Hefurðu heyrt í tussunni?

Mamma gaf mér Biblíuna sína fyrir um fjórum mánuðum síðan. Bíblíu sem hún hafði fengið í fermingargjöf árið 1963.

Ég hef ekki lesið hana eða þá sem ég fékk í fermingargjöf frá Imbu ömmu. Í nótt þegar ég skreið upp í rúm tók ég Biblíuna með mér. Ég opnaði bókina og innihaldið þ.e. Orðið sjálft datt úr kápunni í fangið mér.  Ég hugsaði;

-uss..þokkalega slitinn þessi...ætli hún hafi lesið hana? Og svona rosalega mikið?

Á annari blaðsíðu hafði hún skrifað til mín orðsendingu sem ég hafði aldrei tekið eftir, svohljóðandi og orðrétt með skjálfandi rithönd;

Heiða Fallega og góða dótir ég Elska þig ástin mín og Sóldísar. Elsku dótir mín það er svo gott að gefa þér bók. Ég elska þig þú ert ég þakka elska þig þú. Jesús Elskar Fallegu dótir mína. Guð blessi þig.

Allar mínar bleikustu og mýkstu tilfinningar liðuðust um kroppinn þegar ég hugsaði til hennar í algjörum vanmætti þó. Þar sem ég veit að eitt það dýrmætasta sem við eigum er tíminn,  ákvað ég að gefa mömmu smá tíma. 

Ég trúi á Guð og alla hans gæja. Ég trúi líka og veit að þó ekki sé allt gagnlegt sem ég geri...er mér allt leyfilegt. Allt. Ég blóta ekki ( ok ok...reyni) ...lýg ekki, stel ekki...en þetta allt hef ég gert af þvílíkum eldi að skrattinn missti mikið þegar hann missti mig! Nei nei, segi svona....

...mamma blótar. Í dag var hún næstum búin að drekkja mér í blótsyrðum og neikvæðni. 

-hefurðu heyrt í helvítis tussunni?

-nei mamma, hef ekkert heyrt í henni...(veit ekkert um hvaða tussu ræðir...-langar eiginlega ekkert að vita það...)

-djöfull er hún ógeðslega ljót og feit þessi. Sérðu hökuna á henni? Algjör viðbjóður! ojbarasta...(dama í sjónvarpinu)

-hættu að blóta...í öllum bænum....hættu að blóta!

Vitiði ...fyrir mér lítur þetta svona út;

Sá sem talar svona um niðrandi um aðra...er að tala í spegil um sjálfan sig. Líðan viðkomandi er hörmuleg og lítt eftirsóknarverð. Hvort sem hann er veikur á geði eða ekki. Og áfram elska ég hana mömmu mína...þó ég viðurkenni að ég gleðst yfir þeim rétti mínum að mega skella "kvóta" á þessa elsku...því undir venjulegum kringumstæðum  forðast ég einsog logandi helvíti; kjaftablaður, baktal og neikvæðni...

Góða nótt og takk enn og aftur öll...Heart hef nú þegar skilað kveðju til Gilla Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vitaskuld elskarðu mömmu þína! Maður elskar alltaf mömmu sína. Hún er jú sú einasta eina sem maður á

Hrönn Sigurðardóttir, 25.1.2009 kl. 00:13

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Mér finnst svo frábært hvernig þú tæklar mömmu þína, hvernig þú elskar hana þrátt fyrir allt ....var ekki eitt boðorðanna á þá leið..heiðra skaltu föður þinn og móður, samt virðast sumir hugsa sem svo...... bara ef þau eru góð skemmtileg og heilbrigð. Þú hefur svo fallegt hjartalag Heiða..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 25.1.2009 kl. 00:20

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.1.2009 kl. 00:23

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Mæður eru mæða mikil ...

Steingrímur Helgason, 25.1.2009 kl. 00:38

5 Smámynd: www.zordis.com

Við elskum alltaf mömmu okkar og það er né verður engin breyting þar á! Hrein og skilyrt ást svipuð ef ekki sú sama sem við gefum börnum okkar.

Tár sem gufar upp í andlegri gleði, gjöf til andans!

www.zordis.com, 25.1.2009 kl. 01:04

6 Smámynd: Ómar Ingi

Við vitum allavega hvaðan þú færð orðaforðann þinn Dúlla

Ómar Ingi, 25.1.2009 kl. 01:18

7 Smámynd: Sporðdrekinn

Átin er skrítið fyrirbæri svona rétt eins og við mannfólkið, alveg óútreiknanleg. En mömmu ástin, ég held að hún sé alltaf til staðar, bara misjafnlega langt að sækja hana inni í hjartanu.

 á þig

Sporðdrekinn, 25.1.2009 kl. 02:19

8 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Sigrún Friðriksdóttir, 25.1.2009 kl. 03:06

9 Smámynd: Gísli Torfi

Hún Heiða mín góðir landsmenn nær og fjær " er Engill" 

Heiða er nánast allt sem endar á " ust"

Knús á Þig Heiða mín

Gísli Torfi, 25.1.2009 kl. 06:23

10 identicon

Hæ,Heiða mín.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 07:43

11 Smámynd: María Guðmundsdóttir

María Guðmundsdóttir, 25.1.2009 kl. 09:57

12 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Sendi þér stórt knús og ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.1.2009 kl. 10:54

13 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ómar ég hló! Ertu nú að skilja hið stóra samhengi?


Takk elsku öll; mitt fallegasta fólk

...ég elska mömmu ekki afþví ég á að gera það og mér er það skilt; ég elska hana óendanlega afþví ég tók ákvörðun um að gera það alltaf, þrátt fyrir allt og allt.   ÉG finn fyrir því í hjartanu... og ég sýni henni það í verki

Heiða Þórðar, 25.1.2009 kl. 11:02

14 Smámynd: Anna Guðný

Já, mamma. Ég elska mömmu mína líka. Vildi samt óska þess að hún væri á lífi.

Anna Guðný , 25.1.2009 kl. 12:07

15 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Ég elska mömmu mína og fjölskyldu mína ofar öllu.Tú elsku Heida ert engill (Í persónu samt)sem ég elska ofar öllu.Tad er bara enginn manneskja sem hefur  snert mig svona mikid á sídustu árum eins og tú.Ég er svo takklát ad vera endurnýja okkar kinni.

Takk fyrir ad vera til kæra Heida og leifa mér ad taka tátt í tínu lífi.

Knús og stórt kram

Gudrún Hauksdótttir, 25.1.2009 kl. 13:06

16 Smámynd: Ómar Ingi

Gott að vita af þér hlæjandi á milli atriða

Já nei ég skil ekki stór samhengi og er slappur í littlum samhengjum líka er líklegast bestur í að hanga eða ganga

Ómar Ingi, 25.1.2009 kl. 13:40

17 Smámynd: Heiða  Þórðar

Vá! takk elsku Guðrún og ég ELSKA YKKUR ÖLL!

Ommi; blótið þ.e... en hef skánað helling...

Heiða Þórðar, 25.1.2009 kl. 14:10

18 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 25.1.2009 kl. 14:30

19 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábært hvernig þér tekst að takast á við þetta allt saman duglega stelpa

Ásdís Sigurðardóttir, 25.1.2009 kl. 15:47

20 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Þú gætir tekið upp á því að fækka blótsyrðum með því að skammstafa þau: fyrsta skref.  

Sálin í þér er svo ljúf að þú mátt ekkert vont vita. 

Marinó Már Marinósson, 25.1.2009 kl. 16:20

21 Smámynd: Aprílrós

Kærleiks ástar knús Heiða mín ;)

Aprílrós, 25.1.2009 kl. 18:16

22 Smámynd: egvania

 Heiða þú ert algjört æði, við veljum okkur ekki mæður (  nema bara mín börn gerðu það ) ekki ég segi það satt.

egvania, 25.1.2009 kl. 18:54

23 Smámynd: Heiða  Þórðar

knús frá mér

Heiða Þórðar, 25.1.2009 kl. 23:44

24 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Heiða ég hef ekki getað látið vondu orðin sem mín segir við fara útum hitt eyrað stundum er hún ósköp góð en svo veit maður aldrei hvenær maður "lendir í henni" og þá tek ég hana svo nærri mér að ég  leggjast i veikindi og breyði yfir haus, og vil bara vera þar. enda fátt viðbjoðslegra en ég í hennar augum. Samt er þetta manneskja sem mætir á allarvakningarsamkomur og er þá með spariframkomuna, voðalega almennileg og sæt, hún er ein af þeim sem lemur fólk með Biblíuversum. já þetta er skrýtið ég var farin að hata Biblíuna þangað til ég fór að lesa hana alla og komst að því að móðir mín hvaði eftir hentisemi slitið texta úr samhengi til að nota þá í sína þágu til að "ná stjórn"

Guðrún Sæmundsdóttir, 26.1.2009 kl. 01:30

25 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Heiða mín.

Þú ert til fyrirmyndar gagnvart móður þinni.

Ég elskaði móður mína og elska minningu hennar. Ég sakna hennar þó það séu 40 ár síðan hún þurfti að fara frá okkur vegna veikinda. Það var svo sárt.

Megi almáttugur Guð styrkja þig og styðja.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 26.1.2009 kl. 01:34

26 Smámynd: Bergur Thorberg

Það er ótrúlega gefandi að lesa þessi skrif þín. Þau bæta sálina og gefa manni einhvern kraft. Hreint og beint og eitthvað svo áreynslulaust. Þú heldur áfram að skrifa. Annars er mér að mæta. Eigðu góðan dag og alla daga. kv. Thorberg

Bergur Thorberg, 26.1.2009 kl. 08:37

27 identicon

Vá hvað þetta er rétt hjá þér með spegilmynd þess sem talar illa um aðra. Það þarf sko ekki mjög veika manneskju til þess. Mér finnst ógnvænlegt hversu margir hlakka yfir óförum náunga sinna, meira að segja ættingja og vina.

Þú ert best

Olga Björt (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 09:03

28 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það eru engin orð yfir hvað þú ert frábær Heiða mín.
Allavega kennir þú fólki að hugsa, hugsa svolítið um hvernig það tekur á sínu lífi. Þú ert nú lík henni ömmu þinni aldrei breytti hún elsku sinni í garð sinna og ef mamma þín hefði ekki lent svona illa út úr lífinu þá hefði hún örugglega ekki verið svona hræðilega skemmd og bitur.
Ljós til þín bestust.
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.1.2009 kl. 10:27

29 identicon

Það er svo erfitt að horfa framhjá sjúkdómnum ljóta og öllum þeim fylgifiskum sem honum fylgja,og elska manneskjuna en hata sjúkdóminn.Þú ert svo frábær

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 08:09

30 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

þetta er góð og þörf umræða hjá þér Heiða,  ég held að mikilvægast sé til að lifa góðu lífi þrátt fyrir að eiga geðveikt foreldri sé að vera heiðarlegur við sjálfan sig, ég fór  í afneitun til að þola við, og tileinkaði mér  einhvern "þroska"  eða "kærleiksframkomu" þar til að á endanum upplifði ég engar tilfinningar, gat bara ekki fundið neina gleði eða hryggð og það er ekkert líf. 

Enginn á að láta allt yfir sig ganga endalaust, barn geðsjúkra verður að segja hingað og ekki lengra!!! Þú talar ekki svona við mig eða í mín eyru!! Síðan er það hluti af bata "barnsins" að fyrirgefa í hjarta sínu en það er ferli sem að bænin hjálpar svo sannarlega við, þegar því ferli er svo lokið, kemur svo aftur hæfileikinn til að finna sanna gleði og frið.

Guð blessi þig mín kæra Heiða og allt sem þér er kært

Guðrún Sæmundsdóttir, 27.1.2009 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband