Útötuð í skít...

Það var enganveginn geðslegt sem ég sá, þegar ég vaknaði. Mamma sat á salernisgólfinu (mínu) í einu horninu (þau eru fjögur...) útötuð í skít! Ég tók ekki eftir því strax, en þegar ég sá hverskyns var varð ég frekar fúl í kantinum. Einum af fjórum...

Hún þurrkaði mesta skítinn af sér og hysjaði upp um sig brækurnar, brosti og fór framm...

Þegar hún svo hringdi í kvöld,  sagðist ég langt í frá sátt við að hún væri að skíta sig alla út í draumum mínum...væri að vísu fyrir góðu ...heimtaði hún klippingu, ekki seinna en strax!  Hún vildi svona stutt í hnakkann, svona einsog ég klippi Kobba kút og styttur og tjásur og og ....

Ég horfði niður á náttbuxurnar mínar, leit á klukkuna sem var langt gengin í háttatíma minn, fann lykt af skít...  sagðist ekki nenna út. Skærin mín væru týnd. Hún yrði að skilja að ég væri hálfþreytt eftir að bera sólina mína í um þrjár klukkustundir þennan daginn, ...hefði fengið þrjú högg í andlitið með glaðlegum blöðrum...sólgleraugun mín brotnað í einni blöðruárásinni...að auki þyrfti ég að vera velsofinn fyrir átök næsta dags. 

Skilingurinn var fyrir neðan "lítill" og einsog svo oft áður...dí-dí-dí -hljóðið sem ég kannast svo vel við.

Skellti á semsagt. 

Ég hringdi aftur og óskaði henni til hamingju með daginn...

-ekki einu sinni reyna þetta Heiða! Ég á afmæli í maí....

dí-dí-dí!

Þannig að ég óska ykkur bara til hamingju með þjóðhátíðadaginn í staðinn... Wink

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Úfff já það er vandlifaði í henni Veröld.

Knús á þig svona í lok þjóðhátíðardagsins.

Aahhh hvað það var næs að vera bara heima í "hífandi roki" hahaha....

JEG, 17.6.2008 kl. 23:34

2 Smámynd: Andrea

frekjudollumamma :)

Andrea, 18.6.2008 kl. 00:07

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Mömmur eru samt alltaf mömmur!

Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 01:31

4 Smámynd: Helga Nanna Guðmundsdóttir

Gott að hafa húmorinn í lagi....þú ættir að gefa út einhverskonar bók...nóg er hugmyndaaflugið og allt hitt sem til þarf...

Helga Nanna Guðmundsdóttir, 18.6.2008 kl. 01:34

5 identicon

Alveg frábær!!

alva (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 01:56

6 Smámynd: Hulla Dan

Veit ekki hvort ég á að hlægja eða gráta.
Minnir óhuggnalega á mína  Hugsa að þín sé líka í nautsmerkinu??
Fynndið að lesa um þær,,, erfiðara að eiga þær. Þó ég mundi aldrei vilja vera án hennar

Eigðu góðan dag

Hulla Dan, 18.6.2008 kl. 05:18

7 Smámynd: Ester Júlía

Hahaha..skelfilegur draumur!  En skítur er fyrir peningum svo það er í lagi að dreyma skítinn.  Já mömmur eru yndislegar,  gæti ekki verið án minnar alla vega. 

Ástarknús!! 

Ester Júlía, 18.6.2008 kl. 06:53

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góður draumur ma´r.....

Hrönn Sigurðardóttir, 18.6.2008 kl. 09:30

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Gott að þetta var bara draumur vonandi skilar hann einhverju góðu.

Ég dáist að þér skottið mitt

Solla Guðjóns, 18.6.2008 kl. 09:47

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

 Knúsíknús

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2008 kl. 09:55

11 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Keyptu þér lottóseðil.. það er fyrir peningum að dreyma "skít"  
Vona að dagurinn í gær hafi verið eins góður hjá þér og hann var hjá mér...

Linda Lea Bogadóttir, 18.6.2008 kl. 10:48

12 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Elísabet Sigurðardóttir, 18.6.2008 kl. 12:07

13 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Það er aldrei geðvonskan í henni mömmu þinni. Skellir bara á þig! Samt öfunda ég þig af henni, hef saknað minnar í þrjátíu ár.

Helga Magnúsdóttir, 18.6.2008 kl. 12:28

14 Smámynd: Gísli Torfi

Heiða ég saknaði þín um daginn þegar ég fór í búðir á mánudaginn með 2 vinum mínum og var markmiðið að finna búninga fyrir partý sem verður haldi soon.. við fórum í 2 kynlífsbúðir og mikið rosalega vildi ég að þú hefðir verið með okkur .. sá þig í anda skoða þetta og koma með skemmtileg comment um ansi skrautleg tæki sem voru þarna inni..... ég sá þarna í þessum tveimur búðum hverslags lúði ég var eiginlega að hafa ekki prófað 90% af þessu dóti þarna á lífsleiðini...

En sá þig í einum búningi þarna " steinliggur alveg" híhí......

en ég undirrítaður sá Stærsta COCK þarna "í gelformi"sem ég hef séð

En vonandi hefur þú átt skemmtilega dag elskan í gær og í dag.... að fara á rúntinn með þér eða labbitúr er eins og að vera  í Spennandi gamanmynd

Rosalega er ég mikill Lukkunarpamfíll að eiga þig að

Gísli Torfi, 18.6.2008 kl. 13:28

15 Smámynd: www.zordis.com

Hef lent í svona skítalabbadraumi og þeir eru fyrir góðu!  Dreymid fulla geymslu af kartöflum sem var fyrir rosagóðu og svo var ég með bringuhár og sportrönd um daginn .....  Spurning að lotta og fara að ráði bloggvina.

dí dí dí ....

Nehhhhh .... knús á þig sæta dúlla.

www.zordis.com, 18.6.2008 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband