Þetta er kjaftæði

Hugsa sér...ég á aðeins eina einustu mágkonu sem er og verður, alltaf, fyrrverandi - núverandi og sú eina í minningunni sem er mér kær. Svona uppáhalds. Sú hin sama dama (vú -mín komin í skáldagírinn bara)...skilaði mér bók á aðfangadagskvöld, sem ég hafi fengið að gjöf árið 1994. Sjálfsagt hef ég lánað henni bókina þau jólin, minnist þess ekki að hafa séð hana áður. Kannski er það mesti og besti kosturinn hennar mágkonu minnar, það er ekki bölvuðum göslaganginum fyrir að fara, í hennar fari. Bara svona einn dagur í einu í gangi í marga marga marga daga og ár...LoL

Í nótt þegar ég lá við hliðina á Didda, sem er alltaf sofandi, neitar að vakna þrátt fyrir ítrekar tilraunir dóttur minnar við að rífa af honum hausinn og opna augun,  bilti ég mér fram og tilbaka, eða þar til ég dreg fram bókina. Bókin er um meðvirkni og er ég nú sérfræðingur þegar kemur að meðvirkni, framvegis kem ég til með að segja nei nei og aftur nei, þegar ég meina já....engin sveiflar mér fram og tilbaka tilfinningalega, ....mörkin eru skýr.....ég lá semsagt yfir bókinni framundir morgun í notalegum faðmi Didda. Og er ég næstum orðin doctor í fræðunum...

Eitt einasta atriði stendur upp úr í bókinni samt;

Það er ekki auðvelt að finna hamingjuna innra með sér og ógerningur að finna hana annarsstaðar!

Ég er alls ekki sátt við þetta...bara alls ekki! Þetta er kjaftæði og fáránlegt að lifa samkvæmt þessari speki!

Hef sko alveg fundið hamingjuna annarsstaðar, skammvinnan og stundum til lengri tíma þótt ég hafi ekki verið beint sátt eða hamingjusöm með sjálfa mig eða mína stöðu. Og verið aldeilis sátt í eigin skinni þótt tilefnin væri nú beint ekki til staðar. Fann það til að mynda í  dag þegar ég var að keyra af fundi v/vinnunnar... andvirði maskarans sem voru á augnhárum mínum var hærra en farartækið sem var að verða bensínlaust, renndi sér mjúklega á sumardekkjunum upp og niður hóla og brekkur...með skottið fullt af rifnum osti....

...að ég var drullu-happy! Drullu - djö - happy! Og mér fannst það fucking gott! Ég er ekki einu sinni á sýrutrippi ...bara er...og það er gott að vera.

Já og árið að fara...ég hugsaði í morgun...hjúkk að tjékkar eru ekki enn við líði! Þá væri ég að skrifa 2007 fram í júni...en þar sem þær áhyggjur eru frá, hef ég minnstu áhyggjur og kveð árið án nokkurs trega. Sátt við guð og menn og mýs.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Ert'ekki að djóka með það sem stóð upp úr??

Hinsvegar getur meðvirkini gert manni lífið erfitt og leitt.Oft tekst ekki að standa á sínum skýru mörkum.

Hafðu það falllegast

Solla Guðjóns, 28.12.2007 kl. 18:49

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er Doddi dauður eða hvað.  ?????   æ þú ert nú svo mikið skott elskan mín.  Ég er sátt við flesta en ekki alla, en  svona er lífið víst.  Þetta kemur með kalda vatninu.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.12.2007 kl. 21:13

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

hehehe Diddi er dauður já og er dúkka... og meðvirkni er hvimleið! 

Heiða Þórðar, 28.12.2007 kl. 21:45

4 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Ég er eins og Diddi... hægt að misnota elsku mína og góðvild. Hárreyta mig og gera á þolinmæði minni og umburðarlindi allskonar tilraunir. Ég neita að vakna - opna augun þegar hausinn er rifinn af mér og potað er í augu mín. Horfi, með brot af innri friði. löngunaraugum til ársins 2008. Það verður ár hamingju og gleði, heiðarleika og trausts, vináttu og endalausrar ástar. (hahaha)

Ætla á bókasafnið og taka þessa bók... hvað heitir hún? 

Linda Lea Bogadóttir, 28.12.2007 kl. 22:30

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Aldrei aftur meðvirkni

Heiða Þórðar, 29.12.2007 kl. 00:52

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Skítt með þessar mágkonur & maskara, en var ekki örugglega allt í lagi með rifna ostinn eftir bílferðina ?

Steingrímur Helgason, 29.12.2007 kl. 01:35

7 identicon

Diddi dottar á koddan minn.

Diddi alltaf sefur.

Diddi, æji greyið minn.

Svefn, mér ekki gefur. 

Vakna Heiða.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 29.12.2007 kl. 05:27

8 Smámynd: Ásgerður

Enginn göslagangur hér sko  hvað eru 13 ár á milli uppáhalds-fyrrverandi mágkvenna?

Óska þér áframhaldandi drullu - djö - hamingju, einn dag í einu í marga marga daga og ár.

Lov jú

Ásgerður , 29.12.2007 kl. 09:29

9 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Gott að þú ert í stuði eins og venjulega.....hafðu það sem bestast..........þú ert þú veist ..........kveðja DR SAXI Dr í öllu sem sem endar á virkni.

Einar Bragi Bragason., 30.12.2007 kl. 02:28

10 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Gleðilegt ár elsku Heiða. Ég vona og treysti að næst komandi ár verði gæfuríkt og fullt af Guðs blessun þér til handa. Góð sál sem þú ert þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 30.12.2007 kl. 13:24

11 Smámynd: Heiða  Þórðar

Guðmundur; Bróðir minn kom einmitt með þessa hugmynd fyrir einhverjum mánuðum....ég sagði honum bara að kíkja á barnaland og vera þar....hehe....en alveg hugmynd sko.

Rennileg? Ísmeganleg? púff má ég frekar biðja um ríðileg -takk!

Þakka hlý orð elskurnar mínar

Heiða Þórðar, 30.12.2007 kl. 14:09

12 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Gleðileg áramót til þín og þinna. vonandi farið þið í rólegheitum inn í hið nýja ár

Mahatma Gandhi sagði svo rétt Kærleikurinn er sterkasta aflið sem til er í heiminum og jafnframt hið hógværasta sem unnt er að hugsa sér.

Megir þú vera í Kærleikanum nú og alltaf.

AlheimsKærleikur til þín

Steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 30.12.2007 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband