Það eru vissulega bjartir tímar framundan...

Jæja...

...er lífið ekki dásamlegt ? Mér finnst það... ætla að sækja um einkarétt á nafnauppbót og fá hana steypta í mót og bera á höfðinu líkt og kórónu sem ekki stingur; Heiða Bjartdal....eða Bjartlund...Wink bæði rímar svo undurlétt eitthvað... kannski ég skelli mér á bæði.

Ég var að velta því fyrir mér í gær (fæ bestu hugmyndirnar alltaf í baði) að nú væri lag fyrir konur að  hætta þessum pyntingum og niðurskurði með bitlausum rakvélablöðum á óæskilegum hárvexti. Láta allt vaxa villt og frjálst og óáreitt...ekkert vax eða líkamsmeiðingar; nei bara back to the basic; -welcome to the jungle thing....

Hvað er meira sexy en órakaðir fótleggir? Ekki neitt! Útrýmum sokkabuxum...og nærbuxum...

... með þessu þyrfti ekki að endurnýja nema hluta af nærbuxnaskúffunni ...og ekki einu sinni hluta...allt heila draslið! Hefur maður til lengri tíma litið efni á að geyma brjóstin á sér í skálum...?

Verða yfirleitt nokkur brjóst eftir á manni þegar horfir í að maður hefur ekki efni á að kaupa sér að borða / éta ...nema hvort tveggja sé?

Skítt með brjóstin...var að hugsa um tennurnar. Mér þykir vænt um tennurnar mínar.  Þær hljóta að að losna vegna næringarskorts og detta loks úr manni... en svo fór ég að hugsa; jafnvel það er alls ekkert svo galið, hvað þá slæmt!

Hægt væri að útbúa lekkera skál úr einustu óslitnu brjóstarskálinni og safna og geyma allar þær tennur sem hrynja úr fjölskyldumeðlimum, löngum grönnum og ekki svo feitum.

Svo sameinast fjölskyldan á köldu haustkvöldi og nýtir tennurnar í eitthvað nytsamlegt einsog tildæmis að spila spil....teningaspil...W00t verðlaunin verða; gleði gleði gleði.

Svo veit ég fyrir víst að allir kossar, kjass og þvíumlíkt verða án stórslysa  ...ábyggilega mun mýkri en þegar tennur og drasl eru til fyrirstöðu.

Kreppan rokkar feitt!

Það eru vissulega bjartir tímar framundan... Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 var ég búin að segja þér það nógu oft í dag að ég elska þig!!

þú ert algerlega EINSTÖK!

ásta B (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 16:56

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Það er nú varla hægt að svara þessu    en ég veit að þú vilt það hvort eð er ekki.      Það sem þér dettur ekki í hug.   Hvað gerist ef þú ferð í sturtu næst?  

Marinó Már Marinósson, 9.3.2009 kl. 18:49

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú ert bara flottust skjóðan mínhalda upp á það.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.3.2009 kl. 19:15

4 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Góður pistill. Jákvæðnin er mikilvægust

Hilmar Gunnlaugsson, 9.3.2009 kl. 20:11

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Mér datt nú í hug a? sni?ugt vœri a? nyta tennurnar í skartgripager?!

Sporðdrekinn, 9.3.2009 kl. 20:23

6 Smámynd: Ómar Ingi

Vissulega

Ómar Ingi, 9.3.2009 kl. 20:25

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

Hugsaði þetta einmitt...en nei gengur ekki upp. Eða jú kannski. Hálsmen...til að draga athyglinga frá bringunni.....öss ætla í bað aftur!

Heiða Þórðar, 9.3.2009 kl. 21:40

8 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Mikil bjartsýni í gangi. Hún lifi

Guðrún Þorleifs, 10.3.2009 kl. 00:23

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Snáfaðu aftur í bað stelpa,,,,,,mér líst vel á kórónu á kollinn á þér með Bjartlund  

Solla Guðjóns, 10.3.2009 kl. 01:38

10 identicon

Þú drepur mig, vertu sem lengst og oftast í baði.............

kveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 09:03

11 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 villingurinn thinn thaddna! heheh..en já,fardu sem oftast i bad bara

María Guðmundsdóttir, 10.3.2009 kl. 09:14

12 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Rósa Aðalsteinsdóttir, 10.3.2009 kl. 12:41

13 Smámynd: Gísli Torfi

Segi eins og Liebe from Egde      "   var ég búin að segja þér það nógu oft í dag að ég elska þig!!

þú ert algerlega EINSTÖK!  "

Gísli Torfi, 10.3.2009 kl. 18:14

14 Smámynd: egvania

Heiða mér datt nú í hug að skipta um kennitölu og nafn ég er að fara í svona tanngróðursetningu og það kostar bara svona litlar 600.000.00.

Einnig hefur mér dottið í hug að segja upp þjóðfélaginu svona eins og mogganum, þá getur skatturinn fokið, og allur svona óþarfi sem við erum að borga.

 Mér var sagt að ég væri geðveik þetta væri nú ekki hægt.

Æi ég vissi það nú fyrir að ég væri geðveik

egvania, 10.3.2009 kl. 23:38

15 Smámynd: Heiða  Þórðar

Yndislega fólkið mitt...

Heiða Þórðar, 10.3.2009 kl. 23:45

16 Smámynd: www.zordis.com

Svona þegar þú nefnir það, lundin er björt! Spurning að fá sér nautalund í kvöld og birta til í brjósti.

KNús á þig bjarlunds skott ... hottý hott!

www.zordis.com, 11.3.2009 kl. 07:35

17 identicon

Hæ, Heiða.

Já, það er bjart framundan og ekkert getur breytt því.

Kærleikskveðjur til þín og þinna.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 05:01

18 Smámynd: Aprílrós

Mín elskuleg ;) jákvæðni og bjartsýni er það sem þarf í dag.

Kossar, knús og kreist á þig mín elskuleg ;)

Aprílrós, 12.3.2009 kl. 10:58

19 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Er væmnin að taka völdin þar eins og hér. Þú ert bara yndi eins og alltaf

Linda Lea Bogadóttir, 13.3.2009 kl. 02:44

20 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ég fann það á mér að ég þyrfti aðeins að kíkja hér inn:)  Nú er ekkert annað að gera en að fara í apagírinn.  Loðið er heitt og flott.  Loðnir leggir, hlýjir leggir. Verst að við höfum ekki bringuhár, en það má greiða undan handakrikunum til hliðanna.  Allt verður þetta svo komið í tísku þegar allir eru orðnir eins. Nælonsokkabuxur eru úreltar, nú stela menn rollum og spinna ull. Nota hornin sem drykkjarílát líkt og forðum. Skeina með vinstri og heilsa með hægri ala Kína. Tennur eru til að tyggja fæðu - engin fæða - engar tennur. Hvað er fallegra en tannlausu brosin? sko!  Allir verða komnir í stærð 10 áður en við vitum af. Íslenskar konur munu bera af hvað varðar náttúrlegt útlit og grannan líkama...............

Viva kreppan

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 15.3.2009 kl. 23:57

21 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heiða Þórðar, 16.3.2009 kl. 11:22

22 identicon

Á ég ekki bara að gefa þér ný og beitt rakvélarblöð esskan?

Veraldarálfurinn (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 21:26

23 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 17.3.2009 kl. 22:13

24 Smámynd: Guðmundur Zebitz

Ég hef því miður ekki kíkt inn lengi en Heiða.... Þú ert snilli! 

Guðmundur Zebitz, 18.3.2009 kl. 01:49

25 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar kveðjur...:0)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 18.3.2009 kl. 22:51

26 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég hef áður sagt & skrifað...

Loðnar, lyktandi & bitlauzar...

Steingrímur Helgason, 22.3.2009 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband