Sofa blaut í tjaldi

Þegar ég vaknaði í morgun var ég himinlifandi með það eitt að heyra vindinn berja létt á rúðuna í herberginu mínu. Sem gaf mér til kynna að flensudruslan var að snáfa sér veg veraldar, þar sem ég heyrði allavega eitthvað með öðru.

Himinlifandi með að dóttir mín var með litla fótinn sinn við andlitið á mér. Fóturinn gaf mér til kynna að spörkin hefðu verið ófá; í mig, á mig, undangengna nótt.

Himinlifandi með að ég hafði tekið þá ákvörðun á fara hvorki til Akureyrar eða á aðra útisamkundur.

Getað sofnað í hlýrri holunni minni og vaknað þar líka. Hafa möguleika á að elta sólina ef svo ber undir. Ef hún þá leynist einhversstaðar.

Nokkuð mörg eru árin orðin síðan ég hef látið hafa mig útí skipulagðar samkomur, elt maurana, sofið  blaut í tjaldi. Sofið hjá í tjaldi. Borðað kaldan útþvældan hamborgara og sungið við gítarglamur við tannaglamur.

Hinsvegar er styttra síðan ég lét plata mig í sumarbústað í nóvember... og varð næstum úti þar sem ófært var til og frá áfangastað. Mér fannst eitthvað spennandi við að fara í hrollveðri í sumar-bústað um hávetur. Reyndar skalf ég á beinunum, þar sem kynding var í lágmarki. En minningin lifir.

Hélt í alvöru að ég hefði bæinn útaf fyrir mig. Yrði svona einskonar Palli einn i heiminum. Það er nú öðru nær, samkvæmt því sem ég heyrði í útvarpanu ætlar fjöldinn allur að halda sér heima....

Sendi ykkur öllum mínar bestu og mestu óskir í tilefni helgarinnar. Treysti því og trúi að þið hafið það öll sem allra allra best.Heart

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Á sem betur fer nánast engar minningar frá útisamkomum um verslunarmannahelgi.  Ætla að vera heima eins og venjulega og hafa það huggulegt.

Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.8.2007 kl. 10:36

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Nú er bara að skella sér í næstu flugvél enda komin sól þótt hann blási svolítið   PS,Kaldan hamborgara u, og ég sem er að sjóða Lundann og kjötsúpuna.

Georg Eiður Arnarson, 3.8.2007 kl. 10:44

3 identicon

Það var nú ekkert leiðinlegt og ekkrt kalt í Þjórsárdalnum hér um árið góða mín... það herrans ár 1984.

bestu kveðjur frá okkur úr sveitinni í rokinu. Kolla pé og fam.

Kolbrún Jóna Pétursdóttir (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 11:27

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

já samála... nokkrum stolnum gítörum síðar, einhverjum barsmíðum og ýmiskonar sköndulum komst ég að þeirri niðurstöðu að útihátíðir eru ekki fyrir mig.

Brynjar Jóhannsson, 3.8.2007 kl. 16:25

5 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Kanski merki um þroska að vera heima eða elli hihi

En ég er allavega heima fór á útihátíð á ÁL um helgina og það var búið að hleypa út af elló og karlarnir vitlausi í hana dóttur mína svo við vorum ekki lengi hihi Hún virðist hafa erft frá mér þennan gamla karla segul greyið

Klem og knús frá mér 

Sigrún Friðriksdóttir, 3.8.2007 kl. 21:13

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það er bara gott að vera í sumarbústað heldur en vera að tjalda  eigðu góða helgi

Kristín Katla Árnadóttir, 3.8.2007 kl. 21:30

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Sexý fyrirsögn.......vissirðu það?

Þröstur Unnar, 3.8.2007 kl. 23:52

8 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

mér fannst fyrirsögnin frekar dálítið DRYKKKFELD.... 

Brynjar Jóhannsson, 4.8.2007 kl. 00:19

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

heima er best - ekki síst um verslunarmannahelgi

eigðu góða helgi og góðan bata  

Marta B Helgadóttir, 4.8.2007 kl. 10:09

10 identicon

Heyrðu sólin er í góðum höndum hjá mér ;)

ég skila henni kannski seinna, þar til færðu bara rigningu á litla skerinu elskan 

Sandra (IP-tala skráð) 4.8.2007 kl. 17:14

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Það er gott að vera heima um verslunarmannahelgina eða nálægt sínum nánustu eins og þú! Hafðu það gott.

Edda Agnarsdóttir, 4.8.2007 kl. 21:17

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Im too old for this shit

Jóna Á. Gísladóttir, 5.8.2007 kl. 02:25

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er ekki bærinn bara fullur af fólki? aldrei hægt að treysta því að þetta lið pilli sig út úr bænum

Ásdís Sigurðardóttir, 5.8.2007 kl. 09:01

14 Smámynd: Ásgerður

Fínt að vera bara í útlöndum hehe,,þá þarf ekkert að spá í hvert skal fara,,,ekki það að ég sé vöna að fara neitt svona í seinni tíð,,,,nýt þess bara að vera heima.

Hafðu það frábært með litlunni þinni,,,,kíki á þig þegar ég kem heim.

Knús frá mér

Ásgerður , 5.8.2007 kl. 09:24

15 Smámynd: Sigurður Andri Sigurðsson

Besta ákvörðun sem að ég hef tekið í langan tíma þ,a.s að vera bar í bænum.  Sofna í mínu rúmi með mína sæng.  Ekki í einhverri tjalddruslu sem að hvín í og lekur.

Sigurður Andri Sigurðsson, 5.8.2007 kl. 10:19

16 Smámynd: www.zordis.com

Heima er best, svo er formúlan alveg að skella á!  Sunnudagskveðjur .....

www.zordis.com, 5.8.2007 kl. 11:32

17 Smámynd: Agný

Kveðja frá kongens Köben í 25 stiga hita og sól.....

Agný, 9.8.2007 kl. 10:39

18 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég hef aldrei haft gaman af tjaldútilegum og því síður heillast af útisamkomum. Var að auk svo heppin að eldra barnið mitt er mér sammála. Ligg því flestar nætur heima hjá mér. Held það sé bara helv. gott.

Steingerður Steinarsdóttir, 9.8.2007 kl. 15:16

19 Smámynd: Halla Rut

Heima er best.

Halla Rut , 9.8.2007 kl. 16:50

20 Smámynd: www.zordis.com

Ertu heima eða á leiðinni heim .....  kossar út um allt, aldrei nóg af þeim!

www.zordis.com, 9.8.2007 kl. 22:43

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hljómar voða notalega Heiða mín.  Það er voðalega gott að kúra í sinu eigin rúmi, og með ástvinum sínum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.8.2007 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband