Tilgerðin hryllileg

Það tók mig nákvæmlega 2 klst. og 13 mín. 24 sec. að svæfa dóttur mína núna í kvöld.

Alltaf sami hátturinn á: les þrjár bækur, syng og raula, slekk ljósið og svo kyssi ég hana góða nótt. Þykist sofna.

Svo er það undir litla englakroppnum mínum komið, hversu lengi þessi þykjustunni-leikur stendur yfir. Í kvöld var það langur leikur..... undir þeim kringumstæðum fer hugurinn á flug.

Á meðan litla dísin mín var að telja á sér fingurnar og tærnar, hugsaði ég mikið til ákveðins vinkonuhóps sem ég tilheyrði einhverntíma í fyrndinni.

Við vorum nokkuð margar stelpur og áttum fátt eitt sameiginlegt nema ef vera skildi áhuga á strákum, fötum, tísku og snyrtivörum. Umræðuefnin voru því harla grunn og ekki síst þegar tvær og tvær fóru saman á klósettið og oftar en ekki, gagngert baknöguðu þær stelpurnar sem frammi sátu. Þær sem frammi voru léku sama leik.  Þegar allar voru sestar saman  inn í einhverja stofuna, stofumottan bólgin af illkvittnislegum athugasemdum sem höfðu verið sópað þar undir. Kjaftablaðrinu hafði verið sturtað niður í klósettið.  Var brosað smjaðrað og annað fórnalamb fundið sér til dundurs, að naga og narta í.

Hendur klósettkafaranna voru óþvegnar á meðan þær leituðu í snakkið eða að besta konfektmolanum.

Jebb, svona var þetta og ég dauðskammast mín fyrir að hafa verið í félagsskap sem þessum,  þó mig gruni nú, að flestir tilheyri eða hafi gert, einum slíkum hóp.

Stundum var talað á heimspekulegum nótum um litasamsetningu á varalitum versus fötum. Hvernig ætti að draga athygli að augum osfrv. Ein sem komst í tímabundnar álnir gleymdi einatt verðmiðanum á skónum sínum nú og ef ekki sagðist hafa verð að kaupa sér skó. Og með fylgdi hvað þeir kostuðu. Ef þeir voru dýrir þ.e.a.s.

Tilgerðin var yfirmáta hryllileg. Árin liðu og þegar eitt sinn var smalað saman liðinu og ég varð þess vör að enn fóru þær sömu saman á klósettið, allar komnar yfir þrítugt. Skildu leiðir. Eða leiðir skildu við mig. Mér til mikils léttis.

Við sumar held ég sambandi. Afar fáar. 2-3. Þær vönduðustu verð ég að segja. Ein þeirra er reyndar ein mín besta vinkona.

Hinar eru flognar út í heim eða hafa plantað sér við mosavaxinn eldhúsgluggann og halda tilteknum hætti að ég held. Eitthvað losnaði um tennurnar á einni, mér segir svo hugar að hvorki barneignir eða lélegt mataræði, hafi verið orsakavaldurinn. Öllu heldur innrætið og nartið og nagið.

Leiðir okkar semsé skilja, við þroskuðumst í sitt hvora áttina.

Ég er ánægð í mínu liði. Sef án allrar sektarkenndar og vakna án andúðar við sjálfa mig fyrst og fremst.Halo

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Það er erfitt að eignast góða vini, sem aldrei ljúa, svikja eða særa. Til hamingju með þína bestu vinkonu. kv.

Georg Eiður Arnarson, 23.4.2007 kl. 23:52

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þessi hittir í mark.  Kannast við hópa þessu líka. En það er sem betur fer að baki.

Nigthy

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.4.2007 kl. 23:59

3 Smámynd: Tómas Þóroddsson

góð nálgun á furðulegri hlið kvennkynsins. Er ekki að reyna vera karlremba, en stelpur eru ótrúlegar á unglingsárum, þegar þær eru að þróa bitch-ið í sér

Tómas Þóroddsson, 24.4.2007 kl. 00:28

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér hitnaði allri þegar þú varst að lýsa aðferðafræðinni við að sofna, telja tær og fingur, tegja sig á allan kanta á meðan mamma þóttist steinsofa, óóóó þetta voru yndislegir tímar

Ásdís Sigurðardóttir, 24.4.2007 kl. 00:48

5 Smámynd: Ólafur fannberg

Ólafur fannberg, 24.4.2007 kl. 02:07

6 Smámynd: Saumakonan

Komdu fram við aðra eins og þú myndir vilja að aðrir kæmu fram við þig.... mottó sem vert er að fara eftir   Eigðu góðan dag ljúfan

Saumakonan, 24.4.2007 kl. 08:02

7 identicon

Þú ert góð sál í flottum kroppi Heiða mín

Þó svo að þú hafir tínt hringnum góða, forðum daga.

Jói Dagur

Jói Dagur (IP-tala skráð) 24.4.2007 kl. 11:26

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skemmtileg færsla ég hef reyndar ekki tilheyrt svona hópi, var aldrei nógu mikil dúlla og fatafrík til að falla inn í svona hóp.  Man að við stofnuðum saumaklúbb nokkrar konur, þar sem bannað var að tala illa um aðra, og það var lítið gert af handavinnu.  En við vorum í allskonar andlegum umræðum.  Lék mér mikið við stráka þegar ég var yngri.  En átti þrjár vinkonur svona góðar.  En það var aldrei talað um föt og svoleiðis.  Þrjár okkar stofnuðum svo tríó og skemmtum á þorrablótum og árshátíðum.  Það var rosalega gaman.  17 ára fór ég svo á Lýðháskóla í Svíþjóð og síðan til Glasgow sem aupair.  Æskan mín fór í þetta.  Lék mér með dúkkur og allskonar dót upp í hlíð þangað til ég var 16 ára, svo ég var rosalega seinþroska hehehe....

Ein þessara nágranna og vinkvenna er dáin hinar eru mér kærar ennþá.  Og svo tvær aðrar sem ég kynntist í SÍS í austurstræti og sem fylgdu mér síðan til Glasgow.  Við erum ennþá í góðu sambandi önnur býr í Þýskalandi hin er komin heim frá Ísrael þar sem hún settist að um tíma. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.4.2007 kl. 11:35

9 Smámynd: Ester Júlía

Ég held sambandi við aðeins eina af mínum vinkonum úr barnaskóla.  Sambandið er ekki mikið þar sem við höfum farið í ansi ólíkar áttir í lífinu og "vaxið í sundur"  en þó bjóðum við hvor annari í merkisafmæli, brúðkaup og slíkt. 

Einni bestu vinkonu minni í dag , kynntist ég fyrir 13 árum síðan.  Hún heitir sama nafni og uppáhaldsdúkkan mín í barnæsku, og hún á sama afmælisdag og mín kæra mamma.  Skrýtnar þessar tilviljanir .

En æ hvað litla skottið er lengi að sofna.  Ég á einn sem var svona þegar hann var lítill og er svona enn ..tvítugur!  ( hann sofnar þó sjálfur í dag)  

Annars lagast þetta eflaust með tímanum... börn fara í gegnum allskyns tímabil.

Ester Júlía, 25.4.2007 kl. 08:23

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Getur verið að þetta sé eitthvert óöryggi hjá henni ? Annars var ég með svona skottu fyrir dóttur mína í fyrra.  Ég gerði eins og þú lagðist hjá henni og söng, hún fann samt ef ég var óróleg og vakti þá lengur.  Ég bjó til svona okkar eigin vögguvísu þegar stubburinn minn var lítill, og hef notað hana á öll barnabörnin.  Þú ættir ef til vill að koma þér upp sérstakri vísu sem er bara fyrir hana, sem hún lærir að þekkja og gefur henni ró.  Það er vísan um hann Úlla Búlla Bí.   Amma viltu syngja um hann Úlla Búlla Bí var oft sagt.  Nú eru þau orðin 8 og 10 ára og sofna sjálf. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.4.2007 kl. 09:33

11 identicon

Hvenær er ekki nóg að setja söngvaborg í og svæfa börnin?? Eða túnast þau upp af þessu drasli??

Fowler (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 11:28

12 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Mér gekk alltaf miklu betur að svæfa tok ca 15 minutur til halftíma þá var ég sofnaður og afkomendurnir komnir framm

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.4.2007 kl. 18:29

13 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Stelpur á þessum aldri geta greinilega verið hinar mestu nöðrur. Gott hjá þér að þroskast frá þessu mentalíteti.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 26.4.2007 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband