GUÐ BLESSI ÞIG HELVÍTIS FÍFLIÐ ÞITT!

Hvað getur maður sagt? Hvað getur maður gert? Ekkert. Fengið sér kaffisopa þó það sé á bannlistanum eftir klukkan átta á kvöldin. Þagað. Varla. Kannski farið út í kvöldikyrrðina og vonað að einhver pissi óvart yfir mann heilögu vatni...eða vindurinn blási hressilegum og sprækum heilögum öndum í andlitið á manni. Alveg hugmynd sko...

...eða öskrað framan í næsta hús;

GUÐ BLESSI ÞIG HELVÍTIS FÍFLIРÞITT!!!!

Nei gengur ekki. Passar enganveginn saman í einu og sömu setningunni. Jafnvel þótt komma træði sér inn á milli orða og/eða fóta. (enginn var svo heppinn kl:10:40 í morgun...ekki svo mikið sem einn kommi, hvað þá frjálslyndur. Fór ekki á leitarstöðina og gleymdi því nærbuxunum heima í þetta skiptið)...og það þýðir ekkert að ræða það við mig frekar....

...veit ekki hvort á við í sumum tilfellum: Guð blessi þig eða helvítis fíflið þitt. Það fyrra er réttara...en það seinna veit ég í hjarta mínu. Það seinna brennur á tungunni og vitið er alltof oft í munninum. Eða heimskan eftir því hvernig á það er litið.

Stundum finnst mér það að biðjast fyrirgefningar vera gert af einskærri sjálfselsku. Svo að viðkomandi líði örlítið betur í eigin skinni. Það er gott að biðjast fyrirgefningar stendur einhversstaðar...þér líður mun betur á eftir. En svo situr hinn sem meðtók fyrirgefninguna eftir í sárum. Ef einhver handleggsbrýtur mig er ég enn brotin þó ég sé beðin fyrirgefningar. Ef einhver veldur hjartasári grær það ekkert við eitt skitið fyrirgefðu (jafnvel þó bókstafirnir séu tíu talsins).

Það skilur sjálfsagt ekki ein einasta sála hvað ég er að fara með þessu. Það í raun skiptir engu, ég er svo varnarlaus gagnvart skilningi og skoðunum annarra. Það eina sem ég get gert er að leika mitt hlutverk vel í minni eigin bíómynd. 

Er hætt að taka að mér aukahlutverk í öðrum myndum, hvorki drama, spennu, bláum eða hryllingi, takk samt fyrir að hafa mig í huga.  Wink

Farin í "bubble-bað" í góðum félagsskap, með fallega tónlist í eyrum...ilminn í vitunum og englana flögrandi um á meðan ég blæs marglitar sápukúlur í sápuóperunni minni...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 Ég styð þig!

Hrönn Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 22:06

2 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Vó ... ekki alveg viss um að ég skilji hvert þú ert að fara, en ljóst að einhver hefur gert eitthvað mjög xxx á þinn hlut. Best að vera leikstjóri í eigin lífi ef það er hægt. En ég ætlaði nú bara að kíkja hér inn til að þakka fyrir fallegt komment á blogginu mínu.

Bestu kveðjur :)

Hólmgeir Karlsson, 28.1.2008 kl. 22:19

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

Í denn...já oft meira að segja ...en ekkert nýlega Hólmgeir...blessaður vertu, veit sjálf ekki hvort ég er að koma eða fara og ég þig Hrönnsla

Heiða Þórðar, 28.1.2008 kl. 22:23

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

  þú ert uppáhaldið mitt mundu það 

Ásdís Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 22:25

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þakka þér fyrir að miðla þessu til okkar.

Gengur bara betur næst.

Þú er best.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 28.1.2008 kl. 22:30

6 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Gott að þetta er "old memories" .... og takk fyrir bloggvinskapinn, ætlaði sjálfur að fara að bjóða þér að bætast á listann minn, en þá varstu bara mætt  ..

Hólmgeir Karlsson, 28.1.2008 kl. 22:51

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þið eruð öll yndisleg

Heiða Þórðar, 28.1.2008 kl. 22:57

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég þykist skilja þig, en ég er ekkert endilega viss um að það sé einhver kostur að vera ostur í því máli...

Steingrímur Helgason, 28.1.2008 kl. 23:04

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæj dúlla.Ég er mikið sammála þér um það sem þú segir um fyrirgefninguna.....það er ekki næg virðing fyrir þessum alltof/oft/notuðu/tíu/stöfum.....eins og fyrirgefðu lagi allt allt í einu...humm...

Ég veit ekkert hvort ég skil þig rétt eða ekki en held það þó...þú læðir staðreyndum svo snildarlega inn í skemmtilegu textana þína.

Þú ert yndi 

Solla Guðjóns, 28.1.2008 kl. 23:12

10 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég skal kenna þér eina leið sem ég nota oft HEiða..

Ó guð fyrir gefi þér fyrir heimsku þína

ÞVÍ EKKI ÆTLA ÉG AÐ GERA ÞAÐ  

Brynjar Jóhannsson, 28.1.2008 kl. 23:28

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Nokkuð gott Brynjar

Solla Guðjóns, 28.1.2008 kl. 23:31

12 Smámynd: www.zordis.com

Það er ekki sama hvort fyrirgefningin kemur frá hjartanu eða úr rassgatinu á viðkomandi.  Sársauki (sem er by ðe vei fallegt orð á neikvæðum basa) .... sársaukinn hverfur ekki við orðin en andleg líðan nærist á hreinu hjarta en diss og piss ef rassgatið blæs sínu ógeðslega freti í andlit okkar!

Frænka min segir oft; "hann sagði ekki einu sinni éttu skít" ...............

mússý mússý mæ little pússý pússý!

www.zordis.com, 28.1.2008 kl. 23:41

13 Smámynd: Heiða  Þórðar

snillingar

Heiða Þórðar, 28.1.2008 kl. 23:58

14 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Guðrún Jóhannesdóttir, 29.1.2008 kl. 00:45

15 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

ó já ó já ó já eða nei nei nei ég veit ekki ...kannski ó þó ...en mundu amk eftir að taka öndina með þér í bað......

Einar Bragi Bragason., 29.1.2008 kl. 00:58

16 Smámynd: Ásgerður

Skammastu þín Heiða, að fara ekki ,,, nú verð ég að panta tíma fyrir þig OG fara með þér sjálf.

Það er ekki sama hvernig fyrirgefningin er,, og hvað er á bakvið hana , en skil hvað þú meinar,,,eða  nei, skil stundum ekkert hvað þú meinar  , en þú ert samt yndisleg

Ásgerður , 29.1.2008 kl. 05:51

17 Smámynd: Gísli Torfi

Já hressandi orð Heiða mín ... já fyrirgefningin.... skil svosem hvað þú ert að tala um en ef ég ætla að fyrirgefa einhverjum þá er ég að segja við viðkomandi að frá mínum bæjardyrum séð þá virði ég þann sem segir það og ef ég sé að hann er að meina það og sé í verkum hans að hann iðrist gjöðra sinna þá mun ég fyrirgefa honum og mun því ekki rengj hann um það EVER ( þá er málið grafið )

En Heiða mín ertu með samviskubit

Gísli Torfi, 29.1.2008 kl. 06:18

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég held að ég skilji alveg hvað þú ert að fara Heiða mín.  Þetta er smátilraun hjá þér til að segja við sjálfa þig, Fyrirgefðu!  Og þessi örlitla játning hefur örugglega orðið til að þér líður pínu betur.  En þetta er raunar eins manns slagur, og hann er bara þinn.  Enginn annar getur sett þér stólinn fyrir dyrnar og rekið þig í skoðun, eða hvað sem er.  Knús á þig stelpa og skamm skamm.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2008 kl. 11:49

19 Smámynd: Sigvarður Hans Ísleifsson

Óþarfi að hafa blótsyrði og guðlast með í svona bloggum en Guð blessi á þér kjaftinn Heiða og hreinsi hehehehe. En ég fatta allveg hvert þú ert að fara í þessu bloggi...

Sigvarður Hans Ísleifsson, 29.1.2008 kl. 13:03

20 Smámynd: Sigvarður Hans Ísleifsson

Fyrirgefningin er svo að þú sjálf sért frjáls. Sá sem biður þig afsökunar þarf líka að vera tilbúin að bæta þér það upp það sem hann eða hún gerði. Að vilja ekki fyrirgefa er bara fangelsi fyrir mann sjálfan en ekki hinn aðilann...

Sigvarður Hans Ísleifsson, 29.1.2008 kl. 13:05

21 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

hjartanlega sammála seinna kommenti Sigvarðar, eins og talað úr mínu hjarta.

megi dagurinn verða þér góður

Guðrún Jóhannesdóttir, 29.1.2008 kl. 13:43

22 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Blessi þig líka Heiða mín, langar að deila með þér tveimur sem hafa alltaf kitlað hláturtaugarnar hjá mér. Drukkin maður kom einu sinni inn á veitingastað og bað um mat. Þegar hann kom fór sá fulli að slafra í sig af meiri löngun en mætti. Þjónustustúlkan leit á hann með fyrirlitningu og sagði: Hvað er að sjá til þín maður þú ert eins og svín. Ég man ekki fyrrihluta vísunnar en hann var eitthvað á þá leið að menn ættu ekki að dæma aðra en svo endaði hún svona: að sé ég svín þá ertu gylta góða mín. Hin er tilvitnun í George Bernard Shaw sem er svona: 98% mannkyns eru fávitar og við hin í stöðugri smithættu.

Steingerður Steinarsdóttir, 29.1.2008 kl. 15:47

23 Smámynd: Alfreð Símonarson

Alfreð Símonarson, 29.1.2008 kl. 16:17

24 Smámynd: Heiða  Þórðar

98% mannkyns eru fávitar og við hin í stöðugri smithættu. Snilld Steingerður!

Góður Sigvarður og broskarl til baka Alferð.

Gísli minn, er ekki með  samviskubit gagnvart neinum...ekki nema börnunum mínum kannski, það fylgir með í kaupbæti þegar maður verður vanfær og ó-frískur....

Ásthildur mín; kossar í þínu fögru kinnar elskan.

Heiða Þórðar, 29.1.2008 kl. 16:46

25 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Tek undir með snilld Steingerðar þarna.

Knús til þín 

Marta B Helgadóttir, 30.1.2008 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband