn og ekki síður gáfurnar - þær koma til með að fleyta þér langt.......

Hrönn Sigurðardóttir, 12.10.2007 kl. 12:10

8 Smámynd: Ólafur fannberg

góða helgi gamla

Ólafur fannberg, 12.10.2007 kl. 15:31

9 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Fín regla að þeir séu með símareikning á gemsanum sínum.... set stórt spurningamerki við karlmenn sem eru með frelsiskort!! Ef þeir ráða ekki við einn símareikning....
OG... önnur fín regla er einmitt að hafa þá soldið...lesist töluvert yngri... þeir eru barasta svoooo miklu skemmtilegri!!!!  Þessir mígleku eru oft svona sófakartöflur.. óþolandi!
Og þekkja amk þrjú lög sem hafa komið út á þessari öld! Algjört möst!

Ég er ekkert fluggáfuð í dag.... nema í endurvinnslu og nýtingarmálum :)

Heiða B. Heiðars, 12.10.2007 kl. 17:02

10 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Lifandi vísindi eru snilld...! Til hamingju með bílinn

Sunna Dóra Möller, 12.10.2007 kl. 19:19

11 Smámynd: www.zordis.com

Ég er búin að lesa og lesa og lesa í allan dag, leysa verkefni og lét leka úr Faustino VII frá Rioja hérði í brúðkaupskristal ...

Helgarknús til þín og sólarinnar og ungherrans og ungburrans!

www.zordis.com, 12.10.2007 kl. 22:11

12 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Ég hélt nú að Monaco væri þéttbýlast landið - en hvað veit ég

Halldór Sigurðsson, 12.10.2007 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband