Hún skellti á mig...

Jæja, stórfréttir!

Þá hélt ég að þetta væri allt að smella saman. Búið að máta og staðsetja nýju eignina...hún er hvítari en allt sem hvítt er. Hvítasta sem fékkst í sjoppunni. Nú stendur bara á fjandans iðnaðarmanninum! Karluglan tekur 200 þúsund krónur, fyrir að negla niður tvo nagla! Efniskostnaður er að vísu innifalinn.

TVÖHUNDRUÐÞÚSUNDKRÓNUROGEINHVERJASKITNA-AURA!!!

Ég sjálf keypti mér heilt box af ryðfríum nöglum, fyrir ekki alls löngu síðan. Ég borgaði innan við 500 skitnar kúlur fyrir. Sko 1000 stk. ryðfría sköndla, takk! 

Þar sem mér finnst alveg ófært að konugreyið hafi góminn skröltandi lausan í munninum, bauðst ég til að gera þetta gratís! Og með ánægju...þar sem hún tekur ekki í mál að nota tannlím....og þá var öskrað á mig;

-Heiða Bergþóra! Þú ert alltaf sama helvítis fíflið! Og einsog það væri ekki nóg...bætti hún við; Asninn þinn þarna!

Og skellti á mig... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Hjálmar

...

Gísli Hjálmar , 25.5.2008 kl. 09:31

2 Smámynd: www.zordis.com

Elsku kjéddlingin!  Vodalega er FRÚIN eitthvad undin .... hún tekur ekki viljann fyrir verkid frá dúllunni sinni.

Mikid djö er svona lagad dýrt!  Zad á ad greida svona lagad nidur, postulín er zjáning.

Hils og kyss á saelum sunnudegi!

www.zordis.com, 25.5.2008 kl. 12:00

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Skellti hún á þig? ÆI. hún hefur verið eitthvað sár.
Knús kveðja
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.5.2008 kl. 12:22

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Helga Magnúsdóttir, 25.5.2008 kl. 16:48

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

gratís??? hvað, ertu sænsk?

Gunnar Helgi Eysteinsson, 25.5.2008 kl. 18:48

6 Smámynd: Solla Guðjóns

 ekkert skell í góm.

Solla Guðjóns, 25.5.2008 kl. 19:57

7 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Tanni

Einar Bragi Bragason., 25.5.2008 kl. 21:59

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ, ég á engar svona bara orginallinn.  Vona að þú fáir feitan afslátt.  Teeth 

Ásdís Sigurðardóttir, 26.5.2008 kl. 20:20

9 Smámynd: Gísli Hjálmar

Heiða mín ...

... á ekkert að blogga?

Gísli Hjálmar , 26.5.2008 kl. 21:04

10 Smámynd: Heiða  Þórðar

ÉG? ég er með mínar Ásdís...! Fuck ég verð greinilega að vera skýrmæltari!

Heiða Þórðar, 26.5.2008 kl. 22:23

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Mamma skellir aldrei á mig, enda hef ég aldrei rætt neitt að viti við hana í síma, ekki einu sinni um tannkrem!

Mikið virðist annars hann Gísli Hjálmar elska þig mikið, að krefjast þess svona ástríðufullt af þér að blaðra fyrir hann!

Magnús Geir Guðmundsson, 26.5.2008 kl. 23:28

12 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ég held samt að þú elskir mig meira.

Heiða Þórðar, 27.5.2008 kl. 00:41

13 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og ást mín!

Hún liggur í loftinu,

læðist áfram

fikrar sig feimin,

en finnur loks þig

Þá fær hún sér sæti og setur,

sælubrosið upp.

Hún er komin heim!

Magnús Geir Guðmundsson, 27.5.2008 kl. 01:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband