Gredda og steraputtar

Einu sinni átti ég vin, hann var og er (held ég) samkynhneigður, hann var fíkill í margskonar skilningi. Þar á meðal skilgreindur kynlífsfíkill. Mér fannst þetta þá alveg þrælsmellið orðtak og skilgreining á því sem þá var í daglegu tali skilgreint hrein og klár gredda!

-hva....þú ert bara graður! sagði ég við hann þegar hann sagði mér að hann væri að sækja fundi vegna þessa.

-nei Heiða, ég er ekki bara graður! En þú ert einsog umferðaskilti....alltaf logandi á grænu!

-þegiðu fíflið þitt! í alvöru? .... ertu að segja að ég sé lauslát eða...? búin að vera með sama manninum í 10 ár! og enhverjum tveimur þar á undan...

-jebb, ég er hommi samt sé ég þessa fjandans orku frá þér -semsé alltaf logandi á grænu! .....osfrv. 

 -það er eitthvað meira en lítið að þér maður!

Með umferðaskiltislýsinguna á sjálfri mér og miður mín í aðra röndina spyr ég manninn sem var þá í mínu lífi...útí græna ljósið...

Hann segir; blessuð vertu, hann á bara við að þú sért ríðileg! Þetta er complement Heiða! Í guðana bænum vertu ekki svona mikil tepra...

RÍÐILEG! hvæsti ég á hann...  setti  hann svo í fimm daga farbann í himnaríki.

Síðan þá hef ég aldrei getað skilið á milli greddu og kynlífsfíknar... Aldrei getað skilið að fólk missi stjórn á eigin lífi útaf greddu, aldrei skilið vanmáttinn gagnvart greddu...aldrei skilið  meðvirkni með greddu...þráhyggju útaf greddu...

...sumt ber manni einfaldlega ekki að skilja. 

Hver vill svo sem vera ríðilegur? gáfulegur? álkulegur? greddulegur? ég vill bara vera ég!

Enda sit ég hér núna með hvíta bómullarhanska og innpakka fingur í sterakremi...afundinn og snúinn, kannski afþví ég skil ekki neitt. Og er bara ég...


mbl.is Segir Lohan vera kynlífsfíkil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fiðrildi

Bómullarhanskar og sterakrem . . . æ dúlla ertu með exem ?  Annars ætlaði ég bara að óska þér og þínum gleðilegra jóla og þakka fyrir öll brosin sem þú hefur gefið mér. 

Fiðrildi, 27.12.2007 kl. 21:08

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Brosmildi mín eykst því fleiri tvíræða pistla ég les, greddulega eður ei

Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.12.2007 kl. 21:12

3 Smámynd: www.zordis.com

Whip me, whip me!  Gott að vera graður eða kanski ekki.  Það er vont að vera þyrstur nema að þorstanum sé slökkt!  Svo það er kanski ekki gott að vera graður nema hægt sé að svala henni með himneskum hætti ..... grrr grrrrr *tigerkló* grrrr

www.zordis.com, 27.12.2007 kl. 21:16

4 identicon

Ég er ekki kallaður dóni út af engu. Ég á það til að vera mjög graður eflaust, hugsa um kynlíf á sjö sekúndna fresti, en tel mig samt ekki vera kynlífsfíkil þar sem ég stunda ekki kynlíf það oft. Þarf þess ekki. Er það ekki einkenni fíknar að þurfa stöðugt meira? Ég get fengið það og verið góður þar til næst ... það er bara spurning um hve langur tími þetta "næst" er

Hjá mér er það frekar svona scratch me scratch me ... pain and pleasure! Ooh yeah!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 21:21

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Doddi er nú skemmtilegur, haha!

En Þórdís kemur að kjarna málsins og nú gæti ég alveg trúað að "Þorsti" hafi gert og geri vart við sig víða núna bara við að lesa línurnar þínar Heiða "Logandi heita" en ekkert sé við hendina til að slökkva hann hjá sumum að minnsta kosti!

Magnús Geir Guðmundsson, 27.12.2007 kl. 22:35

6 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þið eruð snillingar!öllsömul!

Heiða Þórðar, 27.12.2007 kl. 22:37

7 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

Hallgrímur Óli Helgason, 27.12.2007 kl. 23:10

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Alltaf nauðsynlegt að klóra sér ef mann klæjar.   Sex 

Ásdís Sigurðardóttir, 28.12.2007 kl. 00:10

9 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Munurinn....segir sig sjálfur...

Fíkn er skaðleg... en gredda er það ekki...

Kynlífsfíkn... getur t.d komið fram í framhjáhaldi eða að fólk getur ekki mæti vinnu vegna greddu...

Mín skoðun er að nafngiftin kynlífsfíkn sé ofaukin en hún er svo sannarlega til og mýmörg dæmi um að hún sé að skaða líf fólks. 

Brynjar Jóhannsson, 28.12.2007 kl. 00:41

10 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

hehehehehe, nú skellti kerla upp úr við lestur bloggs   góð ertu stelpa

Guðrún Jóhannesdóttir, 28.12.2007 kl. 00:43

11 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Það er gott að vera graður....er það ekki annars

Einar Bragi Bragason., 28.12.2007 kl. 00:51

12 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

já já já ég man ...þú ert lang flottust

Einar Bragi Bragason., 28.12.2007 kl. 00:52

13 Smámynd: Heiða  Þórðar

Brynjar; kynlífsfíkn hefur sko ekki neitt með framhjáhald að gera! ...að fólk geti ekki mætt í vinnu vegna greddu? Common félagi...hvað með að mæta ekki í vinnu vegna leti? er það þá letifíkn? 

Vissulega er þetta vandamál til staðar...var bara að velta því upp hvar mörkin liggja. 

Samkv. skilgreiningunni á öðrum fíknum sé ég ekki alveg samsömun í einu og öllu...þetta varðandi andlega meinið skilurðu, þráhyggjuna....einfaldlega afþví ég hef enga neikvæða reynslu af greddu kannski...hver veit? nema kannski af vitleysingnum þarna sem mætti aldrei í vinnu....

Heiða Þórðar, 28.12.2007 kl. 01:24

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehemm, I don´t know what to say so I go out and play.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.12.2007 kl. 02:14

15 identicon

Það er ekkert skrýtið við þessa færslu.

HÚN ER GÓÐ.

Allt sjáum við mismunandi AUGUM.

 OG VIÐ ERUM ÖLL, ELDFJÖLL,HVERT Á SINN HÁTT MEÐ MISMUNANDI VIRKNI.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 28.12.2007 kl. 04:53

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 go grænt!

Hrönn Sigurðardóttir, 28.12.2007 kl. 06:35

17 Smámynd: Ásgerður

Þú ert æði  nákvæmlega eins og þú ert

Ásgerður , 28.12.2007 kl. 10:14

18 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Engin kuldi eða þurkur, bara þorsti, gredda, girnd!

Bara hið besta mál.

Magnús Geir Guðmundsson, 28.12.2007 kl. 11:31

19 Smámynd: halkatla

ég hef velþóknun á þessari færslu  samt eru öll ljósin slökkt og slagbrandar fyrir dyrum

halkatla, 28.12.2007 kl. 12:19

20 Smámynd: Jens Guð

  Ég hef meiri áhyggjur af þessu með sterakremið á fingrunum.  Sterakrem eru varasöm.  Þau þynna húðina.  En bendir til þess að þú sért með exem eða psoriasis.  Gula Banana Boat E-gelið hefur gefist mörgum vel.  Er ódýrt og þynnir ekki húðina. 

Jens Guð, 28.12.2007 kl. 20:00

21 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Fíkn er ekki að gera eitthvað rosalega mikið. Fíkn er ekki mæld í: lítrum, skiptum eða grömmum.

Þegar þú ert með þráhyggju útaf einhverju, þá er hægt að tala um fíkn. Því þú getur ekki hugsað um annað. (þráhyggja = þrálát hugsun)

Ef að vinur þinn er kynlífsfíkill, þá er það ekki vegna þess hversu mikið kynlíf hann stundar, heldur vegna þess hversu mikið hann hugsar um það, og hvernig það hefur áhrif á daglegt líf hans. 

Viðar Freyr Guðmundsson, 28.12.2007 kl. 20:25

22 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Heiða...

Munur á fíkn og löngun er að fíkn er SKAÐLEG.....  Þegar þér er orðið um megn að stjórna eigin lífi vegna kynlífslöngunar þá er hún orðin fíkn... Þessvegna nefndi ég þessa tvö dæmi varðandi vinnu og framhjáhöld því þau eru bæði dæmi um hvernig kynlíf getur verið skaðlegt... Það eru nú mýmörg dæmi um það að fólk geti ekki mætt í vinnu vegna ÁFENGISDRYKKJU og síðast þegar ég vissi titlast slíkt fólk ALKAHÓLISTAR.....

Þetta eru borðliggjandi STAÐREYNDIR ....SVO COMON HVAÐ ?

Varðandi leti er það í raun útúrsnúningur því að miklu fleirri geta ekki mætt í vinnu vegna ÞUNGLINDIS... 

Brynjar Jóhannsson, 28.12.2007 kl. 20:54

23 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Hahaha

Ég held að þú vitir fullvel Heiða mín, klára kona, hver munur á fíkn og löngun er.  

En umræðuefnið er skemmtilegt

Marta B Helgadóttir, 30.12.2007 kl. 13:49

24 Smámynd: Heiða  Þórðar

Já ég einmitt veit það Marta...en einsog þú segir; umræðuefnið skemmtilegt

Heiða Þórðar, 30.12.2007 kl. 14:30

25 Smámynd: Gísli Torfi

það er alltaf líf og fjör hérna á síðuni þinni Heiða mín... það sem þú dettur ekki í hug að skrifa um .. skemmtilegt ... Gleðilegt árið

Gísli Torfi, 30.12.2007 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband