Hallæris amatörar!

Hverju á þetta að koma til leiðar?

Kannski eilítil skemmtun fyrir fólk, sem finnst gaman að fullorðnu fólki í furðufötum með bleikar kollur syngjandi, dansandi og skemmandi.

Djö.... verð ég pirruð, hugsandi til þess kostnaðar sem svona skrípalæti hefur og getur haft í för með sér.

Útkall lögreglu til að mynda, embættið auðvitað rúmlega undirmannað og þegar ég sá í Kastljósi kvöldsins "svartsloppana" hossast ofaná einni teiknimyndafígurunni  og veifandi til hinna.

Hugsaði ég;

-það ætla ég að vona að ekki eigi sér stað í sömu andránni vopnað rán í úthverfi, þar sem oftar en ekki eru unglingsbörn að störfum.

Ég sá leiklistaflokkinn í Kringlunni fyrir skömmu þar sem ég var á labbi með vinkonu minni. Við lítum á hvora aðra vitandi vits að þarna væri einhver hallæris amatöra útfærsla á ferðinni. Einn gargandi, veifandi útí loftið í ljósum jakkafötum og Wham- hárgreiðslan öskraði ennþá hærra.... Við brostum út í annað. Ekki datt okkur í hug að um væri að ræða mótmæli.

Í burtu með þetta lið! Skemmdarvargar og mótmælendur koma engu til leiðar nema kostnaði fyrir þjóðfélagið og bros á andlit þeirra sem veit ekki betur. Eða veit ekki neitt.

 

 

 


mbl.is Áberandi mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Veistu að ég er þér hundraðmilljónsinnum sammála. Sá Kastljósið og skammaðist mín fyrir hönd Rúv, að vera að horfa á aumingja drenginn í viðtalinu.

Þröstur Unnar, 23.7.2007 kl. 22:47

2 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Demm.... Þetta lið verður strax að skjóta!!!

Hlynur Jón Michelsen, 23.7.2007 kl. 22:49

3 Smámynd: Ingunn Ósk Ólafsdóttir

Allir eiga rétt á sinni skodun. Er ekki alveg sammála satt ad segja. Getur verid ad thetta séu amatörar... en eiga rétt á sinni rödd. En ef ad fréttaflutningurinn í kastljósinu í kvöld var ekki "amatör" legur thá veit ég ekki hvad !

Ingunn Ósk Ólafsdóttir, 23.7.2007 kl. 22:55

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ingunn, hver minntist á réttmæti skoðanna? Ekki ég svo mikið er víst! Þetta amatörar eftirlíkingar-orðaval átti ekki við um neitt annað en færa orðin í stílinn.

Það er ekki til neitt sem heitir Amatör eða Professional þegar kemur að mótmælum, ekki frekar en hryðjuverkamönnum.

En allir eiga rétt á sinni skoðun -mikið rétt. Sinni eigin rödd - en engan rétt á að fullnægja sýniþörf og skoðunum með því að eyðileggja og skemma. Og tefja fyrir störfum lögreglunnar...

Heiða Þórðar, 23.7.2007 kl. 23:05

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég átti nú afskaplega erfitt með að skilja megnið af því sem drengurinn sagði í Kastljósinu

Huld S. Ringsted, 23.7.2007 kl. 23:34

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sá ekki Kastljós en finnst þetta Saving Iceland hálf kjánalegt.  En meðan þeir ekki skemma og eyðileggja eru þeir í fullum rétti að halda á lofti skoðun sinni, hvernig sem þeir nú kjósa að gera það.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.7.2007 kl. 00:03

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

Jenný þeir eru að skemma og eyðileggja!

Heiða Þórðar, 24.7.2007 kl. 00:33

8 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Allir hafa rétt á að hafa skoðanir Guð sé lof, en afhverju að skemma og brjóta niður það sem við flest erum að byggja upp.

Arnfinnur Bragason, 24.7.2007 kl. 00:45

9 Smámynd: Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl

sammála seinasta ræðumanni...

Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl, 24.7.2007 kl. 00:57

10 Smámynd: Ásgerður

Mér sýnist þetta vera fólk sem er á einhverju stekara en löglegt er,,,,þetta er bara orðið of langt gengið.

Senda fólkið úr landi STRAX

Ásgerður , 24.7.2007 kl. 07:00

11 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Georg Eiður Arnarson, 24.7.2007 kl. 07:01

12 Smámynd: Ásgerður

Heiða,,passaðu þig á sófanum,,og ekki hætt að hreyfa á þér r,,,,,,,  þú gætir fengið eitt eins og mitt

Það var einmitt þess vegna sem ég varða að láta hann fara hehe.

Ásgerður , 24.7.2007 kl. 07:10

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég horfði á kastljósið og  ég skyldi varla hvað hann var að segja.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.7.2007 kl. 09:39

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þetta virkar nú ekki alveg fluggáfað lið, hmmmm.   Múg-æsingur bara.

Anna Einarsdóttir, 24.7.2007 kl. 10:22

15 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég bloggaði um sama mál og fékk athugasemdir frá einhverri Evu sem vildi vita hvort ég þekkti fólkið og hvað ég hefði fyrir mér og svo átti ég að rökstyðja eitthvað.  Nenni ekki svoleiðis, þetta eru mínar skoðanir og ég er sammála þér.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.7.2007 kl. 13:37

16 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Fæ á tilfinninguna að fólkinu þykji meira gaman að "dressa sig upp" en mótmæla - en hvað veit ég svo sem..........

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 24.7.2007 kl. 20:11

17 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Sammála.. sammála!

Eva Þorsteinsdóttir, 25.7.2007 kl. 19:18

18 Smámynd: Kristófer Jónsson

vendum landið

Kristófer Jónsson, 25.7.2007 kl. 22:20

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ef þau fá fólk til að hugsa um hvað er að gerast, þá held ég að það sé af hinu góða.   Stundum þarf að gera róttæka hluti til að ná augum og eyrum.  Mér sýnist þau hafa gert það.  Við erum alltof værukær og þetta reddast hugsun.  Þurfum stundum að standa upp og láta í okkur heyra. Þau eru ekki vandamálið, heldur hvernig græðgi og frekja tröllríða samfélaginu okkar í dag. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.7.2007 kl. 08:47

20 Smámynd: Þröstur Unnar

Já Ásthildur rétt hjá þér, þetta með græðgina, en við verðum að fara að landslögum samt, sama hve mikið liggur við. Fólk sem reynir að ná sínu fram með þeim hætti, fær ekki erindi sem erfiði, og ef "þau" fara ekki eftir þeim leikreglum sem við ÖLL setjum okkur þá eru "þau" vandamál, en ekki einhver hópur sem á að hampa.

Þröstur Unnar, 27.7.2007 kl. 08:56

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er mikið rétt, en því miður virðist mér að það séu afar fáir sem fari að lögum, núna nýlega kom í ljós til dæmis að virkjun sem ekki þurfti umhverfismat var byggð of há, og ógnar nú lífríkinu.  Hvernig gat það gerst.  Það skyldi þó ekki vera maður sem þekkti  mann sem vildi gera vini sínum auðveldara að vinna verkin.  Við erum hætt að treysta orðum stjórnmálamanna, vegna þess að við vitum að alltof oft hreinlega ljúga þeir að okkur, stinga skýrslum undir stól, eða hagræða sannleikanum.  Ráðamenn fara nefnilega ekki sjálfri eftir lögunum, nema það henti þeim.  Þetta er hinn napri sannleikur, hann er sár, en það hefur marg oft komið fyrir að það hefur orðið uppvíst um svoleiðis tilfelli.  Nýjasta dæmið sem ég man er til dæmis ríkisborgararéttur handa ungri stúlki, sem í sjálfu sér var svo sem í lagi, ef ráðherra hefði ekki reynt að ljúga sig út úr aðstöðunni.  Og allir vissu að það var gegnum klíkskap sem þetta átti sér stað.  En það er alltaf þagað yfir öllu svona, af því að um stóru  karlana er að ræða, en ekki litla Jón á götunni, sem á að halda lög og reglur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.7.2007 kl. 14:03

22 Smámynd: Halla Rut

Sá Kastljósið og fannst mér það viðtal sem og mörg fleiri við það fólk sem stendur á bakvið þetta allt saman sérlega illa upplýst um það málefni sem er þeim svo hjartnæmt. Talandi um að ál sé notað í flugvélar sem sprengja í Írak og þannig eru álver og virkjanir "morðingjar". En hvað með flugvélarnar sem það flýgur sjálft í eða bílanna sem það ferðast í daglega. Þetta er nú bara svo heimskt að það tekur því ekki að tala um það.

En þau eru nú samt svolítið fyndin og skellihlógum við öll þegar sýnt var frá þessu í sjónvarpinu. En dýrt spaug það. 

Halla Rut , 27.7.2007 kl. 16:01

23 Smámynd: Þröstur Unnar

Ef þú brýtur lög, þá er samt ekki hægt að réttlæta það að ég brjóti á þér.

Ekki sammála um að fáir fari að lögum, held að flest allir geri það, og þeim sem gera það ekki, skal refsað.

Þröstur Unnar, 27.7.2007 kl. 17:18

24 Smámynd: Kristján Eldjárn Þorgeirsson

Það er svolítið skrítið að þetta fólk sé að mótmæla hlutum sem mjög erfitt er að breyta úr þessu.  Ég vil segja það að ég er hlyntur mótmælum, þ.e.a.s. ef þau eru gerð á vitrænan hátt.  Mér þætti nær að Sigurður Harðarson, annars ágætur maður og af góðu fólki kominn, færi með saving iceland hópinn á Þjórsárbakka og mótmælti fyrirhuguðum virkjunum þar, því að nú er tíminn til þess.  Einnig væri möguleiki fyrir Sigurð og félaga að koma í heimasveit Sigurðar og mótmæla nýju miðbæjarskipulagi á Selfossi.  Þar á jú að gera einhvern fáránlegan bæjargarð sem hugsaður er fyrir uppákomur og fíflagang af ýmsu tagi.  Þarna væri frábær vetfangur fyrir þennan hóp að verða fyristu skemmtikraftarnir í þessum bæjargarði,  Þar er nóg pláss og þeir verða ekki fyrir neinum og síðast en ekki síst er nóg af ljósastaurum sem hægt er að hlekkja sig við og fremja annan viðlíka gjörning.

Kristján Eldjárn Þorgeirsson, 27.7.2007 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband