Long lasting dömubindi

Það ætti varla að koma á óvart núna tuttugu mínútur pass midnight...að Heiða er svöng! Djö langar mig í súkkulaði...

...og afþví að það er frá... verð ég að koma að skoðun minn á auglýsingu sem ég sá í kvöld, á framfæri. Dömubindaauglýsingu...

...inn í sviðsmyndina kemur dansandi enn ein tindilfætt, brosandi dísinn í blómarússi með dömubindi í klofinu...auðvitað! Ef þið sjáið brosandi kvenmann þá er ástæðan alls enganveginn að hún hafi verið lucky the night before...nei hún hefur á klæðum. Kona á túr + blússandi hamingja = túr!

Það er staðreynd!

Þessu dömubindi buðu upp á ferskleika í einhverja 11-12 klukkutíma...."skjúsmí" long lasting -flott og vel þegar kemur að maskara og öðrum farða...en ég meina long lasting dömubindi! Hvaða vangeflingur/samansaumaði nýskupúki, hefur minnstu löngun til að hafa sama dömubindið á milli lappanna á sér í 12 klukkustundir!

Hormónasprautan mín svínvirkar annars, takk fyrir að spyrja. Hárið er óðum að detta af. Bólur á húðinni. Sjónin var að sljóvgast. Svefninn í fucki. Þunglynd og döpur fyrir ofan meðallag...fyrr en allt í einu alveg oforvarendes!

Byrjaði ég á blæðingum W00t og brosið hefur ekki farið af mér síðan Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Óþolandi auglýsingar ! Segi það með þér...12 tíma sama fjandans bindið !! Þá held ég að maður yrði horfinn í bilað flugnager oj barasta...

Ragnheiður , 24.6.2008 kl. 00:42

2 identicon

ojjjjj

Hafðu það gott

alva (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 00:46

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ábyggilega ekki kona sem semur svona auglýsingar.....

....eða hvað?

Hrönn Sigurðardóttir, 24.6.2008 kl. 07:24

4 identicon

Sem karlmaður segi ég bara: "No comment" 

Jói Dagur (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 09:50

5 Smámynd: Andrea

Hryllingur og pottþétt ekki kona sem semur þær! Eða ég get ekki ímyndað mér þá kou sem getur hugsað sér að hafa sama bindið tímunum saman!

En Heiða! Skítt með bólur og hárleysi! Er löngunin til staðar?

Andrea, 24.6.2008 kl. 10:38

6 identicon

þetta er verið að hamra auglýsingarnar á okkur karlmenn. Það erum jú við sem erum sendir út í búð að kaupa. Er sammála, þessar auglýsingar eru hræðilega hallærislegar. Æ Ég vona nú að þessi veikindi gangi yfir hjá þér svo þú getir notið góða veðursins.

sandkassi (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 10:47

7 identicon

Alltaf þegar mín fær Rósu frænku í heimsókn verð ég dapur ... þannig er ég nú bara. En ég er stuðningsmaður gleði og þegar ég sé valhoppandi og skoppandi dömur með svona hressandi dömubindi, þá hugsa ég: hvað skyldi ske ef ég setti svona á mig? Yrði ég léttur og hressari og skoppaði um?

Mig langar að prófa ... en veit ekki hvernig ég ber mig að því... any thoughts?

Knús á þig sætasta - ég skal vera duglegari að kommenta hjá þér en ég hef gert síðustu vikur/mánuði. Búinn að slá létt á hendina mína og sá netti sársauki var tileinkaður því að ég ætla að standa mig betur gagnvart þér og þínu bloggi.

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 11:08

8 Smámynd: Gísli Hjálmar

Mér finnst þetta virkilega falleg auglýsing.

Við, ég og Óli Eff vinur minn, viljum nefnilega að borgin okkar sé hrein.

Gísli Hjálmar , 24.6.2008 kl. 16:43

9 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Maður þarf ekki að sjá brosið á þessum 12 tíma konum, örugglega nóg að finna lyktina af þeim.

Helga Magnúsdóttir, 24.6.2008 kl. 21:29

10 Smámynd: Hulla Dan

Ekki séð umrædda auglýsingu, en búlshit... 12 tímar mæ ass.

Hata blæðingar og allt sem þeim fylgir.
Öfunda karlmenn fram í fingurgóma einu sinni í mánuði.
Væri frekar til í að vera Hómer heldur en að ganga í gegnum þessa böl "með bros á vör"

Gúdd næt 2 jú

Hulla Dan, 24.6.2008 kl. 22:01

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Sér er nú hver ferskleikinn eftir 10-12 tíma.....hver búr til svona bull ég meina bindi ...

Mig langar líka í súkkulaði  akkúrat  ansanss

Solla Guðjóns, 25.6.2008 kl. 00:09

12 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Þú ert bara töffari og langflottust

Einar Bragi Bragason., 25.6.2008 kl. 00:44

13 Smámynd: Gísli Torfi

Og ég sem fæ ekki einu sinni Blóðnasir

Gísli Torfi, 25.6.2008 kl. 05:56

14 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Aujjjj barasta í 12 tíma.  Ekki vil ég finna lyktina þá

Vona að þú missir ekki sjónina Heiða mín og allt hitt.....

Elísabet Sigurðardóttir, 25.6.2008 kl. 12:54

15 Smámynd: Halla Rut

Að fara á túr lætur mann svífa um í hamingju.......

Ætli þeir sem semji auglýsingarnar hafi nokkru sinni farið á blæðððððððð.!!!

Halla Rut , 25.6.2008 kl. 18:50

16 Smámynd: Helga Nanna Guðmundsdóttir

Já virkilega er þetta ekki í lagi....en það hlýtur að sprautast spritt úr þeim á hálftíma fresti....dauðhreinsa dæmið En hvað auglýsingarnar varðar þar sem þær eru svo frjálsar að þær geta flogið, þá skammast ég mín fyrir hönd þeirra allra sem að þessu standa

Helga Nanna Guðmundsdóttir, 25.6.2008 kl. 22:12

17 Smámynd: Einar Indriðason

Hmm.... ætli þessi 12 tíma bindi gangi fyrir rafhlöðum?

Þetta er einhvern veginn svo.... titrandi ... sæla?

Einar Indriðason, 26.6.2008 kl. 00:45

18 Smámynd: www.zordis.com

Ég veit um barn sem vildi fá dömubindi í jólagjöf því allir voru svo yfirmáta glaðir .....  Ooooog happý!

blæbrigði lífsins eru yndisleg ... 12 klst eru fljótar að líða!

www.zordis.com, 26.6.2008 kl. 09:30

19 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Furðurlegur andskoti þessar auglýsingar.  Skil ekki þessa hamingju og svo að ætla að einhver gangi með sama stykkið tímunum saman, strákar, hættið að semja svona klikkaðar auglýsingar.  Einhverntíman var verið að hrósa einhverju bindi og sagt að það mætti sko alveg ríða yfir Kjöl einbinda, ojjjjjjj  en knús á þig sætalína.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2008 kl. 13:46

20 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta voru nú einu sinni léreftstuskur í klobbanum sem þvegnar voru á milli notkunar og hengdar út á snúru og stórstykki eins og t.d. lökin yfir til að nágrannarnir sæu ekki ósómann!

Já mikið er búið að gera margt að ósóma í kringum konur.

Edda Agnarsdóttir, 26.6.2008 kl. 19:41

21 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þú er bara góð !!!

Kærleikur til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.6.2008 kl. 19:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband