Transsexual fólk og ég....

Ef það hefur farið fram hjá einhverjum; þá er ég kona! Mér finnst forréttindi að vera kona og nýt þess í drasl! Á mínum unglingsárum, fylgdist ég spennt með þegar brjóst byrjuðu að myndast og breytast og stækka. Þeim var tekið fagnandi. Öllu sem viðkom því að barnskroppurinn varð að kvenmannslíkama....var dásamlegt í mínum huga. Allt ferlið yndisleg upplifun.

Ég hef aldrei, ekki eina örstund langað að vera einhver annar eða önnur en ég er. Allra síst karlmaður. Held að ef ég yrði karlmaður (með fyrirvara um að ég fengi að hoppa aftur í kroppinn minn)  í einsog einn sólahring, myndi mér lítið verða úr verki, annað en að fitla við typpið á mér. En það eitt að hafa fæðst í réttu kynhlutverki ber að þakka, daglega. 

Get varla nema aðeins örlítið gert mér í hugarlund, hvernig mér hefði liðið ef ég hefði fæðast í líkama karlmanns. Og varla það. Ekki einu sinni það. Þvílíkt hlutskipti,  vísa ég í það langdregna helvítis ferli og sálarpínu sem einstaklingur þarf að undirgangast til að leiðrétta kyn sitt.  I ofanálag, að  þurfa að standa í stappi við Ríkisvaldið vegna niðurgreiðslu á einsog t.d.: eyðingu líkamshára, brjóstaaðgerðar og raddmeðferðar. Hefði haldið að það væri hluti af pakkanum! Og allt allt allt hitt....

Við sem erum svo fordómalaus og "líberal" í þessu partýi,  hljótum að sjá, að það að vera kvenmaður snýst ekki aðeins um eitt stykki píku! En eins og ég skil þetta, fæst aðeins fjárveiting gagnvart slíkri aðgerð. (leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál)

Ef rétt reynist þá finnst mér þetta þvíklík lítilsvirðing og ekki aðeins gagnvart transsexual fólki, heldur mín líka sem kvenmanns.

Þarf vart að taka það fram að ég er brjáluð! 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Anna mín; mér finnst þetta ömurlegt!!! Kærleiksríkar kveðjur til þín.

Heiða Þórðar, 26.7.2008 kl. 01:10

2 Smámynd: Heiða  Þórðar

Já sá það einmitt....en eins mikið og mér þykir til hans koma...þá er hann nú aðeins punktur í "geiminu"

Heiða Þórðar, 26.7.2008 kl. 01:58

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Það hefur þurft smá tíma fyrir kerfirð að vakna, það er stórt og hreifir sig hægt, mjö..g hæ.......gt

Sporðdrekinn, 26.7.2008 kl. 02:12

4 identicon

Tek undir þetta með þér Heiða ! Þetta eru nú bara sjálfsögð mannréttindi og ættu íslendingar að fara að hysja upp um sig buxurnar í þeim efnum!

Ofurskutlukveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 09:25

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir þetta heils hugar.  Þetta er ótrúlegir fordómar hjá stjórnvöldum.  En þetta er örugglega eitt af því sem þarf að berjast fyrir til jafnréttis þegna landsins. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.7.2008 kl. 09:51

6 identicon

Mun aldrei skilja þetta milli-líkama brölt.

Palli (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 09:54

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

Hélt í einfeldni minni að þetta væri lengra á veg komið...

en hugsið ykkur; Að ennþá skuli þetta aðeins snúa að þeim hluta að skipta út kynfærinu sjálfu! Næ ekki upp í nefið á mér!

Við hljótum að vera sammála um að það að vera kona snýst um svo ótal ótal fleiri hluti!

Heiða Þórðar, 26.7.2008 kl. 10:32

8 Smámynd: Heiða  Þórðar

Palli; það er einn af þeim hlutum sem ber að þakka....þ.e.a.s. fyrir þig...daglega

Fólkinu ætti að sýna þá virðingu að fá fjárhagslegan stuðning og það í gegnum allt ferlið.  

Þó samlíkingin sé köld þá læt ég hana flakka; þú klessukeyrir bílinn þinn og færð réttinguna greidda af þínu tryggingarfélagi...en splæsir sjálfur í lakkið...og annað dútl... 

Heiða Þórðar, 26.7.2008 kl. 10:41

9 Smámynd: Gísli Hjálmar

... nú er ég bara alveg úti að aka með honum Óla eFF vini mínum.

Hélt að karlmaðurinn væri fullkominn sköpun Guðs ...

... þið fenguð nú bara lánað eitt rif úr okkur og hafið ekki skilað því til baka.

Halló ... það á að skila hlutum sem maður fær lánaða.

Gísli Hjálmar , 26.7.2008 kl. 10:59

10 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ég trúi á Guð...trúi líka á hið illa....

Rif býður þín í Bónus....merkt þér

Heiða Þórðar, 26.7.2008 kl. 11:27

11 Smámynd: Ásgerður

Ertu kona ?? Fór alveg fram hjá mér

Alveg sammála, við þurfum að hysja upp um okkur buxurnar í þessum málum, hélt við værum komin lengra  ,,,,

Knús á þig

Ásgerður , 26.7.2008 kl. 11:45

12 identicon

Ef einhverjum finnst hann vera kind, á þá kerfið að breyta honum í kind ?

Palli (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 12:12

13 Smámynd: Ómar Ingi

Æ sorry en mér finnst nú bara þarfara að hlúa að öðrum hlutum í kerfinu , en þetta hlýtur að vera hreint helvíti að finnast maður vera kona í karlmannslíkama osfv en ég væri alveg til í að fikta í brjóstunum mínum í smá tíma en myndi líklegast fá leið á því eins og öðru

Þannig að þessi minnihlutahópur fari aftast í röðina hjá mér en hey það er bara mín skoðun .

Það er illa farið með marga minnihlutahópa í kerfinu okkar það er staðreynd.

Ómar Ingi, 26.7.2008 kl. 13:06

14 identicon

AUðvitað er margt sem þarf að laga í kerfinu.. Ég efast um að það séu það margir sem þurfi á þessari aðgerð að halda ár hvert hérna heima að ríkið fari á hausinn við að standa með þessu fólki..

einhvern vegin er ég til dæmis viss um að offitusjúklingar eru að kosta okkur mun meiri pening á ársgrundvelli heldur en kynskiptiaðgerðir munu nokkurn tíman gera..

það að ég sé sátt við að vera kona, eins og þú Heiða gerir mér kannski erfiðara fyrir að skilja þessar aðgerðir, en ég trúi á frelsi einstaklingsins til að finna sína hamingju.. Ég hed líka að enginn færi að leggja allt þetta á sig bara af því bara... að baki liggur djúp ástæða og það ber að virða

krabbameinsdeild landsspítalans er lokuð vegna sumarleyfa...

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 14:14

15 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ómar; auðvitað er þarft að hlúa að mörgu í kerfinu...og hlúa að þessum aðilum jafnframt og alls ekkert síður. Það er mín skoðun.

Góðir punktar Kleó... aldrei aldrei myndi ég breyta mér í karl þó allur prósessinn væri gratís...og ég fengi eina millu í rassvasann fyrir ómakið! Það segir sig sjálft að það leikur sér enginn að þessu! 

Heiða Þórðar, 26.7.2008 kl. 15:15

16 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

maður er nú bara svo grænn ekki bara á þessu sviði heldur öllum sviðum sem maður hefur ekki kynnt sér, en auðvitað les maður um þetta allt saman en veit samt aldrei allt.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.7.2008 kl. 16:02

17 Smámynd: Ómar Ingi

Yebb bara aftast í röðina sko  Heiða mín

Ómar Ingi, 26.7.2008 kl. 16:42

18 Smámynd: Gísli Torfi

Fínt að hafa engar skoðanir stundum.. Pass

Gísli Torfi, 26.7.2008 kl. 16:48

19 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég get svarið það að ef ég mundu verða kona í einn dag þá kæmist ég aldrei fram úr brjóstunum.. ég mundi fitla allan daginn við þau ;)

Óskar Þorkelsson, 26.7.2008 kl. 21:09

20 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Æji Heiða mín...þú ert engill!
Takk fyrir þessa færslu. Núna þegar ég er komin úr andnauðinni yfir færslunni hans Jóns Vals finnst mér gott að lesa þína færslu

Heiða B. Heiðars, 26.7.2008 kl. 21:13

21 Smámynd: Heiða  Þórðar

Takk fyrir það mín kæra og gaman að heyra.

Heiða Þórðar, 26.7.2008 kl. 21:22

22 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hamingjunni sé lof að ekkert fari á milli mála að þú ert kona, karlmenn eru nefnilega ekki mjög aðlaðandi brókarlausir!

En án gríns, þá er það mikill leyndardómur sem liggur í því hvers vegna einhverjum einstaklingi finnst hann vera persóna í röngum líkama!

Í þeim leyndardómi er kannski svo falin lausnin á öðrum og ennþá stærri að margra mati, um andan og efnið, hvort hugmyndir okkar um sál sé í raun rétt tilfinning, en ekki heilauppspuni sprottin af óttanum við endalokin, dauðann!

Magnús Geir Guðmundsson, 26.7.2008 kl. 23:26

23 identicon

Ég styð svona aðgerðir fullkomlega, sá sem setur sig á móti svona... well mér finnst það bara svipað og að setja sig á móti hjartalækningum eða hverju sem er.

Það er ómanneskjulegt af JVJ að láta eins og hann gerir.

DoctorE (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 23:26

24 Smámynd: JEG

Já mikið getur þú pælt kona enda er það meinhollt að pæla í hlutunum. Það er margt óréttlátt í henni veröld því miður.

Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 27.7.2008 kl. 00:00

25 identicon

Það verður að segjast eins og er að það er hrein unun að horfa á hvernig Jón Valur tætir fólk í sig með snilldarlegum rökum. Jón Val sem næsta forseta, engin spurning. 

HLERINN (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 15:01

26 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þú ert að grínast í mér!....

....já þú ert að grínast í mér...hef sjaldan eða aldrei orðið vitni að annarri eins mannfyrirlitningu...og það í nafni trúar. 

Heiða Þórðar, 27.7.2008 kl. 15:38

27 Smámynd: Róbert Þórhallsson

Mannfyrirlitning? Hann er eingöngu að sýna fram á holl og góð gildi, eitthvað sem þú hefðir örugglega gott af.

Aldrei heyrt annað eins væl.

Róbert Þórhallsson, 27.7.2008 kl. 23:55

28 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þá ættirðu í alvöru og reynd að heyra mig væla!

Snáfaðu þér til þeirra sem er að sama sauðahúsi og þú sjálfur! Vogaðu þér ekki að drulla  út  mín gildi, þú veist minnst um hver þau eru!

Heiða Þórðar, 28.7.2008 kl. 00:51

29 Smámynd: Róbert Þórhallsson

Biðst afsökunar á þessum ummælum mínum. Þetta var óverðskuldað þó svo að ég væri þér ósammála.

Róbert Þórhallsson, 31.7.2008 kl. 20:51

30 Smámynd: Heiða  Þórðar

Takk fyrir -móttekin og meðtekin

Heiða Þórðar, 31.7.2008 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband