...með hausinn í eigin rassgati...

Í  bloggheimum hafa margir skoðanir á allt og öllu. Einhvernveginn finnst mér einsog flestir haldi að þeir búi yfir hinum eina sanna sannleika. Við erum flest svona mini-guðir. Höldum að þegar við ýtum á enter þá hristist og skelfist umheimurinn allur sem einn...þegar sannleikurinn misfagur lítur dagsins ljós. Öll erum við föst með hausinn í eigin rassgati.

Málið er bara; að aðeins 0,00 prósent af viti bornu fólki les það sem ég skrifa og það sem aðrir skrifa. Það er það fyndna  í þessu öllu saman. Algjörlega snilldin ein sérstaklega þegar litið er til þess að fólk er tilbúið að lífláta fólk áður en það lítur lífið augum, eða þannig.

Nú til að mynda hefur presturinn á Selfossi verið hengdur, skotinn, grafinn og urðaður svo ekki sé talað um greftraður og krufinn og það án dóms og laga. Skítlegt eðli blómstar sem aldrei fyrr. Nú sitja ekki lengur kerlingar og karlar við mosgræna, myglaða gluggakistu og skiptast á kjaftasögum í útúrtættum jogginggalla og snýta sér þess á milli þegar reykinn úr sígarettunni er soginn...

Nei, -bloggið er málið. Bloggið er málið fyrir útrás af þessum toga. 

Eggja-fréttakonan þarna um daginn var rifin í tætlur...og nú eru það  Jakob Frímann og Ólafur F sem teknir eru í rassgatið. Ég einhvern vegin efa að þeim finnist það gott...hvað þá fjölskyldum þeirra. Hvað þá nokkrum yfir höfuð.

Svo er þetta auðvitað snilldarheimur til að tala undir rós. Til að myrða, særa, skemma og meiða. Þetta er framtíðin. Og hún er björt...afar björt.

Njótið hvítasunnuhelgarinnar í tætlur...njótið hvors annars... 

Tóku þið eftir að ég sagði flestir? Örugglega setjið þið ykkur ekki undir þann hatt...heldur þann sama og ég set sjálfa mig undir... Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Heitir að hafa skoðanir.... og það má ;)

Heiða B. Heiðars, 8.5.2008 kl. 23:20

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

...og dæmin sem þú tekur eiga við um opinberar persónur sem fá launin sín greidd úr okkar vasa

Heiða B. Heiðars, 8.5.2008 kl. 23:20

3 Smámynd: halkatla

þetta er ótrúlega góður pistill!

"Höldum að þegar við ýtum á enter þá hristist og skelfist umheimurinn allur sem einn..."

halkatla, 8.5.2008 kl. 23:24

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nefnilega Heiða! Ég ætla ekki að reyna að segja þér hversu mikið ég hlæ að færslum þar sem fólk virkilega heldur að það meiki einhvern diff......

Hrönn Sigurðardóttir, 8.5.2008 kl. 23:32

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heiða Heiða Heiða...alls enganveginn sammála þér frekju-dollu-dósin þín! Þó að þetta séu opinberar persónur höfum við engan rétt á að úthúða þeim! En auðvitað höfum við rétt á að hafa skoðanir...ég var annars ekki að tala um þinn annars góða pistil...hehehe -frábært, þú tókst þessi ummæli til þín...vertu velkomin undir minn hatt...bara gaman

OG presturinn er saklaus uns sekt er sönnuð! Þú sannfærir mig aldrei um neitt annað

Helga við erum í sömu húfunni elskan. Dreymi þig fallega.

Hrönnsla; við hlæjum saman

Anna Karen;

Heiða Þórðar, 8.5.2008 kl. 23:36

6 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Þú ert nú bara snilld þú ert nú bara snilld(Bæ jæb bæ bæ bæ bæ)

Einar Bragi Bragason., 8.5.2008 kl. 23:41

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Auðvitað tók ég þetta til mín! En það er nú bara vegna þess að ég VEIT að umheimurinn hristist og skelfist þegar ég ýti á ENTER

Heiða B. Heiðars, 8.5.2008 kl. 23:41

8 Smámynd: Heiða  Þórðar

Það er þetta sem ég segi; föst með hausinn í eigin rassgati

Kaffi? var að fá mér nýja könnu

Heiða Þórðar, 8.5.2008 kl. 23:44

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

"0,00 prósent af viti bornu fólki" og þú segir að við séum að dissa fólk.

Ég er ein af þessum hálfvitum sem les hér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.5.2008 kl. 23:46

10 Smámynd: Heiða  Þórðar

Jenný þú komst með það! ég sagði aldrei neitt um að þú værir að dissa einn eða neinn...fyndið hvernig hver tekur hvað...skiljú!?

Heiða Þórðar, 8.5.2008 kl. 23:48

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég bendi þér aftur á það sem þú skrifar um þá sem lesa síðuna þína.

Þetta er líka voða fallegt og gerir okkur kvikindunum með skoðanir á þjóðmálum skömm til:

"Skítlegt eðli blómstar sem aldrei fyrr. Nú sitja ekki lengur kerlingar og karlar við mosgræna, myglaða gluggakistu og skiptast á kjaftasögum í útúrtættum jogginggalla og snýta sér þess á milli þegar reykinn úr sígarettunni er soginn... "

og..

"Svo er þetta auðvitað snilldarheimur til að tala undir rós. Til að myrða, særa, skemma og meiða. Þetta er framtíðin. Og hún er björt...afar björt."

Og svo er ég farin.

Takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.5.2008 kl. 23:52

12 Smámynd: Heiða  Þórðar

Og ég meina hvert eitt og einasta orð.

Vill samt taka fram að lokum; þú ert ekki bloggið Jenný. Bloggið er ekki þú. Mér skilst að það séu einhver þúsund að blogga.

Líka farin....og takk fyrir mig. 

Heiða Þórðar, 8.5.2008 kl. 23:57

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég vil bara bjóða þér góða nótt stelpa og sofðu rótt og bretinn er lofaður.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.5.2008 kl. 23:59

14 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ég var eiginlega að tala um þetta sem hann hélt á sko...

Heiða Þórðar, 9.5.2008 kl. 00:03

15 Smámynd: Gísli Torfi

1 Þótt ég talaði tungum manna og engla,
en hefði ekki kærleika,
væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
2 Og þótt ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking,
og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað,
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki neitt.
3 Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum,
og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að verða brenndur,
en hefði ekki kærleika,
væri ég engu bættari.
4 Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður.
Kærleikurinn öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
5 Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,
hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
6 Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum.
7 Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
8 Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok,
og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.
9 Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum.
10 En þegar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok, sem
er í molum.
11 Þegar ég var barn, talaði ég eins og barn,
hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn.
En þegar ég var orðinn fulltíða maður, lagði ég niður barnaskapinn.
12 Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu,
en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
Nú er þekking mín í molum,
en þá mun ég gjörþekkja, eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.
13 En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt,
en þeirra er kærleikurinn mestur.
1 Kol 13 1-13

Gísli Torfi, 9.5.2008 kl. 05:40

16 Smámynd: Ester Júlía

Frábær pistill Heiða og mikið rétt .

Eigðu sömuleiðis yndislega hvítasunnuhelgi

Ester Júlía, 9.5.2008 kl. 08:35

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég tók hausinn smástund úr rassgatinu á mér og las þessa færslu.  Þörf ábending mín kæra.  Ég er auðvitað ekki saklaus af kjaftasögum.  Ég er ósátt við meðferðina sem Lára Ómars fékk, og finnst hún hafa samt komið vel út úr þessu.  hennar atvinnurekendur áttu ekki að taka uppsögnina til greina, það er mín skoðun.  Þeir misstu frábæran fréttamann.

Aftur á móti með Séra Gunnar, þá hefur hann alla tíð haft orð á sér fyrir að "vera í smástelpunum".  Hann var prestur í Bolungarvík, og þar voru sífellt á kreiki svona sögur.  Hann fór síðan í Fríkirkjusöfnuðinn, þar var um hann styr, að vísu af öðrum toga, sem var stríð frú Ágústu við kórinn ef ég man rétt, en Ágústa er konan hans.  Síðan var hann í Holti í Önundarfirði, þar skrifaði hann um sóknarbörn sín á þann hátt að allt varð vitlaust.  Mér líkaði alltaf vel við Séra Gunnar, hann er ljúfur, og mikill tónlistamaður og sellóleikari.  En ég held að menn uppskeri eins og þeir sá.  Ég trúi nefnilega stúlkunum, en ég segi líka ég er alveg viss um að þessi brot eru ekki gróf eða alvarleg, en samt nóg til þess að misbjóða viðkvæmum ungum konum.  Ég man aldrei eftir að séran fyndi hjá sér þörf til að faðma og kyssa mig til dæmis, enda er ég komin af léttasta skeiði. 

Svo finnst mér einkar óviðfeldin málfluttningur hans og lögmannsins hans um að stúlkurnar geri ekki greinarmun á hlýju faðmlagi og káfi.  Ég þori að leggja hausinn á mér að veði um að fólk - allir - gera sér nákvæmlega grein fyrir, hvenær er um hlýju og væntum þykju að ræða eða káf og kukl.  Það er bara þannig. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2008 kl. 10:49

18 Smámynd: Sævar Einarsson

Það halda voða margir ofurbloggarar að þeir séu bloggið, mjög góður pistill hjá þér og segir flest allt sem segja þarf.

Sævar Einarsson, 9.5.2008 kl. 10:58

19 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Bloggið er nú einu sinni til að hafa skoðanir sína í frammi.
En Heiða mín margir eru víst afar dómharðir og þeir eiga það við sig það er þeirra skoðun á þeirra síðum.
Ég hef nú ekki heyrt neinn setja út á Jakob Frímann, enda örugglega frábær náungi, en ef ég væri borgarbúi mundi ég vilja vita í hvað skattpeningarnir mínir færu í, og að farið sé eftir lögum og reglum.
Svo er það þetta með prestinn, engin hefur hengt, skotið eða grafið hann nema hann sjálfur.
                                Góða helgi og frið í hjarta
                                          Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.5.2008 kl. 11:11

20 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásthildur segir allt sem ég nennti ekki að rita upp og tek ég undir með henni.
                                   Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.5.2008 kl. 11:13

21 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

já, þetta að dæma aðra, hef svo oft bloggað um það, því dæmum við aðra, dæmum við okkur sjálf, við erum eitt með öllu, það er sennilega handleggurinn sem gerir þessa vitleysu, á meðan maginn horfir forviða á og fóturnn sparka til til dauða, og sálin fyllist sorg.

hafðu fallegust helgina og takk fyrir góða færslu.

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.5.2008 kl. 11:35

22 Smámynd: Gísli Hjálmar

Heiða!

Það er nú einfaldlega þannig að tjáningarfrelsið er ein og grunnforsendum lýðræðisþjóðfélaga. Við Íslendingar teljum okkur lýðræðisþjóðfélag. Á þeim forsendum er ekkert skrítið að við sem almenningur höfum skoðanir á málum og málefnum - það er bara þannig.

Hvernig við tjáum og birtum skoðanir okkar er annað mál. Þar verður að sjálfsögðu að gæta velsæmis og virðingar fyrir öðrum og þá sérstaklega skoðunum annarra.

Sumir mætir menn hafa láð máls á því að gagnrýni á störf og atferli annarra sé í raun virðing fyrir því sem viðkomandi stendur fyrir, en ekki öfugt. Það er að segja; menn sem telja sig þess umkomna að þiggja laun af samfélaginu verða að þola að þeir sem og athafnir þeirra verða að þola dagsljósið og ekki síst að það byggi á almennum leikreglum samfélagsins.

... og ég er örugglega ekki mannanna beztur í þeim efnum. 

 ...  

Gísli Hjálmar , 9.5.2008 kl. 11:38

23 Smámynd: Heidi Strand

 Heiða, Þetta er vel sagt og er ég þér innilega sammála. Ég var einmitt að bera bloggið saman við kjaftakerlinganna.
Allt sem fer á netið fer ekki þaðan aftur og ef eitthvað er eydd, eru alltaf til afrit.
Margt kemur upp ef fólk er googlað meðal annars athugasemdir á bloggfærslur.

Heidi Strand, 9.5.2008 kl. 12:54

24 Smámynd: Heiða  Þórðar

Gaman að lesa athugasemdir ykkar og skoðanir ...takk. Gíslarnir eru auðvitað snilld. Heidi og Steina flottar og Ásthildur mín takk elskan.

Heiða Þórðar, 9.5.2008 kl. 18:11

25 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Mín Kæra Heiða.

Kannast við mitt skítlega eðli og vil koma því sem mest og best já á framfæri. Til dæmis svona við þig.

Engan hátt er eðlileg,

ynnsta hjartans hvötin mín.

En glaður myndi Geiri ég,

gerast RASSGATSSESSAN þín!

Og nei, tæki því heldur ekki krónu fyrir það, frekar en aðra "greiða"!

Kveðja með rafrænum kossi fingra!

Magnús Geir Guðmundsson, 9.5.2008 kl. 18:12

26 Smámynd: Gísli Hjálmar

Á ekkert að fara að rífa bótox-fyllinguna útúr rassgatinu á sér, ha?

Gísli Hjálmar , 9.5.2008 kl. 22:24

27 Smámynd: Gísli Hjálmar

... það vantar blogg manneskja!

Gísli Hjálmar , 9.5.2008 kl. 22:24

28 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heiða Þórðar, 9.5.2008 kl. 23:02

29 Smámynd: www.zordis.com

Gott að ná andanum annað slagið .... til í hattapartý hvenær sem er!!!!

Alheimsvitundin stýrir geðlaginu svo það er aldrei að vita hvort eitthvað sem ritað er kemur úr sjálfu svarta styrninu eða rósrauðum munninum.

Annars er ég hrifin af "fíbblum" .......... yellow sunny life!

www.zordis.com, 9.5.2008 kl. 23:20

30 Smámynd: Ásgerður

Vá hvað ég er alltaf sammála þér, ótrúlegt alveg

Það taka þetta til sín sem eiga. 

"Höldum að þegar við ýtum á enter þá hristist og skelfist umheimurinn allur sem einn..."

Þessi setning hér að ofan, er með þeim betri sem ég hef séð lengi

Knús á þig mín kæra

Ásgerður , 10.5.2008 kl. 08:43

31 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

I love it  Einn af þinum bestu pistlum Heiða er eiginlega viss um að þú stappaðir niður fæti í réttlátri reiði þegar hann var skrifaður. Vona að við bloggarar höfum þessi orð í huga áður enn ytt er a enter

Jón Aðalsteinn Jónsson, 12.5.2008 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband